Morgunblaðið - 05.01.1996, Side 12
12 D FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Vaxandi áhugi
á fasteignum
í Flórída
Fasteignakaup íslendinga í sólarlandinu
Flórída eru orðin umtalsverð, enda verð þar
ótrúlega hagstætt á íslenzkan mælikvarða.
Hér fjallar Magnús Sigurðsson um fast-
eignakaup í Flórída í viðtali við þau Sigríði
Guðmundsdóttur, fasteignasala þar og Stef-
án Kjæmested, verkefnisstjóra hjá bygg-
ingafyrirtækinu NEXT þar í landi.
ASTEIGNAKAUP
íslendinga erlendis
hafa vaxið til muna,
eftir að gjaldeyrisregl-
ur voru rýmkaðar svo
fyrir þremur árum, að
allar hömlur á slíkum
kaupum urðu að kalla
úr sögunni. Þessi áhugi
er ekki að ástæðu-
lausu. íslendingar
ferðast ólíkt meira en
áður var, enda flug-
samgöngur við útlönd
örar og tíðar.
Áhugi fólks er
greinilega mestur á
sólarlöndum eins og
Flórída og Spáni. Erfítt
er hins vegar að gera _sér grein
fyrir fasteignakaupum Islendinga
erlendis, enda eru þau einkamál
hvers og eins. Þau eru þegar um-
talsverð í Flórída og
eiga vafalítið eftir að
aukast enn á næstu
árum.
— Á íslenzkan
mælikvarða er verð á
fasteignum í Flórída
ótrúlega hagstætt,
segir Sigríður Guð-
mundsdóttir, en hún er
löggiltur fasteignasali
í Flórída og búsett í
næsta nágrenni við
borgina Orlando í Mið-
Flórída. — Þar má t.
d. fá fullbúna íbúð fyr-
ir um 2,5 millj. kr., sem
ætti að vera viðráðan-
legt fyrir marga. Enn
viðráðanlegri verða slík kaup, ef t.
d. tvær fjölskyldur kaupa íbúð sam-
an. Þetta getur hentað mörgum
vel, því að auðvelt er að deila afnot-
Sigríður
Guðmundsdóttur.
ÞETTA einbýlishús stendur á golfvelli í Orlando og kostar um 110.000 dollara eða um 7,2 millj.
kr. Það er rúml. 150 ferm. og í þvi eru m. a. stofa, þijú svefnherbergi og tvö baðherbergi.
um húsnæðisins sín á milli, en á
Flórída er sól og sumar í 12 mán-
uði á ári.
— Á Flórída eru samt auðvitað
í boði allar tegundir af fasteignum
á mismunandi verðum eftir stærð,
gæðum og staðsetningu, segir Sig-
ríður ennfremur. — Þar má t. d. fá
nýtt einbýlishús fyrir um 5,5 millj.
kr. Algengt verð er hins vegar um
100.000 dollarar eða um 6,5 millj.
kr. Þar er um að ræða nýtt einbýlis-
hús með þremur svefnherbergjum,
- þar af einu mjög stóru með lúxus-
baði og fataherbergi - stofu, sjón-
varpsherbergi, öðru baðherbergi,
eldhúsi með öllum heimilistækjum,
þvottaherbergi og bílskúr fyrir tvo
bfla. Húsið er fullfrágengið að utan
og innan, en einnig fylgir því frá-
genginn garður. Útborgun í þessu
húsi er ca. 2,3 millj. kr. og auðvelt
að fá hagstæð lán til 15-30 ára.
Sextíu eignir í Mið-Flórída
Á undanfömum árum hefur Sig-
ríður seit íslendingum mörg hús og
íbúðir í Mið-Flórída. — Þessar eignir
eru nú orðnar um sextíu, en fasteign-
ir hér í eigu íslendinga kunna auðvit-
að að vera enn fleiri, því að einhveij-
ir kunna að hafa keypt með aðstoð
annarra fasteignasala, segir hún. —
Flestar eru þessar eignir í hverfínu
Ventura í Orlando, sem er lokað
svæði og með gæzlu. Þangað komast
því engir óboðnir gestir inn. Þetta
er að sjálfsögðu mikill kostur, einkum
ef eigendumir nota húsið einungis
tímabundið og húsið stendur autt, á
meðan þeir em íjarverandi.
