Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 5
4 C FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FiMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 C 5 ÚRSLIT ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR KÖRFUKNATTLEIKUR Knattspyrna Reykjavíkurmótið A-deild: KR-Fram........................1:0 Guðmundur Benediktsson (85. - vsp.) B-deild: Léttir - Armann.............. 4:0 Engilbert Friðriksson 2, Valdimar Pálsson, Guðbjartur Hafliðason Þýskaland Bayern Miinchen - St. Pauli....1:1 (Klinsmann 89.) - (Schweissing 43.). 46.000. Werder Bremen - Gladbach.......2:0 (Besehastnikh 3., Labbadia 81.). 29.850. Diisseldorf - Kaiserslautern...2:1 (Wemer 69. - vsp., Brehme 73. - sjálfs- mark) - (Kuka 34.). 20.000. Hamburg - Freiburg.............0:0 18.727. Staðan Bayern .27 17 3 7 56:35 54 Dortmund .26 15 8 3 61:27 53 Gladbach .26 13 5 8 41:39 44 VfB Stuttgart .27 9 12 6 52:49 39 Schalke .26 9 12 5 31:28 39 Hamburg .26 8 11 7 37:38 35 Freiburg .27 9 8 10 24:30 35 Hansa Rostock .25 8 10 7 37:33 34 1860Miinehen .27 8 10 9 41:39 34 Karlsruhe .27 8 10 9 38:40 34 Werder Bremen.... .27 7 13 7 28:31 34 St. Pauli .27 8 9 10 37:41 33 Leverkusen .26 7 11 8 30:25 32 Dusseldorf .27 6 12 9 29:38 30 Köln .27 5 13 9 23:28 28 Frankfurt .27 6 9 12 37:52 27 Kaiserslautern .26 4 13 9 22:32 25 Uerdingen .27 2 11 14 24:43 17 England 1. deild Millwall - Birmingham 2:0 Efstu lið Sunderland .41 21 14 6 56:31 77 Derby .42 20 14 8 66:46 74 Crystal Palace „42 18 15 9 62:45 69 Charlton „40 16 16 8 53:42 64 Stoke „40 16 12 12 53:44 60 Ipswich „40 16 11 13 71:60 59 Huddersfield „41 16 11 14 56:53 59 Leicester „41 15 13 13 57:58 58 Southend „42 14 13 15 49:56 55 Birmingham „41 14 12 15 55:55 54 Barnsley „41 13 15 13 55:62 54 Sheff United „42 14 12 16 51:53 54 Skotland Úrvalsdeild 1-1 Hearts - Rangers. .2:0 Efstu lið Rangers ..32 23 6 3 71:23 75 Celtic ..32 20 11 1 60:21 71 Aberdeen ..31 14 5 12 45:38 47 Hearts ..32 14 5 13 49:50 47 Raith ..32 11 6 15 36:49 39 Frakkland Metz - Bastia ,2:0 .1:1 Efstu lið Auxerre ..34 20 4 10 60:27 64 P.S.G ..34 18 9 7 58:32 63 Metz ..33 17 10 6 37:23 61 Lens ..34 15 13 6 40:24 58 Montpellier ..34 16 9 9 47:35 57 Holland Deildarkeppnin Feyenoord - Sparta Rotterdam .1:1 (Koeman 74.) - (Van der Laan 38.). Efstu lið Ajax ..30 23 4 3 87:20 73 PSV Eindhoven... ..30 21 5 4 90:21 68 Feyenoord ..30 14 9 7 55:35 51 Twente ..30 14 6 10 44:46 48 Spánn Bikarkeppnin, úrslitaleikur Atletico Madrid - Barcelona........1:0 [Milinko Pantic 103.). 35.000. Italía Atalanta - Bari....................1:2 (Vieri 21. - vsp.) - (Protti 69., 77.). 12.000. Cagliari - AC Milan................1:2 (Villa 32.) - (Napoli 30. - sjálfsm., Silva 79. sjáifsm.). 27.000. Inter - Sampdoria..................0:2 - (Chiesa 43., 69. - vsp.). 45.000. Juventus - Udinese.................2:1 (Ravaneili 27., Vierchowod 84.) (Stroppa 15.). 