Morgunblaðið - 07.09.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JB«r0unl>Iaibít)
C
1996
LAUGARDÁGUR 7. SEPTEMBER
BLAÐ
Með og á móti KA
HORNAMAÐURINN úr KA og markvörðurinn
úr Völsungi, Björgvin Björgvinsson, stendur í
ströngu þessa dagana. í gær og í dag leikur
hann með KA í Opna Reykjavíkurmótinu í
handknattleik, flýgur síðan til Húsavíkur þar
sem hann mun standa í marki Völsungs í 2.
deildinni í knattspyrnu. Leikurinn er mikil-
vægur því Völsungur er í fallbaráttunni og
mótherjar þeirra á sunnudaginn verða KA.
Björgvin verður sem sagt í KA-peysunni í dag
en klæðist búningi Völsunga á morgun og leik-
ur þá gegn KA.
Fleiri handknattleiksmenn úr KA eru í
knattspyrnunni. Heiðmar Felixson, skytta
hægra megin, lék með Dalvíkingum í 3. deild-
inni í surnar og var ætlað stórt hlutverk i vet-
ur með KA. Hann meiddist i siðasta leik Dalvík-
inga og gengur nú um með hækjur. Ekki er
enn þ'óst hversu legni hann verður frá æfing-
um og keppni.
ALÞJOÐARALLIÐ
Hummerinn
flýgur glatt
ALÞJÓÐARALLIÐ, það 17. í röð-
inni, hófst í gær og verður fram
haldið i dag og á morgun. í gær
var keppt á sjö sérieiðum, en alls
verður keppt á tuttugu slíkum. Á
mynd Gunnlaugs Rögnvaldssonar
má sjá þá Ævar Hjartarson og
Ara Arnórsson fljúga á Hummer-
jeppanum á Reykjanesleiðinni, en
þeir félagar óku greitt og slógu
ekkert af þó blindhæð væri fram-
undan. Þeir voru í góðri stöðu í
flokki jeppa eftir fyrsta dag
keppninnar, voru i öðru sæti, en
fyrstir voru Geoff Tunnard og
Douglas Blandy frá Bretlandi, sem
aka Mitsubishi Pajero. Rúnar
Jónsson og Jón Ragnarsson, á
Mazda 323, eru fyrstir, Steingrím-
ur Ingason og Jóhannes Jóhannes-
son, á Nissan, eru næstir og þriðju
eru Nils Petter Gil og Einar Staff
frá Noregi, en þeir aka á Subaru
Legacy.
■ Ralliö / C4
Fyrsta sætið getur gefið
um 23 milljónir króna
DANIEL Komen er efstur á stigamótum Alþjóða frjálsíþróttamóts-
ins en síðasta mót timabilsins verður í Mílanó á Ítalíu í dag. Kom-
en, sem bætti heimsmet Noureddine Morcelis í 3.000 metra hlaupi
um liðna helgi, er með fjögur stig umfram Morceli, grindahlaupar-
ann Samuel Matete og Jonathan Edwards, heimsmethafa í þri-
stökki. Hlaupararnir Dennis Mitchell og Derrick Adkins eiga einnig
möguleika á fyrsta sæti sem getur geflð allt að 350.000 dollara í
verðlaun (um 23,2 millj. króna). Stigahæsti keppandinn fær 200.000
dollara, 50.000 dollarar eru greiddir fyrir sigur í grein og 100.000
doilarar að auki fyrir heimsmet.
Komen var nálægt því að setja heimsmet i 5.000 m hlaupi á stiga-
mótinu í Zttrich 14. ágúst sl. en þá hljóp hann á næstbesta tíma sem
náðst hefur, 12.45,09. Heimsmet Haile Gebreselassies er 12.44,39.
Komen þykir líklegur til að sefja heimsmet í greininni í dag og
geri hann það fær hann 45 stig og tryggir sér efsta sætið. Morceli
er einnig til alls líklegur og verður efstur setji hann heimsmet í
1.500 m hlaupi.
Fjórir hlauparar beijast um kvennatitilinn. Gwen Torrence og
Ludmilla Engquist eru með 66 stig, Michelle Freeman er með 64
stig og Merlene Ottey 63 stig, en Ottey varð efst 1987 og 1990.
Glæsilegt met í klukku-
stundar hjólreiðum
HJÓLREIÐAKAPPINN Chris Boardman frá Bretlandi endurheimtí
í gær heimsmetið í klukkustundar hjólreiðum þegar hann hjólaði
56,3758 kílómetra á innanhússbraut í Manchester í Englandi. Sviss-
lendingurinn Tony Rominger átti fyrra met, 55,291 kílómetra, en
metið settí hann í Bordeaux I Frakklandi í október 1994. Boardman
átti síðast heimsmetið í greininni árið 1994, en hann settí met í
júlí árið 1993, í Bordeaux, en Obre bætti það á sama stað i aprtt 1994.
HANDKNATTLEIKUR
Samkomulag
hjá KA og Essen
Handknattleiksdeild KA og Ess-
en í Þýskalandi hafa náð sam-
komulagi vegna félagaskipta Pat-
reks Jóhannessonar. Benedikt Ól-
afsson, gjaldkeri handknattleiks-
deildar KA, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að málin væru
í höfn, eins og hægt væri að hafa
þau í höfn. „Málin hafa þróast
þannig að Essen hefur samþykkt
að greiða það sem við fórum framá
vegna félagskipta Patreks, ef dóm-
ur fellur á þann veg hjá Evrópusam-
bandinu að eitthvað verði greitt
yfirhöfuð fyrir félagaskipti leik-
manna,“ sagði Benedikt í gær.
Hann sagði að gott samband
hefði verið á milli félaganna, enda
hefði Alfreð Gíslason leikið með
Essen um árabil. Benedikt sagði
að sér skildist á mönnum að úr-
skurðurinn í hinu svokallaða Bos-
man-máli myndi ná til handknatt-
leiksins eins og annarra íþrótta, og
þá væri trúlega ljóst að leikmenn,
PATREKUR Jóhannesson
mun lelka meö Essen I vetur.
sem væru búinir með samning sinn
hjá einhveiju félagi, gætu farið til
þess félags sem þeir vildu án þess
að fyrra félag ætti kröfu um
greiðslu.
Essen og KA líta þannig á málin
að Essen hafi gert samning við
Patrek áður en samningur hans við
KA var runninn út og því ætti KA
að fá einhveija greiðslu fyrir hann.
Róbert Sighvatsson, línumaður
úr Aftureldingu, hefur ekki getað
leikið með Schutterwald í Þýska-
landi, en hann hugðist leika með
liðinu í vetur. Ástæðan er að Aftur-
elding og Schutterwald hafa ekki
komist að samkomulagi um
greiðslu, en Mosfellingar telja sig
eiga rétt á greiðslu fyrir Róbert þó
svo hann hafí ekki verið samnings-
bundinn félaginu.
Fleiri íslendingar héldu til út-
landa til að leika handknattleik.
Valsmennirnir Dagur Sigurðsson
og Ólafur Stefánsson munu leika
með Wuppertal í vetur, en Viggó
Sigurðsson er þjálfari liðsins. Þeir
munu fá leikheimild á næstu dög-
um, eða þegar Valur hefur fengið
greiðslu frá þýska félaginu.
TEIMNIS: STEFAN EDBERG ÚR LEIK Á SÍÐASTA STÓRMÓTISÍNU / C4