Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 2

Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 2
2 D LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ TEIMNIS Reuter ANDRE Agassi var níðurlútur eftir tapið gegn Chang. Agassi réð ekki viðChang MICHAEL Chang frá Bandaríkj- unum mætir Þjóðverjanum Boris Becker í úrslitum einliða- leiks karla á Opna ástralska meistaramótinu ítennis á morgun. Chang gerði sér lítið fyrir og sigraði landa sinn Andre Agassi í undanúrslitum í gær og Becker burstaði Ástr- alann Mark Woodforde. Chang, sem er í fimmta sæti á heimslistanum, gæti bundið enda á sjö ára bið sína eftir sigri á slemmumóti og það væri kærkomið, bæði fyrir hann og stuðningsmenn hans. Chang, sem var aðeins tán- ingur þegar hann sigraði á Opna franska árið 1989, var í miklum ham í gær og vann Agassi, sem er í fyrsta sæti á heimslistanum, 6-1, 6-4 og 7-6, og tók viðureign þeirra aðeins rúmar tvær klukkustundir. „Það lítur út fyrir að Asíubúum hafi fjölgað mjög hér í Melboume, þeir virðast allavega margir þegar þeir koma að fylgjast með mér og fyrir það er ég þakklátur," sagði Chang eftir sigurinn en hann er af kínverskum ættum. Árangur Chang á mótinu er frábær, hann hefur ekki tapað setti enn sem komið er og hann vonast til að besta ár hans sem tennisleikari sé rétt að hefjast. „Þetta er búinn að vera frábær tími hér og vonandi verð ég enn betri á sunnudaginn. Ég hlakka til að mæta Becker og það verður for- vitnilegt að vita hvað Drottinn get- ur gert fyrir mig,“ segir Chang en hann er mjög trúaður og fjölskylda hans biður reglulega fyrir honum, meira að segja á áhorfendapöllun- um gegn Agassi í gær. Agassi sagði um Chang fyrir leik- inn í gær að trúlega væri enginn eins óútreiknanlegur, sérstaklega þegar menn teldu sig hafa skorað, þá næði hann að svara. í gær náði Agassi mörgum góðum höggum út við hliðarlínu og flestir hefðu horft á eftir boltanum, en Chang er snöggur og gefst aldrei upp og náði fjölmörgum „öruggum“ boltum frá Agassi. Chang, sem er ekki nema 173 sentimetrar á hæð, leikur með dálít- ið lengri spaða en gengur og ger- ist. Prince, framleiðandi spaðanna, lét rannsaka allar hreyfingar hans í 16 mánuði áður en sérstakur spaði var smíðaður, 2,5 sentimetrum lengri en aðrir spaðar. Þetta nýtti hann sér í uppgjöfum í gær og fékk 13 ása með því að senda boltann yfir netið á rúmlega 190 km hraða. Mótherji Changs á morgun verð- ur Boris Becker sem vann heima- manninn Woodforde, 6-4, 6-2 og 6-0, í gær. Þrátt fyrir mikinn stuðn- ing heimamanna við Woodforde tók það Becker aðeins 98 mínútur að ljúka leiknum. Becker sagði í upp- hafi móts að Chang væri einn þeirra sem gætu farið alla leið. „Hann er greinilega í mjög góðri æfingu, hættulega góðri,“ sagði Becker eft- ir leikinn í gær. Golfklúbbur Oddfellowa og Golfklúbburinn Oddur, Urriðavatnsdölum, Garðabæ, óska eftir að ráða golfkennara fyrir sumarið 1996. Umsóknir, með upplýsingum um viðkomandi, óskast sendar í pósthólf 411,121 Reykjavík, sem fyrst. Golfklúbburinn Oddur getur enn bætt við nýjum felögum. Upplýsingar í síma 562 6066. KÖRFUKNATTLEIKUR Bjami Magnússon, leikmaður ÍA, nær þeim einstaka áfanga í bikarúr- slitaleiknum að hafa bæði leikið til úr- slita í körfu- og handknattleik, lék með Selfyssingum árið 1993 gegn Val. Ekki er vitað til að slíkt hafí gerst, a.m.k. ekki í seinni tíð. Ingvar Viktorsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði verður heiðursgestur í HÖllinni ásamt Gísla Gíslasyni bæjar- stjóra á Akranesi. í Garðinum verður EÍlert Eiríksson bæjarstjóri í Reykja- nessbæ meðal áhorfenda enda mikill áhugamaður um körfuknattleik. Keflavíkurstúikur leika nú til úrslita í níunda sinn, en þær komust fyrst í úrslit árið 1987 og hafa verið í úrslitum allar götur síðan, nema árið 1991. Njarð- víkurstúlkur hafa hins vegar einu sinni leikið til úrslita, töpuðu fyrir KR árið 1983. Að venju verður mikið um dýrðir í Höllinni, en búist er við miklum flölda áhorfenda. Litadýrðin verður mik- il því stuðning8menn Hauka verða rauð- ir og Skagamenn gulir og glaðir og munu félagar í stuðningsmannafélagi ÍA ætla að Ijölmenna. Peynslan er mikilvæg í stórleikjum I»og þar hafa Haukar vinninginn hjá körlunum og Keflavíkurstúlkur í kvenna- flokki. Þrlr leikmenn Hauka hafa tekið þátt í bikarúrslitaleik, bærðurnir