Morgunblaðið - 30.01.1996, Qupperneq 6
B ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ * MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 B 7
KÖRFUKNATTLEIKUR KÖRFUKNATTLEIKUR
Vorum lengi að losna við spennuna
Hitað upp í
myrkri Höll
F YRIRHUGAÐ var að hafa
glæsilega ljósasýningu í
Laugardalshöllinni þegar
Haukar og í A mættust í bik-
arúrslitaleiknum á simnudag-
inn. Það mistókst herfilega.
Aðaiyósin í Höllinni voru
slökktkl. 15.30, hálfri klukku-
stund fyrir leik og ætlunin
var að lýsa bara upp völlinn
og höfðu sérstök ljós verið
sett upp til þess arna. Þau
biluðu þannig að leikmenn
hituðu upp í hálfgerðu
myrkri.
Öryggin
óörugg
ÞEGAR leikmenn höfðu hitað
upp í myrkrinu í 40 mínútur
undir hræðilegri tónlist, og
búið var að kynna hvern og
einn með tilþrifum sem mis-
tókust einnig, átti að kveikja
aðalljósin. En þá kviknaði
aðeins á annari ljósasamstæð-
unni, öryggi fyrir hina brann
víst yfir að sögn starfsmanna
Hallarinnar. Kalla þurfti til
rafvirkja til að laga Ijósin og
gat leikurinn því ekki hafist
fyrr en kl. 16.35, rúmri hálfri
klukkustund á eftír áætlun.
Einu sinni
stærri sigur
AÐEINS einu sinni í 27 ára
sögu bikarkeppni karla hefur
lið sigrað með meiri mun en
Haukarnir unnu ÍA á sunnu-
daginn. Keflvikingar sigruðu
Snæfell árið 1993 með 39
stiga mun, 115:76. Tveir sem
komu við sögu í leiknum á
sunnudaginn voru einnig
þátttakendur í umræddum
leik. ívar Ásgrímsson var
þjálfari og leikmaður Snæ-
fells, en hann leikur nú með
Haukum, og Hreinn Þorkels-
son lék með Sneæfell, en hann
þjálfar nú Skagamenn.
Færri stig
árið 1970
EINU sinni hefur lið skorað
færri stig i úrslitaleik en
Skagamenn gerðu á sunnu-
daginn. Fyrsti bikarúrslita-
leikurinn í körfuknattleik var
árið 1970 og þá mættust KR
og Ármann. Vesturbæingar
sigruðu 61:54. Njarðvíkingar
hafa einu sinni gert einu stigi
meira en í A gerði í bikarúr-
slitaleiknum á sunnudaginn.
Árið 1977 léku KR og Njarð-
vík og enn dugði 61 stig vest-
urbæingum þvi nú unnu þeir
61:59.
Tíu ára bið eftir bikamum
loks á enda hjá Haukum
Skagamenn komust aldrei í gang en Hafnfirðingar náðu sér á strik í síðari hálfleik
Fjdrði bikarmeistaratitill
Keflavíku rstú I kna í röð
HREINNÞorkelsson, þjálfari Skaga-
manna var vonsvikinn í leikslok.
„Þetta fór ekki eins og ég hefði vilj-
að og ég er fokillur út af fram-
kvæmdinni í krngum leikinn. Öll
stemmning sem var kominn í mann-
skapinn var drepin niður, en Haukar
voru betri í dag og áttu sigurinn
skilinn. Annars var greinilega mikil
spenna í leikmönnum og leikurinn
var ekki eins hraður og þessi lið leika
venjulega, en við lögðum upp með
að reyna að róa þetta aðeins.
Við misnotuðum mikið af auðveld-
um skotum og þegar helst avopn
okkar er slegið úr höndunum á okk-
ur strax í upphafi er ekki von á
góðu,“ sagði Hreinn og vísaði til
þess að Skagamenn eru þekktir fyr-
ir baráttu og stemmningu.