20.000. Lazio - Fiorentina.................4:0 (Winter 14., Signori 33., 52. - vsp., Casirag- FELAGSLIF Skákmót Vals SKÁKMÓT Vals verður haldið að Híðarenda í kvöid kl. 20. Keppnis- fyrirkomulag er hraðskák, 5 mín. skák. Allir Valsmenn eru velkomn- ir, teflt verður um Valshrókinn. Ikvöld Körfuknattleikur Úrslit karla, 6. leikur: Keflavík: Keflavík - UMFG.kl. 20 Handknattleikur Úrslit kvenna, 1. leikur: Garðabær: Stjarnan - Haukar ,.kl. 20 Knattspyrna Deildarkeppni KSÍ. Stjömuvöllur: Stjaman-ÍA..kl. 19 hi 83.). 50.000. Napoii - Tórínó....................1:0 (Boghossian 29.). 55.000. Padova - Roma......................1:2 (Vlaovic 83.) - (Fonseca 45., Cappioli 82.). 11.590. Parma - Cremonese..................2:0 (Mussi 56., Zola 90.). 22,400. Piacenza - Vicenza...................0:1 - (Rossi 29.). 12.000. Staðan Milan ...29 18 9 2 48:18 63 Juventus ...29 17 6 6 51:27 57 Fiorentina ...29 15 8 6 49:33 53 Parma ...29 13 10 6 38:26 49 Roma ...29 13 9 7 39:28 48 Inter ...29 13 8 8 39:25 47 Lazio ...29 13 7 9 55:33 46 Sampdoria ...29 12 8 9 48:41 44 Vicenza ...29 1.2 8 9 31:30 44 Napoli ...29 8 11 10 24:34 35 Udinese ...29 9 7 13 34:41 34 Cagliari ...29 9 7 13 29:42 34 Atalanta ...29 9 6 14 31:45 33 Piacenza ...29 7 8 14 26:47 29 Cremonese ...29 5 10 14 34:46 25 Torino ...29 5 10 14 26:41 25 Bari ...29 6 7 16 40:60 25 Padova ...29 6 3 20 35:60 21 Markahæstir 20 - Igor Protti (Bari), Giuseppe Signori (Lazio) ■ Leikirnir sem voru í gærkvöldi eru ekki inn í ítölsku stöðunni sem er á bls. C2. Körfuknatfleikur NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Sacramento - Dallas........ 95: 86 NewYork-Boston............. 97: 93 Denver - La Lakers......... 98: 91 Houston-Vancouver.......... 90: 84 Milwaukee - Toronto........ 96:102 Phoenix - Portland......... 91: 98 New Jersey - Detroit....... 94:111 Skotfimi Páskamót í leirdúfuskotfimi Mótið fór fram á völlum Skotfélags Reykja- víkur í Leirdal sl. laugardag. Alls voru 19 keppendur sem tóku þátt. Helstu úrslit: Heildarkeppni: stig 1. ÆvarL. Sveinsson..................84 (24-20-21+19) 2. Alfreð K. Alfreðsson..............82 (21-21-20+20) 3. Gunnar Sigurðsson.................81 (21-22-21+17) Meistaraflokkur: 1. Alfreð K. Alfreðsson..............62 2. Ellert Aðalsteinsson..............61 1. flokkur: 1. Ævar L. Sveinsson.................65 2. Jóhannes Jensson..................62 3. Víglundur G. Jónsson..............61 2. flokkur: 1. GunnarSigurðsson..................64 2. Halldór Axelsson..................60 3. Ásbjöm S. Amarson.................58 3. flokkur: 1. Guðmundur Kr. Gíslason............50 2. Einar Guðjónsson..................48 3. Jóhann Norðijörð..................46 KNATTSPYRNA Klinsmann tryggði Bayern jafntefli Bayem Miinchen lék illa og mátti þakka fyrir 1:1 jafn- tefli gegn St. Pauli á heimavelli í þýsku deildinni í gærkvöldi. Oliver Schweissing skoraði fyrir gestina skömmu fyrir hlé og þegar dró að leikslokum virtist sem ein óvæntustu úrslit vetrarins væru í uppsiglingu. En Júrgen Klinsmann kom Bayern enn einu sinni til bjargar á síðustu stundu, jafnaði mínútu fyrir leikslok og liðið fór í efsta sætið á ný. Bayern er með eins stigs forystu á Dortmund sem á leik til góða. Bayern hefur átt misjafna leiki í vetur