Morgunblaðið - 05.01.1996, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.01.1996, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 D 15 Eru staðlaðir kaupsamningar hættulegir? Staðlaðir kaupsamningar eru notaðir allt of víða, t.d. í viðskiptum með sérbýli, þótt text- inn eigi eingöngu við fjölbýlishús, segir Magnús Axelsson. Tilurð staðlaðra kaup- samninga varð ekki til að tryggja öryggi í fasteignaviðskiptum. NOTKUN staðlaðra kaupsamninga í fasteignaviðskiptum hefur færst mikið í vöxt og munu langflestir fasteignasalar nota slíka samninga. Nýlega var viðtal í fasteigna- blaði Morgunblaðsins við fram- kvæmdastjóra Félags fasteignasala þar sem því var haldið fram að notkun slíkra samninga yki öryggi í fasteignaviðskiptum. Þessi full- yrðing er afar hæpin. Hvernig urðu staðlaðir kaupsamningar til? Tilurð staðlaðra kaupsamninga varð ekki til að tryggja öryggi í fasteignaviðskiptum. Staðlaðir kaupsamningar eru byggðir á eyðublaði sem Fasteignamat ríkis- ins lét útbúa á sínum tíma til að auðvelda starfsmönnum þess lest- ur upplýsinga sem skrá átti í tölvu stofnunarinnar. Húsnæðisstofnun ríkisins hefur fetað dyggilega í fótspor Fasteignamatsins og eru jafnvel dæmi þess að hún hafi hafnað afgreiðslu mála sem henni hafa borist vegna þess að staðall- inn var ekki notaður, þótt löggern- ingurinn hafi verið fullkomnlega gjaldgengur til að tryggja hags- muni samningsaðila og jafnvel betur en unnt hefði verið í stöðl- uðu formi. Staðlaðir kaupsamningar hafa síðan rutt sér til rúms, ekki vegna þess að þeir séu öruggari en aðrir samningar, heldur vegna leti; vegna þess að sumum finnst fyrir- hafnarminna að fylla út í eyðu- blaðið en að vinna hvern samning frá grunni. Þetta mátti skilja áður en fasteignasalar tölvuvæddust upp til hópa, en á sér enga stoð í dag. Forrit sem samin hafa verið sér- staklega fyrir fasteignasölur hafa einnig dregið dám af þessum stöðl- uðu kaupsamningum þannig að staðan er sú í dag að fasteignasal- ar sem eru flestir ágætlega að sér í fasteignaviðskiptum láta sér sæma að nota í dag samninga sem samdir voru upphaflega af starfs- mönnum FMR og síðar unnir í tölvuforrit af forriturum, hvort tveggja menn með miklu minni þekkingu á fasteignaviðskiptum en fasteignasalarnir sjálfir. Hvar henta staðlaðir kaupsamningar? Staðlaðir kaup- samningar er ágætir þegar tilgreind . við- skipti falla að texta þeirra. Þróunin hefur orðið sú að samning- arnir eru notaðir allt of víða. T.d. í viðskipt- um með sérbýli þótt textinn eigi eingöngu við fjölbýlishús. Jafn- vel í viðskiptum með atvinnuhús- næði þótt varla sé í þeim stafkrók- ur sem Qallar um það. Þá hafa þeir gjarnan verið notaðir í maka- skiptum, sem er að sjálfsögðu ótækt. Ymist vantar þá í samning- ana ákvæði sem nauðsynleg eru eða fjölmörgum ákvæðum er of- aukið. í slíkum tilfellum láta fast- eignasalar sér sæma að upplýsa kaupendur og seljendur um að mik- ill hluti textans í samningnum sem verið er að undirrita eigi ekki við í þessu tilviki og sé bara á blaðinu af því að það sé ætlað fyrir öðru- vísi viðskipti. Traustvekjandi, ekki satt? Staðlaðir kaupsamningar hafa valdið andvaraleysi hjá fasteigna- sölum sem þá nota og um leið rang- hugmyndum hjá kaupendum og seljendum. í hverju felst hættan? Staðlaðir kaupsamningar eru svo algengir að andvaralausir fast- eignasalar gæta þess ekki að oft er nauðsynlegt að taka fleira fram í kaupsamningi en staðlaði textinn gerir. Kaupsamningar eru löggern- ingar til að tryggja ákveðin um- samin réttindi samningsaðila. Til þess að svo geti orðið þarf samning- urinn að endurspegla niðurstöðu viðræðna samningsaðila. Þess vegna er nauðsynlegt að samning- urinn sé bókun á því sem aðilar hans sögðu eða lofuðu. Samningur sem eingöngu geymir sérákvæði og vandlega færðar bókanir um- ræðna, en vísar að öðru leyti til viðskipta- venja á fasteigna- markaði er miklu vandaðri en staðlaði samningurinn án sérá- kvæða. Ranghugmyndir kaupenda og seljenda verða meðal annars til vegna þess að þeir halda að staðlaður texti kaupsamnings sé ófrávíkjanlegur, jafn- vel lögboðinn. Það væri gaman að vita hve margir af þeim sem keypt hafa eða selt fasteign á árinu 1995 vita að ekki er skylda að eldavél fylgi íbúð. Það er ekki skylda að stór inneign í hússjóði fylgi íbúð í fjölbýlishúsi. Afleiðingin er almenn lákúra í samningagerð sem ekki á rétt á sér þegar fjallað er um viðskipti með aleigu fólks. Vita kaupendur og seljendur fast- eigna að sennilega eru til fasteigna- salar í dag sem aldrei hafa samið kaupsamning frá bytjun til enda, aðeins fyllt út í staðlað eyðublað. Því er spurt: „Eru staðlaðir kaupsamningar hættulegir?