Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ HANDKIMATTLEIKUR ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 B 5 IMorðanmenn öriítið sterkari á Selfossi Hefði viljað hafa þenn- an leik í Höllinni Duranona gerði átta af síðustu níu mörkum KAgegn Selfyssingum ALFREÐ Gísiason, þjálfari KA, var að vonum kampakátur eftir sigurinn, en átti hann von á svona erfiðum leik? „Ég óttaðist að þetta yrði svona erfitt og það er slæmt að annað liðið hafi þurft að detta út úr keppninni. Ég hefði viljað hafa þennan leik í Laugardalshöll- inni því þetta var ekta bikarleikur. Sel- fyssingar léku mjög vel og hefðu átt skilið að komast í úrslit," sagði Alfreð. Nú var ef til vill ekki mjög mikil ógn- un í leik Erlings á hægri vængnum. Varstu ekkert að hugsa um að leyfa Heiðmari að spreyta sig? „Jú, ég var að hugsa um það um tíma, en hætti við það. Erlingur er mjög traustur leikmaður sem gerir ekki mikið af mistökum og reynsla hans vegur þungt í svona leikj- um. Heiðmar er ung- ur og hans tími kem- ur,“ sagði þjálfarinn hress í bragði. Nú erþað bara bikarlnn „Ég átti von á hör- kuleik, en ég held samt að ég hafí ekki búist við að hann yrði svona erfíður," sagði Patrekur Jóhann- esson og bætti svo við: „Og þó. Maður þekkir Valda [Vaidimar Gríms- son þjálfara Selfoss] og veit að hann kann þetta allt. Það var rosa spenna i restina og þá átti Julian [Duranona] frábæran leik. Ég er auðvitað himinlifandi að vera komin aftur í úrslit og nú er það bara bikarinn, það er ekki spuming." Undir lokin virtist þú viija taka boltann af Duranona í einu víta- kastinu, vildir þú taka vítið: „Ég vil alltaf taka vítín," sagði Pat- rekur. Hann bætti því við að sér hefði ekki fundist dómaramir góðir. „Það var of mikið ósam- ræmi hjá þeim. Stundum dæmdu þeir á peysutog, svo slepptu þeir því aiveg í langan tíma, og þann- ig var um fleira hjá þeim. Þetta bitnaði jafnt á liðunum, en mér finnst að þeir megi taka sig á — aiveg eins og við.“ Ánœgöur og um letð svekktur Valdimar Grímsson, þjálfari Selfyssinga, var skiljanlega ekki eins kátur og Alfreð þjálfari KA. „Ég er ánægður með leikinn hjá mínum mönnum, þó svo við höf- um tapað. En auðvitað er ég jafn- framt vonsvikinn. Þessi leikur sýnir mér að við eram að gera rétta hluti og ég kvíði ekki fram- haldinu ef við höldum áfram að leika svona. Það lögðu allir sig fram, en því miður gekk það ekki alveg upp. Annars er ég svekktur að svartur maður skuli koma hingað til lands og blekkja dómarana hvað eftir annað. Þetta gerðist til dæmis í tvígang undir lok leiksins núna. Hann er ekki heil- agur og dómarar verða að dæma á hann líka. Annars dæmdu þeir nijög vel fram að þessum atvik- um,“ sagði Valdimar. Skúti Unnar Sveinsson skrifar JULIAN Duranona fór á kostum í síðari hálfleik gegn Selfyss- ingum á laugardaginn og tryggði bikarmeisturum KA sæti í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll um aðra helgi. Duranona gerði tíu mörk í síð- ari hálfleik þegar hann var hreint óstöðvandi og hvert þru- muskotið af öðru söng í netinu. Hinum megin var Einar Gunnar Sigurðsson t essinu sínu og sýndi að hann er mikil skytta þegar sá gállinn