en þetta var ein slakasta frammistaða liðsins á tímabilinu og voru 46.000 áhorfendur allt annað en ánægðir. Franz Beckenbauer, forseti félagsins og fyrrum fyrirliði, hefur gagnrýnt leik- mennina harðlega þegar honum hefur þótt ástæða til en hann var ekki í Múnchen í gærkvöldi heldur að spíla golf á Marbella á Spáni og sluppu spilararnir því við ákúrur úr þeirri átt. „Við virtumst vera hræddir við að tapa,“ < sagði Oliver Kahn, markvörður Bayern. „Það er slæmt að segja það en við hljótum að vera ánægðir með að hafa fengið stig.“ Kaiserslautem tapaði 2:1 fyrir Dússeldorf og virðist fátt geta komið í veg fyrir að meistararnir 1991 falli en þeir eru í næst neðsta sæti. Werder Bremen vann Gladbach 2:0 á heimavelli en Stef- an Effenberg hjá gestunum fékk að sjá rauða spjaldið á 53. mínútu. Reuter JEAN- Pierre Papln skallar að marki St. Pauli en gest- irnir eru við öllu búnir. SjáKsmörk Cagliari björguðu AC Milan Flest bendir til að AC Milan verði ítalskur meistari í fjórða sinn á fimm árum en liðið, sem er án fyrirlið- ans Franco Baresis sem tók út leikbann og George Weahs sem er meiddur, sýndi ekki meistaratakta á útivelli gegn Cagi- iari. Gestirnir unnu samt 2:1 og eru með sex stiga forystu á Juventus en heimamenn gerðu öll mörkin. Dejan Savicevic átti gott skot að marki eftir hálftíma leik en boltinn fór af Nicolo Napoli í eigið mark. Tveimur mínútum síðar jafnaði Matteo Villa fyr- ir heimamenn en 11 mínútum fyrir leikslok kom sigurmarkið. Roberto Baggio tók aukaspyrnu rétt við víta- teig, boltinn fór með miklum hraða í varnarvegginn og af varamanninum Dario Silva frá Uruguay í markið. Juve vann Udinese 2:1 á heimavelli og er með 57 stig. Moreno Torricelli fékk að sjá rauða spjaldið um miðjan seinni hálfleik og einum færri héldu meistararnir áfram að sækja og Pietro Vierchowood tryggði þeim sigur með marki sex mínútum fyrir leikslok. Fiorentina tapaði 4:0 fyrir Lazio og er með 53 stig í þriðja sæti. Giuseppe Signori gerði tvö mörk fyrir Lazio og er markahæstur með 20 mörk eins og Igor Protti sem var með bæði mörk Bari í óvæntum 2:l-sigri á Atalanta. Enrico Chiesa gerði bæði mörk Sampdoria í 2:0 sigri á Inter og er kominn með 18 mörk. Parma er í fjórða sæti eftir 2:0 sigur á Cremonese. Fimm umferðir eru eftir í deildinni. Rangers tapaði Hearts kom á óvart í skosku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið vann Rangers 2:0. Þetta var þriðja tap meistaranna í deildinni í vetur og í annað sinn sem þeir verða að láta í minni pokann fyrir Hearts sem er í fjórða sæti. Neil Pointon skoraði í fyrri hálfleik og Allan Johnston bætti öðru marki við eftir hlé en liðin mætast í úrslit- um skosku bikarkeppninnar I maí. Rangers er efst með 75 stig, fjórum stigum meira en Celtic sem gerði aðeins jafntefli við Kilmarnock. Hollendingurinn Pierre Van Hooydonk tryggði Celtic stigið þegar hann skoraði mínútu fyrir leikslok. GOLF / BANDARÍSKA MEISTARAMÓTIÐ Ben Chrenshaw stefnir að því að klæðast þriðja græna jakkanum Verð að taka áhættu Gamli og nýi tíminn Rculcr TVÆR kynslóðlr kylfinga í fremstu