Morgunblaðið - 01.03.1996, Qupperneq 5
4 B FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR1. MARZ 1996 B 5
DAGLEGT LÍF
DAGLEGT LIF
Morgunblaðið/Kristinn
NEMENDUR á fjölmiðlabraut lýsa skoðunum sínum á fjölmiðlum,
wfm,; \ \ t
■tiíi & !
'Íítíf&lh ■ KHF N ■* ' nlBnBhi 11 ‘
Fjölmiðlun
námsbraut í uppsveiflu
og nemendur læra vinnubrögðin
FJÖLMIÐLABRAUTIR hafa undanfar-
in ár staðið eldri nemendum í nokkrum
framhaldsskólum til -boða. Brautin er
tveggja ára nám sem leggst ofan á jafn-
langt grunnnám og lýkur með stúdents-
prófi.
Námið er bæði verklegt og bóklegt
og markmiðið að nemendur öðlist ann-
ars vegar nokkra fæmi í vinnubrögðun-
um; skrifa blaðagreinar, vinna sjón-
varpsfrétt og taka ljósmyndir. Og hins-
vegar að .skilja fjölmiðla og verða með-
vitaðir notendur þeirra.
Nám til krufnlngar á fjölmlðlum
Í stofu 18 og 19 í íjölbrautaskólanum
í Breiðholti búa 14 nemendur sig undir
lokaverki sitt í fjölmiðlun. Ég settist
fyrir framan þau og spurði:
Hvað lærið þið um íjölmiðla?
„Við lærum að taka viðtöl og gera
myndbönd, fjölmiðla-ensku, fjölmiðla-
íslensku og siðfræði fjölmiðla."
„Við lærum að gagnrýna," sagði einn,
„maður getur varla horft á bíómyndir
lengur án þess að bijóta tæknina til
mergjar."
„Við flokkum greinar og snúum til
dæmis blaðagrein í útvarpsfrétt. Annars
lærum við sennilega minnst um útvarp.
Við lærum iíka að setja upp greinar
á tölvu að klippa myndbönd niður í stutt-
ar myndir."
Hvernig .fínnst ykkur fréttir vera í
fjölmiðlum?
„Illa skrifaðar, óskiljanlegar og að-
eins fyrir sérfræðinga," var svarið sem
ekki stóð á.
Hvernig finnst ykkur fjölmiðlar
standa sig gagnvart ungu fólki?
„Þeir hafa skánað. Nú eru komnar
sérstakar unglingasíður og umræðan í
þeim er orðin unglingavænni.“
Kjalneslngasaga endursögð
á myndrænu formi
Nemendurnir sögðust vonast til að
geta starfað við fjölmiðla síðar meir,
en voru samt ekki fullvissir um að þeir
fengju tækifæri til þess. „Maður verður
bara að vera nógu frekur til að komast
að,“ sagði ein stúlka.
Lokaverkefni þeirra eru af ýmsum
toga og flokkast undir prentverkefni eða
myndbandsverkefni og eru um trúarlíf,
Rauða krossinn, Landhelgisgæsluna,
dans og New York svo dæmi sé nefnt.
Benedikt Þór Bárðarson ætlar að
gera heimildarmynd um Kjalnesinga-
sögu. „Hún er með yngstu. Islendinga-
sögunum," segir hann. „Ég ætla að
endursegja hana, segja frá söguslóðum.
Hún verður að hluta til leikin með bar-
dagaatriðum og skemmtilegri eftirreið
á hestum. En sagan er um konu og
þrjá biðla hennar."
Telur þú um sanna sögu að ræða?
„Ég held að sagan sé byggð á ann-
álum sem búið er að krydda með ýmsum
atburðum.
Það verður létt yfir myndinni en reynt
að hafa sama yfirbragð og var á þessum
tíma. Farið verður út í Andrésey en þar
var Andríður heygð. Það er mjög fallegt
fugjalíf í eyjunni.
Áhorfendur fá innsýn í söguna og
geta svo farið á söguslóðir og skoðað,“
segir Benedikt.
Fólk á framabraut og mynd
um hljómleikaferðalag
Stella Guðný Kristjánsdóttir býr sig
undir að gera myndband sem á að heita
Fólk á framabraut. „Ég ætla að fylgja
nokkrum um tvítugt eftir, sem eru að
fara út h'fið eftir nám,“ segir hún.
Einn viðmælandi minn er stelpa sem
er að kiára á myndlistarbraut. Hún seg-
ir sögu sína, tii dæmis að hún taki ljós-
myndir fyrir fólk.
