Morgunblaðið - 22.08.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMIUDAGUR 22. ÁGÖST 1996 C 7
BÖRN OG UNGLINGAR
Forseti íslands heimsótti
mótsgesti á Tungubökkum
Hið árlega kvennaknattspyrnu-
mót Aftureldingar fór fram
dagana 10. til 11. ágúst. Mótið var
nú haldið í fimmta sinn og fór það
fram á Tungubökkum, íþróttasvæði
Aftureldingar í Mosfellsbæ. Keppt
var í 5. og 6. flokki A- og B-liða.
Alls tóku 17 lið þátt í mótinu. Ekki
var aðeins leikin knattspyrna því
samhliða leikjunum fór fram keppni
í knattþrautum og reiptogi. Há-
punktur mótsins var þegar forseti
Islands, herra Ólafur Ragnar Gríms-
son, mætti á verðlaunaafhendinguna
ásamt konu sinni, Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur, og afhentu sigurlið-
unum farandbikara.
Mótið var sett laugardagsmorg-
uninn 11. ágúst með þeim hætti að
þátttökuliðin gengu inn á íþróttaleik-
vanginn við undirleik Skólahljóm-
sveitar Mosfellsbæjar. Jóhann Sigur-
jónsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar,
bauð síðan stúlkurnar og aðstand-
endur þeirra velkomna og setti mót-
ið.
Leikið var á fjórum grasvöllum
og fór riðlakeppnin fram bæði á
laugardag og sunnudag. Eftir knatt-
spyrnuleikina á sunnudeginum hófst
keppni í reiptogi þar sem B-lið 5.
flokks Aftureldingar sigraði. Síðan
var valið lands- og pressulið fimmta
flokks og léku þau einn leik. Eftir
það fór fram verðlaunaafhending og
lauk mótinu með grillveislu.
Þegar verðlaunaafhendingin var
nýhafin komu forsetahjónin í heim-
sókn, en þau voru í Mosfellsbæ í
boði bæjarstjórnarinnar. Forsetinn
ávarpaði þátttakendur og gesti. í
ávarpinu sagði hann meðal annars
að þetta væri fyrsta embættisverk
hans í þágu íþróttahreyfingarinnar
á íslandi og væri hann stoltur af
því að byrja hjá yngstu iðkendunum,
því hann ætlar sem forseti að leggja
áherslu á iðkun íþrótta hjá yngsta
mannfólkinu. Að ioknu ávarpi af-
henti forsetinn sigurliðunum farand-
bikara við mikinn fögnuð viðstaddra.
Mikil gleði og ánægja ríkti hjá
stúlkunum, að forseti Islands skyldi
heiðra þær með nærveru sinni. Móts-
haldarar voru á einu máli um að
nærvera forsetans hafi lífgað mikið
upp á annars vætusaman dag og
vilja koma á framfæri miklu þakk-
læti til herra Ólafs Ragnars Gríms-
sonar og frú Guðrúnar Katrínar
Þorbergsdóttur.
Úrslit mótsins voru á þann veg
að í 5. flokki A-liða sigraði Valur
frá Reykjavík örugglega, en þær
unnu alla leiki sína. Afturelding var
í öðru sæti og Haukar í því þriðja.
Besti leikmaður í 5. flokki A-liða var
Dóra Stefánsdóttir úr Val. Fylkir
sigraði síðan í knattþrautum fimmta
flokks.
í keppni B-liða 5. flokks sigraði
Afturelding. Fjölnir var í öðru sæti
og Fylkir í því þriðja. Besti leikmað-
ur í keppni B-liða var Sigrún Ragna
Hjartardóttir frá Aftureldingu.
í 6. flokki sigraði Breiðablik 1
örugglega, en þær höfðu betur í öll-
um sínum leikjum líkt og A-lið Vals
í 5. flokki. Afturelding var í öðru
sæti og Selfoss í því þriðja. Besti
leikmaður í 6. flokki var Gréta
Samúelsdóttir úr Breiðabliki. Breiða-
blik 1 gerði sér svo lítið fyrir og sigr-
aði einnig í knattþrautunum.
Ekki voru aðeins sigurvegarar
verðlaunaðir á mótinu, því einnig
voru veitt verðlaun fyrir prúðasta lið-
ið innan vallar og utan. A-lið Þróttar
í Reykjavík var prúðasta liðið inná
vellinum og Breiðablik utan vallar. í
hópi B-liða voru Valsstúlkur frá
Reykjavík prúðastar innan vallar-
markanna, en Fylkir var þægasta lið-
ið utan vallar. í 6. flokki var Breiða-
blik 2 prúðasta liðið þegar þær öttu
kappi við mótheija sína, en ekki var
hægt að velja á milli Fjölnis og Vals
í valinu á prúðasta liðinu utan vallar-
BESTU lelkmenn mótsins; f.v., Dóra Stefánsdóttir úr Val var
best í keppni A-liða 5. flokks, Sigrún Ragna Hjartardóttir frá
Aftureldingu sýndi bestan leik í hópi B-liða í 5. flokki og
Gréta Samúelsdóttir úr Breiðabliki var best í 6. flokki.
ins og því fengu bæði liðin verðlaun.
