Morgunblaðið - 09.06.1996, Blaðsíða 1
Hvað kostar
leigubíllinn?
FERÐABLAÐIÐ frétti af ís-
lending sem var nýlega á ferð
í Svíþjóð. Hann tók leigubíi á
flugvellinum í Arlanda til
Kista, sem er úthverfí Stokk-
hólms. Leigubílstjóri frá Un-
ited Taxi 020 rukkaði hann
um 495 sænskar krónur, sagði
að það væri fast verð. Nokkr-
um dögum síðar fór okkar
maður sömu leið til baka með
Taxi Kúrir og greiddi þá 280
sænskar krónur. Hann segist
hér eftir muna að kynna sér
verðið áður en hann velur bíl.
Ferðaþjónusta er
ört vaxandi at-
vinnugrein við Di-
skóflóa á vestur-
strönd Grænlands.
Uummannaq er
fallegur bær á lit-
illi eyju innarlega
í Uummannaq
firði í flóanum.
2
SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1996 BLAÐ C
Danmörk
Ódýrir bílaleigubílar
fyrir íslendinga
Tveggja vikna gjald:
Opel Corsa, dkr. 2.995
Opel Astra, dkr. 3.590
Opel Astra st., dkr. 3.990
Opel Vectra, dkr. 4.390
Innif. ótakm. aksturog tryggingar.
Fáið nánari verðtilboð.
Nýkominn
sumarhúsalisti
sendist ókeypls
fjölbreytt úrval sumarhúsa
um alla Danmörk.
internatípnat Car Rental ApS.
Uppl. á Islandi sími 456-3745.
Skemmtisigling um Faxaflóa nýtur vaxandi vinsælda hjó íslendingum jafnt sem útlendingum
AMSTERDAM
Lundaskoðun og sjóstangaveiði
eða bara sigling inn í sólarlagið
SKEMMTISIGLING um Faxaflóa nýtur vaxandi
vinsælda. Margir útlendingar nýta sér þennan
möguieika og Islendingar eru líka að komast á
bragðið með sjóstangaveiði á flóanum eða lunda-
skoðun í Lundey. Sigling inn í sólarlagið á fallegu
sumarkvöldi heillar líka.
Andrea frá Hafnarfirði er 50 manna bátur sem
gerir út frá Ægisgarði í Reykjavík. „Við erum
með þriggja til fjögurra stunda sjóstangaveiði-
ferðir," segir Davíð Pétursson. „Það eru 24 stang-
ir um borð og aflinn er grillaður þar og borinn
fram með meðlæti." Andrea fer út skv. pöntun
en til stendur að setja líka upp fasta áætlun.
Ferðin kostar 3-4.000 kr. á mann eftir fjölda í
hóp. Andrea er leigð út til útsýnis- eða kvöldsigl-
inga fyrir 25.000 á klukkutímann.
Kvöldsigling fyrir almenning
Árnes er 80 manna skip sem gerir út á sjó-
stangaveiði og skoðunarferðir á Faxaflóa þar sem
lundar, höfrungar og hvalir eru vinsæl sjón. Að
sögn Jörundar Guðmundssonar, er skipið mest
notað fyrir 40-80 manna hópa. „Það er oftast
beðið um mat í ferðunum og þá bjóðum við sjávar-
rétti, oft grillaða." Árnes verður líka í áætlunar-
siglingum að kvöldlagi 1-2 í viku. „Þetta verður
tveggja ti! þriggja tíma sigling um sundin blá sem
Morgunblaðið/Ásdís
ÁRNES á leið í höfn.
kostar 2.500,“ segir Jörundur.
Hótel Vík gerir Perlu út. „Við bjóðum aðallega
þriggja tíma sjóstangaveiðiferðir,“ segir Jóhannes
Valgeir Reynisson. Perla fer líka með fólk í
kvöldtúra og lundaskoðunarferðir út í Lundey.
