Morgunblaðið - 23.04.1996, Qupperneq 5
h
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 B 5
HANDKNATTLEIKUR
dsmeistarar. Félagið á afmæli í ár og 50 ár eru síðan kvennalið félagsins varð síðast meistari
Islands-
meistarar
Hauka 1996
HAUKAR urðu á laugardaginn Is-
landsmeistarar í 1. deild kyenna í
handknattleik í fyrsta slnn síðan
árið 1946. Stúlkurnar sigruðu
Stjörnuna úr Garðabæ í þremur
leikjum í röð, eftir að hafa tapað
fyrstu tveimur leikjunum. Efri röð
frá vinstri: Þorgeir Haraldsson for-
maður handknattleiksdeildar
Hauka, Líney Rut Halldórsdóttir
sjúkraþjálfari, Hanna G. Stefáns-
dóttir, Hildigunnur Guðfinnsdóttir,
Kristín Konráðsdóttir, Harpa
Melsted, Auður Hermannsdóttir,
Asbjörg Geirsdóttir, Heiðrún Karls-
dóttir, Guðrún H. Aðalsteinsdóttir
liðsstjóri, Petr Baumruk þjálfari,
Gunnar Einarsson markvarðar-
þjálfari. Neðri röð frð vinstrl: Rúna
Lísa Þráinsdóttir, Unnur L. Karls-
dóttir, Vigdís Sigurðardóttir, Ragn-
heiður Guðmundsdóttir fyrirliði,
Alma Haligrímsdóttir, Thelma Bj.
Árnadóttir, Hulda Bjarnadóttir, Jud-
it Eztergal. Fyrir framan sitja Birglr
Rúnar Halldórsson og Sara Rakel
Hlynsdóttir.
»g afmælisgjöf
m H m m ■ Morgunblaðið/Ásdís
Eg skal i gegn!
4ULDA Bjarnadóttlr hægri hornamaður Hauka, sem gekk til liðs við félag-
ð í haust eftir ársdvöl í Danmörku, var mjög ógnandi í leik sínum á laugar-
Jaginn. Hér reynir hún að brjótast framhjá Stjörnustúlkunum Herdísi Sig-
urbergsdóttur og Hrund Grétarsdóttur.
Fimmti leikur
í úrslitakeppninni,
leikinn í Garðabæ
laugardaginn
20. apríl 1996
Sjálfstraustið í lagi
„LEIKURINN var meiriháttar góð-
ur, vel spilaður, jafn og spennandi
og svoleiðis eiga úrslitaíeikir að
vera,“ sagði Ragnheiður Guð-
mundsdóttir fyrirliði Hauka. „Við
ætluðum ekkert að gefa eftir og
það var ekkert stress hjá okkur
fyrir leikinn, sjálfstraustið var i lagi,
en það var ekki til staðar í fyrstu
tveimur leikjunum. Við vöknuðum
í þriðja leiknum og gátum stöðvað
þær af í hraðaupphlaupunum og
líka allar línusendingarnar. Vörnin
tók líka við sér_og þá komst mark-
varslan í lag. Ég finn fyrir stuðn-
ingi hvert sem ég fer í Hafnarfirði,
FH-ingar, Haukamenn, ungir og
aldnir fylgjast vel með.“
Annaðhvort eða
„í dag var annaðhvort eða og stelp-
urnar voru mjög ákveðnar í að
sigra,“ sagði Petr Baumruk þjálfari
Hauka. „Þær spiluðu mjög vel. Þær
voru ekki í góðri æfíngu til a_ð byija
með en æfðu vel og komu til. í fyrstu
leikjunum voru taugarnar heldur
ekki í góðu lagi en eftir sigur í þriðja
og fjórða leik, komu þær tvíefldar
en Stjarnan átti þá erfitt uppdrátt-
ar. Nú eru Haukar með besta hand-
boltalið á íslandi."