í Ventura er stór golfvöllur og
golfklúbbur fyrir íbúana. Þar er
einnig stór og faileg sundlaug. Hús
og íbúðir í hverfinu em á mismun-
andi verðum eftir stærð og stað-
setningu. íbúðirnar em frá 80 ferm.
upp í 170 ferm. og verðið frá 50.000
dolluram upp í 110.000 dollara.
Einbýlishúsin era yfírleitt á tveimur
hæðum og 150-200 ferm. að stærð
fyrir utan bílskúr. Verðið er
115.000-145.000 dollurar, en dýr-
ustu eignirnar era á.nær 200.000
dollara, en þá er um að ræða
270-300 ferm. einbýlishús með
sundlaug og bílskúr fyrir þijá bfla.
Ventura er all stórt hverfí, en
hús og íbúðir þar era um 2000 og
íbúar nú um 7000. Þetta er því eins
og mjög myndarlegur kaupstaður á
íslandi. íslendingamir eru samt
eðli málsins samkvæmt ekki nema
lítill hluti af þessari byggð. Sumir
Islendingamir þar hafa talsvert
samband sín á milli. Aðrir eru meira
út af fyrir sig.
Það er ekki nauðsynlegt að kaupa
i lokuðu hverfi, en ávinningurinn
felst í því öryggi og þeirri öryggistil-
finningu, sem af því hlýzt. I þessu
hverfí og mörgum öðram era öryggi-
skerfin tengd við hlið og lögreglu
og gæzlumenn aka einnig um. Böm-
in í hverfínu kynnast hvert öðra, en
hverfíð er það öraggt, að bömin
geta leikið sér fyrir utan húsin og
svo hittast þau í sundlauginni.
En Ventura er ekki eina vernd-
aða hverfið hér, þar sem íslending-
ar hafa keypt fasteignir. Hin era
Heathrow norður af Orlando og
Kissemi Bay fyrir sunnan Orlando.
Ég hef einnig selt íslendingum
margar eignir út við ströndina,
einkum í kringum St. Petersburg á
vesturströndinni og við New
Smyma og Melbourne, sem era á
austurströndinni,
íbúðir til útleigu
— Nokkrir íslendingar hafa einn-
ig keypt hér íbúðir í íbúðahótelum,
Strangar
bygginga-
reglur í Flórída
BYGGINGAFYRIRTÆKIÐ NEXT, sem Stefán Kjærnested starfar hjá, byggir hús á mörgum stöðum
í Flórída. Þetta hverfí, sem nefnist Boynton Estates, er í smíðum fyrir norðan Fort Lauderdale.
Húsin kosta 7,5 - 10 milij. kr. og eru frá 182 ferm. til 320 ferm. með bílskúr.
BYGGINGAREGLUR eru nú
mjög strangar í Bandarflqun-
um og sérstaklega í Flórída eftir
mikinn skaða, sem hlauzt í fellibyl
1992, segir Stefán Kjæmested, 24
ára gamall íslendingur, sem nú er
verkefnisstjóri hjá byggingafyrir-
tækinu NEXT í Flórída.
Eftir það voru byggingarreglum-
ar hertar n\jög og settir svokallaðar
fellibyljastaðlar, sem við byggjum
eftir. Gluggarnir þurfa t. d. að þola
200 km vind, húsin eru styrkt með
jámi og n\jög strangar
kröfur gerðar um allar
festingar.
Stefán er búsettur
í Miami, en kom hingað
heim í jólaleyfi. Hann
útskrifaðist í fjármála-
fræði frá Boston Col-
lege í maí á nýliðnu
ári og byijaði að starfa
hjá NEXT í september.
— Þetta bygginga-
fyrirtæki byggir aðal-
lega fyrir norðan
Miami, segir Stefán. —
En við byggjum einnig
á ýmsum öðrum stöð-
um í Flórida t. d. í
grennd við borgina
Tampa á vesturströnd-
inni og í grennd við Palm Beach á
austurströndinni.
Hverfið, sem ég vinn við, nefnist
Villas at Wyndham Court og er í
aðeins hálftíma akstursQarlægð frá
flugvellinum í Fort Lauderdale á
austurströndinni, en þangað er
beint flug frá íslandi með Flugleið-
um. Það tekur aðeins 20 mínútur
að aka frá þessu hverfí út á strönd-
ina og nefna má, að einn nýjasti
og bezti golfvöllurinn í Flórída er í
aðeins 1,5 km fjarlægð, en þar hef-
ur verið ákveðið að halda hið árlega
Honda Classic golfmót næstu fímm
árin.
