Morgunblaðið - 23.04.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRIL
KNATTSPYRNA
TEITUR Þórðarson verður ekki
fyrsti íslendingurinn sem
stjómar knattspyrnulandsliði í
leik gegn íslendingum, þegar
hann stjórnar landsliði Eist-
lands gegn íslandi í Tallinn á
morgun. Eggert Jóhannesson,
fyrrum þjálfari Víkings og Ár-
manns, var landsliðsþjálfari
Færeyinga og stjórnaði liðinu í
leik gegn íslandi í Þórshöfn
1974, 2:3. Öm Eyjólfsson var
þjálfari Færeyinga, sem léku á
Laugardalsvellinum 1975, 0:6.
Páll Guðlaugsson var landsliðs-
þjálfari Færeyinga, þegar ís-
lendingar mættu þeim í Þórs-
höfn 1990, 2:3.
Þá hefur Eyjamaðurinn Gisli
Magnússon stjómað unglinga-
landsliði Færeyja í tveimur
leikjum gegn íslandi.
ÍSLENSKIR landsliðsmenn voru
í sviðsljósinu um helgina í Hol-
landi, Englandi, Svíþjóð og
Þýskalandi - þrír skoruðu sigur-
mörkin fyrir lið sín; Eiður Smári
Guðjohnsen, Þórður Guðjónsson
og Rúnar Kristinsson. Lárus Orri
Sigurðsson átti stórleik með
Stoke á Roker Park í Sunder-
land, þar sem Stoke náði jöfnu,
0:0, og kom í veg fyrir að heima-
menn fögnuðu 1. deildartitlinum
eins og fyrirhugað var.
Leikurinn var sýndur beint á
ITV-sjónvarpsstöðinni og var Ian
Lárus Orri Sigurðsson besti
maður vallarins á Roker Park
St. John, fyrrum leikmaður
Liverpool, einn af þeim sem lýstu
honum. St. John fór lofsamlegum
orðum um Lárus Orra og sagði
að hann væri hreint stórkostleg-
ur — stjórnaði varnarleik Stoke
eins og herforingi, sóknariotur
Sunderland stöðvuðust á honum.
• Eiður Smári Guðjohnsen skor-
aði sigurmark Eindhoven, sem
lagði NEC Nymegen, 1:0, á 37.
mín. eftir undirbúning Luc Nilis
og Marciano Vink. Eindhoven er
fimm stigum á eftir Ajax þegar
tvær umferðir eru eftir í Hol-
landi.
• Þórður Guðjónsson skoraði
sigurmark Bochum gegn Niirn-
berg, 1:0, í 2. deildar keppninni
í Þýskalandi. Bochum er í efsta
sæti deildarinnar og fátt getur
komið í veg fyrir að liðið endur-
heimti sæti sitt i 1. deild.
• Rúnar Kristinsson tryggði
Örgryte sigur í Örebro, 0:1, þar
sem hann mætti Arnóri Guð-
johnsen, Hlyni Birgissyni og Sig-
urði Jónssyni.
• Birkir Kristinsson landsliðs-
markvörður hélt markinu hreinu
í fyrsta leik Brann í norsku 1.
deildar keppninni, gegn Váler-
engen 2:0.
HAUKASTÚLKUR GÁFU VEGLEGA AFMÆLISGJÖF / B4
VINNINGSTOIUR
MIÐVIKUDAGINN
AÐALTOLUR
Morgunblaðið/Golli
ARNÓR Guðjohnsen og Rúnar Krlstlnsson berjast um knöttinn í Örebro á sunnudaglnn. Á litlu
myndinni er Logi Ólafsson landsliðsþjálfari, sem var á meðal áhorfenda og sá hann Rúnar
skora slgurmark Örgryte gegn Örebro.
íslenskir landsliðsmenn í sviðsljósinu fyrir landsleik gegn Eistlandi íTallinn
Þrír með sigurmörk