Komust á bragðið
og gátu ekki hætt
„Við höfum alltaf lagt áherslu á
kvennaboltann og lögðum af stað
með að gera konunum og körlunum
jafnt undir höfði en höfum einnig
fengið frábært fólk til starfa í deild-
inni, sem sinnir kvenfólkinu ein-
göngu,“ sagði Þorgeir Haraldsson
•formaður handknattleiksdeildar
Hauka. „Ég trúði að við myndum
vinna einn leik en þær komust á
bragðið og gátu ekki hætt. Eftir
að við komust langt í keppninni hef
ég fundið fyrir miklum stuðningi
frá Hafnfirðingum öllum. Ég tel að
Urslitakeppnin
í handknattleik
kvenna
Stjarnan
Mörk Sóknir %
Haukar
Mörk Sóknir %
SOKNARNYTING
8 23 35 F.h 11 23 48
10 25 40 S.h 8 25 32
18 48 38 Alls 19 48 40
6 Langskot 6
1 Gegnumbrot 4
1 Hraðaupphlaup 0
4 Horn 3
3 Lína 1
3 Víti 5
það hafi verið mikilvægt fyrir þessa
úrslitakeppni að hún var aðskilin
frá úrslitaleikjum karlanna. Það var
að vísu tilviljun því Japansferðin
kom uppá hjá körlunum en það
þarf að athuga þessi mál næst.
Keppnin hjá konunum er ekkert
síðri skemmtun, fólk vill fá sitt
adrenalín og um að gera að búa til
góða skemmtun, til dæmis láta
hljómsveit eins og Stalla-Hú spila.
Við áttum ekki von á að hreppa
bikarinn í upphafi en það kitiaði
verulega þegar sást hvert stefndi
að fá svona afmælisgjöf á 65 ára
afmæli Hauka og það eru fimmtíu
ár síðan kvenfólkið vann síðast Is-
landsmeistaratitil en ég get lofað
því að það munu ekki líða önnur
fimmtíu ár þar til við vinnum aftur
titil."
Örlögin gripu inní
„Ég vil bytja á að óska Haukum
til hamingju með sigurinn en ég fer
ekki ofan af því sem ég sagði eftir
tvo fyrstu leikina að Stjarnan er.
með besta liðið á landinu, það er
ósköp einfalt mál,“ sagði Ólafur
Lárusson þjálfari Stjörnustúlkna,
„en því miður gripu örlögin inní
þegar við misstum lykilmanneskju „
hjá okkur í meiðsli og við höfðum
engann tíma til að finna aðra í stað-
inn. Við þurftum meiri tfma. Hún
er lykilmaður í vörn, sókn, hrað-
aupphlaupum og stjórnar spilinu.
En veturinn hefur að öðru leiti ver-
ið góður. Við erum búin að ná í tvo
titla og ætluðum að ná þessum líka
en gerðum of mörg mistök. Dómar-
arnir þorðu að mínu mati ekki að
taka af skarið undir lokin þegar
Auður braut af sér og átti að fá
brottvísun fyrir. Hins vegar eru _
Haukarnir vel að sigrinum komnir."
Þær áttu betri endasprett
„Þetta var baráttuleikur en þegar
svona er komið, fimmti leikur, vinn-
ur betra liðið og þær áttu betri
endasprett en við,“ sagði Guðný
Gunnsteinsdóttir fyrirliði Stjörn-
unnar. „Ég veit satt að segja ekki
hvað gerðist hjá okkur. Það var
mikil pressa á okkur og við urðum
óöruggar. Það var ekki fyrr en í
lokin, að við rönkuðum við okkur.
Ég get svo sem verið sátt við titl- |
ana okkar tvo fyrir deildina og bik-
arkeppnina og það væri leiðinlegt
fyrir kvennahandboltann ef eitt lið
sópaði til sín öllum titlunum. En __
það hefði verið skemmtilegra að
enda tímabilið með því að hampa
bikar.“
Morgunblaðið/Ásdfs