Morgunblaðið - 16.01.1996, Qupperneq 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Meðalhæð og -leikreynsla leikmanna NBA-liða
1995-1996
LEIK-
DCYIjei A Fjöldi Meðal- Leikm. m.
nc i nðLH iejkm wto'
Sæli LIÐ
á skrá ár
1 Chicago 14 6,57 2/Tf
2 Seattle 13 6,23 3/2
3 New York 12 6,17 4/0
4 San Antonio 13 6,00 1/1
5 Utah 14 5,93 4/1
6 Houston 13 5,54 3/1
7 Indiana 15 5,53 2/2
8 Charlotte 15 5,40 2/1
9 Milwaukee 13 5,08 2/1
10 Atlanta 14 5,00 2/4
20 Toronto 12 3,75 1/1
21 Denver 15 3,67 1/3
22 Cleveland 14 3,64 1/3
23 Sacramento 14 3,64 1/3
24 Philadelphia 15 3,60 2/3
25 Minnesota 13 3,23 1/4
26 Boston 13 2,85 0/3
27 Washington 13 2,77 0/2
28 Dallas 13 2,54 0/2
29 LA Clippers 13 2,38 0/2
>10ar/
nýllOir V
V
NBA
'deildin í heild, •vf"
Meðal leikreynsla 4,42 ár
Meðalaldur 27,56 ár
Meðalhæð 201,3 sm
Meðalþyngd 101,45 kg
leiktímabilsins 1995-96 / NBA
ía I byrjui
NEWS
HÆÐ
jy§IKM. S.
UO
áskrá
Leikm.
Meðal- hærrien
hæO, 213,4 cm
cm (7 lel)
"T Utah 14 204,5 3
2 Chicago 14 203,9 3
3 Orlando 15 203,4 3
4 LA Clippers 13 202,4 1
5 Philadelphia 14 202,2 1
6 Denver 13 202,1 3
7 Portland 14 202,1 1
8 Indiana 13 201,8 2
9 New Jersey 15 201,8 1
10 Milwaukee 15 201,8 2
20 Toronto 13 201,0 1
21 San Antonio 13 200,9 2
22 Seattle 13 200,7 0
23 LA Lakers 14 200,4 1
24 Vancouver 15 200,3 2
25 Cleveland 13 200,1 1
26 Atlanta 14 199,7 2
27 Boston 12 199,5 2
28 Sacramento 13 198,5 2
29 Charlotte 14 197,9 3
m STRÁKARNIR í körfuknatt-
leiksliði Hauka gera fleira en leika
fyrir félagið og það nýjasta hjá
þeim er að nú er körfuknattleiks-
deildin komin með heimasíðu á
Alnetinu. Þar verða Haukar með
myndir af öllum leikmönnum, sögu
íþróttarinnar í Hafnarfirði og
ýmsan annað fróðleik um félagið
og heimabæ sinn.
■ ALLTAF er einhvem fróðleik
að finna í leikskrá Hafnarfjarðar-
liðsins og fyrir bikarleikinn gegn
Þór á sunnudaginn m.a. annars
finna lista yfir leikmenn liðanna
og þjálfara þeirra. Samkvæmt leik-
skránni er Þorsteinn Aðalsteins-
son sáluhjálpari hjá Haukunum.
■ STÖÐ 2 sendi beint frá undan-
úrslitaleikjunum og í Hafnarfirði
voru þeir Einar Bollason og Val-
týr Björn, en hann gengur um
með hækjur þessa dagana. Einar
sagði eftir leikinn að nú væri hann
alvöru „halti Bjöm“ en það viður-
nefni hefur Valtýr fengið í grín-
þáttum í sjónvarpi.
■ ALLIR leikmenn Hauka skor-
uðu í leiknum, nema Sigurður
Jónsson. Hann fékk þó gott tæki-
færi er ein mínúta var eftir en þá
misnotaði hann tvö vítaskot.
■ TVEIR liðsmenn Hauka þekkja
mjög vel til á Akranesi. ívar Ás-
grímsson var leikmaður og þjálfari
IA þegar liðið var á fyrsta ári í
úrvalsdeild í hitteðfyrra og hann
þjálfaði einnig fyrri hluta síðustu
leiktíðar. Reynir Kristjánsson-
þjálfari Hauka var liðsstjóri ÍA
fyrsta árið þeirra í deildinni.
■ VÍKINGAR hvöttu sína menn
vel í Víkinni á sunnudaginn þó svo
það hafi ekki byijað vel. Þulurinn
sagði í upphafi að nú vildi hann
heyra í sínum mönnumog þá hljóm-
aði um húsið Haukar - Haukar!