Við vorum lengur að losna við
taugaspennuna en ég átti von
á,“ sagði Reynir Kristjánsson, þjálf-
ari Hauka, eftir sigurinn á sunnudag-
inn. „Ég bjóst við að það tæki ef til
vill tíu mínútur að ná úr sér tauga-
veiklunni en alls ekki 25 mínútur
eins og raunin varð. Þegar við náðum
tempóinu sem við vorum að leita að
allan fyrri hálfleíkinn var þetta aldr-
ei spurning. Það má segja að vélin
hafi hikstað hressilega hjá okkur, en
hún fór í gang
Ég er mjög óhress með tafirnar
sem urðu á að lcikurinn byrjaði.
Menn voru búnir að tjúna sig upp,
duttu niður aftur og þurftu því að
reyna að ná sér upp á ný og við
þetta verður auðvitað spennufall hjá
strákunum. Það er algjörlega óþol-
andi að vita ekki með vissu hvenær
leikur á að hefjast. Leikurinn var
auglýstur klukkan íjögur og ég hélt,
að það þýddi að hann ætti að byija
klukkan fjögur, það er kanski ein-
hver misskilningur,“ sagði Reynir.
Vörnin í lagi ailan tímann
Jón Arnar Ingvarsson, fyrirliði
Hauka, var að vonum ánægður með
að lið hans tryggði félaginu þriðja
bikartitilinn. „Leikurinn var svipað-
ur og ég átti vona á. Vörnin hjá
okkur var í lagi allan tímann og
þegar sóknin fór að rúlla hjá okkur
í síðari hálfleik og við náðum að
leika á okkar hraða, náðum við af-
gerandi foyrstu.
Við slökuðum á undir lokin þegar
munurinn var orðinn tuttugu stig
og þeir fóru að leika svæðisvörn.“
Jón Arnar sagði leiðinlegt hversu
lengi leikurinn hefði dregist en það
þýddi ekkert að Iáta slíkt fara í
taugarnar á sér. „Ég gæti samt vel
trúað að fyrri hálfleikur hafi verið
eins og hann var meðal annars
vegna þess hversu miklar tafirnar
voru.“
Fyrri hálfleikur bar keim af
þessu og má með sanni segja að
varla hafi verið hægt að finna
heila brú í leik liðanna. Einu
mennirnir sem virtust vita hvað
þeir voru að gera voru dómararn-
ir. Þeir stóðu sig vel. í síðari hálf-
leik var leikinn körfuknattleikur
og þó svo menn væru ekki alveg
vaknaðir í upphafi hans þá tókst
Haukum að hrista af sér slenið
er fimm mínútur voru liðnar, en
Skagamönnum tókst ekki að ná
upp sinni þekktu baráttu.
Haukarnir stungu þá hreinlega
af þegar þeir fóru að leika á eðli-
legum hraða. Hver sóknin rak
aðra þar sem Haukar splundruðu
vörn Skagamann og fengu algjör-
lega frí skot sem rötuðu ofaní.
Hinum megin gekk hvorki né rak.
Haukar léku þokkalega vörn og
alla vega það góða að Skagamenn
fengu varla frítt skot og ef þeir
fengu það mistókst skotið. Hittni
þeirra var hræðileg að þessu sinni.
Þegar Hafnriðingar vour búnir að
ná 20 stiga forystu hægðist aðeins
á leik þeirra enda breyttu Skaga-
menn í svæðisvörn og við það ró-
aðist leikurinn.
Allir fengu að spreyta sig hjá
liðunum að þessu sinni, en enginn
átti stórleik. Hjá nýkrýndum
bikarmeisturum var Williford
traustur, Jón Arnar náði sér vel
á strik eftir að Haukar keyrðu upp
hraðann og þeir ívar og Sigfús
skiluðu sínu. Björgvin átti góðan
síðari hálfleik og Þór kom sterkur
inná í fyrri hálfleiknum, en tókst
ekki að rífa félaga sína með sér.
Hjá Skaganum var Milton Bell
sá eini sem sýndi eitthvað, en
þetta var samt langt frá því að
vera besti leikur hans í vetur.
