Morgunblaðið - 04.07.1996, Síða 6
6 C FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1996
BÖRN OG UNGLINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Stuðlar að auk-
inni útbreiðslu
- segir Gústaf Björnsson um Knattspyrnuskóla KSÍ á Laugarvatni
DRENGJUM sem fæddir voru
árið 1982 gafst kostur á að
sækja Knattspyrnuskóla KSÍ á
Laugarvatni sem stendur yfir í
þessari viku. Kunnir kappar í
íþróttinni mæta á svæðið og
gefa yngri knattspyrnumönn-
um tilsögn. Á mánudag voru
bæði núverandi og fyrrverandi
landsliðsþjálfari, þeir Logi Ól-
afsson og Ásgeir Elíasson,
drengjum innan handar og
stjórnuðu æfingum.
Hvert félag á landinu á þess
kost að senda einn leikmann úr
sínum röðum í Knattspymuskólann
á Laugarvatni. Að
þessu sinni sendu 48
Rognvaldsson fél°g fulltrúa sinn ‘
skrifar skólann og vonast
Knattspymusam-
band íslands til þess að drengirnir
snúi aftur til sinnar heimabyggðar
með góðu hugarfari og aukinni
þekkingu á íþróttinni.
Gústaf A. Björnsson, fræðslu-
stjóri KSÍ og þjálfari landsliðs
drengja 16 ára og yngri:
„Markmiðið með Knattspymu-
skóla KSÍ er að gefa öllum félögum
tækifæri til að senda einn fulltrúa
í skólann og markmiðið þegar í
skólann er komið er að menn bæti
hæfíleikana tæknilega séð og leik-
fræðilegan skilning. Svo er líka fé-
lagslegi þátturinn að vera hér sam-
an í fímm daga við leik og störf
og fara eftir þeim reglum sem upp
em settar — borða þann mat sem
hér er á boðstólum og þar fram
eftir götunum.
Gústaf segir skólann vera fyrst
og fremst útbreiðslutæki knatt-
spymunnar á íslandi. „Það em
ákveðin forréttindi að vera valinn
til að koma hingað í skólann og
síðan koma þeir heim og segja frá
því sem héma kom fram og von-
andi smita þeir út frá sér í leið-
inni. Þannig má útbreiða knatt-
spymuna og þetta er hvati til út-
breiðslu. Svo er auðvitað möguleiki
að einhver af þeim eigi eftir að ná
lengra í knattspymunni síðar meir.“
Aður fyrr var skólinn notaður til
að fylgjast með og leita að framtíð-
arleikmönnum fyrir íslands hönd.
Það er nú liðin tíð því önnur starf-
semi KSÍ hefur tekið við því hlut-
verki. „Við emm með annað átak
í gangi sem heitir Hæfíleikamótun
KSÍ. Við emm með fímm trúnaðar-
menn dreifða um allt land sem em
með hópæfíngar á sínum svæðum
fímm sinnum á ári. Þar hefst mark-
viss leit að efnilegum knattspymu-
mönnum. Þessi skóli héma er eins
konar undanfari þess. Það er
fræðsla héma um Hæfíleikamótun
KSÍ því þeir em að verða gjaldgeng-
ir í það kerfi. Við fáum hingað
stráka sem hafa hæfíleika umfram
aðra og eiga eftir að vera inni í
hæfileikakerfínu okkar, en svo er-
um við líka með einstaklinga sem
verða ekki inni í því kerfi þannig
að hérna emm við ekkert að spá í
hæfíleikana," segir Gústaf.
Knattspymuskólinn er síður en
svo nýr af nálinni. Aftur á móti
hefur KSÍ nú komið til móts við
kvenkyns knattspymuiðkendur.
Stúlkumar vom á Laugarvatni í viku
á undan strákunum. „Þessi skóli
hefur verið starfræktur í ein tólf til
fimmtán ár, alltaf þessir fimm dagar
og þessi aldur [14 ára]. Þetta er
þriðja árið sem boðið er uppá sams-
konar fræðslu fyrir stúlkur þannig
að þetta er miklu nýrra hjá þeim.
Áður fyrr vom 24 strákar valdir inn
{ skólann eftir forvalsæfíngar, en
ÞESSIR drenglr voru grlpnlr glóövolglr eftlr æflngu. Frá
vinstri, Andri Gunnarsson, Grétar Steinsson, Einar Þór Lár-
usson, Elmar Þór Viðarsson, Helgi Páll Asgeirsson.
Morgunblaðið/Edwin
TÆPLEGA fimmtiu drenglr eru nú I Knattspyrnuskóla KSÍ á Laugarvatnl. Á myndlnni fá þelr sér sætl eftir
morgunæflngu með Ásgelrl Elíassynl og Loga Ólafssynl.