er á honum. KA sigraði með einu marki, 32:31, og það var í rauninni synd að þetta skyldi ekki vera úrslitaleikurinn í Höllinni því hann hafði allt sem góður og skemmtilegur bikarúrslitaleik- ur þarf að hafa. KA mætir liði Víkinga í úrslitum, en Víkingar unnu Fram íhinum undanúr- slitaleiknum. Sjálfsagt hafa flestir búist við tiltölulega auðveldum sigri KA, en annað kom á daginn og enn einu sinni sannaðist það að bikarleikir eru allt annað en deildarleikir. Dags- formið ræður hveiju sinni og menn leggja sig alla fram og rúmlega það, því það gefst ekki annað tækifæri. Selfyssingar veittu KA-mönnum svo sannarlega góða og mikla keppni og létu norðan- menn svo sannarlega hafa fyrir hlutunum. Heimamenn byijuðu með miklum látum, bæði í vörn og flatri vörn sem var mjög hreyfanleg og steig vel út á móti öllum gulklæddum sem komu nærri vítateignum hjá þeim. Sóknarleikur KA var hins vegar stirðbusalegur og virtist sem menn þar á bæ væru taugatrekktir, en það jafnaði sig fljótt og eftir að Selfoss hafði gert tvö fyrstu mörkin komu fímm í röð frá KA. Kraftur- FOLX ■ SELFYSSJNGAR eru öðlingar heim að sækja og það fengu fylgis- menn KA að kynnast á laugardag- inn. Áður en leikurinn hófst bað kynnir leiksins heimamenn um að bjóða áhorfendur frá Akureyri vel- komna með því að klappa fyrir þeim. Það var gert af krafti og mættu fleiri félög taka þannig á móti stuðningsmönnum mótheija sinna. ■ SÓKNARNÝTING var góð, bæði hjá Selfyssingum og KA. Heimamenn fóru 53 sinnum í sókn og skoruðu 31 mark, 58,5% nýting en KA gerði 32 mörk í 52 sóknum og var því með 61,5% nýtingu. ■ KA skoraði ekki úr fyrstu fjórum sóknum sínum en síðan komu sjö sóknir í röð sem brugðust ekki. ■ EINAR Gunnar Sigurðsson fékk slæmt högg á hægri augabrún frá Erlingi Kristjánssyni er fímm sekúndur voru til leikhlés. Hann varð að fara út af en mætti klár í slaginn strax í síðari hálfleik. ■ SUMIR leikmenn Selfoss voru ekki sáttir við dómarana og einn hafði á orði að liðið hefði ekki sigrað í leik þar sem þeir Guðjón og Há- kon liefðu dæmt síðustu þijú árin og spurðu hvort það væri tilviljun. inn hjá Selfyssingum var slíkur í byijun að menn óttuðust að þeim entist ekki kraftur út leikinn, en sá ótti var ástæðulaus. Þrátt fyrir barning í vörn heima- manna náði Hallgrímur ekki að snerta boltann þær 16 mínútur sem hann lék og Gísli Felix varði þijú skot fram að hléi. Hinum megin var Guðmundur Amar helmingi betri og varði 7 skot fyrir hlé. Vörn KA hefur oft leikið betur og Selfyssing- ar fundu oft glufur á henni, sérstak- lega Einar Gunnar sem átti stórleik að þessu sinni og sýndi að það eru enn til góðar íslenskar skyttur. Selfyssingar börðust eins og ljón og tókst að komast marki yfír, 11:10, og síðan á lokasekúndunni þegar brotið var á Einari Gunnari. Fimm sekúndur voru eftir. Gefið var á Valdimar sem sendi laglega á Björgvin sem skoraði glæsilega úr horninu. Einar Gunnar var klár í slaginn eftir hlé og gaf tóninn með dúndur- marki eftir 20 sekúndur. Sveiflurn- ar urðu nokkrar. Selfoss komst í 19:16 en KA jafnaði þegar 8 mínút- ur voru liðnar af síðari hálfleik, mest fyrir góð mörk frá Patreki, annarri