Morgunblaðið - 07.06.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
VELKOMINN í hópinnl Patrekur Jóhannesson landsllðsmaður úr KA, sem er
á lelð tll Essen í Þýskalandi, sýnlr Jullan Róbert Duranona, félaga sínum úr
Akureyrarliðinu, landsliðstreyju sína fyrir norðan í gær.
Slóveni ráðinn
þjálfari hjá KR
HANDKNATTLEIKSDEILD
KR hefur ráðið nýjan þjálfara
til félagsins, Juij Horvat, og
kemtir hann frá Slóveníu.
Horvat er 32 ára gamall og
lék á árum áður með liðinu
Slovan Ljubljana, sem m.a.
keppti í undanúrslitum Evr-
ópukeppni meistaraliða árið
1987.
Árangur Horvats sem þjálf-
ara er mjög góður, en á 10
árum hafá lið hans 7 sinnum Juij Horvat
hlotið meistaratitla og sex
sinnum hafa þau lent í öðru eða þriðja sæti.
Síðustu tvö árin hefur Horvat þjálfað meistara-
flokkslið Slovan og á nýliðnu keppnistímabili
var hann annar tveggja þjálfara kvennaliðs
Olimpija Lubljana, sem hafnaði f öðru sæti í
deildarkeppninni.
Horvat tekur til starfa hjá KR15. júli nk. og
mun hann taka að sér þjálfun meistaraf lokks
kvenna og 3. flokks pilta auk þess sem hann
mun sjá um tækniþjálfun meistaraflokks karla.
Graf og Vicario
leika til úrslita
ÞAÐ verða þýska stúlkan Steffi Graf og hin
spænska Sanches Vicario sem mætast f úrslitum
Opna franska meistaramótsins f tennis á sunnu-
daginn. Þetta verður f þriðja skiptið sem þær
mætast f úrslitum. Sanches hafði betur árið 1989
en Graf náði fram hefndum í fyrra með sigri í
þremnr settum.
í undanúrslitum f gær lenti hvorug þeirra í
vandræðum með að innbyrða vinninginn og Graf
lét þess getið að hún hefði viljað leika lengur,
áhorfenda vegna. „Svona stuttir og ójafnir leikir
verða oft lítt skemmtilegir fyrir áhorfendur."
Grafvann landa Vicario, Conchitu Martinez, 6-3,
6-1. Voicario lagði hins vegar Jana Novotnu frá
Tékklandi einnig f tveimur settum, 6-3,7-5.
Graf hefur fjórum sinnum borið sigur úr býtum
á Opna franska mótinu en þetta verður f áttunda
sinn sem hún leikur til úrslita, þá var þetta f tf-
unda sinn sem hún leikur í undanúrslitum. Graf
brosti út í annað er hún var spurð að þvf hvort
þessi leikur hennar hefði bara verið formsatriði
og sagði einungis. „Ég er ánægð með í hversu
góðri æfíngu ég er um þessar mundir. „ Viðureign-
in við Vicario verður erfíð, þótt ég hafi haft bet-
ur í fyrra þá telur það ekki nú,“ sagði Graf og
lét þess getið að hún hefði hitt Vicario f búnings-
klefanum eftir sigurinn f dag og þær hefðu skipst
á árnaðaróskum.
„Ég lék vel gegn Novotnu, var vel einbeitt og
tókst að gera það sém ég ætlaði, sigra,“ sagði
Sanchez eftir leikinn við Novotna en hann tók
97 mfnútur. Sanchez hefur tvisvar sinnum sigrað
í Ojpna franska mótinu, 1989 og 1994.
I dag verður leikið í undanúrslitum í karla-
flokki og þá mætir Pete Sampras Bandarfkjunum,
Rússanum Yevgeny Kafelnikov annars vegar og
hins vegar leikur Olympíumeistarinn Marc Rosset
frá Sviss gegn hinum þýska Michael Stich.
1996
FOSTUDAGUR 7. JUNt
BLAD
Mistök
að gefa
munnlegt,
jákvætt
svar
„MÉR leist vel á tilboð það sem
Selfyssingar buðu mér og eflaust
voru það mín mistök að gefa
munnlegt, jákvætt svar við því
og ef til vill tókumst við í hend-
ur, ég og formaður Selfoss, en
það var aldrei skrifað undir
neinn samning,“ sagði Mikhael
Abkashev i samtali við Morgun-
blaðið í gær. Þar með staðfesti
hann yfirlýsingu sem birtist i
blaðinu í gær frá handknattleiks-
deild Selfoss um að hann verði
ekki næsti þjálfari liðsins. Sel-
fyssingar halda því fram að hann
hafi handsalað samning á vor-
dögum en Abkashev segist ekki
viss um það.