■ BJARNI Frostason markvörð-
ur Hauka náði sér ekki á strik á
sunnudaginn, en hann gerði þó
glæsilegt mark. Brotið var á Hauk-
um fyrir miðju marki er 3 sekúnd-
ur voru til leikhlés. Gefið var á
Gunnar Gunnarsson sem henti
strax út í vinstra hornið þar sem
Bjarni hafði gleymst. Hann fór inn
úr horninu og skoraði af öryggi.
■ GUNNAR Andrésson hefur
tekið við fyrirliðastöðu hjá UMFA
af Rússanum Alexei Trúfan sem
hefur verið fyrirliði Mosfellinga
undanfarin tvö ár.
■ HOWARD Kendall, fyrrum
knattspyrnustjóri hjá Everton og
Athletic Bilbao, hefur nú verið
nefndur sem arftaki Terry Ven-
ables, sem þjálfari enska landsliðs-
ins. Kendall er nú knattspyrnu-
stjóri hjá Sheffield Utd.
■ FIMMTÁN mínútna bið varð á
að leikurinn ÍR og ÍBV hæfist í
Seljaskóla á sunnudaginn því
Eyjamenn mættu aðeins með hvítu
aðalbúningana_ sína og þar sem
aðalbúningur ÍR er einnig hvítur,
urðu ÍR-ingar að senda eftir rauðu
varabúningunum sínum og lána
gestunum. Aðkomulið á alltaf að
leika í varabúningum ef þörf kref-
ur.
■ ZOLTAN Belanyi, Eyjamað-
urinn knái, kom haltrandi inn á í
nokkrar mínútur gegn ÍR á sunnu-
daginn. Hann gerði þó ekki miklar
rósir enda meiddur og varla leik-
hæfur.
ÞJÁLFUN
fingin skapar meistar-
ann. Þetta eru orð að
sönnu, því að til að verða góð-
ur íþróttamaður þurfa menn
að leggja hart að sér við æfing-
ar og grunnþjálfun þarf að
vera mjög góð.
Þolinmæði hefur
mikið að segja í upp-
byggingu íþrótta-
manna. Besta dæmið
um það hvað uppskera
markvissrar unglinga-
þjálfunar getur verið
góð, er hollenska
knattspyrnuliðið Ajax. Þar hef-
ur unglingastarfið algjöran
forgang og mikilvægasti mað-
ur félagsins er sá sem sér um
og skipuleggur unglingaþjálf-
unina. Hann leggur aðaláhersi-
una á tækni, leikni, hraða og
rétt hugarfar. Hjá Ajax er lögð
áhersla á að unglingarnir nái
tökum á því sem þeir eru að
fást við, þannig að þeir nái að
þroskast sem góðir íþrótta-
menn. Sigrar eru ekki aðalmál-
ið hjá yngri liðunum. And-
rúmsloftið er annað hér á landi,
þar sem þjálfarar, forráða-
menn og foreldrar hrópa frá
hliðarlínunni — heimta sigur
og aftur sigur. Pressan sem
er lögð á ungu kynslóðina er
geysileg og oft má sjá hóp
ungra drengja og stúlkna
ganga grátandi af velli, eftir
tapleik. Andrúmsloftið og
pressan er oft óþolandi á leikj-
um — verra en í 1. deild. Börn
og óþroskaðir unglingar þola
oft illa þrýstinginn frá hliðar-
línunni.
Það hefur oft verið rætt og
ritað um, að kröfumar um sig-
ur sé of miklar í unglingastarf-
inu, þar sem leikurinn snýst
of mikið um sigra, en ekki
hvemig er hægt að laða það
besta fram þjá ungu kynslóð-
inni. Kröfur og þrýstingur um
árangur verða að vera í hófi.
Að sjálfsögðu verða menn að
hafa metnað til að ná árangri
— sá metnaður kemur með
aldrinum og þegar unglingar
era búnir að fínna út hvaða
íþrótt hentar þeim best.
Ekki er hægt að loka augun-
um fyrir því að oft hefur ungl-
ingaþjálfun ekki verið nægi-
lega markviss. Heldur ekki
þjálfun eldri flokka. Það kom
í yós í heimsmeistarakeppninni
í handknattleik á íslandi — ís-
lenska landsliðið var þá greini-
lega ekki tilbúið, hvorki líkam-
lega né andlega, til að takast
á við hið erfíða verkefni. Lík-
amlegur og andlegur styrkur
hefur mikið að segja hjá
íþróttamönnum.
Sjálfsagi skiptir miklu máli.
Ef menn ætla að ná árangri
verða þeir að ieggja hart að
sér — fyrir utan hefðbundnar
æfíngar, verða menn að æfa
sig sjálfír til að styrkja og
bæta. Ef menn gera mistök
eða eru veikir fyrir í ýmsum
þáttum, verða þeir að vinna á
þeim veikleika með stöðugum
æfíngum, þjálfa sig upp þannig
að þeir geri ekki sömu mistök-
in aftur og aftur.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
Kröfumar um sigur
eru of miklar í
unglingastarfinu
Hvers vegna hefur GUÐMUIMDUR ARNAR JÓNSSON verið að leika svona vel?
