Morgunblaðið - 03.01.1996, Side 1

Morgunblaðið - 03.01.1996, Side 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 BLAD f EFNI Fréttaskýríng 3 Heimamenn um borð Markaðsmál 6 Jafnt og stöðugt framboð af fiski úr N-Kyrrahafi S]ómfnjar 7 Skipsbjalla tog- ara sem fórst 1955 komin á safn í Grimsby í EYJUM UM ÁRAMÓT • Þ AÐ var rólegt um að litast við höfnina í Vestmannaeyjum um áramótin eins og annars staðar í Morgunblaðið/Sigurgeir. verstöðvum. Myndin er tekin við dimmumótin næstsíðasta dag nýliðins árs. 25% verðmætaaukning í útflutningi á rækju Heildarútflutningsverðmæti rækju- afurða gæti numið 15,5 milljörðum króna á nýliðnu ári að sögn Péturs Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Pélags rækju- og hörpudiskfram- leiðenda. Samkvæmt þessu er um 25% verðmætaaukningu að ræða á milli áranna 1994 og 1995 á verðlagi hvors árs. Rækjuafurðir fluttar útfyrir 15,5 milljarða Útflutningsverðmæti rækjuafurða nam 12,4 milljörðum króna árið 1994 en það ár var hlutur þeirra af heildarút- flutningsverðmæti sjávarafurða 14,5%. Sé miðað við að það hafi haldist óbreytt á nýliðnu ári eða um 86 milljarðar mun hlutur rækjuafurða hækka í 18%. Ljóst er að í fyrra var rækjan annar helsti nytjastofn landsmanna þriðja árið í röð. Mikill afli og hærra verA Helstu ástæður fyrir bættri afkomu rækjuútgerðar og -vinnslu eru góður afli síðastliðin tvö ár og verðhækkun. Rækjuverð var orðið mjög lágt um mitt ár 1994 en síðan hefur það.hækk- að um 58%. Enn er rækjuverðir þó aðeins 72% af því sem það var hæst árið 1986. „Það ríkti hallæri í greininni í sjö ár, frá 1987 til 1994 og því fínnst mér að rækjuframleiðendur ættu skilið að fá núna sjö góð ár. Spurn eftir rækj- unni hefur verið mikil og jöfn upp á síðkastið en það er þó ákveðin pressa á rækjuframleiðendur að lækka verðið. Það hefur til dæmis lækkað lítillega á síðustu tveimur mánuðum. Hagur greinarinnar er nú almennt orðinn góð- ur en þó er greinilegt að hækkunin hefur mun fremur skilað sér til útgerð- arinnar en vinnslunnar í landi. Barátt- an um hráefnið er mikil og það hefur víða hækkað um rneira en þessi 58%.“ Gott útlit á rækjumörkuðum Um 90% af rækjuútflutningnum fer til Bretlands og Danmerkur og segir Pétur að vel horfi á þeim mörk- uðum. „Ég á von á því að hið háa rækju- verð haldist óbreytt um sinn en menn verða þó að átta sig á því að það verð- ur ekki fyrirhafnarlaust. Framleiðend- ur og útflytjendur verða nú að leggja meiri áherslu á markaðssetningu en gert hefur verið hingað til. Mikilvægt er að skapa rækjunni sess í hugum neytenda en það er að mínu áliti forsenda þess að verðið haldist hátt. Félag rækju- og hörpudiskfram- leiðenda hefur til dæmis haft frum- kvæði að samnorrænu markaðsátaki í Þýskalandi og fyrstu niðurstöður þess benda til að það hafi skilað miklum árangri," segir Pétur. Fréttir Markaðir Selja fyrir marga aðila • NÝLIÐIÐ ár var gjöfult fyrir Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna að því er Friðrik Pálsson segir í samtali við blaðið. Fyrirtækið selur nú afurðir fyrir um fimmtán þýsk, rússnesk og færeysk frystiskip og hefur það styrkt sölunet fyrirtækisins mjög. „Kaup SH á verksmiðju Faroe Seafood í Grimsby munu tvöfalda veltuna þar og þar af leiðandi styrkja stöðu SH á breska markaðn- um og gefa aukna möguleika og sóknarfæri á meginland- inu,“ segir Friðrik Pálsson./2 Sjórinn fullur af fiski • EFTIR góða veiði í rúss- . neskri lögsögu í Barentshafi var aflaverðmætið um 50 milljónir króna hjá Akraberg- inu, sem gert er út frá Fær- eyjum, en Samheiji á hlut í skipinu. Halldór Ingvason háseti er einn fimm íslend- inga á Akraberginu og segir hann um aflabrögðin: „Sjór- inn þarna var fullur af fiski.“ Jólin héldu skipveijar á heim- siglingunni, skipstjórinn brá sér í jólasveinabúning, pabbi hans flutti hugvekju og svo sungu skipveijar Heims um ból á færeysku./4 Fjórða stærsta fyrirtækið • GENGIÐ var frá samþykkt- um um sameiningu Fiskiðj- unnar Skagfirðings og Hrað- frystihúss Grundarfjarðar á gamlársdag. Áætluð velta sameinaða fyrirtækisins árið 1996 er 3 til 3A milljarður og verður það með fjórða mesta heildarkvóta íslenskra sjávar- útvegsfyrirtækja. Höfuð- stöðvar fyrirtækisins verða á Sauðárkróki. Starfsmenn verða í kringum 400. Sérhæf- ing verður aukin i landvinnslu þannig að hver fisktegund verður ekki unnin á nema ein- um stað./5 Nýir eigendur að Otto Wathne • TILBOÐI Útgerðarfélags Dalvikinga og Snæfellings hf. í togarann Otto Wathne NS-90 hefur verið tekið, en ekki hefur verið gengið frá kaupunum. Otto Wathne er ekki með veiðileyfi í íslenskri landhelgi. Hann hefur verið gerður út á Flæmingja- grunni mest allt síðasta ár og er hugmyndin að skipið stundi áfram rækjuveiðar á Flæmska hattinum./5 Fiskneyslan lítil í Brazilíu • MARKAÐUR fyrir sjávar- afurðir í Rómönsku Ameríku er að mörgu leyti erfiður og gerir kröfu til góðrar þekk- ingar á aðstæðum í hveiju landi. Eru upplýsingar af skornum skammti og neyslan enn lítil en talið er, að hún eigi eftir að aukast mikið með bættum efnahag í mörg- um ríkjanna. Brazilíumenn eru nærri 165 milljónir tals- ins en neysla þeirra á bol- og flatfiski er þó aðeins 81.000 tonn. I landinu er gamalgróinn markaður fyrir saltfisk en langmestur hluti neyslunnar er þó í frystum flökum. Einnig er töluvert um innflutning á frystum fiski heilum eða heilum og slægðum. Botnfiskneysla í Brasilíu: Afurðaflokkar Aðeins tvær aðaltegundir Botnfiskneysla í Brasilíu: Fisktegundir Þorskur Kyrrahafs- lýsingur Atlantshafs lýsingur Ham/tó. Srouníf/s/i Forum ■ rMstetmirit • ATHYGLI vekur hvað fiskneyslan í Brazilíu byggist á fáum tegundum en segja má, að í aðalatriðum séu þær aðeins tvær, þorskur, sem er rúmur fjórðungur neyslunn- ar og þá aðallega sem salt- fiskur, og lýsingur. Er greint á milli Kyrrahafs- og Atl- antshafslýsings en hlutur þess fyrrnefnda, sem kemur mest frá Chile, er þó liverf- andi. Það er lýsingur frá Argentínu, sem er ráðandi á markaðinum með yfir 70%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.