Morgunblaðið - 05.01.1996, Síða 2

Morgunblaðið - 05.01.1996, Síða 2
2 D FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Spáir hækkandi verði á þessu ári VERÐ á fasteignum var stöðugt á síðasta ári. Þó að vart hafí orðið við einhveija nafnverðslækkun, þá vó það á móti, að gengi á húsbréfum var með hagstæðara móti. Raunverð hélzt því nokkuð stöðugt. Kom þetta fram í viðtali við Jón Guðmundsson, fasteignasala í Fasteignamarkaðnum og formann Félags fasteignasala. — Markaðurinn tók svolítinn kipp, þegar lánshlutfaliið í húsbréfakerfinu var hækkað úr 65% í 70% hjá þeim, sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, sagði Jón. — Batamerkin í þjóðfélag- inu eru líka greinileg og þau hafa að sjálfsögðu jákvæð áhrif á fast- eignamarkaðinn. Reynslan er samt sú, að sveiflur í efnahagslífinu koma seinna fram á fasteignamarkaðnum en annars staðar, þar á meðal verð- breytingar, hvort heldur til hækkun- ar eða lækkkunar. Ef að líkum lætur þá á fasteigna- verð eftir að hækka á þessu ári. Það má sjá ýmis teikn á lofti i þá veru. Markaðurinn var að mínu mati mun líflegri síðari hluta nýliðins árs en fyrri hlutann. Það virðist benda til þess, að það sé að skapast meira jafnvægi á milli framboðs og eftir- spumar. Þá gæti verð hækkað, en framboð á fasteignum hefur lengi verið miklu meira en eftirspum. Nýir húsbréfaflokkar — Auk húsbréfa til 25 ára eru nú að koma fram tveir nýir flokkar hús- bréfa, það er til 15 og 40 ára, sagði Jón ennfremur. — Þá mun fólk eiga meira val. Það gæti orðið til þess að hleypa enn meira lífi í markaðinn. Þeir eru margir, sem ekki hafa viljað skulda til 25 ára, vegna þess hve eigna- myndunin er þar hæg. Með húsbréfum til 15 ára gefst möguleiki á örari eignamyndun. Þetta myndi einkum henta þeim sem standa í eignaskiptum og eru að stækka við sig. Húsbréfalán til 40 ára ættu einnig að gera mörgu fólki auð- veldara um vik að kaupa íbúð vegna léttari greiðslubyrði og þau ætti líka að gera þeim auð- veldara að kaupa, sem hafa verið tæpir með greiðslumat. Það er hins vegar mikil spum- ing, hver þróunin verður á eftir- markaði,N þegar ný húsbréf koma fram, en þeirri þróun ræður auðvitað markaðurinn. — Það seldist mikið af atvinnuhús- næði á síðasta ári og þar hefur dreg- ið mikið úr umframframboði, sagði Jón Guðmundsson að lokum. — Meira jafnvægi gæti því skapazt á milli framboðs og eftirspurnar og þá gæti verð á atvinnuhúsnæði farið að hækka. MEIRA jafnvægi er að skapast milli framboðs og eftirspurnar og þá gæti verð hækkað, segir Jón Guð- mundsson hjá Fasteignamarkaðnum. Þar er til sölu þetta hús að Vestur- brún 12, vandað hús með tveimur samþykktum íbúðum. SUÐURLANDSBRAUT 14. 3. HÆÐ (HUS B&L) ® 5 888 222 FAX 5 888 221 Einbýli - raðhús Kóp. Lindasmári Rauðalækur. Mish, í fjóroýnsn. auk bíisk. Verð 9,5 millj. ■ m 3ja herb. glæsieign Vorum að fá raðhús sem er ca 190 fm á tveimur hæðum. Verð 13,8 millj. |i Áhv. 6,2 millj. Grasarimi. Fullb. vandaö parh. á tveimur hæðum ásamt bílsk. ca 170 fm. Áhv. 4-5 millj. Verð 12,6 millj. Bústaðahverfi. Raðh. á tveimur hæöum auk kj. við Tunguveg. Verö 8,3 millj. Hæðir Hvammsgerði. 