Morgunblaðið - 02.06.1996, Blaðsíða 1
VERÐBRE YTIN G AR A NYJUM BILUM - RE YN SLUAKSTUR
Á TORFÆRUTÆKI - MERCEDES-BENZ SPRINTER HJÁ
GUÐMUNDITYRFINGSSYNI - HLIÐARBELGIR BMW
ILADA
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200 BEINN S(MI: 553 1236
1996
SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ
BLAÐ
moi
MAMTlDIN BYCCISTA HÍFDINNI
Tryggðu þér nýjan
fjölskyldubíl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega
lágu verði.
Síml: 554 2600
387 notaðir
bílar fluttir
inn a arinu
Honda Shuttle bílarnir komnir
HONDA á íslandi hefur fengið
fyrstu bílana af Honda Shuttle gerð
sem byrjað var að framleiða á síð-
asta ári. Þetta eru sjö manna fjöl-
notabflar, með 2,2 lítra, 150 hest-
afla bensínvélum með beinni, raf-
eindastýrðri innsprautun. Eftir
breytingar á vörugjaldi kostar
Shuttle um 2,8 milljónir króna en
kostaði fyrir breytingar 3.159.000
kr.
fjö'notabílar eru yfirleitt með
góðum og kraftmiklum vélum og
þiggja allt það besta frá stærri
gerðum fólksbfla viðkomandi fram-
leiðanda. Shuttle er þar ekki undan-
skilinn. Bíllinn er ákaflega
skemmtilegur í akstri, röskur og
þýður. Vökvastýrið þyngist við auk-
inn hraða. Bíllinn er nokkuð vel
búinn.
Hann er með ABS-hemlakerfi,
tveimur líknarbelgjum og þjófavörn
á ræsingu. Þá fylgir honum geisla-
spilari með útvarpi, loftkæling og
rúður og speglar eru rafdrifnir.
Samlæsing er í bílnum og vélarlæs-
ing. Hins vegar er enginn snúnings-
hraðamælir sem sumir munu líklega
sakna.
Bíilinn sem hér verður seldur
fæst einvörðungu með 2,2 lítra
vélinni og fjögurra gíra sjálfskipt-
ingu með gírstöng í stýrisstöng-
inni. Sex komast fyrir í sæti, sjö
ef þrír sitja þétt í sætisbekknum
aftast. Mið- og framsæti eru með
armpúðum. Hægt er að leggja
bekkinn niður þannig að slétt gólf
myndast. Þannig nýtist bíllinn til
alhliða flutninga.
■
Toyota smíð-
ar forngrip
TOYOTA hefur ákveðið að smíða
endurgerð af fyrsta fólksbíl fyrirtæk-
isins, AA bílinn sem fyrst var kynnt-
ur árið 1936. Bíllinn verður þó með
nýrri tækni og í vélarhúsinu verður
4,0 lítra V8 vélin úr Lexus LS400.
Framleiðslan verður takmörkuð og
hefst núna í sumar. Þeir sem ætla
að kaupa sér nýjan AA af árgerð
1936 þurfa að snara út fímm og
hálfri milljón ÍSK.
Morgunblaöið/Ásdís
HONDA Shuttle fjölnotabíll
skemmtileg viðbót við bílaflóru
landsmanna.
MIKIL aukning hefur orðið á inn-
flutningi notaðra bíla á þessu ári.
Fyrstu fimm mánuði ársins hafa ver-
ið fluttir inn 387 notaðir fólksbílar
en á sama tíma í fyrra voru þeir
aðeins 82. Þetta er 372% aukning
Langflestir eru bílarnir fluttir inn
frá Bandaríkjunum en töluverður
hluti einnig frá Þýskalandi. Mest
hefur verið flutt inn af Mercedes-
Benz á þessu ári, 83 bílar í saman-
burði við níu bíla í fyrra. 52 Jeep
Cherokee hafa verið fluttir inn, voru
tveir fyrstu fimm mánuðina í fyrra
og 32 Toyota hafa verið fluttir inn.
Langflestir bílanna eru skráðir í
Reykjavík, 153 alls, 36 í Kópavogi,
33 á Akureyri, 30 í Hafnarfírði en
færri annars staðar. _
Nýskráningar notaðra
innfluttra bifreiða í
jan.-maí1995 og 1996
■ 1995
■ 1996
Jan. Feb. Mars Apríl Maí
Rauður
BMWZR
sýndur
í Perlunni
BIFREIÐAR og Landbúnaðarvélar
hafa fengið hingað til lands BMW
Z3, opinn sportbíl, sömu tegundar
og James Bond ók í kvikmyndinni
Gullauga.
BMW Z3 vakti mikla athygli
þegar hann var frumkynntur fyrr
á þessu ári. Verksmiðjurnar anna
hvergi eftirspurn eftir þessum nýja
bíl en hann verður sýndur á sýningu
B&L í Perlunni um helgina. Z3 er
með 1800 rúmsentimetra vél, ABS
hemlakerfi, loftkælingu, spólvörn
og ýmsum öðrum búnaði.
Hann er framleiddur í Suður-
Karólínu í Bandaríkjunum. BMW
Z3 er tveggja manna, fjögurra
metra langur blæjubfll, með 1,8 I
vél en er einnig framleiddur með
1,9 1 115 eða 140 hestafla vélum.
Bíllinn er með hefðbundnu BMW
útliti á framenda en er einkanlega
sportlegur á að líta. Eyðslan er
tæpir 8 1 og hámarkshraðinn nærri
200 km á klst.