Morgunblaðið - 29.03.1996, Blaðsíða 1
i'ttjirthjif. r ~ % í|é
■SKRAFAÐ OG HLEGIÐ YFIR GÖMLU DÓTI/2HKYNGETA KARLA/2HDAUÐINN
SKEMMTILEG RÁÐGÁTA/4HLEIRKERASMÍÐI/4HMENNTASMIÐJA KVENNA/6
■SÆLUREITUR/7HHANDVERKSSÝNING/8HAFVÖTNUN MEÐ GLAÐLOFTI/8
Páskaskraut þykir
ómissandi á hverju heimili
Morgunblaðið/Ásdís
í HUGUM flestra er gult litur pásk-
anna. Samkvæmt kirkjulegum
hefðum er hvíti liturinn þó tákn
páska, gleðidaganna fjörutíu og
uppstigningardagsins, en
hvítt er tákn gleði, hins ei-
lífa ljóss og hinnar eilífu
gleði sem Kristur gefur.
Guli liturinn hefur smám
saman orðið ríkjandi í
páskaskreytingum, sem nú þykja
ómissandi á hvetju heimili. Sam-
kvæmt Táknmáli trúarinnar eftir
séra Karl Sigurbjörnsson, getur
guli liturinn ýmist verið litur sann-
leikans og himinsins, en oftar litur
fals og svika. Séra Karl segir að
guli liturinn minni á lit dýrðarinn-
ar; gyllta litinn, sem sé tákn himins
og eilífðar og oft notaður sem bak-
grunnur helgra manna og á geisla-
baugum. Séra Karl telur
fráleitt að guli liturinn, sem
víða megi sjá í páskaskreyt-
ingum, hafi upphaflega átt
að tákna fals og svik. Mun
fremur sé guli liturinn áber-
andi vegna þess að hann sé ríkj-
andi í náttúrunni á þessum árstíma.
Litur vors og blóma
Aðspurður tók Arni Björnsson
þjóðháttafræðingur í sama streng.
Gula litinn telur hann einfaldlega
hafa orðið ríkjandi og táknræn-
an fyrir páskana vegna þess að
hann sé litur vors og blóma í
suðlægum löndum, auk þess sem
ungarnir séu gulir. Páskaskreyt-
ingar ýmiss konar segir hann hafa
aukist mikið undanfarna áratugi
og hafi slyngir kaupmenn ráðið
nokkru um þann sið.
Til marks um hversu páska-
skraut og páskaföndur á miklum
vinsældum að fagna sagði Hjördís
Jónsdóttir, skreytingarmeistari hjá
Blómavali, að 150 manns hefðu
mætt á sýnikennslu í gerð páska-
skreytinga í versluninni síðastliðið
þriðjudagskvöld.
Greinar úr görðum
til skrauts
„Gult með grænu í páskaskreyt-
ingar og rautt með grænu í jóla-
skreytingar," segir Hjördís nokkuð
algilda reglu. Líkt og híasintur selj-.
ist aðeins í fjóra daga á ári og þá
fyrir jólin, segir Hjördís að páska-
liljur seljist einungis í fjóra daga
fyrir páska. „Auk páskaeggja úr
súkkulaði, eru páskaliljur, gul kerti,
gular servéttur, gulir ungar, borð-
ar, greinar og skraut nú á hvers
manns heimili um páskana og æ
fleiri tína til greinar úr görðum
sínum og skreyta þær á allra handa
máta.“ ■
/
PASKAKJOTIÐ A TILBOÐSVERÐI
■fj i Ferskur ananas 79 kr. stk
■ 1 >ss Gular melónur 99 kr. kg
—jg? Bökunarkartöflur 99 kr. kg
---------———-------------------
skírda9ur °p>ð w-11 -23
Föstudagurinn langi lokaö
Laugardagur opiö kl. 11 -23
Páskadagur lokað
, Annar í páskum opið kl. 11 -23
Alfaskeiði • Eddufelli • Grensásvegi • Rofabæ • Þverbrekku
4"