Morgunblaðið - 22.05.1996, Qupperneq 1
KNATTSPYRNA: KYNNING ÁIBV OG LEIFTRI í 1. DEILD KARLA / C2-C3
í GÆR var undirritaður samn-
ingur milli Ólympíunefndar
íslands, Sundssambands ís-
lands, Hafnarfjarðarbæjar,
Spai-isjóðs
Hafnar-
fjarðar,
Vélsmiðju
Péturs Hali-
dórssonar,
Glerborgar
hf.,
Fjörukráar-
innar, ís-
lenskra
matvæla hf. og Sundfélags
Hafnarfjarðar um að þau fjár-
magni undirbúning Elínar Sig-
urðardóttur, sundkonu úr SH,
fyrir Ólympíuleikana í Atlanta
í sumar. Samningurinn tekui-
til tímabilsins frá 1. apríl á
þessu ári til 1. ágúst nk. og
er að verðmæti 730.000 kr.
Verði afgangur af sjóðnum að
tímabiiinu loknu rennur hann
í minningarsjóð Guðmundar
Ólafssonar sundmanns en sjóð-
urinn er í vörslu SH og styrk-
ir afburða sundmenn. Þetta er
fjórði samningurinn sem Óí
og SSÍ standa saman að í sam-
vinnu við fyrirtæki og sveitar-
félög.
Elín stefnir að þátttöku í 50
metra skríðsundi á leikunum
og er 16/100 úr sekúndu frá
lágmarkinu, en það er 26,80
sekúndur. Með samkomulag-
inu stefna hlutaðeigandi aðilar
að því að Elín geti æft og keppt
á sama grundvelli og aðrir
bestu sundmenn iandsins, en
til þess þarf hún að keppa er-
lendis.
Elín sagði í samtali við
Morgunblaðið að hún væri
glöð og ánægð með þennan
stuðning. Með honum gæti hún
einbeitt sér að æf ingum og
keppni fram að Ólympíuleik-
um. Hún hefði faríð í tvær
æfingaferðir nú í vor til Þýska-
lands og Bandarikjauna og í
dag fer hún tii Mónakó með
Ólympíuhópi SSÍ til keppni og
í kjölfarið væri annaðmót í
Cannet í Frakklandi. Á þessuin
mótum yrði allt lagt í sölumar
tii að ná lágmarkinu.
Reynt við
ÓL-lág-
mörkí
Frakklandi
ÓLYMPÍUHÓPURINN í sundi,
sem keppir að því að ná lág-
mörkum fyrir Olympíuleikana
í Atianta, heldur í dag til
Frakklands þar sem sund-
mennirnir taka þátt I tveimur
mótum. Hópurinn er skipaður
Arnari Frey Ólafssyni, Þór,
Eydísi Konráðsdóttur, Kefla-
vík, Elínu Sigurðardóttur, SH,
Loga Jes Kristjánssyni, ÍBV
og Magnúsi Konráðssyni,
Keflavík. Fyrra mótið fer fram
í Mónakó um næstu helgi og
það seinna í Canet 1. og 2. júní.
Arnai- Freyr keppir í 200
og 400 m skriðsundi, er 1,45
og 1,97 sek. frá lágmörkum,
Eiín í 50 m skriðsundi, er 0,15
sek. frá lágmarki, Eydís í 100
m flugsundi, er 0,20 sek. frá
lágmarki, Magnús í 100 m
bringusundi, er 1,49 sek. frá
lágraarki og Logi Jes i 100 m
og 200 m baksundi, er 1,19 og
3,35 sek. frá lágmörkum.
Gull og brons
í Danmörku
KONRAÐ Stefánsson sigraði í
opnum flokki á Opna danska
meistaramótinu í kumitee um
helgina, hafði betur gegn öllum
fjórum mótherjum sínum. Hall-
dór Svavarsson varð í þriðja
sæti í -65 kg flokki, sigraði í
fimm viðureignum en tapaði
einni. Keppendur í hvorum
flokki voru 35 en 350 keppendur
frá tíu löndum voru með. Ingólf-
ur Snorrason, keppti í -80 kg
flokki en komst ekki á verð-
launapall og sömu sögu er að
segja af Eydísi Líndal, sem
keppti I -60 kg flokki. Þetta er
annað af tveimur stærstu karate-
mótum sem haldin eru á Norður-
löndum.