Mörgum finnst
ég of þungur
GUÐMUNDUR Arnar Jónsson er tæplega þrítugur Reykvíkingur
sem flutti norður til Akureyrar í haust ásamt fjölskyldu sinni
og tók stöðu Sigmars Þrastar Óskarssonar í markinu hjá 1.
deildarliði KA í handbolta. Guðmundur Arnar hóf sinn feril hjá
Þrótti en færði sig svo yfir í markið hjá Fram. Frá Fram fór
hann til Fjölnis og þaðan til ÍH í Hafnarfirði. Guðmundur Arnar
ætlaði að leggja skóna á hilluna eftir dvölina hjá ÍH en þá hafði
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, samband við hann og fékk hann
finnst ég helst til þungur og sjálf-
sagt er eitthvað til í því.“ Hann
lék á sínum tíma með 21 árs
landsliðinu í handbolta og hefur
tvisvar tekið þátt í heimsmeistara-
keppni með því liði. Annað árið
var hann með Guðmundi Hrafn-
kelssyni í liðinu og hitt árið með
Bergsveini Bergsveinssyni. Þeir
eru í dag landsliðsmarkverðir sem
kunnugt er.
Hver er nú helsti munurínn á
að spila með KA og öðrum liðum
sem þú hefur ieikið með?
„Áhugi fyrir handbolta á Akur-
eyri er hreint ótrúlegur og miklu
meiri en ég hef nokkum tíma
kynnst áður. Stemmningin í KA-
húsinu er ólýsanleg og lætin og
hrópin í yfírfullu KA-heimilinu eru
svo mikil að maður heyrir varla í
sjálfum sér. Það þekkist heldur
ekki annars staðar að 300 manns
kaupi sig inn á æfíngaleik í hand-
til að ganga til liðs við KA.
Guðmundur Amar er ánægður
á Akureyri. „Ég sé ekki eft-
ir því að fara norður og maður á
eftir að minnast
dvalarinnar á Ak-
Kris&sson ureyri lengi. Enda
skrífar er Þetta alveK ny
lífsreynsla fyrir
mig,“ segir hann. Guðmundur er
giftur Gerði Gunnarsdóttur og eiga
þau tvö börn. Dóttirin Arna Rán
er þriggja ára og sonurinn Jón
Gunnar níu mánaða.
Guðmundur Arnar átti mjög
góðan leik gegn Val í átta liða
úrslitum bikarkeppninnar í síð-
ustu viku og var maðurinn á bak
við sigur sinna manna. í leiknum
gegn Aftureldingu á laugardag
hélt hann uppteknum hætti og lék
skínandi vel í markinu. Hann er
stór og stæðilegur, 191 sentímetr-
ar á hæð, en vildi hins vegar ekki
gefa upp þyngdina. „Mörgum
Morgunblaðið/Kristján
GUÐMUNDUR Arnar Jónsson við KA-helmillA í gær þar sem
Inga nuddarl hafAi veriA aA mýkja hann upp eftir erfiAa leikl.
bolta eins og gerðist hér í haust.“
Þessi mikli áhugi hlýtur að hafa
góð áhrif og hjálpa liðinu mikið í
heimaleikjunum. “
„Auðvitað hjálpar þetta manni
mikið og ég mundi ekki vilja standa
mig illa fyrir framan allan þennan
mannskap. Ég hef að vísu átt
nokkuð misjafna leiki hér fyrir
norðan en það hefur gengið vel í
síðustu leikjum og ég er ákveðinn
í að reyna að breyta þessu. Þetta
er fyrst og fremst sálfræðin og
eitthvað sem maður verður að eiga
við sjálfan sig.“
KA situr í efsta sæti 1. deildar
þessa stundina. Áttu von á að liðið
nái að halda því sæti út mótið?
„Við eigum mjög erfiða leiki
fyrir höndum, gegn FH, Haukum
og ÍR en ef við komust vel frá
þessum leikjum, sem allir eru nú
í janúar, er stórt skref stigið.
KA-liðið er samstilltur hópur og
meðan við höldum áfram að hafa
gaman að því sem við erum að
gera, eigum við mikla möguleika
á að ná langt.“
KA á einnig góða möguleika í
bikarkeppninni en liðið dróst gegn
Selfossi í fjögurra liða úrslitum og
verður leikið á Selfossi. Hvernig
líst þér á þann leik?
„Þetta var náttúrlega sísti kost-
urinn en ef við ætlum að verða
bikarmeistarar þurfa allir leikir
að vinnast. Við erum búnir að
vinna þá í deildinni á Selfossi en
það var mjög erfiður leikur. Þótt
bikarleikir spilist alltaf öðruvísi
ætlum við engu að síður að endur-
taka þann leik og fara alla leið í
úrslit.“