röð. Ástralinn Greg Norman og Tiger Woods, Bandaríkjunum, bregða á leik eftir teighögg á 14. braut. BANDARÍSKA meistaramótið, eða Masters eins og það er venjulega kallað, hefst á Augusta golfvellinum í Georgíu í Banda- ríkjunum í dag. Þar munu 93 kylf- ingar reyna með sér, en þetta er eitt af fjórum stóru mótunum í golfi og það sem haldið er fyrst ár hvert. Að venju velta menn því fyrir sér hver sé sigurstrang- legasturog eru mörg nöfn nefnd í því sambandi. Ben Crenshaw fékk græna jakkann í fyrra, en það er jakki sem veitt- ur er sigurvegaranum og var þetta annar jakki hans. Aðrir reyndir kylf- ingar sem gætu vel dottið niður á góða daga eru Greg Norman, Nick Faldo, Fred Couples og Nick Price. Ungir kylfingar, sem eiga eftir að setja svip sinn á þetta mót á næstu árum, eru meðal annars Ernie Els og Phil Mickelson og ekki má gleyma þeim sem oft eru taldir bestir af þeim sem aldrei hafa unnið á einhverju stóru mótanna, Colin Montgomerie og Davis Love, en svo skemmtilega vill til að þeir félagar leika saman í riðli í dag. Crenshaw segir að í raun geti hver sem er sigrað á Augustavellinum. „Ég held að hann sé sá völlur í heiminum sem freistar manna mest. Það er hægt að prófa öll þau högg sem menn kunna á meðan völlurinn er leikinn. Bæði er hægt að slá það sem við getum kallað hættuleg högg og einnig er hægt að leika af varkárni og íhalds- semi, en ætli menn sér að sigra verða þeir að taka áhættu,“ segir meistar- inn. Árlega eru gerðar smávægilegar breytingar á vellinum og flatirnar eru nokkuð öðruvísi en gerist og gengur á völlum í Bandaríkjunum, mun hrað- ari og því þurfa menn að æfa sérlega vel á vellinum áður en leikur hefst. Síðari níu holurnar eru langar og því hefur röð manna oft breyst mikið þar. Einn örn á einhverri af par fimm holunum getur skipt sköpum og margt óvænt hefur gerst á seinni níu í gegn- um tíðina. Það er fleira óvænt sem getur gerst á Masters og í ár eru 19 kylfingar að taka þátt í mótinu í fyrsta sinn og hafa aldrei verið eins margir síðan árið 1935. Ástæðan er að mjög óvænt úrslit hafa orðið á mörgum mótum í bandarísku mótaröðinni. Einn áhuga- maður keppir að þessu sinni, Gordon Sherry frá Skotlandi. Crenshaw segir að það sé alltaf erfitt að taka þátt í Masters í fyrsta sinn. „Andrúmsloftið er rafmagnað og flatirnar eru erfiðar þannig að nýliðar gefast oft upp,“ segir hann. Greg Norman lék aðeins í tvo daga af fjórum á síðasta mótinu í banda- rísku mótaröðinni, lék það illa að hann komst ekki áfram. Þetta er í fyrsta sinn í 13 ár sem Norman kemst ekki áfram á móti í bandarísku mótaröð- inni, en hann hefur tvívegis sigrað á Opna breska meistaramótinu og sjö sinnum hefur hann orðið að sætta sig við annað sætið á stórmótum. „Stund- Um hefur maður á tilfinningunni að vonlaust sé að sigra og einhver annar virðist vera að stinga af, en síðan gerist eitthvað og dæmið snýst við. Þetta gerist jafn snögglega og golf- bolti skoppar á flöt. Hvers vegna skoppaði boltinn svona en ekki ein- hvern veginn öðruvísi? Ég trúi því að hlutir gerist af einhverri ástæðu,“ segir Norman. Hann minnir á að Jack Nicklaus varð elstur allra til að sigra á Masters þegar hann sigraði fyrir áratug, þá 46 ára gamall. Hann hefur 37 sinnum keppt á Masters. „Maður lærir svo mikið með árunum um þessa íþrótt og það getur komið manni til góða einhverntíma," segir Norman. Þegar hann var beðinn að nefna ein- hvern einn hlut sem orsök þess hversu illa hann lék á síðasta móti, svaraði hann stutt og laggott: „Höfuðið á mér!