Morgunblaðið - 17.03.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 C 3
FERÐALÖG
Þverrandi aðdráttarafl austurrískra
og svissneskra skíðabrekka
Alparnir bráöna í
augum skíöafólks
í GARÐI Edison er svokallaður
Vináttustíg’ur. Þar eru hellur
sem nöfn vina Edison hafa ver-
ið steypt í og er stígurinn eins
og gestabók.
og í því dvöldust þau hjónin svo til
hvern einasta vetur allt til ársins
1931 en þá um haustið kvaddi þessi
merki maður þennan heim.
Þrír frægir vinir
Edison kom sér upp góðri tilrauna-
stofu í Fort Myers þar sem hann
vann meðal annars að því að finna
gúmmí sem myndi henta í hjólbarða.
Það verkefni var honum hugleikið
vegna náins vinskapar við Henry
Ford, sem var brautryðjandi í fram-
leiðslu bifreiða. Það var hins vegar
Harvey Firestone, góður vinur þeirra
félaganna, sem fann rétta hráefnið
í hjólbarðana.
Edison og Ford voru raunar svo
góðir vinir að sá síðarnefndi fór að
dæmi þess fyrrnefnda og keypti sér
einnig vetrarhús á Fort Myers, við
hliðina á Edisonhúsinu. Það var því
stutt fyrir þá að fara þegar þeir vildu
hittast og ræða saman um
hugðarefni sín og áhugamál.
Myndarlegt safn
Eftir að Edison féll frá gaf
ekkjan hans borgaryfirvöld-
um í Fort Myers húsið þeirra
hjóna. Þar er nú myndarlegt
safn þar sem heimili Edison-
hjónanna er varðveitt eins
og það var meðan þau
bjuggu þar. Safnið er mikið
aðdráttarafl fyrir ferðamenn
og íbúar Fort Myers eru
stoltir af að svo mikill maður
skuli hafi búið þar. Allt í kringum
íbúðarhúsið og húsið við hliðina, sem
þau hjónin keyptu einnig og notuðu
fyrir gestahús, er verönd með bam-
bushúsgögnum. Lengi vel voru hús-
göngin þau hin sömu og Edison hjón-
in áttu en fyrir nokkrum árum komu
óboðnir gestir og tóku þau trausta-
taki í skjóli nætur. Húsgögnin sem
nú eru á veröndinni eru því eftirlík-
ing af upprunalegu húsgögnunum.
Af veröndinni framan við húsið
sér vestur yfir Caloosahatchee ána
og væntanlega hefur Edison setið
í stuttu máli
►Fort Myers er í suðvestur Flórída,
við Mexíkóflóa. Borgin er mjög vin-
sæl á veturna meðal íbúa norður-
ríkjanna en á sumrin eru gestir
hennar fyrst og fremst frá Evrópu.
► Borgin er einn af áfangastöðum
Úrvals-Útsýnar í sumar. Flogið er
í beinu áætlunarflugi með Flugleið-
um til Fort Lauderdale eða Orlando
og er flugtími 7 til 8 klst. Tveggja
klst. akstur er til Fort Myers frá
Fort Lauderdale en 3 'A klst. akstur
frá Orlando. Ferðaskrifstofan býður
upp á fjögur hótel sem öll eru vel
staðsett við eða rétt hjá drifhvítri
ströndinni.
►í borginni og í næsta nágrenni
hennar eru 34 golfvellir, bæði al-
menningsvellir og einkavellir. Einn-
ig eru þar fjölmargir tennisvellir.
Hægt er að leigja sér reiðhjól, bát,
sjóskíði og seglbretti auk þess sem
hægt er að stunda sjóstangaveiði.
►Söluskattur í Flórída er 6% og
er hann yfirleitt ekki innifalinn í
vöruverði.
►Þjónustugjald er ekki innifalið í
verði á matseðlum veitingastaða.
Venjulega er gefið þjórfé sem svar-
ar til 15% af verði þess sem maður
kaupir en ef þjónustan er afburða
góð er við hæfi að hækka það í
20%. Ef þjónustan er ekki sem
skyldi er nóg að gefa um einn ti-
unda af verðinu í þjórfé.
►Edison húsið er við 2350
McGregor Boulevard. í Fort Myers
en við þá götu var 200 konungleg-
um pálmatijám sem Edison flutti
inn frá Kúbu og gaf borginni árið
1907 plantað. Nú eru pálmatrén
meðfram götunni orðin 1800 talsins
á 22 kílómetra löngum kafla. Fort
Myers er gjarnan kölluð Borg pál-
manna vegna þessara pálmatrjáa.
Fordheimilið hefur einnig verið
gert að safni en það við hliðina á
Edison húsinu. ■
Sá hlutur sem
Edison hafði hvað
minnsta þolinmæði
gagnvart var
klukkan. Honum
fannst armar
hennar hreyfast
allt of hratt
ÞRÍR frægir vinir í garðinum
hjá Edison. Edison er í miðj-
unni, Ford honum á hægri
hönd en Firestone á þá vinstri.
þar oft og horft á sólina setjast hin-
um megin við ána.
