Morgunblaðið - 16.01.1996, Síða 1
FRJALSIÞROTTIR
SKÍÐI: BESTIÁRANGUR KRISTINS BJÖRNSSONAR í SVIGI / C8
Valur Fannar
stóð sig vel
með varaliði
Arsenal
VALUR Faniiar Gíslason lék
með varaliði Arsenal gegn
Swindon um helgina og fékk
góða dóma en Arsenal vann
1:0. „Þetta gekk sæmilega,
einkum í fyrri hálfleik, en
ég átti að gera eitt mark,“
sagði miðjumaðurinn við
Morgunblaðið. Stefán bróðir
hans lék með piltaliði félags-
ins í Cambridge og gerði
eitt mark í 4:3 tapi.
Bræðurnir hafa verið við
æfingar bjá Arsenal í rúma
viku og er gert ráð fyrir að
þeir komi heim á sunnudag.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru forráða-
menn Arsenal ánægðir með
strákana en Valur Fannar
sagði að ekki hefði verið
rætt við þá um að þeir yrðu
lengur. „Þeir hafa ekki sagt
neitt við okkur en það gæti
alveg farið svo að þeir vildu
hafa okkur í viku í viðbót.
Það stendur til að við spilum
með 18 ára liðinu á laugar-
dag en svo er verið að reyna
að koma á leik í vikunni.“
Bræðumir em frá Eski-
firði og Ieikur Stefán með
Austra en Valur Fannar er
samningsbundinn Fram.
1996
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANUAR
BLAD
Vala bætti eigið INIorður-
landamet innanhúss
Svíar bjóða henni gull og græna skóga
ef hún gerist sænskur ríkisborgari
Vala Flosadóttir, frjálsíþróttakona
úr ÍR, setti Norðurlandamet
innanhúss í stangarstökki kvenna á
MAI-leikunum í Malmö í Svíþjóð á
sunnudaginn. Hún stökk 3,82 metra
og bætti eigið Norðurlandamet um
6 sentímetra. „Ég bjóst alis ekki við
að stökkva svona hátt núna og þetta
er því mjög óvænt ánægja. Ég stökk
með styttri atrennu en ég er vön
vegna þess að stöngin sem ég notaði
var of mjúk og þess vegna varð ég
undrandi á árangrinum," sagði Vala
við Morgunblaðið í gær.
Vala, sem er 17 ára og hefur ver-
ið búsett í Malmö í þijú ár, á einnig
Norðurlandametið utanhúss, sem er
3,81 metrar og er í 19. sæti á heims-
listanum í greininni. Þess má geta
að hún er yngst kvenna sem stokkið
hafa yfir 3,80 metra. Hún hefur einn-
ig stundað sjöþraut en sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið vera að hugsa
um að snúa sér alfarið að stönginni
þar sem möguleikar hennar væru
mestir. „Ég tel mig eiga mestu
möguleikana í stangarstökki. Næsta
markmið hjá mér er að komast yfir
fjóra metra og það ætti ekki að vera
fjarlægur draumur.“
Sænska fijálsíþróttasambandið
hefur lagt hart að Völu um að ger-
ast sænskur ríkisborgari og boðið
henni nánast gull og græna skóga
geri hún það. Hún hefur verið beðin
um að keppa fyrir hönd Svíþjóðar á
Evrópumótinu innanhúss sem fram
fer í Gautaborg í mars. Svíar segjast
vilja fá hana með í sænska ólympíul-
iðið sem fer til Atlanta því þar verð-
ur stangarstökk kvenna sýningar-
grein. Vala segir að þetta boð Svía
setji hana í óþægilega aðstöðu.
„Þetta boð setur mig í dálítið erfíða
aðstöðu. Svíar bjóða mér ýmislegt,
en ég vil í lengstu lög halda í ís-
lenska ríkisborgararéttinn og komast
hjá því að skipta. Fijálsíþróttasam-
bandið [FRÍ] segir að ég sé komin
á styrk hjá Ólympíusamhjálpinni, en
meira veit ég ekki. Þegar ég hef
spurt er fátt um svör hjá FRÍ og ég
hef enn ekki fengið neinn styrk í
hendurnar. Ég er mjög vonsvikin
yfir því hvemig á þessum málum er
haldið heima á íslandi."