Ég hef áhuga á tæknilegu hliðinni
eins og klippingum og stíl. Mig langar
líka að ná einlægum viðtölum á band.“
Hekla Jósepsdóttir ætlar að gera
myndband um hljómleikaferð. Hún hef-
ur haft samband við hljómsveitarmeð-
limi um hvort hún megi fylgjast með
þeim eina helgi.
„Ég sjálf ætla að vera eins og fluga
á vegg,“ segir hún. „Það er mjög mikil-
vægt að gera nákvæmt handrit áður
en maður byijar á myndinni, svo ekki
fari milli mála, hvað maður ætli að
gera.“
Upphaf fjölmiölakennslu á íslandl
Sögu fjölmiðlakennslu á íslandi má
rekja til nefndar sem menntamálaráðu-
neytið skipaði í ágúst 1974 „til athugun-
ar á því, hvort kennsla í fjölmiðlum
skuli tekin upp við Háskóla íslands",
en formaður hennar var Þorbjörn
Broddason prófessor við Háskólann.
Núna er fjölmiðlafræði kennd sem
30 eininga aukagrein við Háskólann og
hefur Þorbjörn verið aðaikennarinn.
Námið er fyrst og fremst fræðilegt en
vinnubrögð blaðamannsins ekki kennd.
Áherslan er á að veita skilning á eðli,
gildi og áhrifum fjölmiðla og rýnt í kenn-
ingar um boðskipti.
Hvaða spurningum svarar
góð frétt?
Þjálfun í störfum blaða- og frétta-
manna hjá blöðum, útvarpi og sjónvarpi
er hinsvegar veitt í viðbótarnámi handa
fólki með háskólagráðu eða þeim sem
hafa fimm ára reynslu í fjölmiðlastarfi.
Það heitir Hagnýt fjöimiðlun.
Þar er meðal annars kennt að góð
frétt svari sex spurningum: Hvað gerð-
ist? Hvenær gerðist það? Hvar gerðist
það? Hver á hlut að máli? Hvernig gerð-
ist það? Og hvers vegna gerðist það,
en síðustu tveimur spurningunum er oft
svarað betur í fréttaskýringum. Góður
fréttamaður hefur þessar spurningar í
huga sér þegar hann vinnur að frétt.
Þeir sem hyggja á frekara nám í
fjölmiðlafræðum verða að fara til út-
landa.
Krökkunum á fjölmiðlabrautinni í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti finnst
BENEDIKT Þór Bárðarson ætlar að gera
mynd um Kjalnesingasögu.
HEKLA Jósepsdóttir gerir lokaverkefni um
hljómleikaferð.
STELLA Guðný Kristjánsdóttir gerir mynd-
band um fólk í fyrirrúmi.
Morgunblaðið/Kristinn
SIGURJÓN Jóhannsson og Magnús Ingva-
son kennarar.
ólíklegt að þau fái störf við hæfi strax
eftir stúdentsprófið, og hyggja því mörg
á framhaldsnám.
Er hægt að læra af upphafi
blaðamennskunnar?
Siguijón Jóhannsson, blaðamaður og
kennari, hefur umsjón með ijölmiðla-
kennslunni í FB. Hann hefur rýnt nokk-
uð í sögu blaðamennskunnar á íslandi,
sérstaklega frá árinu 1848, þegar Þjóð-
óifur kom út og til 1914 eftir að bæði
Morgunblaðið og Vísir komu út daglega.
Hann segist hafa greint nokkra þætti
sem einkennt hafí Morgunblaðið alveg
frá fyrsta degi 1913. „Hin kunna teng-
ing blaðsins við morgunkaffið birtist
strax í öðru tölublaði: „Allt þetta gátu
kaupendur Morgunblaðsins lesið heima
hjá sér með morgunkaffinu“.
Og í sama blaði stendur: „Morgunblað-
ið var komið til allra áskrifenda klukkan
9.45 í gærmorgun. Mun það jafnan verða
regla vor, að eigi verði byijað að selja
blaðið á götunum fyrr en áskrifendur
hafa fengið það heimborið."