Allir leikmenn liðsins fóru illa með
færi sem þeir fengu og menn
skutu allt of oft úr vonlausu færi,
jafnvel þó enn væru 20 sekúndur
á skotklukkunni. Leikmenn vilja
sjálfsagt gleyma'þessum leik sem
fyrst, en þeir eiga þó alltaf silfur-
peninginn sem fylgir öðru sætinu,
og Skagamann voru svo sannar-
lega búnir að vinna fyrir honum
með því að komast svona langt.
Morgunblaðið/Halldór
Fjórir í röð!
KEFLAVÍKURSTÚLKUR höfðu ærna ástæðu til að fagna þegar þær tryggðu sér bikarmeistaratitilinn í körfu kvenna fjórða árið í röð.
Ég erfokillurút
í framkvæmdina
HAUKAR urðu bikarmeistarar á sunnudaginn er liðið lagði Skaga-
menn örugglega, 85:58, í leiðinlegasta úrslitaleik sem farið hefur
fram í körfuknattleik ífjölda ára. Það var ekki eitt, heldur allt
sem lagðist á eitt um að gera leikinn leiðinlegan. Bilun var í Ijós-
um Laugardalshallar þannig að leikmenn hituðu upp íhálfgerðu
myrkri og leikurinn hófst síðan 35 mfnútum síðar en fyrirhugað
var. Þetta hafði auðvitað áhrfi á leikmenn sem voru hræðilega
slakir ífyrri háifeik. Haukar komust f gang f þeim síðari, en
Skagamenn ekki og þá var ekki að sökum að spyrja.
Þegar leikurinn hófst loks eftir
langa mæðu var ljóst að leik-
menn voru alls ekki heitir enda
eðlilegt, þeir voru
Skúli Unnar búnir að higa vel
Sveinsson upp og byggja upp
skrifar hjá sér stemmningu
sem átti að vera
stigvaxandi, og ná væntanlega
hámarki klukkan 16, þegar leikur-
inn átti að hefjast. En þegar
klukkan sló fjögur var enn hál-
frökkvað í Höllinni. Fram-
kvæmdaaðili mótisns hafði ákveð-
ið að leikurinn hæfist ekki fyrr
en stundarfjórðung eftir auglýst-
an tíma og síðan brunnu öryggin
yfir eitt af öðru og tafir urðu enn-
frekari.
sem setti okkur út af laginu og var þess
valdandi að við fundum aldrei taktinn í
leik okkar ef frá eru taldar fyrstu mínút-
urnar. Þær náðu síðan góðum kafla og
14 stiga forskoti sem braut okkur alger-
lega og því miður náðum við aldrei upp
neinni baráttu að ráði eftir það,“ sagði
Jón Einarsson þjálfari Njarðvíkur eftir
leikinn.
„Leikurinn þróaðist svipað og ég átti
von á, það tók okkur nokkrar mínútur
að stilla saman strengina og eftir það var
þetta aldrei nein spurning," sagði Sigurð-
ur Ingimundarson þjátfari Keflavíkur sem
nú stýrði liðinu fnnmta árið í röð í úrslit-
um bikarkeppninnar.
„Við réðum ekki við vörnina hjá þeim
og við gáfumst allt of fljót upp, en við
erum með ungt lið og þetta veitir okkur
ákveðna reynslu og við verðum bara að
gera betur næst,“ sagði Harpa Magnús-
dóttir fyrirliði Njarðvíkinga.
„Eg held að leikreynsla okkar hafí
gert útslagið en þær veittu okkur samt
harða keppni í upphafi. í mínum huga
var þetta aldrei spurning um hvort liðið
sigraði en þær eiga samt heiður skilið
fyrir að n'á svona langt í keppninni,“ sagði
Ánna María Sveinsdóttir fyrirliði Keflvík-
inga.
Bestar í liði Keflavíkur voru þær Erla
Reynisdóttir, Veronica Cook, Anna María
Sveinsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir, en
hjá Njarðvíkingum þær Suzette Sarge-
ant, Harpa Magnúsdóttir, Rannveig
Randversdóttir og Eva Stefánsdóttir.