í garðinum eru óteljandi tré og
plöntur. Eflaust hefur Edison eytt
dijúgum tíma þar en jurtunum safn-
aði hann meðal annars til að auð-
velda sér leitina að réttu efnunum í
uppfinningar sínar. Þar vaxa til
dæmis hávaxin bambustré en bam-
businn notaði uppfinningamaðurinn
í glóðarþráð í ljósaperurnar sínar.
Við innganginn í safnið er risastórt
austur-indverskt fíkjutré, sem er
þeirrar náttúru að það skýtur rótar-
sprotum úr greinum sínum og vaxa
þeir niður á við og mynda nýja stofna
þannig að tréð vex fyrst og fremst
á þverveginn. Ford gaf vini sínum
tréð árið 1925 en þá var það einung-
is tvær tommur í þvermál. Nú er
ummál þess meira en 120 metrar
enda er það þriðja stærsta tréð sinnar
tegundar í heiminum.
Afkastamikill á langri ævi
Edison var afar afkastamikill
maður svo sem sjá má meðal
annars á því á hversu mörgum
uppfinningum hann fékk
einkaleyfi. Af 1.093 einkaleyf-
um snérust 389 um raflýsingu
og orkudreyfmgu, 195 um
grammófóna, 150 um ritsíma,
141 um rafhlöður og 34 um
talsíma. Einkaleyfin fékk
hann á árunum 1869 til 1933,
sem svarar til þess að hann
hafi að meðaltali fengið rúm-
lega sautján einkaleyfi á ári.
Fjögur af einkaleyfunum voru
samþykkt eftir að hann dó.
Edison velti því aldrei fyrir sér
hvort eitthvað væri mögulegt heldur
einungis hvernig hægt væri að gera
það. Þegar hann var 35 ára gamall
var hann orðinn frægur fyrir upp-
finningar sínar um gjörvöll Banda-
ríkin og þegar hann lést var hann
virtur og syrgður sem maðurinn sem
framar öðrum mönnum hafi lagt
grunninn að þeim tækni- og félags-
legu breytingum sem urðu í kjölfar
rafvæðingar.
AÐ skíða niður brekkur Alpanna
var draumur margra Evrópubúa,
og þeir notuðu hvert tækifæri sem
gafst til að láta hann rætast. Bret-
ar, Þjóðveijar og Hollendingar sem
hugðu á vetrarfrí, efldu sér þrek
á sumrin með löngum göngutúr-
um, þutu svo um
víðáttur Alpanna að
vetrum og komu
endumærðir aftur
heim. En nú er öld-
in önnur.
Það er að bráðna
undan ferðaþjón-
ustunni í Austurríki
og Sviss. Nýting
hótelherbergja hef-
ur minnkað um
helming frá 1992 í
Austurríki og í
Sviss fækkaði gisti-
nóttum á hótelum
um 1,2 milljónir
veturinn 1994-95,
miðað við góðar töl-
ur frá 1989-90.
Veturinn sem er að
líða virðist ætla að
hrella hóteleigend-
ur enn meir. „Góðu
árin eru liðin,“
segja forsvarsmenn
ferðaskrifstofa í
Austurríki.
Golf í Flórída
eða skíði í
Ölpum?
Ástæðan fyrir lé-
legu brautargengi
er ekki augljós, en
slæm skíðaskilyrði
fyrir byrjendur eru
hluti af skýring-
unni. Einnig að at-
vinnuskíðamenn fá
víst um 30% meira
fyrir peningana
sína í norður Italíu
Austurríki.
Þjóðveijar sem mynda stærsta
og ríkasta ferðamannahópinn í
heiminum hafa hægt á ferðinni
og það hefur ekki lítil áhrif: „Þeir
fara nú í styttri ferðalög og pen-
ingaveskið situr fast í rassvasan-
um,“ er haft eftir hóteleiganda í
Austurríki.
Hraust skíðafólk virðist enn-
fremur hafa fallið fyrir freistandi
tilboðum um að fljúga í sólina í
Ameríku og við Miðjarðarhaf.
Hóteleigendur í Ölpunum standa
nú frammi fyrir því að viðskipta-
vinir þeirra eru að leika golf á
Flórída og skemmta sér í Disney-
landi.
Vantar stanslausa fjörið
Breyttar þarfir yngra skíða-
áhugafólks er ef til vill stærsta
ástæðan fyrir minnkandi vinsæld-
um Alpanna. Það
vill koma á staðinn
og skemmta sér
strax. Vera á hót-
eli sem býður ekki
aðeins upp á heitt
kakó heldur líka
tennis, útreiðar,
fjallaklifur, hjól-
reiðar, bátsferðir,
fegrunarmeðferð
og barnabúðir,
jafnvel námskeið í
málara- og ritlist
handa ferðafólki
sem kann að þreyt-
ast á endalausu
brekkunum.