íslenskri stórskyttu. Síðan var allt í járnum og staðan var jöfn 23:23 um miðjan hálfleikinn. Þá breyttu heimamenn um vörn, sendu tvo fram á völlinn til að trufla sókn- arleik KA. Þetta hleypti fjöri í leik- inn, eins og það væri ekki nóg fyr- ir, og Duranona skaust inn á línuna nokkra stund og þegar hann kom út aftur var hann gjörsamlega óstöðvandi. Hann gerði átta af síð- ustu níu mörkum KA. Skemmtileg- ust voru mörkin sem komu eftir aukaköst. Þá var gefíð á hann, hann tók eitt skref og BÚMM! Þegar 3,32 mínútur voru eftir var Hjörtur Levi rekinn af velli fyr- ir brot og fékk að sjá rautt þar sem dómararnir töldu brotið alvarlegt. Staðan var 29:29 en næstu þijú mörk gerði Duranona og þar með voru úrslitin ráðin, en Selfyssingar löguðu stöðuna örlítið fyrir leikslok með tveimur mörkum. Rétt er að geta markvörslu Guðmundar Arn- ars á þessum kafla. Hann varði vel úr hominu er staðan var 29:30 og síðan langskot þegar staðan var 29:31. Mikilvæg augnablik. Tvö umdeild atvik urðu á loka- mínútunum. Fyrst náði Einar Gunn- ar knettinum er KA var í sókn. Duranona togaði í hann og náði boltanum aftur en dæmt var á Ein- ar Gunnar. Skömmu síðar fór Dur- anona í gegnum vörn heimamanna og Valdimar var til vamar. Vítak- ast var mjög strangur dómur. En fyrir utan þetta og örfá önnur at- riði vom dómararnir frábærir. Selfyssingar léku trúlega sinn besta leik í vetur að þessu sinni og Valdimar er greinilega á réttri leið með liðið. Markverðirnir náðu sér ekki á strik að þessu sinni. Einar Gunnar var í gríðarlegu stuði og Valdimar var sterkur og lunkinn. Þeir Siguijón og Björgvin vora einn- ig nokkuð frískir og Hjörtur Levi átti ágætan leik. KA er með sterkt og heilsteypt lið. Duranona fór á kostum og var stórkostlegur á lokakaflanum, skemmtilegur leikmaður sem hefur mjög góð áhrif á félaga sína. Pat- rekur var sterkur og Jóhann var góður í hægra horninu. Erlingur var traustur en það er ekki veruleg ógnun í leik hans og það kom á óvart að hinn ungi og efnilegi Heiðmar Felixson fékk ekki tæki- færi til að reyna sig í stöðu hans. KÚBUMAÐURINN Jullan Duranona var gjörsamlega óstöðvandl er KA sigraði Selfyssinga í undanúrslltum bikarkeppninnar. Hór er hann á góðri leið með að komast framhjá Finni Jóhanns- syni og virðist tilbúlnn að nota vlnstri höndina til að skjóta. Önnur skytta, Elnar Gunnar Sig- urðsson, var í aðalhlutverki hjá Selfyssingum, gerði 10 mörk en Duranona 13. Duranona óstödvandi KA náði að snúa dæminu við KA og Selfoss mættust fyrir þrem- ur árum í undanúrslitum bikar- keppninnar og var þá leikið í KA-húsinu á Akureyri. Selfyssing- ar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu 26:25 í miklum baráttuleik þar sem Sigurjón Bjarnason var lielja Selfyssinga, gerði sitt eina mark fjórum sekúndum fyrir leikslok og tryggði liði sínu sæti í úrslitum. Þar tapaði Selfoss 24:20 fyrir Valsmönnum. KA-menn sneru dæminu við á laugardaginn er lið- in léku á ný í undanúrslitum, að þessu sinni á Selfossi. Það virðist því happadrýgra fyrir þessi lið að Ieika á útivelli ef þau mætast í undanúrslituin bikarsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.