Morgunblaðið - 24.07.1996, Side 1
BSHHHBH
■
BWHI
HH^^HHHH
M—
m*
H
| BRANPARAR ||
LEIKIR^
| þrautir!
Heimilisfang:
MYNDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 24. JUL11996
Gjafir
frá
Rebbu
KÆRU Myndasögnr, hér
er ég með ljóð og ef þið
birtið það, hef ég dulnefn-
ið Rebba!
Rebba mín, það er al-
veg ástæðulaust fyrir þig
að skýla þér á bak við
dulnefni, ljóðið þitt er fal-
leg hugleiðing og öllum
holl lesning um gjafir og
gildi þeirra. En að sjálf-
sögðu virðum við ósk
þína.
GJAFIR
Því gefum við gjafír?
Er þakklæti ekki nóg?
En þakklæti við fáum
ef hún kostar meir en
nóg.
Ef hún kostaði aðeins
lítið,
já, lítið af peningum,
fengjum við þá sama
sama þakklætið?
BÖRN í BOLTALEIK í SUMAR
VINSAMLEGAST birtið í
Myndasögum Moggans ef
hægt er. Það myndi gleðja
dóttur mína mjög mikið, þar
sem hún fylgist með ykkur af
miklum áhuga. Með fyrirfram
þakklæti fyrir hönd dóttur
minnar.
Svo hljóðar bréf frá Birnu
Dís Traustadóttur, móður
listakonunnar, sem gerði
myndina Börn í boltaleik í
sumar. Stúlkan heitir Emilía
Kristín Bjarnason, 5 ára -
verður 6 ára 17. nóvember
næstkomandi, og heimilis-
fangið er Tjarnarból 2, 170
Seltjarnarnes. Mæðgur, við
þökkum fyrir fallega mynd og
hlýlegt bréf.
Ólympíuleikar
FJÓRÐA hvert ár eru Ólympíuleikarnir haldnir. Eins og
þið vitið vafalítið eru þeir haldnir í borginni Atlanta í Banda-
ríkjunum að þessu sinni. Saga leikanna hefst árið 776 f.Kr.
(= fyrir Kristsburð= fyrir fæðingu Jesú Krists) í Ólympíu
borg í Grikklandi. Þeir voru haldnir þar til ársins 393 e.Kr.
(= eftir Krist) þegar Rómveijar réðu ríkjum í Grikklandi
og víðar. 1896 voru þeir endurvaktir og voru fyrstu leikarn-
ir haldnir í Aþenu, höfuðborg Grikklands.
Ólympíuleikarnir eru hugsaðir sem keppni einstaklinga
og hópa en ekki keppni milli landa. Ólympíueldurinn, logi
hins endurlífgaða ólympíuanda, er tendraður á Ólympsfjalli
í Grikklandi fyrir hveija Ólympíuleika og fluttur af íþrótta-
fólki til Jieirrar borgar þar sem leikarnir fara fram í hvert
skipti. Ólympíuleikunum er skipt í sumarleika og vetrar-
leika, sem raðað er þannig niður á árin, að tvö ár líða á
milli vetrarleika og sumarleika.
Sigurður Rúnar, 7 ára, sendi okkur tákn Ólympíuleik-
anna, fimm mislita hringi sem krækjast saman.
Stein-
höggv-
arar
ÞAÐ eru ekki allir steinhöggv-
arar í heiminum, sem nota
hamar og meitil (= fleygmynd-
að málmverkfæri með odd á
endanum, notað til að grópa í
eða taka sundur harða hluti,
sjá mynd). Sums staðar á Ind-
landi eru starfandi granít-
höggvarar sem tendra eld við
klettaveggi. Þegar kletturinn
er orðinn vel heitur, hella þeir
vatni á hann. Hin snögga kæl-
ing veldur því að sprungur
myndast í klettaveggnum og
heilu björgin losna jafnvel frá.
Granítið þenst um heil 5%
við að hitna úr mínus 20 gráð-
um á Celcius í plús 40 gráður,
sem gerir þá 60 gráðu hita-
mun. Þegar það kólnar mjög
hratt skreppur það saman, en
hefur ekki tíma til að minnka
nóg á svo skömmum tíma og
brotnar þá.