Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ NOREGUR: 4. sæti í móti PÓLLAND: Næstu leikir: Tveir i Færeyjum i mai og tveir í Sviss í iúlí RÚMENÍA: , 10010% f AUSTURRÍKI: GRÆNLAND: 2 20 0 100% Mótherjar 1995-96 Þjóð Leikir U J T Noregur 3 2 0 1 Rúmenía 3 2 0 1 Rússland 2 1 0 1 Pólland 2 2 0 0 Grænland 2 2 0 0 Austurriki 1 1 0 0 Ítalía 1 1 0 0 Ástralía 1 1 0 0 Japan 1 1 0 0 Bandaríkin 1 1 0 0 Suður-Kórea 1 1 0 0 Danmörk 1 0 0 1 Júgóslavía 1 0 0 1 LAND: I0 100 inssonar 995-96 Leikir U J T Hlutf. 20 15 0 5 75% LEiKIR ÁRIÐ 1995 Staður Leikir U J T Hlutf. Heimal. 3 3 0 0 100% Útileikir 8 6 0 2 75% Samtals: 11 9 0 2 82^ LEIKIR ÁRIÐ1996 Staður Leikir U J T Hlutf. Heimal. 0 0 0 0 Útileikir 9 6 0 3 67% Samtals: 9 6 0 3 67% St RUSSLAND: JAPAN: 1. sæti í móti 500 100% Ólalur Slelánsson oL Val.eru þeir einu sem Jeikið 'hala alla landsleikina 20 undir stjórn Þorbjarnar gur Sigurðsson, Jfc Arangur landsliðsþjáltara á undan Þorbirni i starfi: Þorbergur Aðalsteinsson 58% Bogdan Kowalczyk 53% Hilmar Björnsson 50% ÍÞRÓTTIR ■ TÆPLEGA 3.000 áhorfendur voru á úrslitaleik íslands og Noregs í Japanskeppninni í handknattleik um helgina. Helmingur þeirra fékk íslenska fána og studdi Island en hinir voru með norska fána og á bandi Norðmanna. ■ BOBBY Robson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands í knatt- spymu, stýrði Porto til sigurs í port- úgölsku deildinni annað árið í röð. Liðið er með 13 stiga forystu en fjór- ar umferðir eru eftir og er meistari í 15. sinn. ■ CLUB Briigge tryggði sér belg- íska meistaratitilinn í knattspymu um helgina en þijár umferðir eru eftir. Þetta er í 10. sinn sem Bríigge verð- ur meistari og í ijórða sinn á síðustu níu árum en Anderlecht sem er í öðm sæti var meistari 1993 til 1995. ■ NIMES sem er að reyna að forð- ast fall í 4. deild í Frakklandi er fyrsta liðið úr 3. deild sem leikur til úrslita í frönsku bikarkeppninni. Nimes vann Montpellier 1:0 í und- anúrslitum og mætir Auxerre í úr- slitum 4. maí en Auxerre vann Marseille í vítakeppni í undanúrslit- um. ■ LOUIS Nicollin, forseti Mont- pellier, sagði við leikmenn sína fyrir leikinn að ef þeir sigraðu ekki yrðu töm FOLK þeir að ganga heim, 45 kílómetra. ■ SÆNSKI handknattleiksmaður- inn Staffan „Faxi“ Olsson, fer til Kiel fyrir næsta keppnistímabil í Þýskalandi. Hann hefur leikið með Niederwiirzbach síðustu ár. Kiel fagnaði meistaratitlinum í Þýska- landi um helgina en besti maður liðs- ins er landi Olssons, hinn frábæri Mats Wislander. ■ NEW Jersey varð fyrst meistara í NHL-deildinni í íshokkí í 26 ár til að komast ekki í úrslitakeppnina. Á laugardaginn tapaði liðið 5:2 fyrir Ottawa, lakasta liði deildarinnar og það gerði útslagið. ■ JACQUES Lemaire, þjálfari New Jersey, var leikmaður meist- araliðs Montreal Canádiens sem komst ekki í úrslitakeppnina 1970. ■ DETROIT Red Wings sigraði í 62 leikjum sem er met í deildinni en Montreal Canadiens sigraði í 60 leikjum tímabilið 1976 til 1977. Þá fékk Montreal 132 stig sem er met en Detroit fékk 131 stig að þessu sinni og mætir Winnipeg í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. ■ TAMPA Bay leikur í fyrsta sinn í sögu félagsins í úrslitakeppni NHL- deildarinnar og mætir Philadelphia í 1. umferð. ■ BOSTON og Washington mæt- ast í úrslitakeppninni þriðja árið í röð og í fimmta sinn á síðustu sex árum. Pittsburgh hefur haft betur þrisvar undanfarin fjögur