Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 MARKAÐIR MORGUNBLAÐIÐ Fiskverð heima Fiskverð ytra Faxamarkaður Fiskmarkaður Hafnartjarðar Fiskmarkaður Suðurnesja Aðeins fóm 151,3 tonn af þorski um fiskmarkaðina þrjá hér syðra í síðustu viku. Um Fiskmarkað Hafnarfjarðar fóru 33,7 tonn á 90,07 kr./kg. Um Faxamarkað fóm 19,7 tonn á 73,23 kr./kg og um Fiskmarkað Suðurnesja fóm 98,0 tonn á 94,73 kr./kg. Af karfa vom seld alls 5,7 tonn. I Hafnarfirði á 69,00 kr. (0,11), á Faxagarði á 37,00 kr. (0,11), en á Suðurnesjum seldist karfi á 57,66 kr. (5,41). Af ufsa vom seld alls 1,7 tonn. í Hafnarfirði á 39,00 kr. (0,11), á Faxagarði á 32,00 kr. (0,11) og á 57,28 kr. hvert kíló á Suðurnesjum (1,61). Af ýsu voru seld 70,1 tonn á mörkuðunum þremur hér syðra og meðalverðið 93,58 kr./kg. 37,00 80 70 60 32,00 Ufsi Karfi Þorskur Karfi Ekki bárust upplýsingar um sölur í Bretlandi í síðustu viku. Ekki bámst upplýsingar um sölur í Þýskalandi í síðustu viku. Jafnt og stöðugt framboð af fiski úr N-Kyrrahafi ■■■■■■■■■■■■■■^■^■^* FRAMBOÐ af fiski úr Yfirleitt gott ástand JSSSSÍSaÍSS á flestum fiskstofnum /rum <® buist er við, að svo verði áfram. Er kvóti Bandaríkjamanna í Alaskaufsa um 1,3 milljónir tonna en hann skiptist annars vegar í strandkvóta, 35%, og hins vegar í úthafskvóta, 65%. Búist var við, að veitt yrði upp í allan kvótann í ufsanum og öðrum tegundum nema sólflúru en þar hefur mikill auka- afli valdið vandræðum. Jöfn og góð veiði á Alaskaufsa á síðasta ári bendir til, að kvótinn verði sá sami á þessu ári og nú er að koma inn í veiðina mjög sterkur árgangur frá 1989. Þá er árgangurinn frá 1992 einnig yfir meðallagi. Um þessar mundir, nú í janúar, er fyrri hrognavertíðin á ufsanum að hefjast en sú síðari verður í ágúst-september. Stendur hún í stuttan tíma í hvort sinn vegna þess hve flotinn er stór og sóknargetan í raun allt of mikil. Nýlegar rannsóknir innan bandarísku lögsögunnar sýna, að á sumum svæðum hefur ufsastofn- inn tvöfaldast en ekki er búist við, að þessara niðurstaðna muni gæta í kvótanum alveg á næstunni. Er það meðal annars vegna þess, að sett hefur verið þak á heildaraflann samtals í öllum tegundum og er það tvær milljónir tonna. Það er því erfítt að auka kvótann í einni án þess að minnka hann í annarri. Hefur þetta til dæmis valdið því, að kolaaflinn er líklega ekki nema þriðjungur þess, sem hann gæti verið enda standa kolastofnarnir mjög 'vel. Framseljanlegir kvótar Mikið hefur verið rætt um að koma á framseljanlegum kvótum í ufsanum og er almennt álitið, að það muni verða til að auðvelda stjómun veiðanna. Er búist við, að af þessu verði 1998. Þorskkvóti Bandaríkjamanna í Norður-Kyrrahafí á liðnu ári var 250.000 tonn og hefur hann verið að aukast á síðustu árum. Kvóti Bandaríkjamanna og Kanada- manna í lýsingi var rúmlega 250.000 tonn og eru veiðamar ein- göngu stundaðar á vorin og sumr- in., í þessum veiðum hefur verið komið á einstaklingsbundnum Noregur kvótum. Allnokkuð var um það, að lýsingurinn væri flakaður en nú fer hann að langmestu leyti í surimi. Hefur samdrátturinn í flakaframleiðslunni valdið aukinni eftirspum eftir tvífrystri ufsablokk í Evrópu. Taldar eru líkur á, að lýsingskvótinn verði aukinn nokk- uð á þessu ári. Ufsakvóti Rússa 2,3 mllljónir tonna Kvóti Rússa í Alaskaufsanum var um 2,3 milljónir tonna á nýl- iðnu ári og í Kyrrahafsþorski 186.000 tonn. Þar að auki mátti veiða 64.000 tonn í tveimur öðrum þorsktegundum og flyðru- og lúðukvótinn var tæplega 120.000 tonn. Rússar úthlutuðu erlendum ríkj- um 340.000 tonnum af ufsakvótan- um. Er þar aðallega um að ræða Kóreumenn, sem heilfrysta fiskinn um borð eða vinna í surimi; Pól- verja, sem vinna ufsann í blokk, og Kínverja, sem em bæði í flökum og surimi. Auk þess em Rússar sjálfír í surimiframleiðslu í sam- vinnu við Japani. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað í rússneska Kyrrahafsflotan- um á skömmum tíma eins og sést á því, að ný verksmiðjuskip, 100 metra löng, em orðin 15 talsins og nýir togarar, 64 metra langir, eru 30. Þá hefur 21 skipi verið breytt og tvö eru sérsmíðuð fyrir surimivinnslu. Verksmiðjuskipin em smíðuð á Spáni og hafa mjög mikla veiði- og vinnslugetu en nýju togararnir vom smíðaðir í Þýskalandi og í Noregi og eru aðallega í Ala- skaufsa, laxi og síld. Engln veiði í „Smugunnl" Flest bendir til, að veiðikvótar Rússa í Norður-Kyrrahafí á þessu ári og veiðin verði svipuð og 1995. Ufsaárgangarnir frá 1989 og 1990 eru sterkir og talið er, að stofninn í Okhotskhafí sé um sjö milljónir tonna. Er útlit fyrir, að hann muni standa vel þar næstu tvö árin en ufsastofninn við Austur-Kamt- sjatka er hins vegar hruninn. Veiðar í „Smugunni", alþjóðlegu hafsvæði í Okhotskhafi, verða lík- lega engar á þessu ári og hafa engar verið frá 1993. 1994 var ákveðið á ráðstefnu, sem Rússar, Kínveijar, Japanir, Kóreumenn og Pólveijar sátu, að ekki yrðu hafnar veiðar fyrr en ufsastofninn þar mældist 1,67 milljónir tonna en hann er nú um ein milljón tonna. Talið er þó líklegt, að þær geti hafist aftur á næsta ári. (Heimild: Groundfish Forum) Hátt þorskverð veldur vandræðum í vinnslunni HÁLFGERT kreppuástand ríkir nú í fiskiðnaðinum í Finnmörk í Noregi og víðar í landinu og hefur fjölda fólks verið sagt upp störf- um. Segja talsmenn fiskiðnaðarins og aðallega frystingarinnar, að ástæðan sé einfaldlega allt of hátt verð á þorskinum. Fiskvinnslan í Finnmörk hefur að undanförnu sagt upp 650 manns og eru sumir farnir að líkja ástandinu við það, sem ríkti á siðasta áratug þegar það var hráefnisskortur en ekki hátt verð, sem vand- ræðunum olli. Er þetta alls ekki bundið við Finnmörk eina, heldur er sama staða uppi í vinnslunni suður með allri ströndinni. Talsmenn vinnslunnar krefjast þess, að lögum, sem ætlað er að tryggja sjómönnum lágmarksverð á fiski, verði breytt og þá þannig, að tillit sé tekið til verðþróunar á mörkuðunum. Benda þeir á, að verð á frystum þorskafurðum hafi verið á niðurleið og hafi lækkað um allt að þriðjung frá því það var hæst. Ástæðan fyrir því sé svo aftur, að vegna lítils þorskframboðs á undanförnum árum hafi neyt- endur á erlendum mörkuðum vanið sig á aðrar fisktegundir og láti sér vel líka. Þá er til dæmis átt við tegundir eins og Alaskaufsa, hokinhala og lýsing og það hefur gengið illa að vinna þorskinum aftur sinn gamla sess. Venjulegir neytendur setja ekki alltaf gæðin efst á blað, heldur verðið. Alaskaufsinn: Þúsundir tonna 2.520 2.500 Afli og aflahorfur 1993 -1996 Litlar breytingar milli ára r • J Japan wm Veitt á alþjóðl. hafsvæðum 382 - 200 200 200 □Ob 1993 1994 1995 1996 300 300 'I «£ ■ -22 1993 1994 1995 1996 Fiskneysla Botnfiskneysla í Mexíkó: Afurðaflokkar Fryst flök 10% Ferskflök Saltfiskur 4» Oplægður akur í Mexíkó ÞÓTT Mexíkó eigi langa strand- lengju jafnt að Kyrrahafi sem Karíbahafi er neysla sjávaraf- urða í landinu ákaflega lítil og næstum eingöngu við sjávarsíð- una. Það á við þar sem annars staðar í Rómönsku Ameríku, að uppistaðan í mataræðinu er kjöt og ávextir og ýmis annar jarðar- gróði. Ef litið er á afurðaflokk- ana þá er neyslan langmest í frystum flökum eða frystum fiski, heilum og slægðum, og síðan í saltfiski. Þriðji flokkurinn er svo fersk flök. Athygli vekur hvað vinnslan eða úrvalið er fábreytt en það virðist þó standa til bóta og ekki síst fyrir áhrif frá NAFTA, fríverslunarbandalagi Bandaríkjanna, Kanada og Mex- íkós. Fisktegundir Botnfiskneysla^-\ í Mexíkó: \ FisktegundirY^, Lýsingur Þorskur Kyrrahafs- lýsingur Atlantshafs- lýsingur Alaskaufsi FJÖLBREYTNIN í fisktegundum er litlu meiri í Mexíkó en annars staðar í Rómönsku Ameríku en það er þó eina landið í heimshlut- anum þar sem alaskaufsinn hefur háslað sér völl. Stafar það vafa- laust af nábýlinu við Bandaríkin og svarar ufsinn til 22% af neysl- unni. Þorskur er 28%, aðallega sem saltfiskur, en lýsingurinn, sá vinsæli og ódýri fiskur, og ýmsar afurðir úr honum bera höfuð og herðar yfir aðrar tegundir. Að sjálfsögðu leggja landsmenn sér til munns fleiri fisktegundir en hér eru nefndar en áreiðanlegar upplýsingar um það eru ekki fyr- ir hendi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.