“ Hann segir Master vera mesta mót hvers árs. „Þetta er eina mótið þar sem menn hugsa aðeins um golf - ekkert annað. Hér eru engin sjúkratj- öld þar sem ailt milli himins og jarðar er selt. Bara golf, og ég kann vel við það. Ég kann vel við allar hefðirnar. Sama fólkið kemur ár eftir ár að fylgj- ast með og maður er farinn að þekkja suma og vita hvar þeir sitja,“ segir Norman. Nick Faldo hefur tvívegis sigrað á Masters og hann segist vera betur búinn undir þetta mót en nokkru sinni, en hann hefur 12 sinnum keppt á Masters. „Ég er búinn að miða all- ar æfingar mínar síðan í ágúst við þetta mót og nú bíð ég spenntur eft- ir að það byrji,“ sagði Faldo í gær áður en hann lék einn æfingahring. Hann sagðist tiltölulega ánægður með flesta þætti leiksins hjá sér um þessar mundir og segist vonast til að það hjálpi sér að hann hefur leikið í bandarísku mótaröðinni í rúmt ár. Hann hefur verið meiddur á öxl und- anfarin ár en segir að öxlin sé miklu betri og muni ekki hafa áhrif á leik hans að þessu sinni. Hugsa daglega um sigur BEN Crenshaw, kylfingurinn sem sigraði öðru sinni á Mast- ers í fyrra, segir það alveg sérstakt. „Það líður ekki svo dagur að ég hugsi ekki um hvernig það var að sigra á Augustavellinum," segir Crenshaw. Hann segir að til þess að sigra í Masters þurfi ýmislegt að komatil. Uppskrift hgns er i rauninni samt sára- einföld; stáltaugar á teigunum, bein og góð högg á brautum, eitthvað taugaslakandi á flöt- unum og örlitil aðstoð hjá for- lögunum. „Forlögin hafa mikið að segja. Ég hef sagt það áður og get sagt það aftur að það er eitthvað sem raaður finnur fyrir á Augusta. Eitthvað sem tekur í hendina á manni og leiðbeinir manni í gegnum völl- inn.,“ sagði Crenshaw, enþeg- ar hann sigraði i fyrra hafði hann ekki náð í gegnum niður- skurð á fjórum mótum þar á undan. Ólíklegt verður að teljast að sigurstundin í ár verði eins átakanleg og i fyrra. Crenshaw grét bæði af ánægju og einnig af sorg, enda hafði hann fylgt golfkennaranum sínum og vini, Harvey Penick, til gi-afar dag- inn áður en mótið hófst. Skjra Grindvíkingar : þriðja sinn í Keflavík? /ö Miðherjar £• $ G: Dobard 84 48/86 56% K: Stuart 67 36/70 51% G: Marel 50 30/75 40% G: Helgi J. 83 53/103 51% K: Albert 40 21/55 38% K: Guðjón 72 34/78 44% Framherjar G: Guðmundur 56 35/81 43% K: D. Grisson 42 24/57 42% Varamenn Grindavík 41 19/53 36% Keflavík 70 32/75 43% Leikstjornendur G: Hjörtur 59 28/57 49% K: Falur 57 25/48 52% Skotnýting leikmanna Grindavíkur og Keflavíkur I fimm úrslitaleikjum GRINDVÍKINGAR og Keflvík- ingar mætast sjötta sinni í kvöld í baráttu liðanna um ís- landsmeistaratitilinn og verð- ur