Það er mat mótshaldara að mikil
framför hafi orðið hjá yngstu stúlk-
unum í knattspyrnu og að alltaf séu
að koma upp ný lið sem tekið hafa
miklum framförum og er það
ánægjulegt fyrir áhugamenn um ís-
lenska kvennaknattspyrnu.
Sjö manna lið Grindavíkurstúlkna sigraði í 3. flokki
Fjölnir og Leiknir urðu
íslandsmeistarar
URSLITAKEPPNI yngri flokkanna
í knattspyrnu er hafin og fara leik-
irnir fram víða um land. Á F'jölnis-
velli í Grafarvogi fór fram úrslita-
keppni 4. flokks kvenna og fóru
heimamenn Fjölnis með sigur af
hólmi, en stúlkurnar úr Grafarvog-
inum sigruðu lið Þórs frá Akureyri,
5:1, í úrslitaleik. í keppni B-liða
sigraði Leiknir _úr Reykjavík eftir
úrslitaleik við ÍBV, en þeim leik
lauk með sigri reykvísku stúlkn-
anna, 3:1.
Á Hornafirði fór fram úrslita-
keppni sjö manna liða. í 3. flokki
kvenna, og léku þar þijú lið til úr-
slita um íslandsmeistaratitilinn;
Grindavík, KA og heimamenn úr
Sindra. Stúlkurnar frá Grindavík
unnu báða leiki sína, 5:1, og eru
því íslandsmeistarar.
Úrslitakeppni 4. flokks karla
hófst um síðustu helgi og var leikið
á KA-vellinum á Akureyri og á
Ásvöllum Hauka í Hafnarfirði. Á
Akureyri stóð til að keppt yrði í
tveimur riðlum, en þar sem lið frá
Vestfjörðum og Austurlandi mættu
ekki til keppni voru riðlarnir tveir
sameinaðir í einn. í honum léku
Keflavík, KA, ÍBV og Þór frá Akur-
eyri. Keflvíkingar sigruðu í riðlinum
- höfðu betur í tveimur viðureign-
um af þremur og eiga því að leika
til úrslita á laugardag gegn Fram.
Mótheijar þeirra í leiknum verða
Framarar, en þeir sigruðu í úrslita-
keppninni sem háð var á Ásvöllum
er þeir báru sigurorð af Fylki í
markamiklum leik síðastliðinn
sunnudag, 4:3. Aftur á móti hefur
komið upp kærumál vegna mis-
skilnings í félagaskiptum og er óvíst
hvort leikurinn verði háður á laug-
ardag eður ei.
Úrslitakeppni 3. flokks kvenna
hófst síðastliðinn föstudag og var
leikið í tveimur riðlum. Annar þeirra
var leikinn á Árskógsströnd og
Dalvík en hinn í Grindavík. í riðli
1, sem leikinn var á Grindavíkur-
velli, voru Valsstúlkur frá Reykja-
vík hlutskarpastar, en þær luku leik
í riðlinum með markatöluna 13:1.
í hinum riðlinum sigruðu Blika-
stúlkur úr Kópavoginum, en þær
voru einnig með markatöluna 13:1.
Strákarnir
fjölmenntu
á Skagann
KNATTSPYRNUFÉLAG ÍA hélt
knattspyrnumót fyrir 6. flokk karla
um síðustu helgi. Tólf félög sendu
lið sín til keppni að þessu sinni og
voru þau 38 talsins, en í þeim léku
alls 330 leikmenn. Á föstudag
slógu mótshaldarar upp hraðmóti
þar sem leiknar voru 2x7 mínút-
ur, en í aðalmótinu voru leiknar 2
x 15 mínútur. Að sögn mótshald-
ara tókst mótið í alla staði mjög
vel og var veðrið með eindæmum
gott, en mótshaldarar telja að ef
veðrið sé gott, sé ekki hægt að
kvarta yfir neinu og er nokkuð til
í því. Veitt voru verðlaun fyrir 1.,
2. og 3. sæti í flokkum A-, B- og
C-liða og voru veitt sérstök verð-
laun fyrir hraðmótið annars vegar
og aðalmótið hins vegar. Aftur á
móti fengu allir keppendur verð-
launapening sem viðurkenningu
fyrir þátttökuna á mótinu.