ár. ■ PAUL Van Himst var sagt upp sem landsliðsþjálfari Belgíu í knatt- spymu um helgina vegna slaks árangurs liðsins og ósamkomulags hans við leikmenn. Van Himst hefur verið 1 andslíðsþjálfari síðan í maí 1991 og var með samning til 1998. Wilfried Van Moer, sem var aðstoð- arþjálfari, tekur við; var ráðinn til eins árs. ■ LOKOMOTIV Moskva setti met í Rússlandi um helgina þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Dyn- amo Moskva í rússnesku deild- arkeppninni í knattspymu. Þar með hefur liðið ekki skorað í fyrstu sjö leikjum deildarinnar sem er met en liðið hefur gert fimm markalaus jafn- tefli. UPPLEID Islenska karlalandsliðið í hand- knattleik mætti miklum mót- byr í Heimsmeistarakeppninni á íslandi á liðnu ári. Árangur liðs- ins, 13. til 16. sæti, var langt frá því sem stefnt var að og fyrir vikið hefur handboltinn ekki notið sömu vel- vildar og áður. En þrátt fyrir þverrandi stuðning gafst hand- knattleiksforystan ekki upp og blásið var til nýrrar sóknar með ráðningu Þorbjörns Jenssonar sem landsliðsþjálfara. Hann hafði skamman tíma til stefnu fyrir stórátök í riðla- keppni Evrópumótsins en var ekki langt frá því að korna liðinu í úrslitakeppnina. Strákamir undir hans stjóm sigruðu á móti í Austurríki í ágúst sem leið, stóðu sig vel í keppni í Noregi í ársbyrjun og undirstrik- uðu í Japan í iiðinni viku að þeir eru á réttri leið. Þegar Jón Hjaltaiín Mapiús- son tók við formennsku { HSÍ urðu straumhvörf í íslenskum handknattleik. Markmiðið var að koma karlalandsliðinu í hóp þeirra bestu og halda því þar. Það tókst, en ýmislegt gerði það að verkum að ekki tókst að fylgja fyrri árangri eftir á HM á Islandi. Nú eru teikn á lofti um að möguleiki sé á að koma landsliðinu á fyrri stall. Mann- skapur tii þess virðist vera fyrir hendi, en utanaðkomandi þættir geta hindrað framrásina. Mikill kostnaður fyigir því að ná í fremstu röð í handknattleik en árangur skilar sér á margvís- iegan hátt. Góð landslið eru eft- irsótt á mót og þangað er þeim boðið, oft sér að kostnaðarlausu. Stundum eru há peningaverð- laun í boði fyrir efstu sæti á mótum og Alþjóða óiympíu- nefndin styrkir lið sem vinna sér keppnisrétt á ólympíuleikum. Flestar þjóðir leggja mikið upp úr því að eiga iþróttamenn á meðal þeirra bestu. Mikið er lagt í sölurnar til að ná mark- miðunum. Ekki er raunhæft að íslendingar nái langt í mörgum greinum, en fyrir liggur að karlaiandsliðið í handknattleik hefur alla burði til að komast í úrvalshóp. Keppnin í Japan var undir- búningsmót fyrir Heimsmeist- arakeppnina 1997. Island tapaði fyrir Suður-Kóreu í HM á ís- landi en sneri dæminu við í und- anúrslitum í Japan og sigraði örugglega. Norðmenn hafa haft tak á Islendingum undanfarin ár en þeir sáu sæng sína upp- reidda í úrslitaleiknum á sunnu- dag. Miðað við það sem á undan hefur gengið var gott að sigra þessi landslið og í raun frábært að standa upp sem meistari þó gera verði greinarmun á æfinga- móti og stórmóti. Ekki skemmdi fyrir að Sigurður Bjarnason var kjörinn mikiivægasti leikmaður keppninnar og Þorbjöm besti þjálfarinn. Svona árangur og yiðurkenningar er nokkuð sem fslendingar eru yfirleitt ekki þekktir fyrir í alþjóða keppni en undirstrikar að handbolti er helsta vetraríþrótt íslendinga og hann er í góðum höndum. Steinþór Guðbjartsson íslenska karlalands- liðið í handknattleik er á réttri leið Erskíðadrottningin SIGRÍÐUR