Morgunblaðið - 21.03.1996, Page 8
4
iþtfmœ
KORFUBOLTI
Sögulegir
sigrar
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Glæsimark Cantonas réð
úrslitum á Old Trafford
Gerði sigurmarkið gegn Arsenal og United íylgir Newcastle sem skugginn
ERIC Canton, Frakklnn snjalli hjá Manchester Unlted, sem hér er í baráttu vlð Andy Llnigan
í gærkvöldi, hefur verið liðinu dýrmætur upp á síðkastið.
LIVERPOOL og Chelsea kom-
ust í gær í undanúrslit ensku
bikarkeppninnar og mætir
Liverpool Aston Villa og
Chelsea leikur við Manchester
United. í úrvalsdeildinni sigraði
Manchester United Arsenal
með glæsimarki frá Cantona
og er United með 64 stig eins
og Newcastle.
Liverpool og Chelsea tryggðu sér
rétt til leika í undanúrslitum
ensku bikarkeppninnar í gærkvöldi.
Liverpool átti ekki í nokkrum vand-
ræðum með Leeds og sigraði 3:0 á
heimavelli og Chelsea sigraði
Wimbledon 3:1. Liverpool mætir
Aston Villa á Old Trafford 31. mars
og Chelsea leikur við Manchester
United sama dag á Villa Park í
Birmingham.
Steve McManaman skoraði tví-
vegis fyrir Liverpool og voru bæði
mörkin sérdeilis glæsileg. Fyrra
markið gerði hann á 57. mínútu og
það síðara á þeirri 74. Robbie Fowl-
erl gær valinn í enska landsliðshóp-
inn í fyrsta skipti, fyrir vináttuleik
gegn Búlgörum á Wembley í næstu
viku, og hélt uppá daginn með því
að gera þriðja mark liðsins og sitt
31. fyrir Liverpool í vetur. Fowler
sendi knöttinn rakleiðis í markið
með aukaspyrnu af 25 metra færi.
John Lukic markvörður Leeds horfði
bara á.
Chelsea mætir United, en fyrir
tveimur árum tapaði Lundúnarliðið
fyrir Manchester í bikarúrslitum. Það
": var Rúmeninn Dan Petrescu sem
kom Chelsea á bragðið á 20. mínútu
í gær en Jon Goodman jafnaði fyrir
heimamenn. Michael Dubberry skor-
aði með skalla á 79. mínútu og
Mark Hughes var réttur maður á
réttum stað sex mínútum fyrir leiks-
lok og skoraði af stuttu færi.
Glæsimark Cantona
David Seaman kom ekki við
nokkrum vömum þegar Frakkinn
Eric Cantona gerði 14. mark sitt
fyrir United í vetur. Cantona sendi
boltann með föstu skoti af um 25
metra færi, yfir Seaman, í þverslána
og þaðan þeyttist knötturinn í netið.
Þetta gerðist á 66. mínútu. Þar með
er United með 64 stig eins og New-
castle sem er með hagstæðari
markamismun og á auk þess tvo
leiki til góða.
Vonir Tottenham um að komast
ef til vill í UEFA keppnina á næstu
sparktíð kviknuðu á ný í gær-
kvöldi, en þær dofnuðu á laugar-
daginn er liðið tapaði 3:2 á heima-
vell fyrir Blackburn. í gær komst
liðið í 3:0 eftir klukkustundar leik
gegn Bolton en Guðni Bergsson og
félagar gáfust ekki upp og tókst
að skora tvívegis fyrir leikslok.
Lokakafli leiksins var skemmtilgur
og spennandi.
Sheffield Wednesday vann Sout-
hampton 1:0 með marki frá Belgan-
um Marc Degryse á fyrstu mínútu
leiksins. Þar með vænkaðist hagur
Wednesday og á liðið nú ágæta
möguleika á að halda sæti sínu í
deildinni, en það sama verður ekki
sagt um Southampton.
■ Úrslit / D4
ORLANDO og Chicago unnu bæði
40. heimaleikinn í röð í fyrrakvöld
og bættu þar með NBA-metið.
Dennis Scott, leikmaður Orlando,
setti NBA-met í fy'ölda þriggja stiga
karfa á einu og sama tímabilinu.
Dennis Scott gerði tvær þriggja
stiga körfur fyrir Orlando gegn
Detroit í 113:91 sigri. Hann hefur
gert 219 þriggja stiga körfur í vet-
ur og bætti þar með NBA-met John
Starks hjá New York frá síðasta
ári um tvær körfur. Anthony Bowie
náði loks þrennunni eftirsóttu; gerði
20 stig, tók 10 fráköst og átti 10
stoðsendingar. Horace Grant átti
einnig góðan leik og setti persónu-
legt stigamet í vetur með því að
gera 26 stig. Orlando tók leikhlé
þegar tv_ær sekúndur voru eftir,
111:91. Ástæðan var sú að Bowie
vantaði eina stoðsendingu til að ná
þrennunni. Leikkerfi var sett upp
þar sem Bowie sendi á Thompson
sem skoraði og þrennan fullkomn-
uð. Lindsey Hunter gerði 15 stig
fyrir Detroit, Allan Houston 14 og
Grant Hill 13. Shaquille O’Neal
gerði aðeins 10 stig fyrir Orlando,
hitti aðeins úr fjórum skotum af 13.
