Morgunblaðið - 16.01.1996, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 C 5
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Bjami
lurösson á línunni, Magnús A. Magnússon og Magnús Sigurösson
AMERISKI FOTBOLTINN
Snertimark í
lokin kom Pitts-
burgh í úrslttin
Pittsburgh Steelers og Dallas Cow-
boys leika til úrslita í NFL-deild-
inni í ameríska fótboltanum í Tempe,
Arizona, 28. janúar. Steelers tryggði
sér sigur gegn Indianapolis Colts með
snertimarki 94 sekúndum fyrir leikslok
og í hinum undanúrslitaleiknum um
helgina sigraði Dallas Green Bay.
Neil O’Donnell átti 37 stiku send-
ingu á Ernie Mills tæplega tveimur
mínútum fyrir leikslok. „Eg sagði
Ernie að hlaupa sig frían því ég kæmi
boltanum til hans,“ sagði O’Donnell.
„Hann gerði vel að ná boltanum og
þar með var úrslitaleikurinn í aug-
sýn.“ Bam Norris var hetja Steelers
skömmu síðar, komst með boltann síð-
ustu stikuna við endamarkið. „Ég ætl-
aði ekki að láta þá stoppa mig,“ sagði
Norris. „Þeir tóku á móti mér og höfðu
mig í sekúndu en ég gafst ekki upp.
Eg var ákveðinn í að komast alla leið
- allt tímabilið var á línunni." Steelers
vann 20:16 og leikur í fimmta sinn til
úrslita í NFL-deildinni en Pittsburgh
sneri vörn í sókn og var nálægt því
að gera snertimark - Jim Harbaugh
sendi á Aaron Bailey þar sem hann
var fyrir aftan endalínu en markið var
ekki dæmt. „Boltinn fór fyrst í jörð-
ina,“ sagði Cornell Lake hjá Pitts-
burgh. „Hann greip ekki boltann og
þetta var réttur dómur.“ „Við vorum
nálægt því,“ sagði Harbaugh, „og
strákarnir léku vel.“
Pittsburgh hefur fjórum sinnum leik-
ið til úrslita og ávallt sigrað, síðast Los
Angeles Rams 31:19 1979. „Þetta er
það ánægjulegasta hjá mér sem þjálf-
ari,“ sagði Bill Cowher, þjálfari Steel-
ers. „Við mætum í úrslitaleikinn og
eins og ávallt á tímabilinu gefum við
ekkert eftir í 60 mínútur."
„Við vorum einni mínútu og 34 sek-
úndum frá úrslitaleiknum," sagði Ted
Marchibroda, þjálfari Colts, „og getum
borið höfuðið hátt.“
Dallas á fomum slóöum
Dallas vann Green Bay Packers
38:27. „Þeir veittu okkur keppni en við
gengum frá þeim í seinni hálfleik,"
sagði Emmitt Smith sem gerði þrjú
snertimörk og átti stóran þátt í að
Dallas leikur til úrslita í þriðja sinn á
síðustu fjórum árum en lið félagsins
hefur sjö sinnum spilað úrslitaleikinn.