3ja-4ra herb. ca 90 fm ib. Sérinng. Suðursv. Eign á vinsælum stað, vel viðhaldið. Verð 7,5 millj. Áhv. 4,4 millj. Hverafold 116 - hæð + aukaíb. Fullb. og vönduð eign. Verö i' 13,0 millj. B Nökkvavogur - 3ja. Stór ca 100 fm björt kjíb. í toppástandi. Verð 6,8 millj. Áhv. ca 3,6 millj. Hamrahlíð. Tll sölu falleg og björt 3ja herb. ca 80 fm íb. á jarðhæö. Skipti á 4ra-5 herb. íb. á sömu slóöum sem má kosta allt að 9 millj. Verð 6,5 millj. Áhv. ca 4 millj. Ofanleiti - laus strax. gós ca 90 fm ib. á 1. hasð. Verð 8,? millj. 4ra herb. Sólheimar - skipti á minni. 4ra herb. 100 fm íb. á 3. hæð ásamt bílsk. Gott útsýni til allra átta. Stórar suðursv. Pvherb. í íb. Áhv. 2,3 millj. Verö 10,3 millj. Álfaskeið - Hf. 4ra-5 herb. ib. með bílsk. Falleg íb. Verð 8,5 millj. Áhv. 4,5 millj. Inn við Sund. Góð 4ra herb. íb. á 1. hæö. Verö 7,5 millj. Spóahólar - m. 35 fm bílskúr. Vðnduö 4ra herb. Ib. á 1. hæð. Laus strax. Vesturbær. Falleg ca 105 fm íb. á 2. hæð í nýl. lyftuh. viö Grandaveg. Áhv. ca 4,8 millj. byggsj. Verð 9,9 millj. Jörfabakki. góö 101 im ib. & 1. hæð. Aukaherb. I kj. Verð 7,4 millj. Álfheimar - Rvík. ca 100 im ib. á 3. hæó. Laus strax. Verð 7,3 millj. Vantar allar gerðir Skriflegt verðmat eigna á skrá samdægurs Kjartan Ragnars hrl. jCm Opið laugardag kl. 12-14 Löggiltur fasteignasali. Hraunbær. Falleg ca 80 fm íb. á 1. hæö. Áhv. ca 2,6 millj. Verð 6,3 millj. Skaftahlíð Vorum að fá i einkasölu 2ja herb. i á 2. hæð, endaíb. á efstu hæð. Hús og sameign í góðu ástandi. Verð 5,5 millj. Austurbrún - 2ja. Góö2jaherb. ib. á 2. hæð í lyftuh. Húsvörður o.fl. Áhv. byg- gsj. 3,1 millj. Vallarás. Falleg og rúmg. ca 55 fm íb. á 5. hæð í lyftuh. Suöursv. Parket. Áhv. ca 2,4 millj. Verð 4,9 millj. Gnoðarvogur. Ca 60 fm íb. á 2. hæð í fjölb. Áhv. byggsj. 2 millj. Verð 5,4 millj. Skipti mögul. á 2ja-3ja herb. íb. með bilsk. sem má kosta allt aö 8,5 millj. wmmmsmm Fjallalind - raðhús - Kóp. Einstakl. falieg og vönduð raðhús, fjögur saman, 156 fm til 172 fm á einni hæð ásamt bllsk. Afh. fullb. að utan, fokh. að innan. Verð frá 8,7 millj. Laufrimi - parhús. Til sölu parhús ca 130 fm á einni hæð ásamt bilsk. Afh. fullb. aö utan, fokh. að innan. Verö aðeins 7,9 millj. Byggt í skörðin ÞAÐ er yfirleitt til mikilla bóta, þeg- ar byggt er í auð skörð í miðbæ Reykjavíkur. Götumyndin verður mun fallegri á eftir. Nú hefur Bygg- ingarfyrirtækið Gerpir hf. hafið byggingu á 4ra hæða húsi að Klapp- arstíg 35, en þessi lóð hefur lengi staðið auð. í kjallara verður bílageymsla, en síðan verzlunariými á jarðhæð. Þar fyrir ofan koma þijár íbúðarhæðir með 8 íbúðum. Húsið er hannað hjá arkitektastofunni Arkþingi undir umsjá Guðmundar Kr. Guðmunds- sonar arkitekts. Lyfta verður í húsinu og innan- gengt i hana og upp á hæðirnar úr bílageymslu, en þar verða stæði fyr- ir tíu bíla. Verzlunarplássið verður á götuhæð um 130 ferm., en auk þess verður þar inngangur í íbúðirnar. Þær