Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 8
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 Venus kominn heim eftir viðgerð og endurbætur FRYSTITOGARINN Venus kom til landsins á Þorláksmessu eftir miklar endurbætur í Póllandi. Nýr fiskvinnslubúnaður verður settur í skipið í Hafnarfirði og áformað er að það geti hafið veiðar eftir rúman mánuð. Lætur nærri að kostnaður við viðgerð og endurbætur nemi hálfum milljarði króna. Heildarkostnaðurinn nálgast 500 milljónir Togarinn skemmdist illa í eldi í apríl 1994, en hann lá þá við bryggju í Hafnarfirði. Illa gekk að ráða niðurlög- um eldsins, enda náði hann að læsa sig í einangrun milli þilja. Skipið var svo illa farið eftir eldsvoð- ann að eigandi skipsins, Hvalur hf., velti því fyrir sér að kaupa annað í staðinn. Ekkert varð þó úr því og í mars síðastliðnum var togarinn sendur til viðgerðar hjá Nauta skipasmíðastöð- inni í Gdansk í Póllandi. Var hann m.a. lengdur um níu metra og innrétt- aður upp á nýtt. Skipt var um skrúfu, skrúfuhring, ljósavél og gír við aðal- vél. Þá var millidekk hækkað um 40 sentimetra og skipið málað og sand- blásið að innan. Nýr fiskvinnslubúnaður Eftir áramót hefst vinna við að setja nýjan fiskvinnslubúnað í skipið og mun Marel hf. annast það verk að sögn Kristjáns Loftssonar, framkvæmda- stjóra Hvals. Hann segir að heildar- kostnaður við framkvæmdirnar nálgist nú 500 milljónir króna, en heildartjón- ið, sem varð í eldsvoðanum, var metið á 200 milljónir. Áætlað er að fram- kvæmdum Ijúki í lok janúar eða byijun febrúar og verður skipið þá strax sent á veiðar. FÓLK Stjóraar skrif- stofu ÍS í Tókýó • í BYRJUN ársins opna ís- lenskar sjávarafurðir sölu- skrifstofu í Tókýó. Teitur Gylfason, sem um ára- bil hefur verið deildarstjóri í söludeild ÍS í Reykjavík, hefur verið ráðinn til að Teitur veita skrif- Cylíasou stofunnj fm_ stöðu. Teitur hefur mikla reynslu af viðskiptum við markaðina í Austurlöndum fjær, en sala þangað hefur verið eitt af meginmarkmiðum söludeildar ÍS í Reykjavík. Tvær meginástæður eru fyrir því að IS opnar nú skrif- stofu í Japan. Viðskipti við Japan og önnur lönd í A-Asíu hafa vaxið ár frá ári, þannig að svæðið er nú næst stærsti markaður ÍS, á eftir Evrópu, en á undan Bandaríkjunum. í annan stað mun skrifstofan í Japan gegna lykilhlutverki við sölu á afurðum frá UTRF í Petropavlosk. Teitur er fæddur árið 1961 í Mosfellssveit og er því 34 ára gamall. Hann lauk stúdentsprófí frá Menntaskól- anum við Sund og prófi frá Fiskvinnsluskólanum i Hafnarfirði 1984. Hann var verkstjóri í Frystihúsi KEA á Dalvík frá 1983-85 en hóf síðan störf hjá sjávarafurða- deildinni. Hann vann fyrst við framleiðslustjórnun og vöru- þróun en frá árinu 1988 hefur hann séð um sölu til Austur- landa fjær. Teitur er kvæntur Soffíu Friðbjörnsdóttur, framleiðslustjóra hjá IS, og eiga þau tvær dætur. Forstöðumaður söluskrifstofu SH á Spáni • HJÖRLEIFUR Ásgeirs- son sjávarútvegsfræðingur hefur verið ráðinn til að veita söluskrif- stofu Sölu- miðstöðvar hraðfrysti- húsanna á Spáni for- stöðu. Áætl- að er að starfsemi skrifstofunn- ar hefjist snemma á árinu. Hjörleifur er 33 ára. Hann lauk stúdentsprófi frá MS og stundaði nám í sjávarútvegs- fræðum í Tromsö 1986- 1991. Hann hefur starfað á söluskrifstofu SH í París frá því á árinu 1991 og hefur annast sölu til Spánar og Port- úgals. Hjörleifur er kvæntur Maríu Purificacion Luque Jimenz og eiga þau saman tvö börn. Eldingunni breytt í skemmtibát • ÞORGEIR Jóhannsson hefur keypt Eldinguna, sem í eina tíð var björgunar- og aðstoðarskip fyrir íslenska síldveiðiflot- ann. Eigandi, skipstjóri og aðalkafari þá var Haf- steinn Jó- hannsson, oftast kennd- ur við Eldinguna, en hann er bróðir Þorgeirs. Hafsteinn býr nú í Noregi og fyrir nokkrum árum sigldi hann á seglskútu sinni kringum jörðina. Þorgeir vinnur að miklum endurbótum á nýju Elding- unni, sem svo var kölluð, og leysti eldra skip af hólmi síð- ustu síldarárin. Meðal annars verður skipt um brú á skipinu. Þorgeir hyggst gera skipið að alhliða dráttarbáti og um leið að skemmtiskipi t.d. til hvala- skoðunar og til að halda grill- veislur um borð. Hann reiknar