Morgunblaðið - 04.09.1996, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996 C 3
kám
FOLK
■ SIGURÐUR Gylfason lipri,vél-
sleðameistari keppir með Guð-
mundi Guðmundssyni á Toyota.
Þeir vinna allar nætur við að setja
óbreytta 1600 cc vél í bíl sinn. Sér-
smíðuð eppnisvél þeirra bilaði í
fyrrinótt. Sigurður kveðst bíl-
hræddur en ætlar að láta sig hafa
það að prófa nýja akstursíþrótt.
■ MAGNÚS Jóhannsson og Guð-
mundur T. Gislasson unnu Norð-
dekk flokkinn fyrir ódýra bíla í
fyrra. Nú hafa þeir skipst á sætum
og mæta í alþjóðarallið með Guð-
mund undir stýri.
■ Jóhannes V. Gunnarsson og
Gunnar Viggóson hafa keppt í
Norðdekk flokknum á ódýrum
keppnisbíl en mæta núna á Porsche
911 með 231 hestafla vél. Tveir
Porsche-bílar verða því í rallinu.
Guðbergur Guðbergsson ekur
300 hestafla bíl.
■ Halldór Úlfarsson fyrrum ís-
landsmeistari í rallakstri keppir
að nýju. Hann ekur Toyota Celica
með sex cylindra vél. Halldór er
vanur leigubílstjóri og mun örugg-
lega reyna að skáka Martin
Stockdale frá Englandi á Opel
Omega. Bíll hans er málaður eins
og breskur leigubíll og með taxa-
merki á þakinu.
■ MARTIN Stockdale og að-
stoðarökumaður hans skoðuðu
sérleiðir í gær. Leigubílstjórar á
Hreyfli skoðuðu Opel rallleigubíl
hans á meðan. Þeir sögðust fylgjast
grannt með rallakstri og torfæru.
Einn þeirra, Pétur Ottóson, er
bróðursonur torfærumeistarans
Haraldar Péturssonar.
KNATTSPYRNA
Fram aftur
á toppinn
Margt var um manninn á Laug-
ardalsvelli þegar Skalla-
grímsmenn sóttu Framara heim í
toppslag 2. deildar-
Edwin ’™ar ' gserkvöldi.
Rögnvaldsson Leiknum lauk með
skrífar sigri heimamanna,
3:0, en brugðið gat
til beggja vona áður en fyrsta mark-
ið leit dagsins ljós.
Gestirnir léku undan golunni í
fyrri hálfleik en Framarar áttu
hættulegri færi fyrstu tuttugu mín-
útumar. Besta færi_ þeirra_ kom á
13. mínútu þegar Ágúst Ólafsson
skallaði knöttinn í þverslá Skalla-
grimsmarksins. Borgnesingar vökn-
uðu til lífsins þegar fyrri hálfleikur
var hálfnaður og gerðu nokkrar
heiðarlegar tilraunir til að koma
boltanum fram hjá Ólafi Péturssyni
í marki Fram en það gekk ekki eftir.
Heimamenn brutu loks sóknar-
lotur Skallagríms á bak aftur þegar
tíu mínútur vora eftir af fyrri hálf-
leik og skoruðu fyrsta mark leiksins
en það gerði Þorbjöm Atli Sveins-
son með laglegum skalla í þægra
hornið eftir sendingu frá Ásgeiri
Halldórssyni. Framarar höfðu því
eins marks forystu í leikhléi.
Borgnesingarnir tóku dálítinn
ijörkipp þegar örfáar mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik en náðu
ekki að skapa sér nægilega hættu-
leg færi til að jafna metin. í stað
þess juku heimamenn forystu sína
á 56. mínútu með fallegu marki.
Þorvaldur Ásgeirsson kom á mikilli
siglingu og skoraði af stuttu færi
eftir skemmtilegan undirbúning
Þorbjarnar Atla á hægri kantinum.
Tveimur mínútum síðar var
Valdimar K. Sigurðsson ekki langt
frá því að minnka muninn, en Ólaf-
ur Pétursson varði gott skot hans.
Skallagrímsmenn gerðu sig ekki
mjög líkiega til að skora síðustu
þijátíu mínúturnar og voru Framar-
ar töluvert sterkari á þeim tíma.
