Morgunblaðið - 04.09.1996, Side 1
B L A Ð A L LRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
P«ri$ttttMtt§>ib
1996
MIÐVIKUDAGUR4. SEPTEMBER
BLAÐ
Lárus Orri hefur
ekki heyrt af
áhuga City
„ÉG yrði síðastur til að frétta af áhuga ein-
hverra liða,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson um
frétt Morgunblaðsins í gær, þar sem skýrt var
frá áhuga Manchester City á að kaupa hann frá
Stoke. „Ég talaði við Lou Macari framkvæmda-
stjóra eftir síðasta timabil og spurði hvort önnur
lið hefðu spurst fyrir um mig. Hann sagði svo
ekki vera. Seinna frétti ég að Sunderland hefði
boðið 750 þúsund pund (um 77 miljónir íslensk-
ar) fyrir mig en því tilboði hefði Stoke hafnað.
Eins hefðu tvö önnur félög sýnt áhuga, en ég
veit ekki hvaða félög það eru. Ef Manchester
City hefur verið að sýna mér áhuga er það bara
gott mál. City er alvöru klúbbur," sagði Lárus
Orri Sigurðsson, sem vakið hefur athygli að
undanförnu fyrir góðan leik sem miðvörður
Stoke. Lárus Orri, sem á eftir tvö ár af samn-
ingi sínum við Stoke, er samkvæmt áræðanlegum
heimildum verðlagður á eina milljón punda. Ef
það reynist rétt er hann fyrsti íslenski knatt-
spymumaðurinn sem nær milljón punda mark-
inu.
Sterkur varnarleikur er það sem Logi
Ólafsson landsliðsþjálfari leggur
áherslu á í vináttulandsleiknum gegn
Tékkum í Jablonec í dag. Hann stillir upp
leikaðferðinni 5-4-1. Birkir Kristinsson
verður i markinu, Guðni Bergsson, sem
„sópari“ aftan við fjögurra manna vörn.
Miðverðir verða Ólafur Adólfsson og Eyj-
ólfur Sverrisson, Lárus Orri Sigurðsson
Teog
kaffiá
bann-
lista
FRAMARAR tryggðu ser efsta sætið í
2. deild, með því að leggja Skallagrím
að velli, 3:0, á Laugardalsvellinum í
gærkvöldi, þar sem hátt á annað þús-
und áhorfenda voru saman komnir. A
myndinni sést Þorbjörn Atli Sveinsson
koma Fram á bragðið, með fallegu
skallamarki - hans fjórtánda mark í
deildinni. Ágúst Ólafsson, sem hefur
skorað tólf mörk, fylgist með fullur
eftirvæntingar.
■ Fram aftur... / C3
hægri bakvörður og Rúnar Kristinsson
vinstri bakvörður. Á miðjunni verða Sig-
urður Jónsson og Heimir Guðjónsson,
Bjarki Gunnlaugsson á hægri vængnum
og Þórður Guðjónsson á þeim vinstri. Rík-
harður Daðason, markahæsti leikmaður
1. deildar, verður síðan einn frammi.
Varamenn eru því: Kristján Finnboga-
son, Hermann Hreiðarsson, Einar Þór
Daníelsson, Óiafur Þórðarson og Helgi
Sigurðsson. Leikur íslands í dag er fyrsti
landsleikur þjóðanna. Leikurinn fer fram
á Streinice-leikvanginum í Jablonec sem
tekur 15.000 áhorfendur. Reiknað er með
að 7 til 8 þúsund áhorfendur fylgist með
leiknum. Leikurinn hefst kl. 15 að íslensk-
um tíma og verður sýndur beint í tékkn-
eska sjónvarpinu.
Morgunblaðið/Golli
Þýska frjálsíþróttasambandið sendi frá sér yfirlýsingu
í gær þar sem farið er fram á að þýskt frjáls-
íþróttafólk drekki hvorki te né kaffi frá því að keppni
byrjar og fram yfir lyfjapróf.
I fyrra féll óþekkt þýsk stúlka á lyfjaprófi eftir að
hafa drukkið tvo kaffibolla. Stúlkan er lítil og létt og
rannsókn leiddi í ljós að jafnvel lítill skammtur af kaffi
gæti leitt til þess að of mikið koffínj samkvæmt gild-
andi reglum, mældist i þvagi hennar. í kjölfarið var hún
hreinsuð af meintri lyfjamisnotkun og jafnframt var
beðist afsökunar á að hún hefði verið bendluð við að
hafa haft rangt við.
Koffín er á gráu svæði varðandi lyfjamisnotkun í
íþróttum og þó að ekki sé hægt að líkja áhrifum te-
og kaffidrykkju við steranotkun vilja þýsk fijálsíþróttayf-
irvöld hafa vaðið fyrir neðan sig til að koma í veg fyrir
hugsanlegt bann. Fyrir þremur árum var þýsk sund-
stúlka, heimsmeistarinn Sylvia Gerasch, úrskurðuð í
tveggja ára bann vegna koffínmagns í þvagi en hún só_r
og sárt við lagði að hún hefði aðeins drukkið kaffi. Á
það var ekki hlustað. Að þessu sinni vilja sérfræðingar
í Þýskalandi fara með málið til Alþjóða fijálsíþróttasam-
bandsins en gera samt ekki ráð fyrir að reglunum verði
breytt að svo stöddu. Alþjóða sundsambandið breytti
sínum reglum varðandi koffín í fyrra og þar þýðir magn
yfir settu marki tveggja mánaða bann.
Þeir byija gegn Tékkum
LYFJAMAL
AMERÍSKIFÓTBOLTINIM: DALLAS OG SAN FRANCISCO ENNÞÁ BEST / C3