Morgunblaðið - 07.06.1996, Qupperneq 4
gtSttSL
Jl^pttiMta&iíþ
„Magic"
til Boca
Juniors?
Phil Jackson, þjálfari Chicago, eftir sigur á Seattle ílyrsta úrslitaleiknum
Tókum stjóm-
ina í okkar
hendur I lokin
Chicago Bulls, með Michael
Jordan í fararbroddi, átti ekki
í miklum vandræðum með Shawn
Kemp og félaga í Seattle Super-
' Sonics þegar liðin mættust í fyrsta
leiknum í úrslitum NBA-deildarinn-
ar í Chicago í fyrrinótt og sigraði
107:90.
Leikurinn var jafn og spennandi
framan af og eftir þrjá leikhluta
hafði Chicago einungis tveggja
stiga forskot, 79 stig gegn 77, en
í fjórða og jafnframt síðasta leik-
hluta gerðu heimamenn út um leik-
inn, sýndu stórkostleg tilþrif og
skoruðu 28 stig gegn aðeins 13
stigum gestanna. „Við fundum
“rétta taktinn seint í leiknum og
náðum þá að taka stjómina í okkar
Helgi leikur
í Austurríki
HELGI Kolviðsson knatt-
spyrnumaður sem leikið hef-
ur síðastliðin tvö með þýska
4. deildar félaginu Pfullen-
dorf hefur gert þriggja ára
samning við austurríska 2.
deildarliðið Austria Lustenau.
Félagið varð i sjöunda sæti
deildarinnar nú í vor og ætlar
sem að ná lengra á næstu
leiktíð. Helgi lék með HK áð-
ur en hann fór til Þýskalands.
Hann spilaði i fyrsta sinn með
landsliðinu gegn Rússum á
Möltu í febrúar á þessu ári.
hendur," sagði Phil Jackson, þjálf-
ari Chicago, að leik loknum en þjálf-
ari Seattle, George Karl, var þung-
ur á brún í leikslok og sagði sína
menn hafa tapað leiknum sökum
þess hve oft liðið missti knöttinn í
hendur andstæðinganna.
í liði heimamanna var Michael
Jordan stigahæstur með 28 stig,
næstur kom Scottie Pippen með 21
og Króatinn Toni Kukoc gerði 18.
Ron Harper átti góðan leik fyrir
Chicago, skoraði 15 stig, tók fimm
fráköst, átti sjö stoðsendingar pg
stal knettinum tvisvar á örlagarík-
um augnablikum á lokasprettinum.
Þá stóð hinn hárprúði Dennis Rod-
man fyrir sínu að vanda, hirti knött-
inn 13 sinnum undir körfunni auk
þess sem hann gerði 7 stig, og
Ástralíumaðurinn Luc Longley
sýndi einnig góðan leik í byijun og
lék vörnina mjög vel.
Besti leikmaður Seattle-liðsins,
Shawn Kemp, var útilokaður frá
leiknum með sex villur eftir að hafa
brotið á Dennis Rodman þegar tæp-
ar tvær mínútur voru til leiksloka,
en áður hafði hann náð að skora
32 stig og var hann stigahæstur
leikmanna Seattle. Sam Perkins, sá
eini úr leikmannahópi gestanna sem
áður hefur leikið til úrslita í NBA-
deildinni, átti góðan leik og gerði
14 stig, en þeir Detlef Schrempf
og Gary Payton skoruðu 13 stig
hvor.
Næsti leikur liðanna fer fram í
Chicago í nótt og búast má við
spennandi leik þar sem strákamir
frá Seattle sætta sig örugglega
ekki við að halda heim á leið með
tvo ósigra á bakinu.
Reuter
MICHAEL Jordan smeygir sér á mllll Shawn Kemps og Gary
Paytons í fyrsta úrslitalelknum í fyrrinótt.
Calipari til New Jersey Nets
JOHN Calipari var í gær ráðinn þjálfari New Jersey Nets. Hann var
áður þjálfari háskólaliðs Massachusetts og undir hans stjóm komst það
í vor í fyrsta skipti í undanúrslit. Kemur hann í stað Butch Beard sem
rekinn var í vor eftir slakt gengi Nets á síðustu leiktíð þar sem það
vann aðeins þijátíu leiki af áttatíu og tveimur. Samningur Calipari er
til fimm ára en ekki fékkst uppgefið hvað hann fengi í sinn hlut.
Hann mun einnig sjá um ýmis tækinmál félagsins auk þjálfuninnar.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
MAURICIO Mai-ci stjórnar-
formaður argentinska
íþróttafélagsins Boca Juniors
fullyrti í gær að Earvin
„Magic “ Johnson myndi leika
með félaginu í deildarkeppn-
inni þar I landi frá febrúar
og fram í mai lok á næsta
ári. Frá samningi yrði gengið
snemma í næsta mánuði. Eng-
in yfirlýsing héfur borist frá
„Magic“ vegna þessarar um-
mæla Marcis. Sem kunnugt
er tilkynnti „Magic“ er Los
Angeles Lakers féll úr keppni
í NBA í vor að hann hefði
nú endanlega iagt skóna á
hiUuna, hvort svo eður ei
kemur væntalega í ijós er á
næstunni, en Marci og hans
félagar eru farnir að leita að
nýju keppnishúsi þvi núver-
andi heimavöUur Boca tekur
aðeins 2.000 áhorfendur en
reikna má með að talsvert
fleiri vijji sjá „galdramann-
inn“ verði af þessum samn-
ingi.
