Morgunblaðið - 12.07.1996, Qupperneq 1
J
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
C
1996
FÖSTUDAGUR 12.JÚLÍ
BLAD
Andri frá
Bayern til KR
ANDRI Sigþórsson, knattspyrnukappinn knái
sem verið hefur í herbúðum Bayern Miinchen
í Þýskalandi síðastliðin þrjú ár, er nú kominn
heim og farinn að æfa með KR-ingum á ný.
„Eg er búinn að vera meiddur síðastliðið ár
og hef lítið getað spilað þannig að besta ráðið
í stöðunni var að koma heim og reyna að ná
sér. Eg hef fengið tilboð bæði frá Þýskalandi
og Sviss en það er háð því að ég standist læk-
insskoðun og eins og staðan er í dag er ég
meiddur," sagði Andri. KR-ingar bíða eftir því
að fá staðfestingu frá Þýskalandi á félagaskipt-
unum. Haukur Gunnarsson, varaformaður
knattspyrnudeildar KR, sagði að ekkert væri
því til fyrirstöðu að staðfestingin bærist í dag
og vonast KR-ingar til að Andri verði orðinn
klár í slaginn um næstu mánaðamót.
Miklar
hræringar
á Englandi
MIKI.AR hræringar eru um
þessar mundir I ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu
og herma nýjustu fregnir
frá Englandi að Frakkinn
David Ginoia sé á leiðinni frá
Newcastle til Barcelona á
Spáni. Við stjórnvölinn lyá
Börsungum er Englending-
urinn Bobby Robson og mun
hann æstur í að fá kappann
í sínar herbúðir en fjöl-
skyldu Ginolas líkar að sögn
ekki alls kostar lífið á Eng-
landi.
Newcastle neitar hins
vegar fréttunum alfarið og
segir Ginoia ekki til sölu en
á hinn bóginn neita þeir ekki
sögusögnum þess efnis að
enski landsliðsmaðurinn
Nick Barmby sé á leiðinni
til þeirra frá Middlesbor-
ough þrátt fyrir að ekki
hafi verið gengið frá neinum
samningum enn.
Þá hafa viðræður verið í
gangi milli stórliðanna
Manchester United og Barc-
elona um skipti á Lee Sharp
og Miguel Angel Nadal og
einnig hefur United auga-
stað á tékkneska landsliðs-
manninum Karel Poborsky,
sem væntanlegur er til
Manchester um helgina til
viðræðna við félagið.
KNATTSPYRNA
Ingi Bjöm hættur
þjálfun FH-liðsins
Ingi Björn Albertsson, þjálfari hjá
2. deildarliði FH í knattspyrnu,
tilkynnti á miðvikudag forystumönn-
um knattspyrnudeildar að hann
hygðist segja starfi sínu lausu hjá
félaginu og bað jafnframt um að
verða leystur frá störfum hið snar-
asta.
„Mér fannst leikmenn ekki alveg
í takti við mín markmið og metnað-
ur minn hefur hugsanlega staðið
eitthvað hærra en þeirra. Þess vegna
óskaði ég eftir að verða leystur frá
störfum en þessi ákvörðun er öll að
mínu frumkvæði og mér er enn mjög
hlýtt til bæði leikmanna og stjórnar
FH. Ég efast um að ég muni taka
að mér frekari þjálfun í sumar og
kannski tími til kominn að gefa fjöl-
skyldunni meiri tíma, en hver veit
nema maður fari í framhaldinu að
snúa sér meira að félagslegu hlið
knattspyrnunnar heldur en spennunni
á sjálfum vellinum," sagði Ingi Bjöm
í gær, en nýr þjálfari hjá FH-ingum
hefur verið ráðinn Helgi Ragnarsson,
sem þjálfað hefur meistaraflokk
Gróttu í sumar.
Arftaki Helga á Seltjarnarnesinu
verður Sverrir Herbertsson og sagði
Gísli Birgisson, framkvæmdastjóri
Gróttu, að ákvörðunin um þjálfara-
skipti hefði verið tekin með fullu
samkomulagi aðila á milli. Þá bætti
hann við að Gróttumenn óskuðu
Helga alls hins besta í Hafnarfirðin-
um og vonaðist jafnframt til að
þjálfaraskiptin yrðu báðum félögum
til framdráttar.
Morgunblaðið /Ásdís
Þrettán mörk
ÞRETTÁN mörk voru skoruð í fjórum leikjum í 1. deildarkeppn-
inni í gærkvöldi og er einvígi Skagamanna og KR-inga að nálgast
hámark. Bjarni Guðjónsson tryggði Skagamönnum sigur á Eyja-
mönnum á elleftu stundu, 2:1, á Akranesi, Einar Þór Daníelsson
skoraði tvö glæsimörk þegar KR vann stórsigur á Stjörnunni í
Garðabæ, 1:4. Skagamenn eru á toppnum með 24 stig, en KR-ing-
ar eru með 22 stig og eiga leik til góða. Þeir mætast í Vesturbæn-
um í næstu umferð. Sigurður Grétarsson skoraði mark gegn sínu
gamla félagi, þegar Valur vann Breiðablik 2:0. Bróðir hans, Arn-
ar, lék ekki með Blikunum. Fylkir, sem er á botninum ásamt
Breiðablik, með þijú stig, tapaði á Ólafsfirði, 2;1, í leik þar sem
Kjartan Sturluson, markvörður Fylkis, fékk að sjá rauða spjaldið.
Skagamaðurinn Jóhannes Harðarson fékk einnig að sjá rauða
spjaldið á Akranesi. Hér á myndinni fyrir ofan kljást Salih Heim-
ir Porca, Val, og Theodór Hervarsson, Breiðabliki, um knöttinn að
Hlíðarenda.
■ Leikir kvöldsins / C2, C3, C4
OLIATLANTA: ISKALT BAÐ A AÐ BÆTA ARANGURIÞROTTAMANNA / C4