Morgunblaðið - 30.01.1996, Qupperneq 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
TENNIS
ÍS!lí!»iíiil
«;• iiii?-
áiPB 1
;aaj»i"BgM»'
;5!!! !>>..,,£!
SiisniK;::;:!
Reuter
BORIS Becker fagnaðl slgrl í Melbourne, en flmm ár eru llðln síðan hann stóð uppi sem sigur-
vegarl á opna ástralska. Á Innfeildu myndlnni sést elglnkona hans, Barbara, þerra tárln.
Fimm ára bið
Beckers á enda
ÞJÓÐVERJINN Boris Becker tryggði sér sigur á Opna ástralska
meistaramótinu ítennis á sunnudaginn er hann lagði Bandaríkja-
manninn Michael Chang 6-2,6-4,2-6 og 6-2 og batt þar með
enda á fimm ára þurrk hvað varðar sigra á slemmumótum. Bec-
ker var að vonum ánægður, en hann sigraði síðast á siemmumóti
í Ástralíu fyrir fimm árum. Þá henti hann spaðanum hátt í loft
upp, hljóp út af vellinum og hoppaði og skoppaði um nálægan
almenningsgarð. Núna, fimm árum eldri, lét hann sér nægja að
lyfta höndunum til himins og þakka áhorfendum fyrir stuðning-
inn við að ná sjötta slemmusigri sínum.
Leikurinn, sem stóð í tvær afslappaður og lék eins og vel smurð
klukkustundir og 33 mínútur, vél og af gríðarlegu öryggi. Þrátt
varð aldrei rishár. Becker var mjög fyrir að missa einbeitinguna um
Stefan Edberg
kvaddi með sigri
S VÍINN Stefan Edberg kvaddi opna ástralska tennismótið með
sigri — varð sigurvegari í tvíliðaleik með Tékkanum Petr Korda.
Þeir unnu Sebastien Lareau frá Kanada og Bandarílg'amanninn
Alex O’Brien 7-5, 7-5,4-6,6-1. Edberg, sem var 31 árs sl. föstu-
dag, sagði fyrir keppnina að hann myndi ekki oftar taka þátt i
opna ástralska mótinu. Hann notaði tækifærið og þakkaði áhorf-
endum í Astralíu fyrir samfylgdina og sagði þá líklega þá bestu
i heimi. „Kærar þakkir, ég mun koma til með að sakna ykkar.
Ég vildi hætta hér með þessum hætti, með sigri,“ sagði Edberg.
tíma og tapa þriðja settinum náði
hann sér á strik aftur og réð gangi
mála í fjórða og síðasta settinu.
„Ég hélt satt best að segja að
ég væri ekki með slemmuna í mér
ennþá,“ sagði hinn 28 ára Becker
þegar hann tók við verðlaunafénu
sem nam rúmum 27 milljónum
króna. Hann reyndi að hugga
Chang og sagði: „Miðað við vilja
þinn og áhuga þá telur hver dagur
hjá mér, ekki hjá þér, þú átt mörg
ár eftir.“
„Það er farið að hausta hjá mér
í tennisnum og ég tek engu iengur
sem sjálfsögðum hlut, en ég vona
að ég eigi ennþá eitthvað inni. Á
meðan konan og strákurinn minn
styðja mig, og ég þarf ekki að
skammast mín fyrir að vera í stutt-
buxum, ætla ég að halda áfram,“
sagði Becker,
Margir spáðu Chang sigri því
hann hafði ekki tapað setti á leið-
inni í úrslitaleikinn á meðan Becker
var í basli í upphafi móts. „Ég gerði
það sem ég gat en Becker var ein-
faldlega betri en ég í dag,“ sagði
Chang sem átti í miklum erfiðleik-
um með rosalegar uppgjafir Þjóð-
veijans. Becker vann hlutkestið en
lét Chang byija í uppgjöf og það
reyndist góð ákvörðun því Becker
komst í 4:0 í fyrstu lotu.
Táningar í sviðs-
Ijósinu á Spáni
ARSENIO Iglesias, þjálfari Real Madrid, getur þakkað táningnum
Raul Gonzalez fyrir að hann gat fagnað sigri í slnum fyrsta leik
sem hann stjórnar meistururnum í 1. deildarkeppninni. Gonzalez
skoraði bæði mörk liðsins gegn Real Oviedo — fyrst eftir átta
mín. og sigurmarkið, 2:1, á 82. mln. Leikmenn Real Madrid lentu
í strögli eftir að miðvallarieikmaðurinn Luis Enrique Martinez
var rekinn af leikvelli rétt fyrir leikhlé. „Undirstaða þessa sigurs
var sterkur varnarleikur,” sagði Iglesias.