ÞORLÁKSPÓTTIR jafn góð í knattspyrnu? Knattspyman heillarlíka SIGRÍÐUR Þorláksdóttir frá ísafirði sló ígegn á íslandsmótinu á skíðum sem fram fór í Hlíðarfjalli um helgina og er óumdeil- anlega skíðadrottning íslands. Hún varð þrefaldur íslands- meistari, sigraði í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni. Sigríður er 18 ára og hefur verið f skíðamenntaskóla i'Terneby í Sví- þjóð, heimabæ Ingimars Stenmarks, ívetur og á eftir eitt ár í stúdentsprófið. Hún fór fyrst á skíði þegar hún var fimm ára og byrjaði að æfa reglulega 7 ára gömul. „Ætli pabbi hafi haft áhrif á að ég fór svo snemma á skíði," sagði Sigri'ður en faðir hennar, Þorlákur Baxter, hefur verið skíðaþjálfari á ísafirði. menntaskóla í Terneby, hvernig gengur skóladagurinn fyrir sig? „Við erum í skólanum frá átta á morgnana til fjögur á daginn. Skíðaæfingamar eru inn í stunda- skránni og er æft fjóram sinnum í viku. Við fáum frí frá skólanum um helgar en þá eru yfirleitt mót sem við tökum þátt í. Þjálfunin í skólanum er mjög markviss og góð enda færir þjálfarar sem þar starfa.“ - Hvað tekur nú við hjá þér. Ætlar þú að snúa þér alfarið að skíðunum eða á að fara í knatt- spyrnuna í sumar? „Ég ætla að spila með Stjörn- unni i sumar og ég vona að við náum íslandsmeistaratitlinum. Eftir fótboltatímabilið fer ég aftur út til Svíþjóðar og ætla að kíára Eftir ValB. Jónatanssort Sigríður er mikil íþróttakona. Hún er ekki aðeins góð á skíðum heldur er hún í fremstu röð knattspymu- kvenna hér á landi. Lék sem framherji með 1. deildarliði Stjörn- unnar í fyrra og hefur leikið bæði með unglingalandsliðinu og U-20 ára landsliðinu. - Þú hlýtur að var ánægð með árangurinn um helgina? „Já, ég get ekki verið annað. Þetta gekk mun betur en ég þorði nokkru sinni að vona. Áður en mótið hófst vissi ég ekki hvar ég stæði gagnvart hinum stelpunum. Þetta er búin að vera frábær helgi og hreint ótrúleg." - Nú hefur þú verið í skíða- Morgunblaðið/Kristján SIGRÍÐUR Þorláksdóttir leggur nú skíðin á hilluna fram á haustið en tekur fram knattspyrnuskóna í staðlnn og spilar með Stjörnunni í 1. deildinni í sumar. þar menntaskólann næsta vetur. Æfi þá skíðin á fullu eins og í vetur. Árangurinn um helgina örvar mig enn frekar til dáða.“ - Fer það vel saman að æfa skíði á veturna og knattspyrnu á sumrin? „Þetta hefur gengið vel hingað tii en ég held að þetta fari ekki vel saman til lengdar. Ég er orðin 18 ára og verð að fara að velja á milli. Annars hef ég komið mjög vel undirbúin í fótboltann eftir veturinn og það hefur komið sér vel. Það vantar auðvitað aðeins upp á leikæfinguna og boltatækn- ina miðað við hinar stelpurnar í vorleikjunum en líkamsstyrkurinn vegur upp á móti því.“ - Hvoit er nú skemmtilegra að vera í fótboltanum eða á skíðun- um? „I dag er auðvitað skemmti- legra á skíðunum því það hefur gengið svo vel hjá mér. Knatt- spyrnan heillar mig líka og ég fæ mikið út úr því að spila í 1. deild- inni. Eins og staðan er í dag hugsa ég að skíðaíþróttin verði ofan á í framtíðinni.“ - Nú hlýtur mikill tími að fara í æfingar og keppni allt árið í báðum þessum greinum. Hefur þú nokkurn tíma fyrir annað.? „Nei, ég get ekki sagt það. En það er þess virði að puða í þessu meðan ég er ung. Önnur áhuga- mál verða að bíða betri tíma.“ En er skíðadrottningin ólofuð? „Já, það verður einnig að bíða betri tíma.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.