Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 B 3
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Verður Duranona íslendingur?
Alfarið matsatriði alþingismanna hverju sinni, segir embættismaður
Julian Duranona, Kúbumaðurinn í
liði KA, lýsti í samtali, sem birt-
ist í Morgunblaðinu á sunnudaginn,
yfír áhuga á því að gerast íslenskur
ríkisborgari. Sagði hann að þar sem
hann gæti ekki leikið fyrir Kúbu
lengur væri það hans stærsta von
að fá að leika fyrir fsland. „Ég er
ekkert í mínu heimalandi; fyrir utan
fjölskyldu mína finnst fólki þar ég
ekki vera til. Ég þarf að geta orðið
eitthvað aftur og því þá ekki íslend-
ingur?“ sagði hann. Duranona yfir-
gaf Kúbu í óþökk yfirvalda og því
GLIMA
Orri 35.
skjaldarhafi
Armanns
ORRI Bjömsson, glímukappi úr KR,
sýndi hve öflugur glímumaður hann
er þegar hann yarð sigurvegari í 84.
Skjaldarglímu Ármanns á sunnudag-
inn, en alls hafa þijátíu og fimm
glímumenn unnið skjöldinn. Orri
sigraði með yfirburðum, vann allar
fimm glímur sínar, og var tveimur
vinningum hærri en Skjaldarhafinn
1995, Ingibergur Sigurðsson úr Ár-
manni.
Orri glímdi af miklum léttleika og
lagði alla andstæðinga sína á góðum
glímubrögðum. Ingibergur, sem fékk
þijá vinninga eins og félagi hans
Ólafur Sigurðsson, tryggði sér annað
sætið eftir úrslitaglímu við Ólaf.
Helgi Bjarnason, KR, sem hefur
verið frá vegna meiðsla, glímdi og
sýndi gamla takta í handvömum og
hælkrókamir voru vel útfærðir hjá
honum. Helgi fékk tvo vinninga eins
og Jón Birgir Valsson, KR, sem var
langt frá sínu besta. Þórður Hjalta-
son varð sjötti, veitti andstæðingum
sínum harða keppni, en náði ekki að
fagna sigri í neinni glímu.
GOLF
Sigurjón lék
vel í Orlando
SIGURJÓN Arnarson, kylfíngur úr
Golfklúbbi Reykjavíkur, lék vel á
móti í Tommy Armour mótaröðinni
í Bandaríkjunum um helgina. Hann
keppti á laugardaginn í móti á Missi-
on Inn vellinum í Orlando, sem er
par 72 og SSS 73. Siguijón lék á
70 höggum, eða tveimur undir pari
vallarins og lenti í 12. sæti af 110
keppendum, en sigurvegarinn lék á
66 höggum.
KNATTSPYRNA
Dýrkeypt
vítaspyrna
hjá Q.P.R.
CHELSEA, sem sló Newcastle út í
3. umferð ensku bikarkeppninnar,
komst í 16-liða úrslit keppninnar í
gær með því að sigra Q.P.R. á úti-
velli, 2:1. Chelsea komst í 2:0 í fyrri
hálfleik með mörkum frá Gavin Pe-
acock og Paul Furlong. Nigel Quas-
hie minnkaði muninn fyrir Q.P.R. á
67. mínútu og gaf liðinu von. Tveim-
ur mínútum síðar fékk Q.P.R. dæmda
vítaspyrnu er Kevin Hitchcock,
markvörður Chelsea, braut á fram-
heijanum Mark Hateley. Bradley
Allan tók vítaspyrnuna en skot hans
fór langt framhjá markinu og þar
með varð draumur Q.P.R. um að
komast áfram að engu.
ekki afturkvæmt þangað.
Meginreglan varðandi umsókn um
íslenskan ríkisborgararétt er að við-
komandi hafi búið hér á landi í sjö
ár. Um er að ræða fimm ár sé um-
sækjandi í sambúð með Islendingi og
þijú ár sé hann giftur íslendingi.
Embættismaður í stjórnarráðinu sem
Morgunblaðið ræddi við í gær sagði
hins vegar að þetta væri aðeins meg-
inregla. „Þetta er matsatriði hjá al-
þingismönnum hveiju sinni og ekkert
sem segir að þeir megi ekki víkja frá
þessari meginreglu eins og þeir vilja.“
Vitað er að forráðamenn KA hafa
sýnt áhuga á því að Duranona fái
íslenskan ríkisborgararétt. „Ég held
við hljótum að athuga mjög gaum-
gæfílega hvaða möguleiki er í stöð-
unni,“ sagði Örn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Handknattleikssam-
bands íslands í gær. „Það er engin
spuming að þetta er leikmaður sem
myndi styrkja íslenska landsliðið
gríðarlega."
Öm sagði einungis óformlega hafa
verið rætt um málið hjá HSÍ „en
hitt er annað mál að við höfum lengi
velt þeim mögyjeika fyrir okkur að
Duranona leiki með okkur en höfum
hingað til nánast talið þetta útilokað
dæmi. En það er ljóst að þessi leik-
maður myndi hafa gríðarlega þýð-
ingu fyrir okkur, til dæmis í riðla-
keppninni fyrir heimsmeistaramótið
í Japan 1997, sern fram fer í haust.