I hraðmótinu á föstudeginum
sigraði lið Stjörnunnar í keppni
A-liða. Þeir sigruðu einnig í keppni
C-liða, en B-lið Njarðvíkinga varð
hlutskarpast í sínum flokki.
í aðalmótinu hrepptu Valsmenn
hnossið í kepgni A-liða, en heima-
mennirnir úr IA létu sitt ekki eftir
liggja og sigruðu í hópi B-liðanna.
Keflavík 1 varð svo hlutskarpast
í keppni C-liða.
Á mótinu voru valin Lands- og
pressulið 6. flokks. Landsliðið skip-
uðu þeir Jóhann Á. Ólafsson frá
Njarðvík, Guðmundur Hreiðarsson
og Hafþór Vilhjálmsson úr ÍA,
Ólafur Berrí frá Tý í Vestmanna-
eyjum, Þorsteinn Georgsson frá
Keflavík, Stefán Þórarinsson úr
Val, Grétar Þór Eyþórsson frá Þór
Vestmannaeyjum, Bjarki Páll Ey-
steinsson úr Stjörnunni, Hilmar
Trausti Arnarsson Haukum og
Bjarni H. Kristmarsson frá Skalla-
grími.
Leikmenn pressuliðsins voru
Guðmundur Þórðarson frá Kefla-
vík, Fannar Freyr úr Breiðabliki,
Sigurður G. Eiríksson úr Gróttu,
Þorfinnur Gunnlaugsson frá Þór
Vestmannaeyjum, Daníel Laxdal
úr Stjörnunni, Heimir Guðbjörns-
son frá Hamri, Jón Knútur Jónsson
og Torfi Hilmarsson úr Val, Krist-
ján Sigurðsson frá Njarðvík og
Ingþór Guðmundsson frá Haukum.
Leikmenn Gróttu þóttu sýna
bestu framkomuna á mótinu og
hlutu þeir því sæmdarheitið,
„Prúðasta lið mótsins.“
Sauðkræk-
ingar voru
sigursælir
KNATTSPYRNUFÉLAG Siglu-
fjarðar stóð fyrir Pæjumóti dagana
9. til 11. ágúst og er það í sjötta
sinn sem mótið er haldið. Alls 2 lið
mættu til keppni, en þau komu frá
tiu félögum víðs vegar af landinu.
„Óvenjumargt var af foreldrum og
fylgdarfólki og er það af hinu
góða,“ sagði Friðfinnur Hauksson,
framkvæmdastjóri mótsins. Stúlk-
urnar sem tóku þátt voru á aldrin-
um 9 til 18 ára og voru þær um
280 talsins. Þeir sem höfðu þátt-
tökurétt á mótinu voru 2. til 5.
flokkur kvenna.
í 2. flokki sigraði lið Leiknis, en
Huginn var ekki langt undan og
hafnaði í öðru sæti. Tindastóll sigr-
aði í þriðja flokki, en Leiknisstúlkur
voru iðnar við kolann og hrepptu
annað sætið. í keppni B-liða 3.
flokks sigraði Þór 2 frá Akureyri.
Sauðkrækingar voru sigursælir á
Pæjumótinu og sigruðu einnig í 4.
flokki. Annað sætið féll í hendur
IR-inga, en stúlkurnar úr Breiðholt-
inu sigruðu í keppni B-liða. Heima-
menn voru hlutskarpastir í 5. flokki
en Víkingur kom næst á eftir í
öðru sæti, en KR 2 sigraði í keppni
B-liða.
MARKAKÓNGUR Pæju-
mótslns á SlgluflrAI var
Tinna Mark Antonsdóttlr,
en hún skoraðl alls 18
mörk. Hér er hún ásamt
litla bróður sínum, honum
Bjarna.
OPIMA FAMOUS GROUSE
GOLFMDTIÐ
verður haldið á Dddfellowvellinum
í Urriðavatnsdölum laugardaginn
24. ágúst.
Stórglæsileg veröjáun fyrir 3 bestu
skoririeð og án forgjafar.
Aukavérðlaun verða veitt fyrir að
vera næstur holu á öllum
par 3 holum vallarins.
Verðlaun fyrir lengsta upphafshögg
á braut á 5 holu.
Hver keppandi fær gjöf frá
Famous Grouse áður en
haldið er út á völl.
Þegar leik er lokið verður
keppendum (sem náð hafa
tilskyldum aldri) boðið upp á Famous
Grouse og Highland Park.
Dregin verða^ skorkortijTiótslok og
fá þeir heppnu óvænta gTáðninga.
Verð kr. 1.800.