Morgunblaðið - 17.03.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 D 3
fiat eykur
söluna
FIAT segir að salan á bílum fyrir-
tækisins hafi aukist um 38% í febr-
úar í Evrópu. Heildarbílasalan í
Evrópu jókst hins vegar um 11%.
Fyrstu tvo mánuði ársins var
markaðshlutdeild Fiat í Evrópu
13,1% en var 12,5% fyrstu tvo
mánuði 1995. Sala Fiat jókst um
25,7% í Þýskalandi þar sem hlut-
deildin var 5,2%, 70,5% í Frakk-
landi, um 45,3% á Spáni og 23,1%
í Bretlandi. Umboðsaðilar hafa
pantað 220 þúsund Bravo og
Brava bíla sem hafa verið á mark-
aði síðastliðna fímm mánuði.
Sintra í
nóvember
OPEL Sintra fjölnotabíllinn sem
Opel frumkynnti á bílasýningunni
í Genf var hannaður í hönnun-
armiðstöð Opel í Russelsheim í
Þýskalandi. Sintra verður sett á
markað í Þýskalandi í nóvember.
Undirvagninn er hins vegar fram-
leiddur í Doraville í Georgíufylki
í Bandaríkjunum. Bíllinn er með
rennihurð á báðum hliðum og rými
fyrir allt að átta manns. Hægt
verður að velja milli 2,2 lítra fjög-
urra strokka véla með 141 hest-
afli eða 3ja lítra V8 vél með 201
hestafli.
' 1
Blue lí’om
m >• Bliviíora! j
jý ý-iPj
*
Blue Coral
bílasnyrti-
vörur
SKEUUNGUR hefur hafið sölu á
nýrri gerð bílabóns frá Blue Coral
sem nefnist AutoFom Fomblin.
Bónið inniheldur m.a. sérstakt
þéttsameinda flúorefni sem mynd-
ar sterka yfirborðsvörn auk þess
sem efnið afrafmagnar flötinn.
Afrafmögnunin gerir það að verk-
um að ryk og óhreinindi tolla ekki
á lakkhjúpnum. Auk bónsins er
komið á markað frá sama fram-
leiðanda felguhreinsir, dekkja-
hreinsir og vinylhreinsir. ■
Sportbílar
tíl brúks og
kynningar
KIA verksmiðjurnar í Suð-
ur-Kóreu sýndu sportbílinn
KMSII sem er tveggja
manna, búinn 140 hestafla
vél og þyngdin er 1.060 kg.
í DAG lýkur bílasýningunni í Genf
sem árlega dregur til sín um 700
þúsund gesti, erlenda sem inn-
lenda. Þeir sópast þangað til að
líta yfir það sem framleiðendur
bíla, fylgihluta og margs konar
búnaðar tefla fram í samkeppni
sinni um athygli gesta tii að ná
sölu. Þar fyrir utan hafa hátt í
þúsund bílablaðamenn víða að sótt
þessa sýningu reglulega og getið
um það sem þeim finnst markvert
og ástæða til eins og gert hefur
verið hér í blaðinu síðustu árin.
Genfarsýningin á sér áratuga
hefð. Segja má að bílaframleiðend-
ur skiptist á að frumsýna nýjung-
ar sínar í Genf og á haustsýning-
unum sem haldnar eru til skiptis
í Frankfurt og París. Þeim þykir
ekki síst hentugt varðandi Genf
að hún er hlutlaust svæði því eng-
ir bílar eru framleiddir í Sviss og
þar getur í raun enginn stolið sen-
unni - nema sá sem breiðir mest
úr sér í sýningarsölum með
stærsta básnum eða flottustu
framsetningunni ef ekki á framúr-
stefnubílum þá með skrautlegum
sýningarstúlkum! En hér eru allir
útlendingar í þessu alþjóðlega
umhverfi og allir fá sömu með-
ferð. Og sýningarhöldurum hefur
tekist að kenna framleiðendum að
ætli þeir sér að selja bíla í Evrópu
sé eins gott að sýna þá í Genf.
Og þótt sýningarbásar séu vissu-
lega misstórir þá má segja að
enginn breiði verulega úr sér og
kaffæri aðra en stærstir í sniðum
hafa jafnan verið Volkwagen-fyr-
irtækið, Mercedes Benz, GM og
Ford og af þeim japönsku Honda
og Mitsubishi.
Eins konar rauður þráður hefur
oft gengið gegnum sýningarnar
og þótt hann hafi ekki verið áber-
andi í ár voru það framúrstefnu-
sportbílar. Má þar nefna Alfa
Romeo Issima, DeTomaso Bigua,
BMW Roadster Z3 bíllinn vakti athygli í Genf en hann var frumsýndur í Detroit í byrjun árs og
er framleiddur í Bandaríkjunum. Hann byggir á grunni 3 línunnar.
VIPER frá Chrysler er hér kominn í sportklæðin en framleið-
endur sendu hann í Le Mans kappaksturinn.
Ford Lynx og Zagato Z1 30. Við
þennan flokk má síðan bæta við
bílum sem fara á markað, svo sem
BMW Z3 og er óhætt að segja að
hann hafi vakið verðuga athygli.
Hann verður framleiddur í Suður-
Karólínu í Bandaríkjunum en þetta
er tveggja manna, fjögurra metra
langur blæjubíll, með 1,8 eða 1,9
1115 eða 140 hestafla vélum, með
hefðbundnu BMW útliti á fram-
enda en einkanlega sportlegur bíll.
Eyðslan er tæpir 8 1 og hámarks-
hraðinn nærri 200 km á klst.
í fyrra skáru fjölnotabílarnir sig
úr og þar áður voru rafbílar mikið
áberandi en samtök rafbílamanna
eru sterk í Sviss og reyna þau
jafnan að vekja athygli á kostum
rafbíla og beijast fyrir endurbót-
um. Enda eru til þeir bæir í Sviss
sem beinlínis vilja ekki a.ðra bíla
hafa. ft ■
Bíliðnafélagið er fagfélag bifreiðasmiða, bílamálara og bifvélavírkja
Á bifreiðaverkstæðum þar sem félagsmenn okkar starfa eru
þeir klæddir sérstökum vinnufatnaði með merki Bíliðnafélagsins
Merkið tryggir þér traustan fagmann sem kann vel til verka
og hefur aðgang að endurmenntun á sínu sérsviði
Láttu ekki bílinn þinn í hendurnar á hverjum sem er,
það gæti orðið þér dýrt