Morgunblaðið/Halldór
Sigursælar stöllur
BJÖRG Hafsteinsdóttir og Anna María Sveinsdóttir hafa ver-
ið sigursælar með l.iði Keflvíkinga undanfarin ár og meðal
annars hampað bikarnum fjögur ár í röð. Hér sjást hinar
sigursælu stöllur sælar meö bikarinn enn eitt árið.
KEFLAVÍKURSTÚLKUR sigruðu ná-
granna sína frá Njarðvík nokkuð
auðveldlega í úrslitleik bikarkeppni
KKÍ í Garðinum á laugardaginn
69:40 og vörðu þar með titilinn sem
þær hafa unnið til 4 ár í röð. Þetta
var í níunda sinn sem Keflavíkur-
stúlkur leika til úrslita á sfðustu 10
árum og þar af hafa þær sigrað í 8
leikjum. Björg Hafsteinsdóttir hefur
leikið alla úrslitaleikina og það
sýndi sig í þessum leik að leik-
reynsla Keflvfkinga var meira en
Njarðvfkurstúlkurnar réðu við að
þessu sinni.
Njarðvíkurstúlkurnar, sem komu svo
skemmtilega á óvart í undan-
keppninni, þar sem þær lögðu sjálfa ís-
landsmeistarana Breiða-
blik og síðan ÍR, settu
Biöndai fyrstu stigin og &áfu um
skrífar 600 áhorfendum sem
komu til að fylgjast með
leiknum vonir um spennandi leik. En það
var aðeins fram undir miðjan hálfleikinn
sem Njarðvíkurstúlkurnar stóðu í bikar-
meisturunum sem í stöðunni 14:12 settu
14 stig í röð og þar með var eins og
Njarðvíkurliðið hreinlega gæfist upp. I
hálfleik var munurinn orðin 17 stig og
eftir það var aðeins formsatriði fyrir
Keflavíkurstúlkurnar að ljúka leiknum
því Njarðvíkurstúlkurnar voru greinilega
búnar að sætta sig orðin hlut.
„Það var góð svæðisvörn Keflvíkinga
Morgunblaðið/Kristinn
TALSVERÐ
stemmning var í
Höllinni á sunnu-
daginn þó svo
rafmagnsleysið
hafi slegið stuðn-
ingsmenn lið-
anna út af laginu
í upphafi, líkt og
leikmenn. Skaga-
menn höfðu betur
á pöllunum fram-
an af en Hauka-
menn lét einnig
hressiiega til sín
taka eins og sjá
má á mynd Krit-
ins hér að ofan.
Hér til hliðar
hvetja Skaga-
menn sína menn
af innlifun.
Orlando steinlá
Chicago vann tuttugasta heimaleikinn í röð
Orlando Magic hefur átt það til
að tapa stórt á útivöllum þrátt
fyrir að liðið sé taplaust á heima-
velli. Einn slíkur leikur var í Indiana-
polis um helgina þegar Magic tap-
aði 102:79. Það var strax ljóst í
hvað stefndi því heimamenn voru
32:16 yfir eftir fyrsta leikhluta og
Orlando átti ekki mörguleika, leik-
menn hreinlega týndust, en Shaqu-
ille O’Neal gerði þó 23 stig. Hjá
Indiana, sem vann þarna sinn 14.
leik í röð á heimavelli og sjötta leik-
inn í röð á heimavelli gegn Orlando,
var Rik Smits með 18 stig.
Chicago vann Phoenix Suns á
sunnudagskvöldið 93:82 og hefur
liðið náð ótrúlegum árangri - unnið
38 leiki, en tapað aðeins þremur.