leikið í Keflavík. Heimamenn verða að sigra ætii þeir sér titilinn og ef það verður ofaná verður sjöundi og síðasti leikur liðanna í Grindavík á sunnu- daginn hreinn úrslitaleikur. Sigri Grindvíkingar hins vegar í kvöld eru þeir Islands- meistarar. Það er fróðlegt að skoða ýmsar tölulegar upplýsingar um liðin úr þeim fimm leikjum sem þau hafa leikið í úrslitarimmunni. Crindvíkingar hafa Skúli Unnar gert 30 stigum Sveinsson meira en Kefivík- skrifar ingar, 378 stig á móti 348 stigum. Keflvíkinga, en breiddin hjá Kefl- víkingum virðist vera heldur meiri, a.m.k. nota Keflvíkingar vara- mennina meira en Grindvíkingar. Þeir sem hefja leik á varamanna- bekknum hjá Keflavík hafa leikið samtals í 249 mínútur en varamenn UMFG hafa leikið í 158 mínútur samtals. Unndór Sigurðsson er sjötti maður í Grindavíkurliðinu og hann hefur leikið í 104 mínútur þannig að hinir fjórir skipta með sér 54 mínútum. Hjá Keflavík eru það Jón Kr. Gíslason og Sigurður Ingimundarson sem koma mest við sögu af varamannbekknum og Jón hefur leikið í 107 mínútur og Sig- urður í 78 þannig að þeir þrír sem þá eru eftir hafa skipt með sér 64 mínútum. Byijunarlið Keflvíkinga hefur gert 278 stig en varamannabekkur- inn 70 stig. Byijunarlið UMFG hefur hins vegar gert 337 stig og varamennirnir 41 og þaraf hefur Unndór gert 30 stig. Hinir fjórir skipta því með sér 11 stigum. Af varamannabekk Keflvíkinga hefur Sigurður verið atkvæðamestur með 26 stig og Jón er með 22 þannig að þeir þrír sem þá eru eftir hafa gert 22 stig. Á kortinu má sjá samanburð á árangri byijunarliðanna, hversu mörg stig hver leikmaður hefur gert, hversu oft menn hafa skotið og hversu oft hitt og er þá ekki gerður greinarmunur á hvort skotið er innan teigs, utan þriggja stiga línu eða af vítalínunni. Loks má sjá skotnýtingu hvers leik- manns. Þessar tölur segja auðvitað ekki nærri alla söguna því ýmislegt fleira kemur til. Grindvíkingar hafa verið heldur grimmari í fráköstum í leikjunum fimm, hafa tekið 192 fráköst, 64 í sókn og 128 í vörn. Keflvíkingar eru reyndar aðeins með 14 færri fráköst, hafa tekið 57 í sókn og 121 í vörn eða alls 178. Einstökum leikmönnum Grindavíkur hefur sex sinnum tek- ist að taka 10 eða fleiri fráköst í leik, Guðmundur Bragason hefur þrívegis tekið fleiri en tíu fráköst í leik, Rodney Dobart tvívegis og Hjörtur Harðarson einu sinni. Kefl- víkingar hafa hins vegar fjórum sinnum náð þessu, Dwight Stewart þrívegis og Davíð Grissom einu sinni. Þegar búið er að bera saman hinar tölulegu upplýsingar geta menn velt fyrir sér hvort liðið er sterkara og um leið hvort liðið sigr- ar í kvöld eða á sunnudaginn. Byij- unarlið Grindvíkinga virðist vera heldur sterkara á pappírnum að minnsta kosti, en breiddin hefur verið meiri hjá Keflvíkingum. Mið- að við hvernig leikimir fimm hafa þróast virðist ekki vera kostur að leika á heimavelli. Keflvíkingar hafa tvívegis sigrað Grindvíkinga í Grindavík og Grindvíkingar hafa sömuleiðis tvisvar lagt Keflvíkinga í Keflavík. Keflvíkingar léku fyrri tvo heimaleiki sína mjög illa og hafa örugglega fullan hug