Morgunblaðið - 03.10.1996, Side 1
1996
FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER
BLAD
HANDKNATTLEIKUR
GUNNAR Oddsson og Sigurð-
ur Björgvinsson hafa verið
ráðnir þjáifarar 1. deildarliðs
Kef lavíkur í knattspyrnu
næstu tvö árin. Báðir léku um
árabil með liðinu, Gunnar var
hins vegar með Leiftri f Óiafs-
firði í sumar og ífyrra en Sig-
urður hafði lagt skóna á hill-
una.
Samningur Keflvíkinga við þá
Gunnar og Sigurð er til
tveggja ára, með endurskoðunar-
ákvæði eftir fyrra árið eins og
venja er. „Við þjálfum liðið sam-
an, erum jafn valdamiklir og ég
ætla jafnframt að spila af fullum
krafti,“ sagði Gunnar við
Morgunblaðið í gær. Hann hefur
leikið með Leiftri í tvö ár, „en
ég er kominn með fjögurra manna
fjölskyldu og það er erfitt að búa
í Keflavík og starfa þar og vera
fyrir norðan að spila í fjóra mán-
uði á ári. Mér bauðst ný vinna í
Keflavík nú í haust og þá var
aldrei spurning hvað ég myndi
gera. Það var hins vegar mjög
gaman í Firðinum," sagði Gunnar
og átti við dvölina í Olafsfirði.
Að sögn Jóhannesar Ellerts-
sonar, formanns Knattspyrnufé-
lagsins Keflavíkur, verða allir
leikmenn Keflavíkurliðsins áfram
hjá félaginu, en sumir hinna ungu
hafa verið orðaðir við önnur félög
að undanförnu. „Það er að
minnsta kosti enginn úr Keflavík-
urliðinu á leið í íslenskt félag,“
sagði Jóhannes, en svo gæti farið
að Ólafur Gottskálksson færi ut-
an. Það mál er þó á byijunarstigi
og alveg óljóst hvort af því verður.
„Keflavík á mjög efnilegt lið,
margir ungu strákanna fengu
tækifæri í sumar og sýndu að
þeir eru traustsins verðir. Svo er
bara að ná að byggja ofan á það
sem verið var að gera í sumar,“
sagði Gunnar.
„Þeir eru tveir skipstjórar á
skútunni - taka sameiginlega við
liðinu. Kjartan Másson fyrrver-
KJARTAN Másson, fráfarandi þjálfari Keflvíkinga, Sigurður
Björgvinsson þjálfari, Jóhannes Ellertsson og Gunnar Odds-
son þjálfari þegar samningurinn var kunngjörður í gærdag.
andi þjálfari er hættur í þjálfun;
telur þetta vera góðan endi á sín-
um ferli, en hann hefur unnið
með stjórninni í því að koma
þessu í kring. Hugmyndin að því
að ráða Gunnar var frá honum
komin og síðan að fá Sigurð líka,“
sagði Jóhannes Ellertsson for-
maður Knattspyrnufélagsins
Keflavíkur við Morgunblaðið í
gær.
Kjartan verður framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildarinnar,
sér um vallarmál og ýmis önnur
verkefni auk þess að vera þjálfur-
um og leikmannahópi innan hand-
ar, að sögn Jóhanns.
Sargic áfram
Velimir Sargic frá Júgóslavíu
hefur verið endurráðinn yfirþjálf-
ari yngri flokka Keflavíkur.
„Hann hefur gegnt þessu starfi
í sjö ár og við endurréðum hann
nú til eins árs í viðbót. Við erum
mjög ánægðir með glæsilegt starf
hans síðustu árin,“ sagði Jóhann-
es Ellertsson í gær.
KNATTSPYRNA: HEIMSOKN TIL SKALLAGRÍMSMANNA í BORGARNESI / D4
Einar Þór Daníelsson, landsliðsmaður úr KR,
hefur fengið tilboð frá 2. deildarliðinu Rot
Weiss Essen í Þýskalandi. Hann heldur utan
til Litháen í dag með iandsliðinu en kemur
aftur heim um helgina. Fyótlega eftir það
ætti að skýrast hvort Einar leikur í Þýskalandi
og hvort það verður þá sem lánsmaður í vetur
eða hvort hann gerir lengri samning.
á Akureyri
ÍSLANDSMEISTARAR Akumesinga í knatt-
spyrnu hafa augastað á bæði Araari Grétars-
syni, landsliðsmanni úr Breiðabliki og Fylkis-
manninum Þórhalli Dan Jóhannssyni fyrir
næsta keppnistímabil.
Félög þeirra Arnars og Þórhalls Dans féllu
12. deild í lokaumferð 1. deildarinnar um síð-
ustu helgi og Guðjón Þórðarson, þjálfari í A,
hefur rætt við báða leikmennina skv. heimild-
um Morgunblaðsins. Gagnkvæmur vilji er fyrir
því að þeir færi sig um set og klæðist búningi
Akurnesinga næsta sumar, skv. sömu heimild-
um. Viðræður eru reyndar á algjöru bjmjunar-
stigi og aðeins það Jjóst að viljinn er fyrir
hendi. Ekkert hefur t.d. enn verið rætt um
peningahliðina.
Einar Þór
til Þýskalands?
Auðvelt gegn
Grikkjum
ÍSLENDINGAR sigruðu Grikki mjög vel auðveld-
lega í undanriðli heimsmeistarakeppninnar í hand-
knattleik í KA-heimilinu á Akureyri í gærkvöldi.
Lokatölur urðu 32:21 eftir að staðan hafði verið
16:6 í leikhléi. Gústaf Bjarnason skoraði fimm
mörk í leiknum, öll í fyrri hálfleik, er hann fór á
kostum en hann kom ekki við sögu í seinni hálf-
leik. Hann gerir hér eitt marka sinna.
Morgunblaðið/Kristján
■ Sigur íslands / D8
KNATTSPYRNA
Gunnar og Sigurð-
ur þjálfa í Keflavík
ÍA ræðir við
Amar og
Þórhall Dan