það var áður en við byijuðum með
hæfíleikamótunina. Þannig að áður
fyrr gat sama félagið átt fjóra eða
fimm fulltrúa meðan annað félag
átti engan. Þannig að skólinn virkar
miklu betur núna sem útbreiðslu-
tæki því að við náum til miklu fleiri
félaga," segir Gústaf Bjömsson sem
þjálfar landslið drengja 16 ára og
yngri. Þeir munu taka þátt í Norður-
landamóti í Noregi í haust.
Einn af strákunum sem sælqa
Knattspymuskólann þetta árið er
Grétar Rafn Geirsson úr KS. Hon-
um líkar dvölin vel það sem af er
„Við emm búnir að gista aðeins
eina nótt þannig að það er ekkert
mikið búið að gerast. Maður eign-
ast fullt af vinum héma og maður
getur spilað fótbolta allan daginn.
Það er skemmtilegt að vera á æf-
ingum, borða og sofa. Við fómm í
sund í gær en við vomm bara tutt-
ugu mínútur þar af því að við fómm
að horfa á úrslitaleikinn í Evrópu-
keppninni. Ég sá samt ekki þegar
Þjóðveijamir unnu því að við vomm
famir út í fótbolta."
Þorsteinn Gestsson frá Tindastóli
leggur áherslu á að draga lærdóm
af því sem þeir reyndu hafa frá að
segja. „Við fáum reynslu og kunn-
áttu útúr kennslu Ásgeirs og Loga.
Það er líka gaman að eignast fullt
af vinum og spila fótbolta með
svona góðum leikmönnum, því
margir af þessum strákum eiga að
vera bestu leikmennimir í sínu liði.
Það er gaman að spila með þeim
og sjá hvemig maður stendur á
landsvísu."
Drengirnir munu ekki verða leið-
ir á vemnni á Laugarvatni því dag-
skráin er þétt alla daga. Á morgn-
ana er snæddur morgunverður eins
og venja er og því næst er farið út
á völl. Þar æfa drengimir í 75 mín-
útur í senn tvisvar á dag. Ýmsir
reyndir fótboltakappar stjórna æf-
ingunum í vikunni og munu dreng-
imir alltaf læra eitthvað nýtt á
hverri æfingu. Eftir síðari æfinguna
síðdegis er sundið vinsælt. Einnig
höfðu nokkrir drengjanna í hyggju
að leigja bát og sigla á vatninu.
Eftir kvöldverð mæta drengirnir á
fræðslufund. Þar eru ýmis málefni
tekin upp. Á mánudaginn mætti
dómarinn Guðmundur Maríasson á
svæðið og fræddi drengina um störf
sín og starfsbræðra sinna. Einnig
mun læknir KSÍ koma og brýna
fyrir drengjunum að hugsa vel um
líkama sinn. Slegið verður upp litlu
hraðmóti innanhúss tvö kvöld vik-
unnar áður en drengirnir fá sér
kvöldkaffi fyrir svefninn.
Ólafur Bjarnason frá Selfossi á
von á viðburðaríkri viku. „Við eram
búnir að vera á æfingum og horfð-
um á EM-leikinn. Hann var slappur
af því að vitlaust lið vann. Mér
fínnst Poborsky bestur hjá Tékkum.
Svo emm við búnir að fara í sund
og fleira. Annars emm við bara
búnir að vera héma í tvo daga þann-
ig að það á fleira eftir að gerast.“
Atli Jóhannsson er framheiji í
A-liði IBV. „Það em nokkuð marg-
ir sem æfa í Eyjum. Við emm svona
u.þ.b. 35 til 40 manns.“ Atli hefur
náð góðum árangri í fótbolta því
hann er í A-liðinu þrátt fyrir allan
þann fjölda sem æfir í hans flokki.
Félagi Atla í ÍBV, Gunnar Heiðar
Þorvaldsson, á glæstan feril að baki
sem knattspymumaður. „Þegar ég
var á Peyjamótinu í Eyjum ’91 var
ég í Þór og lenti í Pressuliðinu og
það sama gerðist árið eftir en þá
átti ég að vera í landsliðinu." Gunn-
ar er greinilega mjög frambærileg-
ur knattspymumaður en hann spil-
ar á miðjunni.
Gústaf Bjömsson sagði að slíkur
væri áhuginn hjá drengjunum að
þeir nýttu frítíma sinn á kvöldin til
að fara út í fótbolta þrátt fyrir að
hafa æft stíft um daginn. 1 gær-
kvöldi fóm drengimir út að borða
í Reykjavík áður en þeir héldu á
völlinn til að horfa á bikarleik KR
og Breiðabliks.
Morgunblaðið/Edwin
LANDSLIOSÞJÁLFARINN Logl Ólafsson gefur þelm yngrl góð ráð eftlr æfingu á mánudag. Logi
lagðl sérstaka áherslu á hellbrlgt Iffernl og að það værl nauðsynlegt tll að ná langt í knattspyrnu.