Framarar bættu þriðja markinu
við á 68. mínútu þegar Sævar Guð-
jónsson skoraði með góðum skalla
eftir fyrirgjöf frá hægri kantinum.
Frekar tíðindalítill tími fór í hönd
eftir þriðja mark Fram en heima-
menn voru þó töluvert atkvæða-
meiri. Sigur Safamýrarpilta var því
öruggur og Ásgeir Elíasson, þjálf-
ari Fram, var að vonum ánægður
í leikslok. „Þetta var erfiður leikur
fyrstu 25 mínúturnar. Ég átti ekki
von á því að þeir kæmu svona fram-
arlega á okkur eins og þeir gerðu,
en eftir markið vorum við sterkara
liðið. Ég er ánægður með mína
menn en þessi sigur dugar ekki einn
og sér. Við þurfum að halda áfram
að sigra þó að við séum óneitanlega
vel settir núna,“ sagði Ásgeir.
Morgunblaðið/Golli
ÞORBJÖRN Atli Sveinsson skoraði fyrsta mark Framara í
gærkvöidi. Hér sæklr Alfreð Karlsson að honum.
AMERISKI FOTBOLTINN
Styrkleiki liðanna virðist lítið breytast þótt umgerðin í NFL-deildinni breytist talsvert
Dallas og San
Francisco
ennþábest
77. KEPPNISTÍMABIL amer-
ísku fótboltadeildarinnar NFL
hófst um helgina. Sömu lið eru
talin sterkust og undanfarin ár,
þrátt fyrir tap Dallas á móti
Chicago í 1. umferð og að mikl-
ar breytingar hafa orðið á
deildinni sjálfri á allra síðustu
árum. Tvær mikilvægustu
breytingar eru flutningur liða
til annarra borga og aukinn
réttur leikmanna til að skipta
um lið.
Þessar breytingar hafa orðið til
þess að skapa óstöðugleika
hjá liðum, en það finnst mörgum
leiða til minnkandi
Gunnar stuðnings áhang-
Valgeirsson enda í borgunum
skrífar frá sem liflin spila í.
Bandankjunum Rýmkun á rétti leik-
manna til að skipta um lið er mörg-
um skiljanleg hér í landi einkafram-
taks og viðskiptafrelsis (þótt flest-
um þyki þeir of launaháir), en hegð-
un margra eigenda liða í deildinni
í garð stuðningsfólks og skattgreið-
enda er annað mál.
í fyrra komu tvö ný lið í deild-
ina, Carolina Panthers og Jackson-
ville Jaguars, auk þess sem eigend-
ur beggja liðanna í Los Angeles,
Rams og Raiders, fluttu lið sín til
annarra borga. í ár flutti eigandi
Cleveland Browns lið sitt til Balti-
more (heitir nú Baltimore Ravens),
en það hefur verið óvinsælasti flutn-
ingur íþróttaliðs síðan Brooklyn
Dodgers hafnaboltaliðið flutti til
Los Angeles fyrir meira en þremur
áratugum. Cleveland hefur verið
best studda liðið í deildinni í mörg
ár, en eigandi liðsins var óhress
með hegðun borgarstjórnar í sinn
garð og fór því með lið sitt til ann-
arrar borgar. Næsta ár flytur Hous-
ton Oilers til kántrýbæjarins Nash-
ville, auk þess sem eigendur Se-
attle Seahawks, Washington
Redskins, Arizona Cardinals og
Chicago Bears hafa allir hótað að
fiytja lið sín fái þeir ekki nýja leik-
vanga.
Slík óvissa og hótanir falla ekki
lengur í góðan jarðveg hjá skatt-
greiðendum hér í landi, sérstaklega
í ljósi minnkandi skatttekna borga
og nýrra hagfræðikannana sem
gefa í skyn að atvinnuíþróttalið eru
ekki nærri eins efnahagshvetjandi
og margir hafa haldið fram. Víst
er að annaðhvort gerir deildin eitt-
hvað sjálf í þessum efnum eða
stjórnmálamenn taka þetta mál
upp.
Mannabreytingar
Þrátt fyrir allt þetta hefur verið
nóg annað um að vera hjá liðunum.
