Morgunblaðið - 05.01.1996, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Föstudagur5 .janúar 1996
—
Blað D
Meiri þekking
nauðsynieg
NU er tími endurmenntunar
og sérhæfingar runnin upp hjá
lagnamönnum, segir Sigurður
Grétar Guðmundsson í þættin-
um Lagnafréttir, þar sem
hann fjallar um, hvað sé
framundan á vettvangi
lagnamála. / 6 ►
Staðlaðir kaup-
samningar
STAÐLAÐIR kaupsamningar
hafa færzt í vöxt. Að mati
Magnúsar Axelssonar fast-
eignasala hafa þeir valdið and-
varaleysi hjá fasteignasölum,
sem þá nota og um leið rang-
hugmyndum hjá kaupendum
og seljendum. / 15 ►
Ú T T E K T
Fasteignir
\ Flórída
AHUGI Islendinga á fast-
eignum erlendis hefur
vaxið til muna, eftir að
gjaldeyrishömlur á slíkum
kaupum voru afnumdar fyrir
nokkrum árum. Sennilega hafa
þessi kaup verið hvað mest í
Flórída í Bandarikjunum. Þar
eru þau þegar umtalsverð og
eiga vafalítið eftir að aukast
enn á næstu árum, enda verð á
fasteignum þar ótrúleg hag-
stætt á íslenzkan mælikvarða,
Á undanförnum árum hefur
Sigríður Guðmundsdóttir, sem
er löggiltur fasteignasali í
Flórída, selt íslendingum mörg
hús og íbúðir í Mið-Flórída,
þar sem hún er búsett. — Þess-
ar eignir eru nú orðnar um
sextíu, segir Sigri'ður í viðtali
hér f blaðinu í dag.
Þeir Islendingar, sem kaupa
fasteignir í Flórída, eru gjam-
an stórfjölskyldur, það er að
segja afi og amma með upp-
komnum börnum sfnum. Með
því næst góð nýting og um leið
eru það oftast fleiri vinnandi
einstaklingar, sem standa und-
ir kaupunum.
— Byggingareglur hafa ver-
ið hertar mjög í Flórída, eftir
feliibyiinn 1992, segir Stefán
Kjærnested, 24 ára gamall ís-
lendingur, sem er búsettur í.
Miami, en hann er nú verkefn-
isstjóri hjá byggingafyrirtæk-
inu NEXT í Flórída.
— Áhugi Islendinga á hús-
eignum í Flórída fer vaxandi,
segir Stefún. — Hiugað til
liafa það einkum verið einstak-
lingar, sem eignazt hafa hús
og íbúðir þar. Ég tel tíma til
kominn fyrir fag- og starfs-
mannafélög að huga meira að
slfkum kaupum. / 12 ►
Húsbréfin í ár
ýmist til 15,
25 eða 40 ára
Á DÖFINNI er að hafa húsbréfa-
flokkana þrjá á þessi ári og til mis-
munandi langs tíma, það er til 15, 25
og 40 ára. Áformað er að gefa alla
þessa þrjá flokka út í einu og verður
heildarfjárhæð þeirra samtals 13,5
milljarðar kr. í samræmi við fjárlög.
Eftirspurn eftir þessum bréfum
mun síðan ráðast af umsvifum á fast-
eignaiparkaðinum, þannig að þau
koma ekki öll út á markaðinn í einu.
Á síðasta ári voru húsbréfaflokkarn-
ir tveir, en báðir til 25 ára. Sá síðari
var gefmn út, þegar fyrri flokkurinn
var genginn til þurrðar.
Allir skilmálar verða þeir sömu og
á nýliðnu ári nema lánstíminn. Örð-
ugt er að gera sér grein íyrir, hvaða
áhrif hin nýju húsbréfalán til 15 og40
ára muni hafa á fasteignamarkaðinn.
Sumir hafa talið það ókost að hafa
húsbréfin einungis til 25 ára, vegna
þess, hve eignamyndunin er hæg. Nú
geta þeir átt kost á húsbréfum til 15
ára og þá verður eignamyndunin mun
hraðari. Þetta mun vafalítið henta
sumum.
Húsbréfalán til 40 ára munu aftur
á móti létta greiðslubyrðina og gera
þeim auöveldara um vik, sem ekki
hafa treyst sér í íbúðarkaup áður.
Þau ættu líka að gera þeim auðveld-
ara fyrir, sem hafa verið tæpir með
greiðslumat. Eignamyndun með 40
ára lánum verður hins vegar mjög
hægfara, vegna þess að fyrstu árin er
fyrst og fremst verið að borga af þeim
vexti. Þetta er að sjálfsögðu ókostur.
En þá verður að gæta þess, að vaxta-
bætur hækka um leið og vaxta-
greiðslurnar aukast, sem gæti falið í
sér mikið hagræði fyrir marga.
Stærsta spumingin er samt sú,
hver þróunin verður á eftirmarkaði
með húsbréfin, þar sem líklegt er að
ávöxtunarkrafan af þeim verði mis-
munandi eftir því, hvort þau eru til
15, 25 eða 40 ára. Ávöxtunarkrafan
ræður þeim afföllum, sem eru á hús-
bréfunum hverju sinni.
Greiðslubyrði húsbréfalána* m.v.
15, 25 og 40 ára lánstíma * jan.-mars 1996
aðki * Hæsta lán vegna „ .. .
nýbygginga, kr. 6.591.000 . ®reiðsJa
&OXY ;Caa amanuði,
þús. kr.
Hæsta
Hæsta lán vegna
nýbygginga, kr. 6.591.000
15 ár: 44.054 ámán.
25 ár: 32.541
40 ár: 26.888
Hæsta lán vegna kaupa á
eldra húsnæði, kr. 5.493.000
15 ár: 44.054 ámán.
25 ár: 32.541
40 ár: 26.888
vegna endurbóta, kr. 3.294.000
Lægsta lán vegna
endurbóta
kr. 713.000
15 ár: 5.718ámán
25 ár: 4.224.
40 ár: 3.490
-t—ý
0
15 ár
26.418 ámán.
19.514
16.124
25 ar
40 ár
6 milljónir kr.
FJÁRFESTINGAFÉLAGIÐ SKANOIA H F. . LAUGAVEGI 1.70
105 REYKJAVlK, SlMI 58 1Q 700, FAX 55 S8 177
Kostir Fasteignalána Skandia
• Lánstími allt að 25 ár.
• Hagstæð vaxtakjör.
• Minni greiðslubyrði.
• Stuttur svartími á umsókn.
Dæmi um mánadarlegar
ajborganir af1.000.000 kr.
Fasteignaláni Skandia*
U-xtirc’/.) 10 ár 15 ár 25 ár
6,75 11.500 8.800 6.900
7,5 11.900 9.300 7.400
8,0 12.100 9.500 7.700
Miðað cr við jaftigrciðslulán. *Auk vcrðbóta
Sendu inn umsókn eda fádu
nánari upplýsingar hjá
ráógiöfum Skandia.
IpSkandia
Skandia býður þér sveigjanleg
lánskjör efþú þarft að skuld-
breyta eða stœkka við þig
Fyrir hverja eru Fasteignalán Skandia?
Fasteignalán Skandia eru fyrir,alla á stór-
Reykjavikursvæðinu sem eru að kaupa
sér fasteign og:
• Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki
nægilega hátt lán í húsbréfakerfinu.
• Þá sem vilja breyta óhagstæöum
eldri eða styttri lánum.
• Þá sem eiga lítið veðsettar,
auðseljanlegar eignir,
en vilja lán til annarra
fjárfestinga.