Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JMtfrgmtÞIiifrtó
C
1996
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER
BLAD
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Golli
KAMPAKÁTIR leikmenn Skallagríms, sem tryggðu Borgnesingum sæti í fyrstu deild 1997 í fyrsta skipti í
sögu deildarinnar frá 1955. Aðeins eitt lið af Vesturiandi hefur leikiö í deildinni áður, ÍA.
Stór stund í sögu
Borgnesinga
Fögnuðurinn var mikill í Borgarnesi í
gærkvöldi þegar ljóst var að Skalla-
grímsmenn höfðu unnið Völsunga á
Húsavík og um leið tryggt sér sæti í 1.
deild í fyrsta sinn. Það verður að teljast
frábær árangur hjá svo litlu bæjarfélagi
að eiga lið á meðal þeirra bestu. Liðið fór
ekki léttustu leiðina en sýndi mikinn styrk
með því að vinna upp tveggja marka for-
skot Húsvíkinga í leiknum í gærkvöldi
og gera gott betur - bættu við tveimur
mörkum í 4:2 sigri.
„Þetta er stór stund í lífi mínu og ör-
ugglega allra Borgnesinga," sagði Valdi-
mar K. Sigurðsson, fyrirliði Skallagríms,
í gærkvöldi. „Við vorum tveimur mörkum
undir og sáum möguleikana á fyrstu
deildarsætinu fjarlægjast en rifum okkur
síðan upp. Við höfðum það markmið í
sumar að hafa gaman af því að spila og
ekki endilega að fara upp á meðan stóru
félögin settu stefnuna beint upp. Við
höfum ekki farið neðar en í þriðja sæti
í deildinni í sumar. Við leikmennirnir
vorum líklega þeir einu sem höfðum trú
á að liðið gæti farið upp og það voru ein-
mitt við sjálfir sem komum okkur upp -
ekki aðrir. Það var líka gaman fyrir leik-
menn að hirða sætið af Þrótturum, sem
töldu sig með annan fótinn í fyrstu deild,“
bætti Valdimar við.
Betra að hafa þá
duglega en snillinga
„Það var ólýsanlegt að sigra í lokin,“
sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Skalla-
gríms. „Við fréttum að Þróttur væri yfir
í hálfleik á móti Víkingum og vissum því
að við yrðum að leggja allt undir, enda
varð alger hugarfarsbreyting í leikhléinu.
Við breyttum því ekki sókninni heldur
hugarfarinu. Völsungar voru sterkir fyrir
hlé en brotnuðu við jöfnunarmarkið. Við
höfðum fyrir leikinn unnið með einu,
tveimur, þremur og fímm mörkum svo
að ég sagði að nú myndum við vinna
með ijórum én átti reyndar við fjögur
gegn engu. í Skallagrímsliðinu eru dug-
legir menn og ég hef ekki þurft að biðja
menn um að beijast í sumar. Það er held-
ur ekki mikið um snillinga en leikmenn
hafa vilja og dugnað, sem sýnir að hægt
að fara langt á því. Það er oft betra að
hafa duglega leikmenn en snillinga innan-
borðs,“ bætti Ólafur við. Enn er óráðið
hvort hann verður áfram þjálfari liðsins
í 1. deildinni næsta sumar.
Birgir Leifur í
átta manna úr-
slit á Ítalíu
BIRGIR Leifur Hafþórsson, íslandsmeistari í
golfi frá Akranesi, hélt sigurgöngu sinni áfram
á Opna ítalska mótinu í gær - tryggði sér rétt
til að leika í átta manna úrslitum, eftir tvo spenn-
andi leiki gegn Hollendingnum Germer og Þjóð-
verjanum Scherer, þar sem úrslit í 18 holu holu-
keppni réðust á síðustu holunni í báðum viður-
eignunum. „Leikirnir voru æsispennandi ogtóku
á taugamar,“ sagði Björgvin Þorsteinsson,
kylfusveinn Birgis Leifs, sem byrjaði áþví að
vinna Germer 2:0, þá lagði hann Scherer, 1:0, á
síðustu holunni. „Birgir Leifur lék ágætlega
gegn Hollendingnum, bætti sig gegn Þjóðveijan-
um,“ sagði Björgvin. Birgir Leifur leikur gegn
sænskum kylfingi í átta manna úrslitum í dag,
sá sem fagnar sigri í holukeppni mætir norskum
eða dönskum kylfingi í undanúrslitum eftir há-
degi. „Möguleikar Birgis Leifs gegn Svíanum
eru jafnir,“ sagði Björgvin. Úrslitaleikurinn fer
fram á morgun, 36 holu holukeppni.
