Morgunblaðið - 18.01.1996, Side 8
ÍHémn
2targtmidbiþiþ
KNATTSPYRNA / ENSKA BIKARKEPPNIN
Newcastle fékk skell
á St. James’ Park
Tapaði fyrirChelsea í vítaspyrnukeppni. Sheffield Utd. skellti Arsenal
NEWCASTLE og Arsenal eru
úr leik í bikarkeppninni.
Chelsea lagði Newcastle að
velli í vítaspyrnukeppni, 4:2, á
St. James’ Park, þar sem Kevin
Hitchcock varði tvær víta-
spyrnur. Staðan var 2:2 eftir
venjulegan leiktíma. Arsenal
mátti sætta sig við tap, 0:1,
fyrir Sheffield United. Bikar-
meistarar Everton lentu í
kröppum dansi gegn 2. deild-
arliðinu Stockport á Edgeley
Park, þar sem leiknum lauk á
ævintýralegan hátt með sigri
Everton, 2:3. Liverpool er nú
talið sigurstranglegast í bikar-
keppninni hjá veðbönkum í
London, með 7-2, síðan kemur
Man. Utd. með 5-1 og Totten-
ham ermeð 6-1.
Leikur Newcastíe og Chelsea var
sögulegur, því að heimanenn
réðu gangi leiksins lengi framan af.
Les Ferdinand átti skot sem hafnaði
á stöng, en hann varð síðan að fara
meiddur af leikvelli. Rétt fyrir Ieikhlé
skoraði Belgíumaðurinn Philippe Ai-
berts beint úr aukaspyrnu og i seinni
hálfleik héldu heimamenn áfram að
hetja á leikmenn Chelsea, en þvert á
gang leiksins voru það leikmenn
Vítaspymu-
keppnin í
Newcastie
PETER Beardsley, fyrírUði
Newcastle, tók fyrstu víta-
spyrnuna á St. James’ Park,
skot hans hafnaði á þverslá.
„Hver hefði trúað þessu,“
sagði Chris Waddle, fyrrum
félagi Beardsieys.
David Lee skoraði fyrir
Chelsea, 0:1. Kevin Hitchcock,
markvörður Chelsea, varði
síðan vítaspyrnu frá Steve
Watson. Dennis Wise skoraði
örugglega fyrir Chelsea, 0:2.
Johri Beresford skoraði fyi'ir
Newcastle, 1:2, Gavin Pea-
cock fyrir Cheisea 1:3, Albert,
fyrir Newcastle 2:3 og smiðs-
höggið fyrii' Chelsea rak
Eddie Newton, 2:4.
Rautt spjald
á iofti
MIKE Stowell, markvörður,
var hetja Úlfanna gegn Birm-
ingham - hann varði víta-
spyrnu frá Jonathan Hunt
undir lokin, þannig að Úlfarn-
ir fögnuðu sigri. Vitaspyrnan
var dæmd á Brian Law, sem
fékk að sjá rauða spjaldið.
Chelsea sem skoruðu - Dennis Wise
úr vítaspyrnu á 61. mín. Vítaspyrnan
var dæmd á Darren Peacock fyrir
að brjóta á John Spencer. Peacock
fékk að sjá rauða spjaldið.
Aðeins tveimur mín. síðar var búið
að dæma vítaspymu á Chelsea, eftir
brot á Paul Kitson. Peter Beardsley,
fyrirliði Newcastle, sem er 35 ára í
dag, tók spymuna og skoraði örugg-
lega. Undir iok leiksins sóttú leik-
menn Chelsea grimmt, enda einum
fleiri og þegar tvær mín. vora til leiks-
loka jafnaði Ruud Gullit, 2:2. Leikur-
inn var framlengdur og þá vora leik-
menn Chelsea hættulegri, en ekki
náðu liðin að skora, þannig að víta-
spymukeppni fór fram og þá fögnuðu
leikmenn Chelsea sigri, 4:2.