verða mismunandi að stærð. Á annrri h'æð verður ein 2ja herb. íbúð um 60 ferm. að stærð, ein 3ja herb. um 85 ferm. og ein 4ra herb. íbúð, sem verður um 100 ferm. Á þriðju hæð verða einnig þijár íbúðir, sem verða af sömu stærð. Á fjórðu hæð- inni verða svo tvær þakíbúðir, hvor um 105 ferm. Geymsla á jarðhæð fylgir hverri íbúð og góðar suðursval- ir verða á íbúðunum. Húsið verður einangrað að innan á hefðbundinn hátt en pússað að utan. Búið er að steypa upp bílakjall- arann og áformað að ljúka fram- kvæmdum við húsið í nóvember nk., en íbúðunum verður skilað fullbún- um. Verð á 2ja. íbúðunum er 6,4 millj. kr., á 3ja herb. íbúðunum 8,5 millj. kr. og á 4ra herb. íbúðunum 10,7 millj. kr. Verð á þakíbúðunum er 11,5 millj. kr. Öllum íbúðunum fylgir bflastæði í kjallara. Skortur á nýjum íbúðum í miðbænum Gunnar Rósinkranz, fram- kvæmdastjóri Gerpis, kvað markað fyrir nýjar íbúðir í miðbænum vera góðan, en fyrirtækið hefur á undan- fömum árum byggt mörg íbúðarhús þar. Allar íbúðir, sem Gerpir byggði á síðasta ári í húsi við Skólavörðu- stíg 16A, eru þegar seldar og búið að skila þeim. Byijað var á fram- kvæmdum þar í ágúst 1994 og síð- ustu íbúðunum skilað fullbúnum í haust. — Það hafa þegar komið nokkrar fyrirspumir frá fólki, sem hefur áhuga á að kaupa íbúðir að Klappar- stíg 35, þó að húsið sé ekki komið lengra en þetta, sagði Gunnar. — Framboð á nýjum íbúðum í miðbæn- um hefur verið lítið, en þeir em greinilegar margir, sem vilja búa þar. Reynslan af þeim húsum, sem ég hef byggt í miðbænum undanfar- in ár er sú, að eftirsóttustu íbúðimar seljast gjaman á teikningum, eins og kallað er á fagmáli, það er áður en húsið er fokhelt. Það er alltaf viss hópur, sem vill búa í miðbænum, enda hefur það marga kosti. Þeir sem vinna í mið- bænum þurfa miklu síður að eiga bíl, en fara fótgangandi í vinnu og á aðra staði þar. Margir kunna ein- faldlega bezt við sig í miðbænum, enda hefur hann ávallt haft mikið aðdráttarafl bæði fyrir ungt fólk og þá sem eldri em. — Ég geri mér því góðar vonir um, að það verði ásókn í íbúðimar að Klapparstíg 35, sagði Gunnar Rósinkranz að lokum. — Ég tel, að það muni ekki draga úr eftirspurn eftir nýjum íbúðum í miðbænum í framtíðinni. Því hef ég þegar fengið augastað á annari lóð þar til þess að byggja á innan tíðar. Fasteignasölur í blabinu í dag Agnar Gústafsson bls. 7 Almenna fasteignasalan bis. 13 Ás bls. 14 Ásbyrgi bls. 8 Berg bls. 19 Bitröst bls. 8 Borgir bls. 18 Borgareign bls. 2 Eignamiðlun bls. 5 Eignasalan bls. 15 Fasteignamarkaður bls. 10 Fasteignamiðstöðin bls. 16 Fjárfesting bls. 18 Fold bls. 11 Framtíðin bls. 4 Frón bls. 18 Gimli bls. 3 Hátún bls. 12 Húsvangur bls 17 Kjöreign bls. 14 Laufás bls. 19 Sef bls. 4 Skeifan bls. 7 Stakfell tris. 16 Valhöll ws. 6 Þinghoit Ws. 20 Morgunblaðið/Ásdís HÚSIÐ mun standa við Klapparstíg 35. Búið er að steypa bíla- kjallarann, en siðan koma fjórar hæðir, það er verzlunarhæð og þrjár íbúðarhæðir með átta íbúðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.