Ólafur Rafnsson for-
maður KKÍ um samning-
innviðStöð2og Sýn
Metum samn-
inglnn á 25
milljónir
KÖRFUKNATTLEIKSSAMBANDIÐ, Stöð 2 og
Sýn undirrituðu í gær samning til fimm ára um
forgangsrétt sjónvarpsstöðvanna til að sýna frá
körfuknattleik á íslandi, jafnt deildar-, bikar-
og landsleikjum. KKÍ metur samninginn á 25
milljónir. Við teljum hagsmunum okkar best
borgið með því að gera þennan samning. Stöð
2 hefur verið körfuboltastöð og verður nú al-
hliða körfuboltastöð," sagði Ólafur Rafnsson,
fomaður KKI, við undirritunina. Hann sagði KKÍ
meta samninginn á 25 milljónir en vildi ekki tjá
sig nánar um það mat. Hann sagði að hvorki
sambandið né sjónvarpsstöðvarnar hefðu haft
áhuga á einkaréttarsamningi.
Páll Baldvin Baldvinsson, dagskrárstjóri
Stöðvar 2, sagði að skilin milli einkaréttar- og
forgangsréttarsamning væru ekki ijós og að Is-
lenska útvarpsfélagið hefði talið eðlilegt að hafa
samningtil svo langs tíma ekki þrælbundinn.
„Samningsvettvangurinn hefur gjörbreyst með
tilkomu fleiri sjónvarpsstöðva. Við sóttum fast
að fá þennan samning meðal annars vegna þess
að Stöð 2 kom sterk inn með kynningu á körfu-
knattleik þegar byijað var að sýna frá NB A á
sínum tíma og við við teljum nauðsynlegt fyrir
okkur að ná víðtæku samstarfi vð sérsambönd
og KKÍ hefur verið í fararbroddi varðandi okk-
ur,“ sagði Páll Baldvin.
Ólafur Rafnsson var spurður hvort hann teldi
ekki möguleika sérsambanda minni við að afla
fjár þegar gerður væri svona langur samningur,
sérstaklega með tillitis til þess að sjónvarpsstöðv-
arnar leita til fyrirtækja til að fá kostun á útsend-
ingu frá íþróttaviðburðum. „Ég held í sjálfu sér
að samningstíminn breyti engu þar um, en því
er ekki að neita að, eftir að samkeppni sjónvarps-
stöðvanna harðnaði, höfum við fundið fyrir að
það er erfiðara að fá fé. Hins vegar veitir svona
langur samningur okkur tækifæri til að skipu-
leggja allt okkar starf mun betur og lengra fram
í tímann,“ sagði Ólafur.
Samningurin felur í sér lágmarksfjölda leikja
á hveiju ári og þar sem sjónvarsstöðvarnar eru
tvær er búist við talsvert meiri umfjöllun en
verið hefur undanfarin ár. „Það kemur til dæm-
is sterklega til greina að sýnt verði beint á Sýn
á fimmtudögum," sagði Hermann Hermannsson,
rekstrarsfjóri Fjölmiðlunar hf., en ekki er enn
búið að ganga nákvæmlega frá hvernig sam-
starfi Stöðvar 2 og Sýnar verður háttað.
ÓLYMPÍUIMEFIMD ÍSLAIMDS HELDUR UPP Á 75 ÁRA AFMÆLIÐ í DAG / C2, C3