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
VALA Fiosadóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR.
Selfýssingar fá
KA í heimsókn
í undanúrslitum
BIKARMEISTARAR KA drógust á útivöll gegn
Selfossi í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ en
dregið var á laugardaginn. I hinum leiknum í
karlaflokki mætast Framarar og Víkingar á
heimavelli Fram. í kvennaflokki fær ÍBV lið
Stjörnunnar í heimsókn og bikarmeistarar
Fram fara upp í Árbæ og mæta Fylki.
„Þetta var erfiðasti kosturinn af þeim sem
eftir voru en það verður að taka honum,“ sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari og leikmaður KA, við
Morgunblaðið. „Eg hafði líka vonast eftir heima-
leik en þvi miður gekk það ekki heldur eftir.
Maður fær ekki alltaf allt. Við munum gefa allt
í leikinn og reyna að klára hann að öðrum kosti
eigum við ekki skilið að leika til úrslita."
Örebro
án Arnórs
og Sigurðar
úr leik
ÖREBRO var slegið út úr ann-
arri umferð sænsku bikarkeppn-
innar í knattspyrnu um helgina.
Það var Sirius, sem er frá Stokk-
hólmi og leikur í 1. deildinni, sem
sigraði Orebro 2:1 en með Sirius
leikur einn íslendingur, Einar
Brekkan. Arnór Guðjohnsen var
ekki með Örebro vegna meiðsla
og ekki hefur verið gengið frá
félagaskiptum Sigurðar úr ÍA en
hann áréttaði við Morgunblaðið
í gærkvöldi að hann væri á leið
til Svíþjóðar eins og áður hefði
komið fram.
KNATTSPYRNA
ísland með í umsókn
um mótshald HM 2006
Knattspyrnusamböndin í Dan-
mörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð komu sér saman um á
liðnu ári að kanna möguleika á
að sækja um að halda Heims-
meistarakeppnina í knattspyrnu
2006. Eggert Magnússon, for-
maður Knattspyrnusambands Is-
lands, tilkynnti þeim skriflega að
ísland vildi vera með og var vel
tekið í það en hann hittir starfs-
bræður sína í Helsinki nk. mánu-
dag til að ræða málið enn frekar.
I fyrrnefndu bréfi Eggerts kom
fram að þátttaka íslands myndi
styrkja umsóknina ef af yrði og
benti hann á að þing Alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA,
sem ávallt er haldið í tengslum
við keppnina, gæti farið fram hér
á landi.
„Norðurlöndin eru að íhuga að
sækja um keppnina af fullri al-
vöru og því sagði ég þeim að þátt-
taka íslands myndi styrkja um-
sóknina," sagði Eggert við Morg-
unblaðið. „Hugmyndinni var vel
tekið og í framhaldi buðu þeir
mér á fund í Helsinki."
Eggert sagði að samkvæmt
lögum FIFA gæti heimsmeistara-
keppnin ekki farið fram í fleiri
en einu landi en tillaga um breyt-
ingu á lögunum yrði væntanlega
lögð fyrir næsta FIFA-þing. „Til-
laga um sameiginlega umsókn var
rædd á síðasta Norðurlandaþingi
og þó við uppfyllum ekki skilyrði
varðandi velli fannst mér sjálfsagt
að eiga hlut að máli. Það eru hátt
í 200 þjóðir innan FIFA og fjórir
til 10 manns mæta frá hverri þjóð
á FIFA-þingið auk fréttamanna
og fleiri. Það yrði sterkt fyrir
ferðamannaþáttinn að halda
svona þing en auðvitað er þetta
allt á byijunarstigi og ekkert hef-
ur verið ákveðið í þessu efni.“