Arsenal reið ekki feitum hesti frá
Bramall Lane, þar sem heimamenn
unnu sanngjarnan sigur, 1:0, með
marki Veart á 68. mín. - hann kast-
aði sér þá fram og skallaði knöttinn
framhjá David Seaman. Leikmenn
Arsenal reyndu hvað þeir gátu til að
jafna metin - næstur því var lan
Wright, sem átti skot sem hafnaði á
stöng. Fyrr í leiknum átti Veart skot
í stöng.
Everton lenti í miklu strögli með
Stockport, þar sem Neil Edwards,
markvörður, átti stórleik í marki
heimamanna, sem komust óvænt yf-
ir, 1:0, með marki Matthew Bound á
19. mín. Everton sótti grimmt, en
Edwards sá við leikmönnum liðsins
Það var ekki fyrr en á 71. mín. að
Duncan Ferguson náði að koma
knettinum fram hjá honum, þegar
hann skallaði knöttinn í netið.eftir
homspyrnu. Aðeins nokkram sek.
síðar .var skoti frá Ferguson bjargað
á línu og tveimur mín. síðar skoraði
Graeme Stuart fyrir Everton, 2:1.
Þegar tvær mín. vora til leiksloka lék
Alun Armstrong, sem átti stórleik
með Stockport, á tvo varnarleikmenn
Everton og þrumaði knettinum upp
í markhornið, 2:2, við geysilegan
fögnuð 11.283 áhorfenda. Þeir voru
enn að fagna þegar Everton byrjaði
með knöttinn á miðju, John Ebbrell
fékk hann 30 m frá marki, sendi
þrumufleyg að marki Stoekport -
Reuter
HOLLENDINGURINN Gullit (t.h.) fagnar jöfnunarmarki sínu
gegn Newcastle, 2:2, ásamt félaga sínum Micheal Durberry.
knötturinn hafnaði efst upp í mark-
horninu, 2:3. Joe Royle, knattspyrnu-
stjóri Everton, sagðist vera mjög
ánægður. „Leikmenn Stockport voru
nær því búnir að hræða líftórana úr
okkur.“
Lárus Orri Sigurðsson lék með
Stoke gegn Nottingham Forest á
City Ground, þar sem hann var ná-
lægt því að skora, en heppnin var
ekki með honum. Aftur á móti skor-
uðu heimamenn tvö mörk - fyrst
Kevin Campbell með föstu skoti og
síðan Stuart Pearce úr vítaspyrnu.
Teddy Sheringham skoraði þrennu
þegar Tottenham vann stórsigur á
Hereford, 5:1, og félagi hans Chris
Armstrong skoraði tvö mörk.
Varamaðurinn Andy Clarke skor-
aði sigurmark Wimbledon gegn Wat-
ford, 1:0. Aðeins 5.142 áhorfendur
sáu leikinn.
Phoenix rak
Westphal
PAUL Westphai aðalþjálfari
körfuknattleiksliðsins Pho-
enix Suns í NBA-deildinni
var látinn taka poka sinn í
fyrradag, eftir dapurt gengi
liðsins það sem af er keppnis-
tímabilinu. Cotton Fitzsimm-
ons, varaforseti félagsins og
þjálfari liðsins áður en West-
phal tók við, var ráðinn um-
svifalaust í hans stað.
Mikil meiðsli hafa verið
þjá leikmönnum og meðal
annars hefur aðalstjarna
liðsins, Charles Barkley, ekki
gengið heill til skógai’ um
tíma. Hefur það haft sitt að
segja um árangur liðsins sem
hefur unnið fjórtán leiki en
tapað nítján leikjum í vetur,
og kornið sem fyllti mælinn,
aðeins unnið einn af síðustu
sjö leikjum, Undir stjórn
Westphal sigraði Phoenix í
191 leik en tapaði 88 og
komst. alla leið i úrslit fyrsta
árið sem hann stjórnaði lið-
inu, 1992-93 en beið lægri
hlut fyrir Chicago Bulls í sex
leikja einvigi Siðastliðin tvö
ár hefur liðið komist inn s
úrslitakeppnina en tapað á
miðri leið bæði árin fyrir
meisturum Houston Rockets.
