Morgunblaðið - 18.05.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 18.05.1996, Síða 1
KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLEIKUR: UTAH OG SEATTLE MÆTAST í VESTURDEILDIIVIIMI / B4 Eggert Magnússon formaður KSÍ um væntanlegar viðræður borgar- yfirvalda og sambandins um að það taki við rekstri Laugardalsvallar BORGARYFIRVÖLD hafa ákveðið að ganga til við- ræðna við Knattspyrnusam- band íslands um að sam- bandið taki við rekstri Laug- ardalsvallar og sjái um og fjármagni framkvæmdir þar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að líkleg- ast yrði það ákveðið strax eftir helgi að ganga formlega til við- ræðna um þessi mál. „Það eru komnar fram hugmyndir um hvemig þetta geti litið út, en það er ekki búið að draga upp neinn formlegan samning," sagði Ingi- björg Sólrún. Samkvæmt heimildum Morg; unblaðsins er hugmyndin að KSÍ taki við rekstri Laugardalsvallar- Mikil gleði- tíðindi fyrir sambandið ins og framkvæmdum við hann, þar með talið byggingu nýrrar stúku þannig að leikvangurinn verði löglegur samkvæmt reglum alþjóðaknattspyrnusambandsins. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann væri ánægður með að málið væri komið þetta langt. „Það eru okkur geysileg gleðitíðindi að málið skuli vera komið á þann rekspöl að við get- um vonast til að fara að sjá fyrir endann á því. Ég vil þakka borgar- stjóm Reykjavíkur fyrir þann skilning sem hún hefur sýnt og við hjá KSÍ vonumst til að nú sjái fyrir endann á þeim vanda sem Laugardalsvöllurinn hefur verið fyrir Knattspyrnusambandið. Við höfum. ekki getað boðið upp á löglegan keppnisvöll undanfarin ár, en nú sér vonandi fyrir endann á því og það eru mikil gleðitíðindi fýrir sambandið," sagði Eggert. KSÍ hefur unnið að þessu í mörg ár og formaðurinn var því ánægður í gær þegar ljóst var að aðilar ætluðu að setjast að samn- ingaborðinu. „Þetta verður bylt- ing fyrir Knattspyrnusambandið og ég er þess fullviss að við náum samkomulagi og vonandi tekur það ekki mjög langan tíma. Um leið og samningar hafa tekist munum við bretta upp ermarnar og hefjast handa,“ sagði Eggert. ÍA og KR leika um meistara- titil KSÍ LEIKIÐ verður til úrslita í meist- arakepjpni Knattspymusam- bands Islands á Laugardalsvelli í dag. Það verða íslandsmeistar- arnir frá Akranesi og bikar- meistarar KR sem mætast og hefst leikurinn kl. 14. Þetta verð- ur í síðasta sinn sem meistara- keppnin fer fram á þessum tima því á síðasta ársþingi Knatt- spyrnusambandsins var sam- þykkt að keppnin skuli fara fram á haustin, að afloknu íslandsmót- inu, og því verður aftur leikið í meistarakeppninni í haust og síð- an á hverju hausti. Þessi sömu félög léku í meist- arakeppninni í fyrra, þá var leik- ið á Akranesi, og Skagamenn sigruðu af mjög miklu öryggi. Þá var Guðjón Þórðarson þjálfari KR-inga en nú er hann þjálfari Skagamanna og Lúkas Kostic þjálfar KR, en hann lék lengi með Skagamönnum, meðal ann- ars undir stjórn Guðjóns. Búast má við fjörugum og skemmtileg- um leik á Laugardalsvelli, enda til mikils að vinna. Hér má sjá þjálfarana og félagana með bik- arinn sem keppt er um. KRISTJÁN Helgason tryggði sér í gær rétt til að leika í undanúrslitum á Evrópumóti einstakl- inga i snóker sem fram fer í Antwerpen í Belg- íu. Jóhannes B. Jóhannesson féll hins vegar úr keppni í 16 manna úrslitum, tapaði 2:5 fyrir Björn Hanoveer frá Belgíu. Kristján vann Mario Goudens frá Belgiu 5:4 í hörkuleik í 16 manna úrslitunum í gærmorgun og í gærkvöldi lagði hann Yivan van Veelthofen frá Belgíu 6:4. Kristján var kominn í 4:0 í síðari leiknum en gaf þá eftir og heimamaðurinn, ótrú- lega vel studdur af áhorfendum, náði að minnka muninn. Kristján mætir Björn Hanoveer í undanúrslit- um í dag. „Hann er rosalega ------------ góður spilari," sagði Jóhann- es um hann. „Hann komst í 3:1 gegn mér og ég minnkaði muninn í 3:2 með því að gera 96 i stuði, en eftir það átti ég ekki möguleika. Hann gerði 88 í næsta stuði og var þá kominn í 4:2 og siðan gerði hann 114 og allt var búið,“ sagði Jóhannes. Þeir félagar sögðu að áhorfendur væru nokkuð furðulegir og Iétu eins og þeir væru á fótboltaleik, köll- uðu og púuðu ef þannig stæði á. „Það er dálítið furðulegt að fylgjast með áhorfendun- um, en maður lætur það ekk- ert á sig fá. Annars list mér ekkert á þennan Björn. Ég sá hann á móti Jóhannesi og það var allt annað en uppörvandi að fyigjast með hversu góður hann er. En það getur auðvit- að allt gerst og maður vonar það besta,“ sagði Kristján í gærkvöldi. Rússarnir koma TVEIR rússneskir hand- knattleiksmenn koma hingað til lands í dagtil að skoða aðstæður hjá tveimur íslensk- um félögum. Landsliðsmað- urinn Alexei Demidov, sem lék meðal annars hér á iandi fyrir áramótin í Evrópu- keppninni, mun líta á aðstæð- ur hjá Selfyssingum og annar Rússi mun fara til Akureyrar og ræða við Alfreð Gíslason og hans menn lyá KA. Þriðji Rússinn er síðan væntanleg- ur á næstunni til að ræða við Eyjamenn. Mortninblaðið/Sverrir UMFAfær liðsstyrk GREINILEGT er að forráða- menn 1. deildarliðs Aftureld- ingar í handknattleik hafa sett stefnuna hátt. Þeir hafa svo sannarlega verið að safna liði að undanförnu og hafa fengið öfiugan liðsstyrk. Fyrst fengu þeir Sigurð Sveinsson, hornamann lijá FH, og Einar Gunnar Sig- urðsson, hægrihandarskyttu frá Selfossi, til Uðs við sig. Þá er búið að ganga frá því að Sigurjón Bjarnason, línu- maður frá Selfossi, og Jón Andri Finnsson, hornamaður hjá Fram, gangi tíl liðs við Aftureldingu. 1996 LAUGARDAGUR 18. MAI BLAÐ Kristján kom- inn í undanúr- slit á EM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.