Nokkuð var um mannabreytingar í
sumar, bæði hjá leikmönnum og
þjálfurum. Nýirþjálfarar vora ráðn-
ir hjá Miami Dolphins, Indianapolis
Reuter
FRÁ leik Chicago og Dallas í fyrrinótt. Broderick Thomas
stöðvar Robert Green hjá Chicago.
Colts, Baltimore Ravens, Arizona
Cardinals og Tampa Bay Buccane-
ers. Af þessum breytingum er koma
Jimmy Johnson til Miami hvað
merkilegust. Johnson var áður
þjálfari Miami háskólaliðsins, sem
varð tvisvar háskólameistari undir
hans stjórn, áður en hann gerðist
þjálfari Dallas Cowboys í NFL
deildinni. Það lið gerði hann einnig
tvisvar að meisturum. Undanfarin
tvö ár hefur kappinn verið „leik-
skýrandi“ fyrir FOX sjónvarpsstöð-
ina, en langaði í þjálfun að nýju.
Eina liðið sem kom til greina fyrir
hann að þjálfa var Dolpins, en þar
var hinsvegar fyrir Don Shula, far-
sælasti þjálfari i sögu deildarinnar
og eini þjálfari í 29 ára sögu liðs-
ins. Þegar hann ákvað að hætta sem
þjálfari sl. vetur, opnaðist staðan
fyrir Johnson. Það mun hinsvegar
taka einhvern tíma fyrir kappann
að koma liðinu í lokaúrslit vegna
brotthvarfs nokkurra lykilmanna
liðsins.
Liðunum 30 í NFL er skipt í tvær
þriggja riðla deildir. Sjö lið úr hvorri
deild komast í úrslitakeppnina og
sigurvegarar í úrslitakeppni hvorrar
deildar leika síðan til úrslita í leik,
sem að þessu sinni fer fram í Sup-
erdrome höllinni í New Orleans
þann 26. janúar næstkomandi.
í Landsdeild eru það sem fyrr
meistarar San Francisco 49ers og
Dallas Cowboys sem flestir telja að
berjist um sigurinn. Meistaralið
Dallas hefur gert langtímasamn-
inga við bestu leikmenn sína, en
það hefur hinsvegar gert það að
verkum að minna er til skiptanna
undir svoköliuðu „launaþaki" (þ.e.
þeim heildarlaunum sem liðunum
er leyft að greiða öllum leikmönnum
sínum á hveiju keppnistímaili) til
að greiða öðrum leikmönnum. Em-
mitt Smith, sem kjörinn var besti
leikmaður úrslitaleiksins í vor sem
leið, meiddist undir lokin í viður-
eigninni gegn Chicago í fyrrinótt
og Það gæti sett strik í reikninginn
missi liðið marga leikmenn vegna
meiðsla en enginn skyldi þó af-
skrifa lið sem hefur þrisvar orðið
meistari á fjórum árum.
San Francisco tapaði óvænt fyrir
Green Bay í undanúrslitum Lands-
deildar í fyrra, 27:17, svo í ár vora
nokkrir reyndir kappar keyptir til
að styrkja vörn liðsins. Sóknin verð-
ur ekki vandamál. San Francisco og
Dallas eru í ár, sem og í fýrra, talin
langbest af flestum sérfræðingum.
Þau mætast þann 10. nóvember í
San Francisco. Eina liðið sem talið
er geta ógnað þeim er Green Bay
Packers, en Packers hefur ekki unn-
ið leik í Dallas í átta ár og verður
að yfirstíga þá hindrun til að eiga
möguleika á að verða meistari.
Liðin í Amerísku deildinni hafa
ekki unnið úrslitaleik í tólf ár og
ekki er sjáanlegt að breyting verði
á í ár. Buffalo Bills hefur styrkst
nokkuð síðan í fyrra, Kansas City
Chiefs er með sterkt lið og Pitts-
burgh Steelers er ávallt skeinu-
hætt, en hversu mikið sem þessi lið
eða önnur úr deildinni reyna, ei
ekki sjáanlegt að nokkur af þeim
muni ógna veldi sigurvegarans úi
Landsdeild í lokaúrslitum.