með að fjögurra manna áhöfn verði á skipinu. Samkvæmt Ægi var skipið smíðað í Kópa- vogi árin 1965-67 eftirteikn- ingum að kanadískum tundur- skeytabáti og á að vera tilbúið eftir breytingar í apríl í vor. Flotastjóri á Kamtsjatka • MAGNÚS Guðmundsson hefur verið ráðinn flotastjóri vegna hins stóra verkefnis Is- lenskra sjáv- arafurða fyr- ir rússneska útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækið UTRFí Petropav- losk. Veiðifloti fyrirtækisins eru 2 norsk- byggðir frystitogarar, 65 metra, fjórir rússneskbyggðir frystitogarar, 50 metra, fjögur rússneskbyggð verksmiðju- skip, 160 metra, og um 16 minni veiðiskip, sem veiða fyr- ir verksmiðjuskipin. Þorgeir Jóhannsson Magnús Guðmundsson Grillaður ferskur lax Aðstoðarskip fylgi flotan- um á fjarlægum slóðum Á NÝAFSTÖÐNUM félagsfundi vélstjóra á fiskiskipum var skorað á Alþingi að breyta lögum um Lífeyrissjóð sjómanna á þann veg að fulltrúa tilnefndum af Vélstjórafélagi íslands verði tryggð seta í stjórn ráðsins. Geti Alþingi ekki fallist á þessa tillögu lagði fundurinn til að lögum um sjóðinn verði breytt á þann veg að þeim félagsmönnum VSFÍ sem ráðnir eru á íslensk skip sé ekki gert skylt að greiða í Lífeyrissjóð sjómanna. UA selur Hrímbak EA ÚTGERÐARFÉLAG Akur- eyringa hf. hefur gert samning um sölu á Hrímbaki EA, einum togara félagsins. Gunnar Ragn- ars, framkvæmdastjóri ÚA stað- festi þetta í samtali við Morg- unblaðið en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið að svo stöddu, þar sem enn ætti eftir að staðfesta samninginn. Hrímbakur EA var fyrr i vetur leigður til Básafells hf. á ísafirði og hefur verið gerður út á rækju- veiðar þaðan og verður þar eitt- hvað fram á nýja árið. Hrímbakur EA er um 750 brúttórúmlestir að stærð og tæp- ir 52 m að lengd. Skipið kom nýtt til Stokkseyrar árið 1977 og hét þá Bjami Heijólfsson en þaðan keypti ÚA skipið. Þá var skorað á stjórnvöld og stjórn- endur Landhelgisgæslu íslands að tryggja að aðstoðarskip fylgi flotanum þegar hann stundar veiðar á fjarlægum miðum. í greinargerð með áskoruninni segir að síðastliðin tvö sumur hafi aðstoðar- skip fylgt togaraflotanum norður í Smugu. Það hafi gefist vel og í ljósi þess telji fundurinn að nauðsynlegt sé að aðstoðarskip fylgi einnig flotanum þegar hann stundar veiðar á öðrum fjar- lægum miðum, t.d. á Reykjaneshrygg. Loks skoraði fundurinn á stjórn fé- lagsins að hefja þegar í stað undirbúning að hækkun hlutaskipta vélstjóra á fiski- skipum og gera þá kröfu að forgangs- kröfu í næstu kjarasamningum. „í fyrsta lagi eru yfirstýrimaður og yfirvélstjóri með sama aukahlut í dag,“ segir Helgi Laxdal, formaður VSFÍ. „Yfirvélstjórinn þarf samt rúmlega þre- falt lengri námstíma en yfirstýrimaður og ber lagalega ábyrgð á því að lögskip- uðum skoðunum sé framfylgt, viðhaldi skipsins og vélbúnaði. I öðru lagi eru er hlutur yfirvélstjóra hærri en yfirstýrimanns hjá nágranna- þjóðum, t.d. á rækjutogurum Færeyinga og Grænlendinga. I Noregi er launaröðin skipstjóri, yfirvélstjóri, fyrsti vélstjóri og síðan kemur yfirstýrimaður. með kapers og pipar JL JL JL LAX hefur löngum þótt hreinasta sælgæti, enda er hægt að framreiða hann þannig að flestum liki. Leifur Kolbeins- son' yf'vmatreiðslumaður á La Prima- vcra, verður sælkerum Versins innan handar að þessu sinn}. Leifur segir að rétturinn sé tílval- inn sem forréttur en einungis þegar fáir eru í mat, þar sem rétturinn er bakaður á diskum inni í ofni. í uppskriftina þarf: Ferskan lax. Salt og pipar. Jómfrúarolfu. Marineraðan grænan pipar. Stóran kapers. Sítrónu. Laxinn er skáskorinn i þunnar sneiðar. Mjög þunnt lag af olíu er sett á diskinn og yfir er stráð salti og pipar. Laxinum er raðað á diskinn og á að hy|ja hann upp að diskbrún. Því næst er iaxinn penslaður með olíu, sítróna kreist yfir og u.þ.b. 10 piparkornum og 15 kaperskornum stráð yfir. Látið marinerast í um 5 mínútur. Hitið ofninn á meðan á fullum hitá, með grílli ef hægt er. Disknum er skellt inn í heitan ofninn í 30 sekúndur og borínn strax fram. Best er að qjóta réttarins með góðu hvftvini, Ld. Pinot Grigio, að slign Leifs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.