Hér sést að Morgunblaðið hefur í
byijun ákveðið að festa sér áskrifend-
ur,“ segir Siguijón „og fjölga þeim á
þeirri forsendu að blaðið komi á réttum
tíma og aðrir en áskrifendur ættu ekki
kost á að sjá það fyrr en útburði var
lokið.“
Siguijón nefnir í lokin að í 7. tölu-
blaði 1. árgangs bregði Morgunblaðið á
leik með því að snúa sér til lesenda og
biðja þá við svar við spurningunni:
„Hvernig á eiginmaðurinn að vera?“
Svörin hrúguðust inn á borð Vilhjálms
Finsens ritstjóra, og eitt þeirra var stutt
og laggott: „Góður eiginmaður á að
vera eins og eiginkonan vill hafa hann.“
■
Gunnar Hcrsveinn
Fyrsta viðtalið
sem birtist í dagblaði
FYRSTU innlendu fréttamyndirnar birtust í
Morgunblaðinu árið 1913, en þær voru skornar
í dúk af dönskum sýningarmanni í kvikmynda-
húsi sem hét Bang. Önnur sýnir húsið Vestur-
götu 13 og hin herbergi voðaverks eða morðs
á Eyjólfi Jónssyni, frömdu af systur hans Júní-
önnu og vini hennar Jóni Jónssyni. Greinin sem
fylgir er líka einstök.
Hér á eftir verður annað dæmi birt úr sögu
blaðamennskunnar, en þess má geta að Guðjón
Friðriksson sagnfræðingur vinnur að bók sem
spannar sögu dagblaða til okkar daga.
13. nóvember 1913 er birt viðtal undir fyrir-
sögninni „Nýtísku vélbátur - viðtal við Guðm.
Kristjánsson skipstj." Hugsanlega er þetta
fyrsta blaðaviðtalið, en það verður að teljast
vel heppnað og í raun furðu nútímalegt hvað
varðar stíl og inntak. ,
IMýtísku vélbátur, viðtal eftlr
Comes, sem er dulnefnl
„Guðm. Kristjánsson, hinn góðkunni skip-
stjóri, er Vestra stýrði síðustu árin, kom í fyrra-
kvöld frá Svíþjóð beint til Reykjavíkur, á vél-
báti.
Vér hittum Guðmund í gær og spurðumst
frétta.
„Hvað voruð þér lengi á leiðinni frá Svíþjóð?"
„Reiknið þér sjálfur. Við fórum þriðjudags-
kvöldið 4. nóv. frá Gautaborg og komum hing-
að í gær (þriðjudag).“
„Og hvað segið þér svo af sjálfu skipinu?"
„Það er það fínasta skip, sem hér hefir kom-
ið í sinni röð. Sænsk blöð kölluðu það hið
mesta modern furtyg sem smíðað hefði verið
í Svíþjóð af vélbátum. - Það heitir Freyja, er
eign Karls Olgeirssonar á ísafirði, - 31 smá-
lest brúttó, 60 fet á lengd, 15 á breidd, 7 'U á
hæð með 45 hesta vél, smíðað eftir minni fyrir-
sögn hjá Oluf Gulbrandsson í Göteborg.
Og svo skuðuð þér heyra hið nýstárlegasta
við bátinn! Hann er útbúinn með botnvörpum
af nýjustu gerð, sem búið er að nota 1 ‘A ár
í Noregi og Svíþjóð og gefast forláts vel.
Vélin heitir Populær og er sett í gang með
lofti. Báturinn er lýstur með acetylen, - fyrsti
íslenski vélbátur með því ljósi. Á þilfari eru 2
spil, í káetu geta sofið 8 manns, en í lest rúm-
ast 10-15 smál. af fiski.“
„Hvílíkur forIátabátur!“ skjótum vér inn í.
„Hann er meira en það, hann er fínasti, lang-
fínasti vélbátur, sem hér hefur sézt - og kom-
ið þér að skoða liann áður en eg fer vestur,
eftir 1-2 daga.“
„Hvað margir voru á skipinu hingað?“
„Eg og 2 unglingsmenn frá Isafirði."
„Og voruð þið ekki hræddir á svona litlu
skipi, úti á reginhafi?“
„Hræddir!“
Guðm. leit fyrirlitningaraugum á þennan
landkrabba fyrir framan sig - virti hann ekki
lengur svars, og fór.
En Freyja vaggar á bárunum hér á höfninni
og hugsar sér að færa eiganda sínum mikla
fjársjóðu í framtíðinni og Guðmundi fóstra sín-
um frægð og frama. ■
Comes
Broðurmoró f Kéykjcwtk.
Júttema Jónsdó/tir tn/ríar Ivótfl Jónsswnt. bróóur stnum, eitur.
scnt vcróur tjonum aó bana.
U). {r«f **n tjAINf H k*»ft>*«o<*ft.
Mjníí* i |«f «1
Hi ftthmýui hí? i hífedur, ti prtuigat vuns i **< wSti
f tttti ’ 1 *«>*■• Itkn I «x o<i*k t>rt -tn* tttcgiS f*st fnm i *VU»-
K«v4íhB«« tó» ircJsi.fi?, prftmm * Biiácdftí, lwnft f«r S ahunnu ttfiffat. þeftfti et mf-
ok i-tí Utnl vttfutt> $ wsftw úl
*
iMm.