Þjálfun ekki fullt starf
„Ég hef rætt við formann
handknattleiksdeildar Selfoss og
greint honum frá því að það var
ekkert í samningi þeim sem fé-
lagið bauð sem mér leist ekki á.
Hins vegar verð ég að hugsa um
fjölskyldu mína einnig. Þjálfun
handknattleiksliðs hér á landi er
ekki fullt starf og ég vildi fá
fjörutíu eða fimmtíu prósent
starf við íþróttakennslu meðfram
þjálfuninni til þess að geta fram-
fleytt fjölskyldu minni. Þessa ósk
mína gátu forráðamenn Selfoss
ekki uppfyllt og þar með varð
ekkert af því að ég tæki að mér
þjálfun félagsins.“
Harmar málalok
Mikhael sagðist ennfremur
harma að svona hefði farið. Hann
hefði verið of jákvæður þegar
tilboðið kom upp og hitt forráða-
menn félagsins nokkrum sinnum
bæði fyrir austan og í Reykjavík.
„Ástæðan fyrir því að ég tók
ekki tilboðinu er persónuleg og
hefur ekkert með þennan samn-
ing að gera. Konan mín hefur
sótt um að komast í hjúkrunar-
fræðinám í Háskóla Islands,
verði af því er nauðsynlegt að
ég hafi öruggt starf og þjálfun
er ekki öruggt starf."
Mikhael Abk-
ashev þjálfari
JULIAN Róbert Duranona,
landflótta Kúbumaðurinn sem
leikur með KA og fékk nýlega
íslenskan ríkisborgararétt, er
kominn í íslenska landsliðið.
Þorbjörn Jensson, landsliðs-
þjálfari, tilkynnti 18 manna
landsliðshóp sinn í gær. Liðið
mun hefja æfingar eftir helgi í
undirbúningi sínum fyrir und-
ankeppni HM í haust. Liðið
leikur tvo vináttuleiki við Sviss
í Aarau og Wettingen 29. og
30. júní.
Þorbjörn sagði að spennandi yrði
að sjá hvemig Duranona komi
til með að falla inn í leikmannahóp-
inn. „Hann er frábær handknatt-
leiksmaður og hefur sýnt það og
sannað með KA. Ég er viss um að
við getum notið krafta hans og við
þurfum á svona leikmanni að halda.
Hann á eftir að styrkja liðið,“ sagði
þjálfarinn.
„Þessir strákar eru allir tilbúnir
í slaginn. Þetta er sá kjarni sem
við byggjum á í undirbúningi okkar
fyrir undankeppni HM. Þetta eru
reynslumiklir strákar og svo hef
ég líka valið tvo unga og efnilega
með, Valgarð og Gunnar Berg. Það
er ekki hægt að gera miklar til-
raunir með nýja leikmenn því
tíminn er dýrmætur sem við höfum
fram á haustið. Ég fæ alla leik-
mennina á fyrstu æfingun'a á
mánudaginn nema Júlíus Jónasson
sem er í æfingabúðum með liði
sínu. Hann kemur síðan til landsins
eftir viku.“
Aðspurður hvort Héðinn Gilsson
væri ekki inni í myndinni sagði
Þorbjörn: „Við sáum það í vetur að
hann var alls ekki í neinni æfíngu
og ég vil sjá hann fyrst koma sér
í æfingu áður en ég fer að hugsa
um að velja hann. Hann kemur til
greina eins og hver annar ef hann
nær sér á strik. Ég hef hreinlega
ekki tíma til að keyra þrekæfingar
því við verðum að fara í gegnum
leikkerfi og spilið á þessum stutta
tíma sem við höfum til stefnu. Allir
leikmennirnir sem ég valdi hafa
haldið sér í æfíngu síðan deildar-
keppninni lauk í vor.“
HOPURINN
Markverðir:
Bjami Frostason, Haukum
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
Sigtryggur Albertsson, Gróttu
Aðrir leikmenn:
Björgvin Björgvinsson, KA
Gústaf Bjarnason, Haukum
Róbert Sighvatsson, UMFA
Geir Sveinsson, Montpellier
Júlíus Jónasson, TV Suhr
Gunnar Berg Viktorsson, ÍBV
Sigurður Bjarnason, Stjörnunni
Dagur Sigurðsson, Val
Jason Ólafsson, Brixen
Ólafur Stefánsson, Val
Bjarki Sigurðsson, UMFA
Valgarð Thoroddsen, Val
Julian Róbert Duranona, KA
Patrekur Jóhannesson, KA
Valdimar Grlmsson. Selfossi
Duranona í landsliðið
KNATTSPYRNA: LKHN í B-RIÐU EVRÓPUKEPPNINNAR í ENGLANDI / C2, C3