Morgunblaðið - 03.10.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 D 7
BÖRN OG UNGLINGAR
Framarar sóttu
HANDKNATTLEIKSDEILD Fram
sendi tvö lið úr 3. flokki karla og
kvenna til Danmerkur til þátttöku
á „Litlu Ólympíuleikana 1996“ eins
og mótið var kallað í dönsku fjöl-
miðlunum, en það fór fram í tilefni
af 100 ára afmæli danska íþrótta-
sambandsins dagana 5.-11. ágúst.
Mikið var greint frá þessu móti
opinberlega og var m.a. sýnt frá
opnunarhátíðinni og einstökum
íþróttaviðburðum í sjónvarpi. Keppt
var í 36 íþróttagreinum á þessu
móti og voru um fjögur þúsund
þátttakendur komnir saman.
Piltarnir komust taplaust I gegn-
um riðlakeppnina og helstu viður-
eignir þar voru gegn Cochs frá
Finnlandi, en Framararnir sigruðu
í þeim leik, 17:14. Þá sigruðu þeir
einnig danska liðið Avedöre, 21:15.
Þeir léku svo í undanúrslitum gegn
Tævan og sigruðu Framarar,
17:15, í ævintýralegum leik, en
jafnt var í leikhléi, 9:9. Þess má
geta að leikur Fram og Tævan var
sýndur tvívegis í sjónvarpi meðan
á mótinu stóð og var þá margsýnd-
ur leikkafli er Fram náði að halda
jöfnu þremur færri í fyrri hálfleik.
I úrslitum léku Framarar gegn
Kolding frá Danmörku og var jafnt
á öllum tölum þar til í lokin, en
þá gerði Kolding þijú síðustu mörk-
in og sigraði, 19:16, og drengirnir
úr Safamýri þurftu því að sætta
sig við annað sætið. Veittir voru
veglegir verðlaunapeningar, en þeir
eru lítillega breytt eftirlíking af
Ólympíupeningunum.
Stúlknalið Fram í 3. flokki hófu
keppni gegn norsku meisturunum
og áttu afleitan leik - töpuðu stórt,
en þess má geta að norska liðið
sigraði mjög örugglega í öllum við-
ureignum sínum og m.a. Grua frá
Noregi með níu marka mun í úr-
slitaleik. Framstúlkur háðu síðan
harða baráttu um annað sætið í
riðlinum, en urðu að gera sér 3.
sætið að góðu vegna þess að
markatala þeirra var lakari en
keppinautanna. Þær tryggðu þó
rétt ti! að leika um 5. sætið með
því að leggja Aalborg KFUM að
velli, 19:17. Stúlkurnar töpuðu aft-
ur á móti í leiknum um 5. sætið
fyrir Værlöse, 17:18.
Silfurlidið
SILFURLIÐ Framara. Efri röð
f.v., Einar Björnsson farar-
stjóri, Sigurður Þorvalds-
son liðsstjóri, Guðjón
Drengsson, Pálmi Jónsson,
Vilhelm Sigurðsson, Heigi
Sveinsson, Jakob Sigurðar-
son og Heimir Ríkarðsson
þjálfari. Neðri röð f.v., Vign-
ir R. Vignisson, Davíð Þor-
valdsson, Magnús G. Er-
lendsson, Birgir Guðmunds-
son og Einar Jónsson.
Bikarinn
á Hlíðar-
enda
VALSSTÚLKUR sigruðu
fyrir skömmu í bikarkeppni
2. flokks kvenna á Suð-
vesturlandi. Valsararnir
sigruðu Skagastúlkur í úr-
slitaleik, 4:0, sem fór fram á
Valbjarnarvelli. Á myndinni
til hliðar má sjá bikarmeist-
ara Vals. Efri röð f.v., Ágúst
Grétarsson sjúkraþjálfari,
Kathryn E. Aikens, Arndís
Stefánsdóttir, Marin Sarens,
Hildur Guðjónsdóttir, Katrín
Þórarinsdóttir, Ásdís Péturs-
dóttir, Eva Halldórsdóttir,
Gary Wake þjálfari og Helgi
Þórðarson, sem einnig er
þjáifari.
KVENNALIÐ 3. flokks Fram, sem tók þátt á „Litlu Ólympíu-
ieikunum". Efri röð f.v., Sigríður Sigurjónsdóttir, Hanna K.
Bjarnadóttir, Lára K. Lárusdóttir, Bjarney Ólafsdóttir, Arn-
þrúður Felixdóttir, María Kjartansdóttir og Aníta Ólafsdótt-
ir. Neðri röð f.v., Ásta B. Malmquist, Katrín Gunnarsdóttir,
Gerður Guðmundsdóttir, Auður Guðmundsdóttir og Ebba
Þorgeirsdóttir. Fremst á myndinni er þjálfari stúlknanna,
Reynir Stefánsson.
Eric Cantona
er bestur!“
TIMABILI ut-
anhússknatt-
spyrnunnar
hér á landi er
nú að ljúka, en
þess sjást eng-
in merki hjá
yngstu knatt-
spyrnuiðk-
endunum. Á
mörgum knatt-
spyrnuvöllum
er linnulaust
fjör og þar
eyða sumir
ungir og upp-
rennandi fót-
boltamenn
mestum hluta
dagsins ásamt
félögum sínum
og leðurbolta. I
liðinni viku hitti Morgunblaðið
tvo unga og áhugasama knatt-
spyrnumenn að máli - þá Atla
Stein Stefánsson og Harald
Anton Sófusson, en þeir leika
ATLI Steinn og Haraldur.
knattspyrnu
með 7. flokki
HK í Kópavogi.
Það var glatt á
hjalla hjá þeim
enda eru þeir
miklir fjörkálf-
ar og leika
knattspyrnu af
hjartans lyst.
Þeir voru í
marki til skipt-
is og létu bylm-
ingsskotin
dynja hvor á
öðrum. Að
þeirra mati er
Frakkinn Eric
Cantona hjá
Manchester
United besti
knattspyrnu-
maður heims, en þeir eru einnig
hrifnir af Liverpool-liðinu. Af
tilþrifum þeirra að dæma fylgj-
ast þeir vel með knattspyrnu-
leikjum í sjónvarpi.
Valsstúlkur haustmeistarar
HAUSTMÓT Knattspyrnuráðs Reykjavíkur fyrir 5. fiokk kvenna
fór fram á KR-vellinum 14. og 22. september síðastliðinn. Vals-
stúlkur sigruðu í keppni A-liða, en þær skoruðu 17 mörk og
fengu ekkert á sig. Keppni B-liðanna var jöfn, en henni lauk
með sigri Fjölnis úr Grafarvogi. Á myndinni hér til hliðar gefur
að iíta lið A-lið Valsstúlkna. Efri röð f.v., Arndís Stefánsdóttir
aðstoðarþjálfari, Margrét Jónsdóttir aðstoðarþjálfari, Edda
Guðrún Sverrisdóttir, Dóra María Lárusdóttir, íris Björg Jó-
hannsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari. Neðri röð f.v.,
Ragnhildur Erna Arnórsdóttir, Hjördís Harðardóttir, Valgerður
Stella Kristjánsdóttir, Dóra Stefánsdóttir og Ósk Stefánsdóttir.
Daniheim
*