á að bæta úr því og sýna stuðningsmönnum sínum hvað þeir geta. Það væri ábyggilega ekki leiðinlegt fyrir Grindvíkinga að krækja í íslands- meistaratitlinn á sínum heimavelli á sunnudaginn en þrátt fyrir það myndu stuðningsmennirnir fyrir- gefa strákunum þó þeir sigraðu í kvöld og tækju við bikamum í' Keflavík. Endurkoma Olajuwon hafði góð áhrif HAKEEM Olajuwon kom eins og kallaður þegar meistaralið Houston Rocket náði sigurleik gegn nýliðum Vancouvers Grizzlies, eftir að hafa tapað sex leikjum í röð. Meistararnir fögnuðu sínum öðrum sigri í tólf síðustu leikjum sínum, 90:84. Olajuwon, sem hafði ekki leikið níu leiki vegna hné- meiðsla, skoraði 20 stig og tók sex fráköst. Olajuwon var ánægður með sig- urinn. „Leikmenn Vancou- vers léku mjög vel gegn okkur, sigurviljinn var mikill hjá þeim. Það var furðulegt hvað við náðum okk- ur vel á strik, þrátt fyrir allt. Leik- urinn sýnir hvað NBA-deildin er erfið.“ Alvin Robertsson skoraði 23 stig, tók tíu fráköst og átti sex stoðsend- ingar fyrir Toronto Raptors, þegar liðið fór vel heppnaða ferð til Milw- aukee — fagnaði sigri, 102:96. Trenty Murray skoraði 23 stig og Doug Christie nítján fyrir gestina, Vin Baker skoraði 25 stig og tók sextán fráköst fyrir heimamenn, sem hafa tapað sautján af síðustu nítján leikjum sínum. Leikmenn Detroit Pistons fóru vel heppnaða ferð til New Jersey, þar sem þeir lögðu Nets 111:94. Allan Houston skoraði 23 stig og Otis Thorpe 21, auk þess sem hann tók tíu fráköst, Grant Hill var ná- lægt sinni tíundu þrennu í vetur — hann setti 12 stig, tók 13 fráköst og var með níu stoðsendingar. Fyr- ir heimamenn skoraði Shawn Brad- ley mest, 25 stig. John Straks setti niður tvö víta- skot undir lokin þegar New York Knicks vann Boston Celtic 97:93. New York er þar með fjórða liðið í austurdeildinni sem er komið í úrslitakeppnina, hin eru Chicago, Orlando og Indiana. Patrick Ewing skoraði mest fyrir heimamenn, 26 stig. Pervis Ellison skoraði 31 stig fyrir gestina. Clifford Robinson skoraði 24 stig og Rod Strickland 23 og átti tíu stoðsendingar þegar Portland Trail Blazers tryggði sér rétt til að leika í úrslitakeppni vesturdeildar, með því að fagna sigri í Phoenix, 98:91. Þá skoraði Harvey Grant 21 stig og Arvydas Sabonis 19 og tók þrett- án fráköst. Kevin Johnson skoraði 27 stig fyrir heimamenn, átti 13 stoðsendingar og Charles Barkley skoraði 21 stig. Dale Ellis skoraði 20 stig og LaPhonso Ellis skoraði sautján og tók tólf fráköst þegar Denver Nug- gets vann sinn fimmta leik í sjö leikjum — gegn Los Angeles La- kers, 98:91. Með þessum sigri nálg- ast Denver Sacramento Kings í baráttu liðanna um áttunda sætið í úrslitakeppni vesturdeildar. Vlade Divac skoraði 19 stig fyrir Lakers og Magic Johnson fjórtán. Sacramento Kings stefnir að ná sæti í úrslitakeppninni í fyrsta skipti í tíu ár — liðið lagðr Dallas Ma- vericks 95:86. Brian Grant skoraði 25 stig fyrir heimamenn, en Georgee McCloud 37 stig fyrir gestina, svo* mörg stig hefur hann ekki skorað áður í leik í NBA-deildinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.