Michael Jordan gerði átta af 20
stigum sínum í fjórða leikhluta fyrir
Chicago sem vann Sacramento
89:67 á heimavelli. Toni Kukoc kom
næstur með 18 stig og átti auk þess
sjö stoðsendingar. Scottie Pippen og
Dennis Rodman léku ekki með Bulls,
sem hefur nú þegar tryggt sér sigur
í miðriðlinum. Nú þarf Chicago að
vinna í 11 af síðustu 16 leikjum sín-
um til að verða fyrst liða í NBA til
að vinna 70 leiki á einu tímabili.
Los Angeles Lakers vann góðan
sigur á Seattle 94:71 þar sem Eddie
Jones gerði 26 stig fyrir Lakers.
Elden Campbell gerði 14 stig eins
og Earwin „Magic“ Johnson. Gary
Payton var með 17 stig fyrir
Seattle, sem hefur ekki skorað eins
fá stig í vetur og í þessum leik.
Houston tapaði á heimavelli fyrir
Golden State, 105:102, eftir fram-
lengdan leik. Joe Smith gerði fjögur
af 20 stigum sínum í framlenging-
unni fyrir Golden State. B.J. Arm-
strong hitti vel og setti niður 10
af 17 skotum sínum utan af velli
og 13 af 15 skotum fóru ofaní frá
vítalínunni. Hann gerði samtals 35
stig og er það stigamet hjá honum.
Robert Horry var stigahæstur í liði
meistaranna með 26 stig. Lykil-
menn vantaði í liðið, þar á meðal
Hakeem Olajuwon, Clyde Drexler,
Mario Elie og Sam Cassell, sem
allir eru meiddir.
Par hjá
Sigurjóni
SIGURJÓN Arnarsson, kylf-
ingur úr GR, heldur áfram
keppni í Tommy Armour
mótaröðinni í Bandaríkjun-
um og á mánudaginn lék í
eins dags móti og hafnaði (
9. sæti af 66 keppendum.
Keppt var á Horbor Hill vell-
inum sem er par 72 og lék
Sigurjón á parinu. Hvasst var
og háði það keppendum tals-
vert, enda voru aðeins þrír
kylfingar sem léku undir 70
höggum. Sigurjón byijaði
illa, sió tvívegis út af vellin-
um, fyrst á fyrstu braut og
síðan á þeirri þriðju og kost-
aði það hann fjögur högg.
Hann lélþað hins vegar ekki
á sig fá og lék vel það sem
eftir var hringsins.
FIMLEIKAR
ísland sigraði
ámótiíDublin
Islenska kvennalandsliðið í fim-
leikum sigraði á móti í Dublin
á Irlandi um síðustu helgi. Islensku
stúlkurnar hlutu samtals 137,809
stig. í liði íslands voru: Nína Björg
Magnúsdóttir, Elva Rut Jónsdóttir,
Þórey Edda Elíasdóttir, Sólveig
Jónsdóttir, Jóhanna Sigmundsdóttir
og Elín Gunnlaugsdóttir.
Norður-írland varð í öðru sæti
með 135,751 stig og lið Austurríkis
í því þriðja með 132,825 stig. A-lið
írlands varð í fjórða sæti með
124,584 stig og B-iið írlands rak
lestina í fimmta sæti með 111,831
stig.
Nína Björg Magnúsdóttir, ný-
krýndur íslandsmeistari, varð sig-
urvegari í einstaklingskeppninni,
hlaut 34,934 stig. Elva Rut Jóns-
dóttir varð önnur með 34,633 stig
og Holly Murdock frá Norður-ír-
landi þriðja með 34,267 stig. Jó-
hanna Sigmundsdóttir varð í
fimmta sæti í einstaklingskeppninni
með 33,791 stig.
íslenska sigurliðið er á myndinni
til hliðar. Efri röð frá vinstri: Þórey
Edda Elíasdóttir, Sólveig Jónsdótt-
ir, Jóhanna Sigmundsdóttir og for-
maður írska fimleikasambandsins.
Neðri röð frá vinstri: Elin Gunn-
laugsdóttir, Elva Rut Jónsdóttir og
Nína Björg Magnúsdóttir.
VIKINGALOTTO: 3 25 26 27 28 41 + 1 5 44