Troy Aikman, leikstjórnandi Dallas,
átti frábæran leik og m.a. gerði Micha-
el Irvin tvö snertimörk eftir sendingar
hans. „Það voru ekki aðeins leikmenn-
irnir sem fóru á kostum því áhorfend-
urnir voru frábærir og andrúmsloftið
var rafmagnað," sagði Irvin. „Ég hef
aldrei verið í þeim stóra,“ sagði Barry
Switzer, sem tók við þjálfun Dallas í
fyrra. „Þeir segja að það sé mjög gam-
an og ég hlakka mikið til.“
Green Bay kom á óvart á tímabilinu
og Mike Holmgren, þjálfari liðsins, var
ánægður. „Ég er mjög ánægður með
leik liðsins á tímabilinu. Ég held að við
höfum farið fram úr björtustu vonum
en það er erfitt að kyngja þessu.“
Brett Favre, leikstjórnandi Green
Bay, lék vel, átti m.a. þrjár sendingar
sem gáfu snertimark, en missti þoltann
tvisvar í hendur mótheijanna. „Ég byij-
aði kaldur og mistök mín kostuðu okk-
ur 14 stig.“
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit bikarkeppni Körfuknattleikssambandsins
Haukar á fullri ferð
ÞAÐ verða Haukar og Akurnes-
ingar sem leika til úrsiita í bik-
arkeppni karla í Laugardalshöll
sunnudaginn 28. janúar. Hauk-
ar sigurðu Þórsarar nokkuð
örugglega, 93:80, í Hafnarfirði
og á Akranesi lögðu heima-
menn KR-inga, 81:70. Þetta
verður ífyrsta sinn sem Akur-
nesingar leika til úrslita í bikar-
keppninni í körfuknattleik en
Haukar hafa leikið þrívegis, og
sigrað tvisvar.
Leikur Hauka og Þórs var þokka-
lega skemmtilegur í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari náðu Haukar
undirtökunum og
Skúli Unnar héldu þeim. Það var
Sveinsson samt ekki laust við
skrifar að færi um stuðn-
ingsmenn Hafnar-
fjarðarliðsins þegar síðari hálfleikur
var tæplega hálfnaður því Jón Arn-
ar fékk sína 4. villu og mínútu síð-
ar meiddist Williford. En hann kom
aftur inná skömmu síðar og Jón
Arnar lék með ijórar villur þar til
rúm mínúta var eftir. Til viðbótar
þessu lék Sigfús ekki með, en hann
fékk fingur í auga í síðasta leik og
gat því ekki verið með um helgina.
Þór byijaði heldur betur en jafn-
ræði var þó með liðunum fram í
miðjan háifleikinn er Haukar gera
17 stig gegn tveimur stigum Þórs,
staðan orðin 41:27, en síðustu tvær
mínútumar léku gestimir af krafti
og gerðu 16 stig gegn fjórum stigum
Hauka og staðan því 45:43 í leik-
hléi. Þetta virtist henta Haukum
vel, en þeim er illa við að vera með
of mikla forystu í leikhléi. „Við gerð-
um þetta samt alls ekki viljandi,
þetta var bara klúður hjá okkur,“
sagði Jón Arnar eftir leikinn.
I seinni hálfleik komust gestirnir
yfir á upphafsmínútunni en eftir
það voru Haukar með undirtökin
og náðu mest 20 stiga forystu.
Haukar eru með betra lið og sigur
þeirra var sanngjarn. Trúlega er
þetta bara munurinn á liðunum, en
samt geta Þórsarar leikið betur, að
minnsta kosti lykilmenn í liðinu.
Haukar áttu alls ekki neinn
stjörnuleik og Þórsarar léku illa.
Þeir þurftu að ná toppleik til að
eiga möguleika gegn hinu magnaða
liði Hauka, en sá leikur kom ekki
á sunnudaginn. Kristinn Friðriks-
son, besta skytta Þórs, náði sér alls
ekki á strik enda var hann lengstum
í góðri gæslu hins ótrúlega baráttuj-
axls, Péturs Ingvarssonar. Sam-
heijar Kristins gerðu heldur ekki
mikið í að reyna að hjálpa honum
í sókninni og það var sárasjaldan
að hann náði fríu skoti. Fred Will-
iams lék ágætlega hjá Þór svo og
Konráð Óskarsson en það dugði
hreinlega ekki.
Pétur var sterkur hjá Haukum,
gerði 11 stig í hvorum hálfleik og
var grimmur í fráköstunum og
landsliðsþjálfarinn hlýtur að hafa
not fyrir annan eins baráttujaxl í
sínum hópi. Williford átti fínan síð-
ari háleik og hann var sterkur í
fráköstunum. Jón Arnar lék einnig
vel og Bergur byijaði mjög vel.