Lítil Alpagisti-
heimili í nánd við
skíðalyftu höfða
ekki lengur til
fólks á aldrinum
20-40 ára og til að
sinna þörfum
þeirra gripu eig-
endur Alparósar-
innar, sem er fjög-
urra stjörnu hótel
í Týrol, til þess(
ráðs að reisa
tveggja hæða
heilsuhús í róm-
verskum stíl fyrir
6 milljónir dollara
eða tæpar 400
milljónir króna.
Húsið er undir
fjallsrótum og fel-
ur meðal annars í
sér gufubað,
heilsuböð, heita
potta inni og úti, æfingasal og
nuddskála.
Gulnandi Ijósmyndír
af hvítum snjónum
Samkeppnin í ferðaþjónustunni
er mikil og ef Alparnir eiga að
höfða til fólks í framtíðinni, telja
frömuðir að hóteleigendur verði
að auka fjölbreytnina, markaðs-
setja brekkurnar upp á nýtt og
síðast en ekki síst: Brenna auglýs-
ingamyndirnar af sólbrúna skíða-
manninum brunandi í hreinum
snjónum.
Byggt á Newsweek
STOFAN á heimili Edison i Fort Myers.
MYNDIR af sólbrúnu
skíðafólki í hreinum snjó
dugar ekki lengur til þess
að lokka ferðamenn til
svissnesku og austurrísku
skíðasvæðanna í Olpunum.
en í Sviss og
L
EFRA vottorðið er löglegt,
hitt falsað.
ust þess að flugmálastjórn hefði, auk
þess að hafa umsjón með varahluta-
framleiðendum
og rekstrarstjór-
um flugvélaverk-
smiðja, jafnframt
yfirumsjón
með þeim sem
miðluðu varahlutunum. Á
eftirlitsskrifstofu samgönguráðu-
neytisins vilja menn einnig setja
strangar reglur um að gömlum flug-
vélahlutum verði eytt til að hindra
að þeir verði endurnýttir í aðrar flug-
vélar.
Betur heima á
brotajárnshaugum
Tímaritið Condé Nast Tmveller,
sem þessi grein er byggð á, státar
af að hafa verið fyrst til að vekja
athygli á vandamálinu fyrir þremur
árum, þegar blaðamenn komust á
snoðir um að ósamþykktir flugvéla-
varahlutir væru víða i notkun. Síðan
hafa rannsóknarmenn á vegum rík-
isins fundið slíka parta af öllum
stærðum og gerðum, þar á meðal
notaða, sem ættu betur heima á
brotajárnshaugum. Fölsunin og eft-
irlíking-
arnar voru
margvíslegar; gamlir varahlutir
voru málaðir upp á nýtt, falsararnir
bjuggu til nýja hluti, sem engan veg-
inn stóðust gæðakröfur og bílavara-
hlutir voru seldir sem flugvélapartar
auk þess sem hverjum hlut fylgdi
falsað vottorð frá flugmálastjórn.
Siðastliðið sumar setti flugmála-
stjórn flugbann á sex þúsund litlar
skrúfuflugvélar og þyrlur eftir að
grunsamlegir varahlutir fundust í
tveimur vélum, þar á meðal af gerð-
inni Cessna, sem þurfti að nauð-
lenda þegar vélin bilaði. Starfs-
menn bandaríska ráðsins, sem
fer með öryggismál i sam-
göngum, hafa oft fundið
ósamþykkta flugvélaparta í
litlum einkaflugvélum, sem
lenda í slysum. Utan
Bandaríkjanna hefur komið
í ljós að einn slíkur olli slysi
er norsk flugvél brotlenti árið
1989 og fimmtíu og fimm farþeg-
ar fórust.
Einstaka félög taka þátt
i spillingunni
Flest flugfélög sem hafa látið setja
ósamþykkta eða svikna flugvélavara-
hluti í vélar sínar eru grunlaus um
að stykkin séu aðfínnsluverð og ólög-
gild. Einstaka flugfélög taka þó þátt
í spillingunni og krefjast þess að inn-
kaupastjórar kaupi af partasölum
sem bjóða lægsta verð.
í mars síðastliðnum stöðvaði flug-
málastjórn rekstur flugfélagsins
ÞANNIG getur
málning
hulið
gall-
ana.
Arrow Air um stundarsakir vegna
þess að varahlutir félagsins stóðust
ekki öryggiskröfur. Arrow Air hafði
í reynd stolið 1.620 varahlutum úr
flugvél frá Dóminíkanska lýðveldinu,
þar sem hún stóð við skrifstofu flug-
málastjórnar í Miami. Hluta þýfisins
seldi félagið sem góða og gilda vara-
hluti.
Jafnvel flugmálastjóm hefur ekki
getað komið í veg fyrir falsaða parta
í eigin vélum. Árið 1993 leiddi skoð-
un í ljós að 39% af flugvélavarahlut-
unum voru ekki framleiddir af lög-
gildum framleiðendum.
En flugið er ekki eina samgöngu-
leiðin sem orðið hefur fyrir barðinu
á óprúttnum partasölum.
Schiavo segir að ósam-
þykktir vélahlutar hafí
líka skotið upp kollinum
í járnbrautalestum,
strætisvögnum og bíl-
Byggt á ferðatíma-
ritinu Condé Nast
Traveller/vþj