Morgunblaðið - 12.04.1996, Page 1
SÝN í Bankastræti í gær.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
V orið á
Laugavegi kallar
APRÍL í miðbæ Reykjavíkur: Kona
með barnavagn, hjón með ís. Húf-
urnar og vetrarfötin horfín og létt-
klæddir borgarbúar láta á sér kræla
á götum borgarinnar. Nýjar verslan-
ir og kona segir við vinkonu sína,
„Laugavegurinn er að lifna við, það
er fieira fólk í bænum heldur en
áður var?“
„Túristarnir eru vorboðinn," segir
Edda Sverrisdóttir talmaður sam-
taka Laugavegs og nágrennis, og
tekur undir þá skoðun að miðbærinn
sé orðinn fjörlegri en mörg undan-
farin ár. „Það er eins og fólk sé að
uppgötva bæinn aftur,“ segir hún.
Edda segir að ásóknin í verslunar-
húsnæði sé mikil og hún fái 2-3
fyrirspurnir á dag frá bæði nýjum
og gömlum verslunareigendum sem
vilji opna í bænum, og „ef það losn-
ar húsnæði keppa margir um að fá
það.“
Fjölbreytnin er orðin mikil og
Skólavörðustígurinn hefur breyst
mikið á síðustu árum, meðal annars
vegna þess að listamenn hafa opnað
þar búðir. Edda segir að nú þurfi
að byggja upp Hverfisgötuna og
gera hana að sterkari verslunargötu.
Um 300 verslanir eru í miðbæum
og hefur komið í ljós að erlendum
ferðamönnum líkar vel að eiga þar
viðskipti og haft er eftir mörgum
að vönduð vara sé frekar ódýr í
Reykjavík miðað við aðrar borgir.
Kaffihúsin leika stórt hlutverk og
fólk farið að venjast því að staldra
við á einu slíku þegar skroppið er í
bæinn, sem stundum er ekki til ann-
ars en að sýna sig og sjá aðra.
f gær var spáð rigningu í Reykja-
vík, en sólin og blíðan voru yfirsterk-
ari, og áhrifin létu ekki á sér standa;
borgarbúar spókuðu sig á röltinu
óháð ys og þys út af engu. ■
■ BÍÓPRÓGRÖMM FYRR OG SÍÐAR/2 ■ FRJÁLS LÍFSSTÍLL SNJÓ-
BRETTAIÐKUNAR/4 ■ ÖÐRUVÍSI VEISLUHÖLD KENND/6 ■ SJÓN-
VARPIÐ Á ÍSLANDI OG í MOSKVU/7 ■ AUSTRÆN HÚSGÖGN/8 ■
4
Snjóbrettaiðkun er
sprottin af hinum
frjálsa lífsstíl sem
felst í því að njóta
lífsins áhyggju-
laust. Að fljúga á
snjóbretti vekur
ánægju og frelsið
af værum blundi.
Dans, klæði,
reiðhjól, hjóla-
bretti og fleira til-
heyra menningu
hins frjálsa lífsstíls.
Hér á landi hefur
snjóbrettamönnum
vaxið ásmegin og
þeir skera sig úr.
í Reykjavik er
sérverslun með
snjóbrettavörur,
Týndi hlekkurinn,
og beita eigendur
hennar hinni
frjálsu aðferð free
style við verslun og
viðskipti, og skipar
gleðin þar önd-
vegissætið.
Morgunblaðið
slóst í för með bret-
taköppum upp í
Bláfjöll og rýndi í
kjölfarið í lífsvið-
horfin að baki.
Hvernig er til
dæmis hinn frjálsi
lífsstíll? Og hver er
sérstaða þessarar
íþróttar?
ETTI
Morgunblaðið/Þorkell
BRÆÐURNIR Kjartan og Steinar
Þorbjarnarsynir í Bláfjöllum.
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
BLAÐ B
Tilboð í 11*11
Skólabrauð
88 kr.
Brauðskinka 685 kr. pr.kg ■
Fersk jarðaber 250 gr. 95 kr.
Lausfryst ýsuflök 299 kr. pr.kg ■
Álfaskeiði • Eddufelli • Grensásvegi • Rofabæ • Þverbrekku