„Það kemur Reykvíkingum ótrúlega oft á óvart
að hér er fullt af lunda. Perla tekur 6 farþega í
sjóstangaveiðina og kostar ferðin 4.600 krónur á
mann. Fuglaskoðunin tekur einn og hálfan tíma
og kostar 3.200. 12 komast í þá ferð.
Frá Suðurnesjum og Akranesl
Helga Ingimundardóttir gerir út bátinn Eldey
frá Suðurnesjum. „Við bjóðum ferð út að Eldey
og þá leggjum við upp frá Sandgerði. Síðan erum
við með styttri ferðir frá Keflavík," segir Helga.
Eldeyin tekur 50 manns. Styttri ferðirnar taka 3
tíma og kosta 3.900 krónur á mann. Þær lengri
taka fimm og hálfan tíma og kosta 6.500.
Á Eldingu 2. er farið í sjóstangaveiði, bæði frá
Akranesi og Reykjavík. „Við setjum upp þriggja
tíma ferðir, en annars geta þær verið eins langar
og fólk vili,“ segir Gísli B. Árnason. Elding 2.
tekur átta manns og er hægt að panta bátinn
bæði frá Akranesi eða Reykjavík. Þriggja tíma
ferðin kostar 4.000 kr. á mann og er boðið upp
á kaffi og meðlæti um borð ■
► Kaupglaðir ferðalangar í
Amsterdam hafa ástæðu til þess
að kætast yfir nýjum lögum sem
heimila verslunareigendum að
hafa opið á sunnudögum milli kl.
12 og 17. Upplýsingamiðstöðvar
fyrir ferðamenn og söfn eru al-
mennt opin á sunnudögum líka.
LEGOLAND
► Legoland hið danska hefur
opnað útibú í Windsor í London
og stefnir í framtíðinni á frekari
landvinninga, því hvorki fleiri né
færri en 15 ný Legolönd eru á
teikniborðinu. Næst er á áætlun
að opna Legoland í San Diego
eftir þrjú ár. Það er reyndar
spurning hvort rétt sé að kalla
Legolandið í London útibú frá því
í Danmörku, því það tvöfalt
stærra og reiknað er með því að
1,4 milljónir manna heimsæki það
fyrsta árið. Staðurinn í London
er byggður upp á sama hátt og sá
í Danmörku, þar eru litlar útgáfur
þekktra bygginga, Big Ben klukk-
unnar og Tower turns, svo dæmi
séu tekin. Alls eru um 800 bygg-
ingar í nýja Legolandinu og 700
lestir, skip, kranar, dýr og mann-
eskjur. Allt úr legokubbum, en
alls fóru 50 milljón kubbar í her-
legheitin. Stærsti hluturinn er
risaeðla úr 250 þúsund kubbum.
Stóra Austurlandaferðin, 5. okt. 3 vikur
Perlur Austurlanda í einni ferð: Draumaeyjan BALI,
viðskiptaundrið SINGAPORE, brennipunktur Austurlanda
HONG KONG á tímamótum, besti verslunar- og
skemmtistaður Austurlanda BANGKOK,
á ótrúlegum kjörum. Fá sæti laus.
Ferð ársins „TÖFRAR 1001 nætur“
17. okt. 3 vikur.
Sérkennilegur, heillandi heimur Austurlanda.
Ótrúleg fegurð á frábæru verði. Örfá sæti laus.
nda e
ValI«^‘áhá‘Wf
OkKar sambön
«. þinn ba9ur
FERÐASKRIFSTOFAN
rnrn^
HEIMSKLUBBUR
INGOLFS
Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavík,
sími 56 20 400, fax 562 6564
Sigling á Karíbahafi eða sæluvika
á draumaeynni Dominikana
Siglingar á nýjustu skemmtiskipum heimsins. Enn nokkrir
klefar lausir á tilboði 2 fyrir 1.
Umboð á íslandi: CARNiVAL CRUISE LINES.
Dvöl á fegurstu eyju Karíbahafs með öllu inniföldu á
PUERTO PLATA VILLAGE NÝTUR SfAUKINNA VINSÆLDA.
Spennandi valkostur á verði Evrópuferðar. Ferðir allt árið.