Það var einnig táningur í sviósljósinu hjá Barcelona, sem vann
Zaragoza, 3:1, — Ivan de la Pena, sem skoraði tvö mörk. La
Coruna vann Salamanca 5:0, þar sem Adolfo Aldana og Bebeto
skoruðu hvor sín tvö mörkin.
Atletico Madrid heldur enn níu stiga forskoti sinu á Spáni. 39
þús. áhorfendur sáu liðið vinna Athletic Bilbao, 4:1.
Maldini skoraði
fyrir AC Milan
Leikmenn AC Milan náðu þriggja
stiga forskoti á Ítalíu eftir að
leikmenn Fierontína urðu að sætta
sig við jafntefli, 1:1, gegn Vicenza
á heimavelli á sunnudagskvöldið.
Fyrirliðinn Batistuta skoraði fyrst
fyrir heimamenn.
AC Milan vann Udinese 2:0 fyrr
um daginn með mörkum frá Paolo
Maldini og Króatanum Zvonimir
Boban og hefur liðið ekki tapað fjór-
tán síðustu leikjum sínum. AC
Milan lék án George Weah og fyrir-
liðans Franco Baresi, sem er meidd-
ur. Maldini skoraði mark sitt eftir
homspyrnu Roberto Baggio — það
var hans átjánda mark fyrir Milan
í 303 leikjum.
Inter Mílanó gerði jafntefli, 1:1,
gegn Parma, eftir að leikmenn liðs-
ins fóru illa með mörg gullin tæki-
færi. Búlgarinn Hristo Stoichkov
skoraði fyrir Parma með glæsilegu
marki í byijun leiksins, en það var
svo aðeins stuttu eftir að Stoichkov
var tekinn af leikvelli, að Marco
Branca skoraði mark Inter með
glæsilegum skalla á 83. mín.
Juventus lagði Piacenza, 2:0.
Antonio Conte skoraði fyrst með
Reuter
ROBERTO Mussl fagnar
Hrlsto Stolchkov, eftlr að
hann skoraðl fyrlr Parma.
skalla og síðan bætti Ciro Ferrara
marki við með hjólhestaspyrnur.
Á Olympíuleikvanginum í Róm
skoraði Pierluigi Casiraghi þrennu
í fyrri hálfleik þegar Lazíó vann
Cagliari, 4:0.
París St. Germain
með gott forskot
LEIKMENN Parísarliðsins St. Germain, sem hefa ekki tapað síð-
ustu fjórtán leikjum sínum, hafa náð sex stiga forskoti í frönsku
1, deiidarkeppninni. Liðið vann Cannes, 2:1, með mörkum frá
landsliðsmanninum Patrice Loko. Varnarleikmaðurinn Alain Roc-
he lék á ný með Parísarliðinu, eftir að hafa verið frá i fimm
mánuði vegna hnémeiðsla. Auxerre er í öðru sæti eftir sigur Le
Havre 1:0. Miðvallarspilarinn Sabri Lemouchi, sem lék sinn fyrsta
landsleik fyrir Frakka gegn Portúgal í sl. viku, skoraði markið.
Pele úr leik í
Afríkukeppninni
Knattþsynukappinn Abedi Pele,
sem missti af úrslitaleik
Afríkukeppninnar 1992, þar sem
hann var í leikbanni, leikur ekki
meira með Ghana í keppninni í
Afríkukeppninni í S-Afríku, þar
sem hann meiddist illa á ökkla
þegar Ghana vann Zaire, 1:0, í
undanúrslitum á sunnudaginn.
Pele sýndi snilldarleik og var út-
nefndur maður leiksins — hann
lagði upp sigurmarkið, sem Tony
Yeboah skoraði.
Ghana mætir S-Afríku í undan-
úrslitum. S-Afríkumenn lögðu Alsír
að velli, 2:1. John Moshoeu hetja
þeirra — skoraði sigurmarkið fímm
mín. fyrir leikslok, eða nokkrum
sek. eftir að Alsír náði að jafna.
Grenjandi rigning var og hefði
leiknum eflaust verið frestað, ef
hefði þurft að framlengja hann.
Zambíumenn, sem töpuðu úr-
slitaleiknum gegn Ghana fyrir
tveimur árum, komust í undanúrslit
með öruggum sigri, 3:1, á Egypt-
um. Þeir skoruðu mörkin sín á átján
mín. leikkafla í seinni hálfleik.
Zambía mætir Túnis í undanúrslit-
um.