Morgunblaðið - 26.09.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1996 B 7
BÖRN OG UNGLINGAR
Vel heppnuðferð unglingalandsliðanna
íslenskir sigrar
á elleftu stundu
Helgina 20. ágúst til 1. septem-
ber tóku íslensku karla- og
kvennalandsliðin í handknattleik,
iMBIi skipuð leikmönnum
Sigurgeir 16 ára og yngri, þátt
Guðlaugsson í sterku átta liða
skrifarfrá móti í Amager í
Danmörku Kaupmannahöfn.
Á Amager-mótinu voru alls fjög-
ur íslensk lið meðal þátttakenda því
bæði karla- og kvennalandsliðinu
var skipt í tvo álíka sterka hópa sem
sýndu það svo eftirminnilega og
sönnuðu í Kaupmannahöfn hvers
íslenskir handknattleiksmenn eru
megnugir.
Andstæðingar íslensku liðanpa
voru flestir þónokkuð eldri en ís-
lendingarnir en það kom þó ekki í
veg fyrir að á fyrsta degi mótsins
sigruðu bæði karlalandsliðin sína
andstæðinga mjög örugglega og
kvennalandsliðin áttu heldur ekki í
neinum vandræðum með að fara
með sigur af hólmi úr viðureignum
sínum við Fremad Valby og gest-
gjafana frá Amager.
Á síðari degi riðlakeppninnar hélt
svo sigurganga beggja karlalands-
liðanna áfram og höfnuðu bæði liðin
í efsta sæti, hvort í sínum riðli, eins
og reyndar kvennalandslið íslands
númer tvö, en stelpurnar í iiði eitt
gerðu hins vegar 13:13 jafntefli við
danska liðið Greve og urðu því að
gera sér annað sætið í sínum riðli
að góðu. Það var því ljóst að í undan-
úrslitunum hjá stelpunum myndu
Island 1 og 2 leiða saman hesta
sína en hjá strákunum myndi hins
vegar ísland 1 mæta HT16 frá
Hamborg og ísland 2 etja kappi við
Bording.
Skemmst er frá því að segja að
stelpurnar í íslandi 2 lögðu stöilur
sínar í íslandi 1 að velíi, 20:15, og
tryggðu sér þar með með farseðilinn
í úrslitaleik mótsins þar sem þær
myndu mæta Greve sem sigrað
hafði Lillerod nokkuð örugglega í
hinum undanúrslitaleiknum.
í öðrum undanúrslitaleik strák-
anna lagði ísland 1 HT16 Hamborg
að velli, 18:16, en í hinum leiknum
varð ísland 2 hins vegar að játa sig
sigrað í bráðlj'örugum og hörku-
spennandi leik gegn Bording þar
sem umdeilt vítakast á lokasekúnd-
um leiksins tryggði Dönunum sigur-
inn, 19:18. íslensku strákarnir í liði
2 sátu því eftir með sárt ennið, en
þeir sýndu þó og sönnuðu í leiknum
um 3. sætið að þeir hefðu átt fullt
erindi í úrslitaleikinn því þeir
tryggðu sér bronsið með öruggum
og sannfærandi sigri á HT16 Ham-
borg.
Stelpunum í íslandi 1 tókst hins
vegar ekki að vinna til verðlauna á
mótinu því þær biðu 17:18 ósigur
fyrir Lillered í leik um 3. sætið og
þrátt fyrir að íslenska liðið hafí
fengið nokkur mjög góð tækifæri
til þess að jafna metin á lokamínút-
um leiksins höfðu þær ekki erindi
sem erfiði og náðu þess vegna ekki
að krækja sér í bronsið.
Það varð því ljóst að einungis
annað af íslensku kvennalandslið-
unum tveimur myndi standa á verð-
launapalli að úrslitaleiknum loknum,
en viðureign íslands 2 og Greve um
gullið hafði allt til brunns að bera
sem góður úrslitaleikur á að hafa
og var hann hnífjafn og æsispenn-
andi allt frá upphafi til enda.
Jafnt var á flestum tölum, m.a.
13:13 í leikhléi en þegar einungis
rúm ein mínúta lifði af venjulegum
leiktíma skutust dönsku stúlkurnar
skyndilega tvö mörk fram úr og því
allt útlit fyrir að íslenska liðið myndi
þurfa að gera sér annað sætið að
LIÐIÐ Island 2, sem sigraði. Efri röð f.v., Helga Magnúsdóttir fararstjóri, Svava Ýr Baldvins-
dóttir þjálfari, Heiða Valgeirsdóttir, Elísabet Árnadóttir, Arna Pálsdótttir, Sigríður B. Jónsdótt-
ir, Eva Hlöðversdóttir og Reynir Stefánsson þjálfari. Neðri röð f.v., Sólveig Sigurðardóttir,
Katrín Gunnarsdóttir, Guðbjörg Guðmannsdóttir, Halldóra Ingvarsdóttlr fyrirliði, Sólveig
Smáradóttir, Ásdís Sigurðardóttir og Þórhildur Knútsdóttir.
HER má sjá piltalandslið 1, sem sigraði á Amager-mótinu. Efri röð f.v., Heimir Ríkarðsson
þjálfari, Valdimar Þórsson, Níels Reynisson, Ingimundur Ingimundarson, Haukur Sigurvins-
son, Gísli Kristjánsson. Neðri röð f.v., Hilmar Stefánsson, Bjarki Sigurðsson, Trausti Sigurðs-
son, Jónatan Magnússon fyrirliði, Bjarni Fritsson og Hreiðar Guðmundsson.