Borgarráð samþykkti í gær til-
lögu íþrótta- og tómstunda-
ráðs um að teknar verði upp form-
legar viðræður við Knattspyrnu-
samband íslands um hugsanlega
aðild að byggingu stúku við Laug-
ardalsvöll, öðrum framkvæmdum
og rekstri vallarins. Rætt hefur
verið um að KSÍ standi að hönnun,
uppbyggingu og fjármögnun gegn
fastri árlegri greiðslu til fram-
kvæmda og reksturs úr borgarsjóði
í allt að 15 ár. KSÍ annist jafnframt
rekstur Laugardalsvallar.
í erindi ITR til borgarráðs kem-
ur fram að allt frá árinu 1992
hafi staðið yfir viðræður milli borg-
aryfirvalda og KSÍ um byggingu
stúku við Laugardalsvöll og lag-
færingar á núverandi mannvirkjum
við völlinn. KSI hafi lýst sig reiðu-
búið til að taka beinan þátt í kostn-
aði við framkvæmdirnar og að
kanna til hlítar að taka við rekstri
vallarins í einni eða annarri mynd.
Þá segir að viðræður hafi farið
fram um framkvæmdirnar og að
rætt hafi verið um að reisa nýja
yfirbyggða stúku fyrir allt að 3.500
manns, ný sæti í eldri stúku fyrir
allt að 3.500 manns, klukku og
tímatökutæki fyrir knattspyrnu og
fijálsíþróttir, aðgöngumiðahlið við
aðalinngang, bætta aðstöðu fijáls-
íþróttamanna yfir Baldurshaga og
endurnýjun bað- og búningsklefa.
1996
MIDVIKUDAGUR 22. MAI
BLAD
Valur Fannar Gísla-
son semur við Arsenal
Gerir samning við enska úr-
valsdeildarfélagið til þriggja ára
Valur Fannar Gíslason verður
næsti atvinnumaður íslands í
knattspyrnu. Enska úrvalsdeildarlið-
ið Arsenai bauð honum samning til
þriggja ára og ákvað miðvallarleik-
j maðurinn að taka boðinu en hann
fer út með unnustunni, Margréti Ein-
arsdóttur, og Stefáni, bróður sínum,
í lok næsta mánaðar.
i „Þetta er eiginlega komið í gegn
og er 100% öruggt," sagði hajin við
Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ég fer
út í lok júní en æfingar hefjast 8.
júlí og samningurinn er til þriggja
ára.“
Valur Fannar, sem er 19 ára í ár,
vakti athygli með piltalandsliði 18
ára leikmanna og yngri í riðlakeppni
Evrópumótsins í Norður-írlandi á
liðnu hausti, átti stóran þátt í að
Island komst áfram í 16 liða úrslit
og var valinn besti maður keppninn-
j ar. Arsenal bauð honum og Stefáni
bróður hans til æfinga í janúar sem
■ leið og æfðu þeir hjá félaginu í tvær
vikur en tilboðið kom í kjölfarið.
„Það hefur alltaf verið draumur
minn að komast út en ég bjóst ekki
við því á þessum tíma. Þeir sögðu
við mig að ég væri ekki keyptur með
það í huga að ég léki með aðalliðinu
næsta tímabil heldur væri verið að
hugsa um framtíðina.“
Valur Fannar er frá Eskifirði og
lék með Austra en er að byija fjórða
tímabilið með Fram. „Ég á von á
staðfestingu frá Arsenal á næstu
dögum en skrifa undir samninginn
þegar ég fer út.“ Stefán, sem er að
ljúka 10. bekk grunnskólans og leik-
ur með Austra, fer með honum og
verður með unglingaliði félagsins.
Ólafur Helgi Árnason, formaður
knattspyrnudeildar Fram, sagðist
ekki geta staðfest að Valur Fannar
væri að fara þar sem hann hefði
ekki fengið neina pappíra þar að lút-
andi frá Arsenal. Talsmaður félags-
ins hefði hringt einu sinni og önnur
samskipti hefðu ekki átt sér stað á
milli félaganna í þessu máli.
Miklar breytingar hafa orðið á
leikmannahópi Fram frá því í fyrra
og verður Valur Fannar fjórði leik-
maður félagsins frá síðasta tímabili
sem fer í atvinnumennsku. Birkir
Kristinsson fór til Noregs og Kristján
Jónsson og Pétur Marteinsson til
Svíþjóðar. Þá hafa sex leikmenn til
viðbótar frá liðnu ári gengið til liðs
við innlend félög fyrir nýbyijað tíma-
bil.
VALUR Fannar Gíslason fer frá Fram til Arsenal.
Viðræður við KSÍ
um Laugardalsvöll
KNATTSPYRNA
Elín styrkt
fram að ÓL