Vert er að geta að annar
heimsfrægur íþróttakappi
leikur með Boca Juniors þó
reyndar sé á öðru sviði;
Diego Maradona er í knatt-
spyrnuliði félagsins.
Baslá
Basler
MEÐ öllu er óvíst að Mario
Basler einn miðvallarleik-
manna þýska landsliðsins í
knattspymu geti verið með
liðinu f lokakeppni EM sem
hefst um helgina, a.m.k. þyk-
ir með öllu útilok að hann
leiki með í fyrsta leiknum
gegn Tékklandi á sunnudag-
inn. Hann er meiddist í upp-
hitun fyrir viðureignina
gegn Liechtenstein á þriðju-
dagskvöldið og í gær var
hann enn illa bólginn. Strax
og og þýska liðið kom til
Englands í gær fór hann til
skoðunar og meðferðar hjá
sjúkrþjálfurum Manchester
United liðsins. Wolfgang
Niersback talsmaður þýska
liðsins sagði gær að útlitáð
þjá Basler væri ekki gott.
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSI
Keflavík og Val-
ur komin áfram!
Keflavík og Valur eru örugg
með að eiga lið í 16-liða úrslit-
um Mjólkurbikarkeppninnar, eftir
dráttinn í 32-liða úrslitum í gær.
Ungmennalið Keflavíkur (U-23)
dróst gegn 1. deildarliði Keflavík-
ur og sama var uppi á teningnum
í herbúðum Vals. „Það er ljóst
að ferðakostnaðurinn kemur ekki
til með að þvælast fyrir okkur í
þessari umferð,“ sagði Kjartan
Georg Gunnarsson, settur for-
maður knattspyrnudeildar Vals,
sem dró mótheija U-23 ára liðsins
sjálfur upp úr mjólkurbrúsanum
og var ánægður með það. „Ég
tryggði Val öruggt sæti í 16-liða
úrslitum," bætti hann við.
Bikarmeistarar KR drógust
gegn Magna frá Grenivík. Magni
leikur í „KR-búningum“ og því
verða KR-ingar að grípa til vara-
búningsins þegar þeir fara til
Grenivíkur. íslandsmeistarar
Akraness þurfa að fara til Egils-
staða og etja kappi við Hött.
Leikirnir í bikarkeppninni
dreifast nokkuð um landið; þrír
leikir fara fram á Norðurlandi,
tveir á Austurlandi, einn á Vest-
urlandi, einn á Vestfjörðum og
átta á höfuðborgarsvæðinu.
Enn er ekki komið á hreint
hvaða lið frá Austfjörðum verður
mótheiji Stjörnunnar. Kærumál
kom upp eftir bikarleik KVA og
Leiknis, sem KVA vann. Leiknis-
menn kærðu þar sem þeir töldu
að einn leikmaður KVA hafí átt
að taka út leikbann í umræddum
leik. Það lið sem vinnur kæruna
mun síðan leika við Sindra um
sætið í 32-liða úrslitum.
KJARTAN G. Gunnarsson,
formaður knattspyrnudeild-
ar Vals (t.v.), og Birglr Þór
Runólfsson, gjaldkerl knatt-
spyrnudelldar Keflavíkur,
voru ánægðir með mótherj-
ana í 32-liða úrslltunum. Llð
frá félögum þeirra er öruggt
með sætl í 16-llða úrslitum.
32-liða úrsl'rt
Eftirtalin lið drógust saman í
32-liða úrslitum bikarkeppni
KSÍ. Liðunum var skipt í tvo
16-liða hópa, fyrstu deildarlið-
in og sex efstu liðin úr 2. deild
frá síðasta ári voru í öðrum
hópnum og gátu því ekki dreg-
ist saman.
Þriðjudag 18. júní:
Stjarnan U-23 - FVam
Miðvikudag 19. júní:
Keflavík U-23 - Keflavík
Fimmtudag 20. júní:
Fram U-23 - Breiðablik
Leiknir Rvk. - Þór Akureyri
Dalvík - Leiftur
Vfkingur Ól. - Fylkir
KVA-Leiknir/Sindri - Stjarnan
Magni Grenivík - KR
Bolungarvík - FH
Víkingur Rvk. - Skallagrímur
Föstudag 21. júní:
Völsungur - KA
ÍR - Þróttur Reykjavík
Valur U-23 - Valur
Breiðablik U-23 - ÍBV
Höttur - ÍA
Ægir - Grindavík