ÖNNUR af tveimur fyrstu innlendu fréttamyndunum.
Birt í Morgunblaðinu 17. nóvember 1913.
V araliturinn
kemur upp um persónuleikann
VARALITUR er ekki bara litur til
að næra varir kvenna og fegra.
Varaliturinn kemur nefnilega upp
um persónulega eiginleika þeirrar
konu sem á hann, að því er segir
í nýlegu hefti af tískuritinu Cosmo-
politan. Spurningin er þá hvort kon-
ur ættu kannski að mála á sér var-
irnar í einrúmi svo þær komi ekki
of auðveldlega upp um sinn innri
mann.
aKona sem á varaliti sem eru
þverir er skynsöm, gædd jafn-
lyndi og góðri dómgreind og hún
er örugg með sjálfa sig.
bKona sem á varaliti sem eru
með jafnan skáhalla eru trygg-
lyndar og þær slúðra aldrei.
CKona sem á varaliti sem eru
með dæld í miðjunni eru for-
vitnar og þær
skoða hvern hlut
vel og vandlega
áður en þær festa
kaup á honum.
á
dKona sem
varaliti sem
eru sporöskjulaga
er vingjarnleg, örl-
át og sáttfús. Hún
hefur gaman af að
daðra.
eKona sem á
oddmjóa vara-
liti er mjög nautna-
full og djörf kona.
Hún safnar undirfatnaði.
m
Þú færð þérnýja Quelle-listann r
og ávinningur þinn er
Inneignarávísun sem þú getur tvöfaldað
verðmætið á með einföldum hætti, þú
notar hana fyrir 31. mars n.k. við pöntun
úr nýja listanum og breytir 600 kr. í 1200
kr. til frádráttar á upphæð pöntunar.
100 % ávöxtun kemur sér vel.
Einnig bjóðum við þér um leið og þú
kaupir/pantar lista að
HnMHHH notfæra þér einstök
kynningartilboð!
KR. 1200
sexhundt
Tvölaldaðu vemiwli ávi*unartnn«rl
E1 þú pantar lyrlr 31. mars nlL fyrir im.k. 200 DM þá
h*kkar varðmseti ávisunar um 100%, í 1200 kr.
^ Quelle-listinn m
JLp Ik er viöurkenndur M
fyrir gæöi og
einstaklega
gott verö en ekki á
kostnað gæðanna. Frá
Þýskalandi færir hann fjj
þér og fjölskyldunni það g
nýjasta og besta í fatnaði, ÆmJM
hlutum fyrir heimilið ofl. W
ofl. Þú færð aðgang að W
meira vöruúrvali gæða-
vöru á betra verði en
þú átt kost á annars ÖPB*
staðar. 967 bls.
Listinn kostar 600 kr. \ 5 pottar o<
í verslun okkar, \ ská\ar. G;
burðargjald er kr. 300. \ tvöfaidur
\ uppÞvOU
Auðvitað færðu góða \ pe\miV''5
gjöf með fyrstu pöntun \ gjöf fVr'r
þinni úr listanum sem \ búa.
Ibakklætisvott frá
Quelle!
íábÓrðb^fJegVuósa- 1
Krómstá\ meö a'SQttave\ og
£3SftS&
icssf-
passahv«iu
I stóru verslunarhúsi Quelle er hægt að gera góð kaup.
Reglulega fáum við stórar sendingar af kvenfatnaði sem
við seljum á einstaklega góðu verði og einnig getur þú
gert góð kaup í búsáhöldum, smá-raftækjum ofl.
Það borgar sig örugglega að líta við!
Þrjár fallegar töskur sem
koma sér vel, í líkams-
rækt, sund,
k í útileguna,
£ á ströndina,
eða hvar sem er.
Notfærðu þér gott verð.
Kr. 899. Þrjár saman.
HÉR
ERUM
VtÐ!
L I S T A VERSLUNARHÚSINU DALVEGI 2 - KÓPAVOGI
kAlJP SÍMI 564 2000
Universum, þýskar
myndbandsspólur frá Quelle.
Frábært verð.
180 mín. 299 kr. og 240 mín 399 kr.
ÞREFALDUR!
1A INNKAUPA-AVISUN
Stóri listinn
Sérlisti:
Búsáhöld
Sérlisti:
Fyrir
miðaldra
og eldri
Sérlisti:
Meine Grösse
- stór nr.
í kvenfatnaði
Sérllsti:
Madeleine - tiskulistinn
M li
7