PILTALANDSLIÐ 2; efri röð
f.v., Guðmundur Arni Sig-
fússon aðstoðarþjálfari,
ísleifur Sigurðsson, Alfreð
Finnsson, Kjartan F. Jóns-
son, Pálmi Hlöðversson,
Heiðar Pétursson og Heimir
Ríkarðsson þjálfari. Neðri
röð f.v., Sverrir Pálmason,
Ragnar Þ. Helgason, Stefán
Þ. Hannesson, Hannes Jón
Jónsson fyrirliði, Hermann
Grétarsson, Páll Kristjáns-
son og Bergþór Andrésson.
erfiður. Bording tókst hins vegar
ekki að færa sér liðsmuninn í nyt
og næstu tvær mínúturnar skiptust
liðin á að sækja án þess þó að ná
að taka forystuna í leiknum. Þegar
tæp ein mínúta var svo til loka fram-
lengingarinnar fengu íslendingaf'
knöttinn eftir að heldur máttlítil
sókn danska liðsins rann út í
sandinn og stóðu þeir íslensku nú
skyndilega með pálmann í höndun-
um eftir að hafa lengst af eytt miklu
púðri í að reyna að vinna upp for-
skot Dananna.
íslendingar léku af mikilli skyn-
semi og nánast var hægt að þreifa
á rafmagnaðri spennunni í höliinni
en þegar einungis örfáar sekúndur
lifðu af framlengingunni fékk ís-
lenska liðið dæmt aukakast. StillÞ-.
var upp fyrir stórskyttuna Ingimund
Ingimundarson, sem stökk hátt í
loft upp rétt utan vítateigs danska
liðsins, en aftur var brotið á Ingi-
mundi og því réttilega dæmt annað
aukakast. Islendingarnir voru fljótir
að átta sig, tóku aukakastið strax
og eins og svo oft áður í þessum
leik barst knötturinn tii Ingimundar
Ingimundarsonar sem kórónaði frá-
bæra frammistöðu sína í leiknum
með því að þruma knettinum í mark-
hornið og tryggja íslendingum sig-
urinn á mótinu.
Ohætt er að fullyrða að íslensku
liðin hafi bæði verið vel að sigrunum
komin og til að auka enn frekar á
stórkostlegt gengi íslendinganna á-.
mótinu voru þau Valdimar Þórisson
úr Val og Hafdís Hinriksdóttir úr
FH kosin bestu leikmenn úrslita-
leikjanna.
Oll íslensku iiðin voru íslenskum
handknattleik til mikils sóma á
þessu móti og má ljóst vera að ef
þetta unga og efnilega handknatt-
leiksfólk heldur áfram á sömu braut
og það er á í dag munu íslendingar
ekki þurfa að kviða því að gæðum
handknattleiksins á íslandi muni
fara hrakandi í framtíðinni.
góðu. Þær íslensku voru þó á öðru
og af mikilli þrautseigju og elju
náðu þær að jafna metin í 20:20 á
síðustu sekúndum leiksins. Grípa
þurfti því til framlengingar þar sem
leikið yrði í 1x3 mínútur og það
voru íslensku stelpurnar, sem skor-
uðu eina mark framlengingarinnar
og tryggðu sér þar með sigurinn á
mótinu.
Að verðlaunaafhendingu stúikn-
anna lokinni var röðin síðan næst
komin að úrslitaleiknum í karla-
flokki og það voru því einbeittir og
ákveðnir íslenskir strákar, sem
næstir gengu inn á ieikvöllinn, stað-
ráðnir í að fylgja glæsilegum sigri
kvennalandsliðsins eftir og krækja
sér í gullverðlaunin á mótinu.
Það voru hins vegar dönsku
strákarnir í Bording sem fóru mun
betur af stað og virtust þeir hrein-
lega ætla að valta yfir íslenska liðið
strax á upphafsmínútum leiksins.
Fljótlega hafði Bording náð fimm
til sex marka forystu og ekki bætti
svo úr skák að Bjarki Sigurðsson
fékk að líta rauða spjaldið seint í
fyrri hálfleik þegar hann fékk sína
þriðju tveggja mínútna brottvísun.
Þegar flautað vartil leikhlés hafði
danska liðið síðan sex marka for-
ystu, 18:12, og útlitið því heldur
dökkt þegar íslensku strákarnir
gengu til búningsherbergja sinna í
hálfleik en Heimir Ríkarðsson þjálf-
ari notaði leikhléið vel til þess að
stappa stálinu í sína menn og í síð-
ari hálfleik var allt annað að sjá til
íslenska liðsins. Á ótrúlegan hátt
tókst strákunum að jafna metin í
29:29 áður en venjulegum leiktíma
lauk og þurfti því í annað sinn þenn-
an sama dag að grípa til framieng-
ingar til að knýja fram endanleg
úrslit í baráttunni um gullið.
Islendingar hófu framlenginguna
tveimur leikmönnum færri því undir
lok síðari hálfleiks í venjulegum leik-
tíma hafði Trausti Sigurðsson mark-
vörður fengið að líta rauða spjaldið
og það var því ljóst að næstu mínút-
una myndi róðurinn eiga eftir að
verða íslensku strákunum heldur
STÚLKNALANDSLIÐ 1; efri röð f.v., Helga Magnúsdóttir far-
arstjóri, Svava Ýr Baldvinsdóttir þjálfari, Magnea Ingólfs-
dóttir, Edda Kristinsdóttir, Bjarney Ólafsdóttir, Ebba Brynj-
arsdóttir og Reynir Stefánsson þjálfari. Neðri röð f.v., Harpa
Ingólfsdóttlr, Hafdís Tryggvadóttir, Hafrún Kristjánsdóttir,
Þóra Hlíf Jónsdóttir, Sigurlaug Rúnarsdóttir fyrirllði, Arna
Grímsdóttir og Hafdís Kristinsdóttir.