Fitzsimmons sem nú hefur
tekið við þjálfun Phoenix
þjálfaði liðið árin 1970-72
og aftur frá 1988-92 og hef-
ur auk þess verið hjá Buff-
alo, San Antonio og Kansas.
Dumitrescu í
West Ham?
ALLAR líkur eru á að rúm-
enski landsliðsmaðurinn Ilie
Dumitrescu verði seldur frá
Tottenham til West Ham á
1,5 milljónir punda. Dumi-
trescu, sem Ossie Ardiles
keypti á sínum tíma frá Rúm-
eníu, hefur lítið fengið að
spreyta sig síðan Gerry
Francis tók við sijórninni lyá
Spurs.
Walters til
Dýrlinganna
MARK Walters, fyrrum leik-
maður Aston Villa og
Glasgow Rangers, sem verið
hefur lyá Liverpool síðustu
árin er farinn til Southamp-
ton og verður hugsanlega
með liðinu gegn Middlesbro-
ugh í deildinni á laugardag.
Walters, sem verður 32 ára
í sumar, hefur ekki komist í
lið Liverpool síðustu mánuði
og fékk að fara án þess að
félagið krefðist greiðslu fyr-
ir hann.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Rodman með fyrstu þrennuna
Dennis Rodman náði fyrstu
þrennunni í 699 NBA-leikjum
sínum, þegar Chicago Bulls setti
félagsmet í fyrrinótt með þvi að
sigra í 26. heimaleiknum í röð —
116:104 gegn Philadelphia 76ers.
Rodman tók 21 frákast, átti tíu stoð-
sendingar og skoraði tíu stig. Micha-
el Jordan, sem meiddist á baki í
fjórða leikhluta, skoraði 32 stig.
„Þetta hefur lengi verið draumur
Dennis og við sáum til þess að hann
rættist," sagði Jordan.
Jerry Stackhouse, sem sagði á
dögunum að hann myndi ráða við
Jordan einn á móti einum, skoraði
24 stig fyrir Philadelphia, sem hefur
ekki náð að fagna sigri á Bulls síðan
í desember 1993 og liðið hefur ekki
náð að fagna sigri í Chicago síðan
í desember 1992. „Jerry lék mjög
vel, en hann á margt eftir ólært,“
sagði Jordan. Shawn Kemp skoraði
31 stig og tók sextán fráköst, þeir
Hersey Hawkins og Gary Payton
skoruðu sín hvor 21 stigið, þegar
Seattle SuperSonics vann sinn ti-
unda heimasigur í röð, á kostnað
Cleveland Cavaliers, 99:90. Terrell
Brandon skoraði 24 stig og Dan
Majerle 21 fyrir Cleveland.
David Robinson skoraði 28 stig
og tók þrettán fráköst þegar San
Antonio Spurs vann sinn fímmta
sigur í röð, lagði Boston Celtics,
121:97.
Spurs hefur unnið fjórtán af síð-
ustu sextán útileikjum sínum og þá
hefur liðið sigrað í níu af síðustu tíu
heimaleikjum sínum.
Dana Barros skoraði 22 stig fyrir
Boston, sem hefur tapað átta úti-
leikjum í röð og tíu af síðustu tólf
leikjum sínum. Rik Smits skoraði
29 stig og Reggie Miller skoraði 27,
þar af fimm þriggja stiga körfur,
þegar Indiana Pacers vann Toronto
Raptors 110:102.
Clifford Robinson skoraði 24 stig
Arvydas Sabonis skoraði 15 stig og
tók fimmtán fráköst þegar Portland
Trail Blazers vann Denver Nuggets,
87:69.
Þá skoraði Rod Strickland sautján
stig og átti átta stoðsendingar. Jalen
Rose skoraði 16 stig fyrir Denver.