Michael Jordan skoraði 31 stig og
Dennis Rodman tók 20 fráköst en
skoraði aðeins fjögur stig - öll á
síðustu mínútunni. Sottie Pippen
skoraði 21 stig fyrir Bulls, sem vann
sinn fimmtánda sigur í röð, en tut-
tugasta á heimavelli. Charles Bar-
kley skoraði 30 stig fyrir Suns og
tók sextán fráköst. „Ég verð að
hrósa leikmönnum Chicago, þeir
skutu okkur niður í seinni hálfleik,"
sagði Barkley. Chicago var yfir í
leikhléi 52:47.
Lakers vann Nets í New Jersey,
100:98, á laugardagskvöldið og
gerði Elden Campbell sigurkörfuna
á síðastu sekúndubrotinu. „Ég vissi
ekki hvort karfan var góð fyrr en
ég sá dómarana gefa merki um að
hún væri gild,“ sagði Campbell sem
gerði alls 20 stig í leiknum. Cedric
Ceballos gerði 29 stig fyrir Lakers
sem var með 13 stiga forystu í síð-
asta ieikhluta. Bradley gerði 19 stig
fyrir Nets og Armon Gilliam 16. v
„Dómararnir fóru illa með okkur.
Við erum ekki í náðinni hjá þeim,“
sagði Butch Beard þjálfari Nets eft-
ir leikinn.
Clyde Drexler gerði 24 stig, tók
10 fráköst og átti 10 stoðsendingar
þegar Houston vann Detroit 105:85.
Þetta var 19. þrefalda tvennan hjá
Drexler á ferlinum. „Fyrir eldri
borgara er þetta bara ansi gott,“
sagði Drexler eftir leikinn.
Karl Malone gerði 25 stig þegar
Utah vann Golden State 108:91 og
tók auk þess 12 fráköst. Antoine -
Carr gerði 15 stig og John Stockton
tíu og átti tíu stoðsendingar. La-
trell Sprewell gerði 21 fyrir Warri-
ors.
Seattle lenti í vandræðum í Los
Angeles en tókst samt um síðir að
sigra Clippers 96:87. Gary Payton
og Hersey Hawkins gerðu 23 stig
hvor og Shawn Kemp 16 og tók 11
fráköst. „Þetta var ekki fallegur
leikur, en svona leikum við,“ sagði
George Karl þjálfari Sonics. „Við
gerum þó einn hlut vel. Við spilum
góða vörn,“ bætti hann við.
Portland gerði góða ferð til Dallas
og Clifford Robinson skoraði 29 stig
þegar liðið vann 112:103. Rod
Strickland var með 19 stig og 13 »
stoðsendingar og Ai-vydas Sabonis
gerði 16 stig og tók 13 fráköst en
fyrir Dallas skoraði Jim Jackson 23
stig.
Rex Chapman skoraði 29 stig
þegar Miami vann Cleveland 102:85
og hefur ekki skorað eins mikið í
vetur. Alonzo Mourning gerði 23
stig og Chris Mills var stigahæstur
heimamanna með 18 stig.
Aðeins 30 sæti í boði!
ATLAS- og Gullkorthöfum EUROCARD býðst nú frábær
körfuboltaferð til New York á einstöku verði. Farið verður á tvo
leiki í NBA-deildinni:
2. mars: Newjersey - Seattle
og 3- mars: New York Knicks - Golden State.
Gist verður á Edison-hótelinu sem stendur í námunda við
Broadway, hina frægu skemmtana- og leikhúsgötu og Madison
Square Garden, heimavöll New York Knicks.
Innifalið: Fiug, gisting með morgunmat, akstur til og frá hóteli
erlendis, rúta til New Jersey, tveir miðar á NBA-leiki og
flugvallarskattar.
Bókanir og upplýsingar hjá íþróttadeild Úrvals-Útsýnar,
sími 569 9300.
Tryggið ykkur sæti strax!
* Á mann, í tvíbýli með ATIAS-afslætti.
ATÚAS
úniíii”úTPúu - endalaus friöindi
(M)®®
KliROCARI) Á ÍSIANDI
KREDITKORT HF.
Armúla 28 - 30 • 108 Rcyklavfl.
Slml 568 5499 • Kax; 568 8554
*