“ Höfundur er löggiltur fasteigna- snli og rekur fasteignasöluna Laufás. Magnús Axelsson EIGNASALAN tf : símar 551-9540 & 551-9191-fax 551-8585 Æ INGOLFSSTRÆTI 12 - 101 REYKJAVIK. Yfir 35 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar. Magnús Einarsson, löggiltur fasteignasali. Sölum. Svavar Jónss., hs. 553-3363, og Eggert Elíass., hs. 557-7789. Opið laugardag kl. 11—14 Einbýli/raðhús HEIÐARGERÐI - M/2 ÍB. Húseign á góðum og eftirsóttum stað í borginni. Á hæðinni er 4ra herb. íb. og í risinu 2ja herb. íb. m.m. i kj. eru þvottah. og geymsla. Rúml. 40 fm góður nýl. bílsk. fylgir. Ræktuð lóð. KRINGLAN Gott reðh. é fráb. stað í nýja miðb. alls um 263 fm auk 26 fm bílsk. Hagst. éhv. lán. BRÆÐRABORGAR- STÍGUR Lítið eldra einbýlish. (steinh.) byggt fyrir aldamót. 3 svefnherb. og stofur m.m. Verð 8,7 millj. Hagst. áhv. lán. BAKKASMÁRi - PARHÚS Glæsil. parh. á mjög góðum stað. Tlt afh. strax fokh., frág. að utan. Teikn. é skrifst. 4—6 herbergja TJARNARMYRI - 4RA - LAUS Sért. vönduð og skemmtil. ný endaib. á 2. hæð í fjölb. 3 svefnherb. og stofa. Sérþvhérb. f fb. Til afh. strax fullb. án gólfefna. Biiskýii. Við sýnum. HVASSALEITI SÉRH. M/BÍLSKÚR Mjög góð 6 herb. sórh. á frábærum stað í borginni. Bílskúr fylgir auk sórþvottah. og herbergis í kj. ESKIHLÍÐ SALA - SKIPTI 4ra herb. ib. é 2. hæð í fjölb. 2 stofur og 2 svefnherb. m.m. fb. fylgir að auki 12 fm íbherb. tkj. Beln ssla eða sklpti é 3ja harb. í sama hverfi. DALSEL - LAUS Mjög góð 4ra herb. endalb. á 2. hæð í fjölb. Útsýni yfir borgina. Sérþvottah. í ibúðinni. Bílskýli. Til afh. strax. BRAGAGATA Mjög góð 4ra herb. ib. é 3. hæð í stelnh. Miklð útsýnl. ib. er laus. SPÍTALAST. - LAUS Sérl. skemmtil. og vönduð 4ra herb. íb. á hæð í steinh. íb. er 2 stcfur og 2 svefnherb. m.m. Allar innr. og lagnir nýjar. Stórar suðursv. Glæsil. útsýni. Sérþvherb. á hæðinni. Risið yfir íb. fylgir með. Til afh. strax. Viö sýnum. NJÁLSGATA Mjög góð 4ra herb. íb. é 1. hæð í tvíbýlish. Áhv. hagst. langtl. 3ja herbergja GRETTISGATA Tæpl. 80 fm göð tb. á f. hæð i eldra stelnh. Verð 6,2 millj. LAUFASVEGUR 3ja herb. góð íb. á 2. hæð í steinh. rétt við gamla Miðbæjarskólann. íb. er 2 góðar stofur og stórt svefnherb. m.m. Góð eign I hjarta borgarinnar. BERJARIMI - 3JA HAGSTÆTT VERÐ 3ja herb. ib. é 1. hæð í nýju fjölb. íb. er 108 fm og er til »fh. etrax ttlb. u. trév. Bílskýli, Verð 6,9 mlllj. Teikn. 6 skrífst. HÓLAR M/BÍLSKÚR 3ja herb. íb. á 3. hæð (efstu) v/Hrafnhóla. Gott útsýni. Bílsk. 2ja herbergja ORRAHÓLAR Ttl sölu og éfh. fljótt. 2ja herb. kjíb. I lltlu fjölb. Útb. rúml. 2,0 rrtillj. KRÍUHÓLAR Mjög snyrtil. og góð rúml. 20 fm íb. ó 7. hæð í lyftuh. Verð 3,8 millj. VESTURBEKG LAUS 2ja herb. rúmg. tb. é 7. hwð í lyftuh. Góð etgn með hagst. áhv. lénum. Mikið útsýni. Góð samelgn. (b. ertil afh. nú þegar. SEILUGRANDI M/BÍLSKÝLI 2ja herb. sérl. góð og vel umgengin Ib. í fjölb. (b. fylgir rúmg. stæði í btlskýli. Laus. HÖFÐATÚN - HAGSTÆÐ KJÖR 2ja herb. ósamþ. íb. i steinh. Snyrtit. Ib. sem er tll afh. nú þegar. Hagst. kjör t' boði. Atvinnuhúsnæði SMIÐJUVEGUR - KÓPAVOGI 209 fm atvinnuhúsn. á jarðh. Innkdyr. Góð eign. Til afh. fljótl. Traustum aðila boðin góð kjör. BÍLDSHÖFÐI - M/TVEIMUR INNKHURÐUM 300 fm mjög gott atvhúsnæði á jarðh. Altt nýl. standsett. Tvennar innkhurðir. Tll afh. strax. Hagst. kjör í boði fyrir traustan aðila. Lit- skrúðug- ur borð- krókur Hér má sjá eldhús- krók sem ekkert er reynt til að fela - nema síður sé. Flís- arnar eru áberandi en borðið hins vegar látlaust með sína glerplötu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.