Fjórar tegundir af raðhúsum
í þessu hverfi eru eingöngu rað-
hús af fjórum tegundum. Þau eru
á einni eða tveimur
hæðum og talsvert í
þau lagt. Það minnsta
er með tveimur svefn-
herbergjum, fataher-
bergi, tveimur bað-
hergjum, borðstofu,
stofu og eldhúsi og
einföldum bílskúr.
Sjálf íbúðin er 112
ferm. að stærð og alls
134 ferm. með bílskúr.
Svo eru þama önnur
hús enn stærri, þau
stærstu 234 ferm. með
bílskúr. Ódýrustu hús-
in í þessu hverfi kosta
106.000 dollara eða
um 6,9 millj. kr. og
þau dýrustu um
130.000 dollara eða um 8,5 millj.
kr.
— Þessi hús eru mjög fallega
hönnuð og líta út að utan eins og
spænsk hús, segir Stefán ennfrem-
ur. — Grunnurinn er steyptur en
veggimir hlaðnir og þökin klædd
keramikflísum og bæði falleg og
traustbyggð. Húsum okkar fylgir
fleira en venja er um ný hús hér
heima. Þau era með teppi í stof-
unni, flísar eru í baðherbergjum,
öll eldhúsinnrétting er komin og
einnig eldavél, vifta og ísskápur.
Húsunum fylgir einnig fullgerður
garður. Það eina sem kaupandinn
þarf að gera er að koma húsgögnum
sínum fyrir og setja upp myndir og
annað þess háttar.
Byggingatíminn er 6-12 mánuð-
ir, frá því að kaupandinn undirritar
kaupsamning, en við erum ekki með
mikið af húsum á lager. Þetta eru
ekki Qöldaframleidd hús, að því er
snertir innréttingar. Sumt er eins í
öllum húsunum, en kaupendumir
hafa einnig vaí um margt. Þeir
velja t. d. litinn á húsið. Með litlum
viðbótarkostnaði geta þeir einnig
valið á milli gólfefna, eldhúsinnrétt-
inga, blöndunartaekja, ísskápa o. fl.
Þetta væri auðvitað ekki hægt að
bjóða upp á, ef við byggðum húsin
alfarið fyrir eigin reikning, áður en
þau eru seld.
Lokað hlið
Hverfið verður með lokuðu hliði,
sem íbúamir opna með fjarstýringu.
Alls verða um 170 raðhús í hverf-
inu, en auk þess verður þar sund-
laug og leikvöllur. Fólk gatur líka
komið upp sundlaug eða potti í
garðinum hjá sér, en gera má ráð
fyrir að það kosti um 10.000 doll-
ara eða liðlega 650.000 kr., serri
fólk verður að borga sjálft.
Sameiginlegur kostnaður fyrir
hvert hús verður um 100 dollarar
eða rúml. 6.500 kr. á mánuði. í
þessu gjaldi er innifalið viðhald á
götum hverfisins, þökum húsanna
og málning þegar þarf, ennfremur
öll garðhirða, bæði fyrir sameigin-
leg svæði og eigin garð, en hver
kaupandi á sína lóð, sem raðhúsið
stendur á og einnig hverfið með
öllum hinum.
Eftirlitsmenn frá bæjarfélaginu
koma og taka út og votta hvert
einasta framkvæmdastig. Þegar
grunnurinn er steyptur koma eftir-
litsmennimir og skoða hann og
sama máli gegnir um veggina og
svo koll af kolli. Það má ekki byija
á næsta stigi fyrr en búið er að fá
vottorð um, að það síðasta fullnægi
settum kröfum. Þetta eru mun
strangari reglur en áður tíðkuðust
og húsin því mun betri en eldri hús
og um leið betri kaup í þeim.
Tíu ára húsatrygging
Sjálfir berum við ábyrgð á húsinu
í eitt ár að því er snertir smíði þess.
Framleiðendur á einstökum efnis-
þáttum eins og málningu og flísum
bera einnig sína ábyrgð á þeim.
Mestu máli skiptir samt tíu ára
bein ábyrgð stórs hústryggingafé-
lags, sem við erum aðilar að eins
og flest önnur helztu byggingafyrir-
tækin í Flórída.
Ef fram kæmu skemmdir líkt og
alkalískemmdimar hér heima,
Stefán
Kjærnested.