Styrkur Hauka er breiddin og bar-
áttan. Óskar Pétursson lék sinn
fyrsta leik í vetur, kom inná er 2,28
mínútur voru eftir og skoraði strax.
Gott fyrir Hauka að fá hann í hóp-
inn á ný.
Morgunblaðið/Bjarni
PÉTUR Ingvarsson, bestl maður Hauka, skelllr sér hér fram-
hjá Þórsaranum Kristnl Friðrikssyni.
Skagamenn í fyrsta
sinn í úrslitaleikinn
Besti leikur þeirra í veturtryggði sigur gegn KR-ingum
Þorkelsson,
Gunnlaugur
Jónsson
skrifar frá
Akranesi
Þetta var örugglega besti leikur
okkar í vetur,“ sagði Hreinn
þjálfari Skagamanna,
kampakátur eftir að
lið hans hafði tryggt
sér sæti í úrslitaleik
bikarkeppni KKÍ
með 81:70 sigri á
KR í undanúrslitaleik. „Það var
feikna barátta í vörninni, alveg frá
fyrstu mínútu og þar var grunnur-
inn lagður. KR-ingar voru misbeitt-
ir; á þeim köflum þegar við slökuð-
um á komust þeir nær okkur, en
svo tókum við bara aftur í og strák-
arnir kláruðu þetta með stæl,“
bætti Hreinn við.
Einhver taugaspenningur var í
byijun leiks hjá báðum liðum. KR
náði forystunni en heimamenn jöfn-
uðu jafnharðan. Liðin skiptust á um
að hafa foyrstuna í fyrri hálfleik
og skömmu fyrir leikhlé höfðu
Skagamenn forystu, 37:33, en Ólaf-
ur Jón hitti úr þriggja stiga skoti
um leið og flautan gall þannig að
munurinn var aðeins eitt stig í leik-
hléi.
Gestirnir hafa slakað of mikið á
í hléinu því heimamenn gerðu 8
fyrstu stigin í þeim síðari. En Bow
var ekki á þeim buxunum að hleypa
Skagamönnum of langt framúr KR
og hélt Vesturbæjarliðinu inni í
leiknum með mjög góðum leik.
Vendipunktur leiksins var um miðj-
an síðari hálfleik er staðan var
47:44, en þá gerðu Skagamenn 11
stig gegn 2 stigum KR. KR minnk-
aði muninn í sjö stig en Skagavélin
komst í réttan gír á ný og ÍA komst
í 65:54. Þetta reyndist of mikill
munur fyrir gestina sem náðu þó
að minnka forystuna í þijú stig,
70:67, en nær komust þeir ekki
þrátt fyrir örvæntingarfullar til-
raunir.
Skagamenn léku frábærlega sem
liðsheild. Allir leikmen hreinlega-
blómstruðu. Milton Bell var sem
fyrr potturinn og pannan í leik ÍA,
gerði 29 stig, tók 11 fráköst, varði
3 skot, átti 4 stoðsendingar og
„stal“ boltanum sex sinnum. Har-
aldur var með 11 stig og 14 frá-
köst og Bjarni var frábær með 21
stig. Ungur strákur, Sigurður Jök
ull, átti góðan leik bæði í vörn oj
sókn.
Hjá KR var Bow allt í öllu með
34 stig og Hermann var einnig
dijúgur. Aðrir leikmenn náðu séi
ekki á strik. Benedikt Guðmunds-
son, þjálfari KR, var skiljanlega
ekki sáttur við leik sinna manna í
leikslok. „Skagamenn spiluðu mjög
vel, örugglega besti leikur þeirra )
vetur. Þetta rúllaði ekki hjá okkur
boltinn var að hristast upp úr körf
unni en Skagamenn hittu aftur ;
móti mjög vel. ÍA var betra liðið
dag,“ sagði Benedikt.