Pétur og Jón Arnar Ingvarssynir og ívar Ás- grímsson. I Irslitaliðin í karlafiokki hafa mæst tvisvar í deildarkeppninni í vetur og unnu Haukar báða leikina, fyrst 91:68 og síðan 78:89. Keflavíkurstúlkur hafa einu sinni mætt stöllum sínum og nágrönnum úr Njarðvfk og lauk þeirri viðureign með 69:56 sigri Keflvíkinga. Rútuferðir vérða frá Akranesi á sunnudaginn og segjast forráða- menn ÍA búast við miklu fjölmenni. Sömu sögu er að segja úr herbúðum Hauka, þeir búast við fjölda Hafnfirð- inga. Sætaferðir verða á kvennaleik- inn í dag kl. 15, bæði úr Keflavík og Njarðvík. Stærsti leikmað- ur úrslitaleiks karla verður mið- heijinn Milton Bell hjá Skaganum, en hann er 204 senti- metrar á hæð og er stigahæsti mað- ur úrvalsdeildar- innar. Stærsti leik- maður Hauka er hins vegar Bergur Eðvarðsson, en hann er sléttir 2 metrar. Ljósasýning mik- il verður í Laug- ardalshöllinni áður en úrslitaleikurinn hefst, en ætlunin er að kynna liðin með svipuðum hætti og gert er í NBA-deildinni í Bandaríkjunum. Þetta var oft gert á leikjum deildarinn- ar í fyrra og mælt- ist vel fyrir. Fyrsta sinn í áratug sem Suðui Þeir eiga við eigun „Gerum okkar besta til að breyta þess ÞAÐ verður nýtt nafn skráð á hinn stóra og glæsilega bikar sem keppt er um í bikarkeppni Körfuknattleikssambandsins. Eftir að nýr bikar var tekinn í notkun hafa Haukar ekki orðið bikarmeistarar og Skagamenn mæta f fyrsta úrsiitaleik sinn á sunnudaginn, en leikur liðanna hefst kl. 16. Skúli Unnar Sveinsson skrífar Það búast sjálfsagt flestir við því að Haukar sigri ÍA á sunnu- daginn. „Það segja allir að þeir eigi að vinna og við eig- um að tapa, og sam- kvæmt stöðu lið- anna í deildinni er þetta rétt. En við ætlum að gera okkar besta til að breyta þessari skoðun fólks,“ sagði S. Elvar Þórólfsson, fyrirliði Skaga- manna, á blaðamannafundi í vik- unni. Hann bætti því við að lið ÍA væri reynslulítið þegar kæmi í svona stórleiki og líklegst færu flestir strákarnir beint í miðasöluna því þeir væru vanir því á slíkum stórviðburðum. Þegar hann var spurður hverjir væru helstu kostir Haukanna sagði hann: „Þeir eru svo ansi margir! Það er ekki nóg að taka einhvern einn vel því það eru alltaf einhveijir til að taka við. Við erum því minnimáttar í þessum efn- um, en þetta er bikarleikur og allt getur gerst,“ sagði Elvar. Jón Arnar Ingvarsson, fyrirliði Hauka, sagði Hafnarfjarðarliðið hafa undirbúið sig vel og mikill spenningur væri fyrir leiknum í Hafnarfirði. „Fyrri leikir liðanna spiluðust áfailaíaust, eins og við vildum. En bikar er alltaf bikar og þetta verður erfiður Ieikur. Það er orðið langt síðan Haukar hafa feng- ið einhvern bikar og því kominn tími til að ná í einn siíkan," sagði Jón Arnar. Þjálfarar liðanna, Reynir Krist- jánsson hjá Haukum og Hreinn Þorkelsson hjá ÍA, voru sammála um að Skagamenn hefðu allt að vinna og engu að tapa því þrýsting- urinn væri á Haukum. „í bikarúr- slitaleik ræðst mikið á dagsforminu, staðan í deildinni hefur ekkert með úrslit leiksins að gera. Við erum með reynslumikið lið og strákarnir munu alls ekki vanmeta Skaga- Iðulega kvarta menn yfír dómurum í íþróttum en þeir sem fá það erfíða hlutverk að dæma karlaleikinn eru Helgi Bragason og Kristján Möller en Jón Otti ólafsson og Einar Einarsson dæma kvennaleikinn. KR-ingar sjá um ritara- borðið í karlaleiknum. Þeir berjastum bikarinn Vancou yron Scott skoraði átta af sext- ' án stigum sínum í framleng- Takist Keflavík að sigra Njarðvík verður það sjöundi bikartitill stúlkn- anna, en Keflavík hefur níu sinnum ver- ið í úrslitum síðasta áratuginn og Anna María Sveinsdóttir og Björg Hafsteins- dóttir hafa leikið alla leikina. Liðið hefur sigrað í 12 bikarleikjum í röð. ÞESSIR kappar ætla sér allir blkarinn á morgun, en að- efns tveir þeirra munu fá að hampa honum í leikslok. Frá vinstri: Sigurður Elvar Þór- ólfsson fyrirliði ÍA, Milton Bell ÍA, Jason Williford leik- maður Hauka og Jón Arnar Ingvarsson, fyrirliði Hauka. ingm og Bryant Reevers — „Stóri sveitastrákurinn“ — skoraði 25 stig fyrir Vancouver Grizzlies, sem fagnaði sigri í Kanadabaráttunni, gegn Toronto Raptors 106:101 í NBA-deildinni. Greg Anthony skor- aði 22 stig og átti níu stoðsending- ar og Blue Edwards skoraði 17 stig fyrir Vancouver. Damon Stoudam-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.