Við hjá HSÍ gerum okkur von um
að KA-menn skoði þetta mál í fullri
alvöru og ef við getum aðstoðað þá
á einhvern hátt munum við án nokk-
urs vafa gera það,“ sagði Örn.
SKAUTAR / EM I LISTHLAUPI
Heimsmet í
5 km hlaupi
EÞÍÓPÍUMAÐURINN HaUe
Gebreselassie setti heimsmet í
5.000 m hlaupi innanhúss á
móti í Sindelfinger í Þýska-
landi á laugardaginn. Gebre-
selassie, sem er 22 ára og á
heimsmetið í 5.000 og 10.000 m
hlaupi utanhúss, hljóp á
13.10,98 mín. og bætti met
Tansaníumannsins Suleiman
Nyambui verulega, hann hljóp
á 13.20,4 mín. í New York 6.
febrúar 1981.
. Tvíbætti
heimsmetið
EMMA George frá Ástralíu,
fyrrum spretthlaupari, tví-
bætti heimsmet sitt í stangar-
stökki utanhúss á móti í Perth
í Ástralíu á sunnudaginn. Met
George, 21 árs, var 4,28 m -
sett í desember. Hún stökk
fyrst 4.30 m og síðan 4.41 m
og átti gíðan gott stökk, rétt
felldi 4.50 m.
Stangarstökk kvenna verður
ekki sýningargrein á ÓL í Atl-
anta, eins og haldið var.
Heimsmet
innanhúss
í Landau
KÍNVERSKA stúlkan Sun
Caiyun setti heimsmet í stang-
arstökki innanhúss, er hún
stökk 4,21 m á móti Landau í
Þýskalandi á sunnudaginn.
Hún bætti met tékknesku
stúlkunnar Daniela Bartova,
sem stökk 4,20 í Prag í sl. viku.
Bubka
á ferðinni
ST AN G ARSTÖKKV ARINN
sterki Sergei Bubka sagði á
sunnudaginn að hann hefði
hug á því að taka þátt i keppni
tvö ár í viðbót og er hann byij-
aður að búa sig undir Ólympíu-
leikana í Atlanta af fullum
krafti. Bubka, sem er 32 ára,
hefur sett 35 heimsmet innan-
og utanhúss; heimsmet hans
er 6,16 m. Hann varð sigurveg-
ari á móti í Donetsk í Úkraínu
á sunnudaginn, stökk 5,90 m.
Slutskaya
var frábær
Im
Reuter
Sextán ára meistari
IRINA Slutskaya, sextán ára stúlka frá Rússlandi, var frábær
i frjálsu æfingunum í listhlaupi á Evrópumelstaramótinu. Hún
þótti sýna ótrúlegt öryggi og sigur hennar var sögulegur því
þrátt fyrir glæsilegan árangur á mörgum sviðum haffll stúlka
frá Rússlandl, efla Sovétríkjunum sálugu áflur, aldrei náð
afl sigra í elnstaklingskeppni á stórmóti í listhlaupi.
Irina Slutskaya, sextán ára stúlka
frá Rússlandi, varð Evrópu-
meistari kvenna í listhlaupi á skaut-
um í Búlgaríu um helgina. Hin
franska Surya Bonaly hafði sigrað
á þessum vettvangi síðustu fimm
árin en varð nú að lúta í lægra haldi.
Rússar höfðu yfirburði á mótinu
og það þótti því rúsínan í pylsuend-
anum fyrir þá að Slutskaya skyldi
ná að sigra á síðasta keppnisdegi
því kona frá Rússlandi (og áður
Sovetríkjunum) hafði aldrei sigrað
í einstaklingskeppni í listhlaupi á
stórmóti áður.
Bonaly var í efsta sæti eftir
skylduæfingarnar á föstudaginn en
aldrei var spurning hvernig færi á
laugardag, svo vel skautaði
Slutskaya. Hún sagði á eftir að
miklu máli hafði skipt að hún ýtti
frá sér öllum hugsunum um mögu-
legan sigur. „Ég vildi bara skauta
eins vel og ég gæti. Ég hugsaði
ekkert um að verða meistari. Ég
hugsaði ekki um Surya. Það skipti
ekki máli hver var helsti andstæð-
ingur minn því allt valt á því hvern-
ig mér sjálfri tækist upp.“
Bonaly spreytti sig í frj álsu æf-
ingum á undan rússnesku stúlkunni
og strax þótti ljóst að hún ætti
ekki möguleika. Hún datt snemma
í æfingunum og varð að gera sér
annað sætið að góðu. Bonaly stefndi
að því að verða þriðji keppandinn
í sögu Evrópukeppninnar til að
fagna sigri sex ár í röð en þó þyk-
ir hún ekki í sama gæðaflokki og
hin norska Sonia Henie var á sínum
tíma eða Katarina Witt frá Þýska-
landi, en báðir urðu þær Evrópu-
meistarar sex ár í röð.
Rússar unnu alls þrenn gullverð-
laun á mótinu, tvenn silfurverðlaun
og tvö brons. Úkraínumaðurinn
Viacheslav Zagorodniuk fagnaði
sigri í listhlaupi karla og þótti þar
lang bestur, bæði í skylduæfingum
og þeim fijálsu en Rússar urðu þar
í öðru og þriðja sæti.