Morgunblaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 C FOSTUDAGUR 18. OKT’OBER 1996 r DAGLEGT LIF Dúkkur úr postulíni eru í hverju horni heimilisins .. v ÞAÐ er kunnara en frá þurfi að segja að þegar litlar stúlkur vaxa úr grasi hætta þær flest- ar í dúkku- og öðrum þykjustuleikjum, en aðrir og alvarlegri leik- ir taka við. Gömlu dúkkurnar týnast eða þeim er í besta falli komið fyrir í geymslu þar sem þær mega dúsa og safna ryki þar til ný kynslóð kemur til skjalanna og vill fá að leika við þær á ný. Daglegt líf fékk hins vegar spurnir af tveggja barna móður á Álftanesinu, Selmu Björk Petersen, að nafni sem hefur alltaf haft mikinn áhuga á dúkkum og fór fyrir alvöru að safna þeim fyrir nokkrum árum. í fyrrasumar ákvað hún að fara til Svíþjóðar á námskeið í postulínsdúkkugerð og má með sanni segja að postul- ínsdúkkur ýmis konar prýði nú hvert horn heimilis hennar. Und- anfarna mánuði hefur hún haldið kvöldnámskeið í postulínsdúkku- NOKKRAR af þeim postulínsdúkkum sem prýða heimili Selmu. gerð, en auk þess hefur hún gert tilraun til að selja postulínsdúkkur í nokkrum búðum í Reykjavík. „Ég var mjög mikið fyrir dúkk- ur þegar ég var lítil og sat oft heilu kvöldin, ásamt einni vinkonu minni, og saumaði ýmis konar klæðnað á Barbie-dúkkurnar mín- ar,“ segir Selma í samtali við Daglegt líf og bætir því við að áhugi á dúkk- um hafi svo sannarlega ekki minnkað síðan þá. „Það var hins vegar ekki fyrr en í fyrra- sumar sem mér datt í hug að læra að búa til postulínsdúkkur,“ segir hún og heldur áfram. „Það bar þannig til að ég var stödd ásamt ijöl- skyldu minni í Tívolíinu í Kaupmannahöfn og var að bíða eftir krökkunum mínum þegar ég tók eftir , gamalli konu í litlum skúr sem var að búa til postulínsdúkkur. Eftir því sem ég beið lengur eftir krökk unum, því meira heillaðist ég af handverki gömlu konunnar. Ég velti því fyrir mér hve gaman það væri að geta búið til slíkar dúkkur og gaf mig því á tal við hana. í gegnum hana komst ég að því hvar ég gæti lært postulínsdúkku- gerð og nokkrum mánuðum síðar byijaði ég á námskeiði hjá X konu einni í Svíþjóð," segir hún. Erf itt að láta dúkkurnar frá sér Selma segist hafa farið á námskeiðið með það í huga að geta sjálf kennt postul- ínsdúkkugerð seinna meir, enda kostnaðurinn við það að koma sér upp grunnaðstöðu all dýr. „Þegar ég byrjaði varð ég til dæmis að kaupa mér brennsluofn, andlitsmót og ýmis verkfæri sem til þarf. Allan efnivið í dúkk- urnar fæ ég hjá sérstökum postul- ínsdúkkufyrir- tækjum í Þýska- landi, eins og til dæmis augun sem eru úr gleri, augn- hárin og hárkoll- urnar, sem eru ýmist úr alvöru eða gervihári,“ segir hún, en nefnir einnig að öll fötin saumi hún sjálf. Selma segir að markmiðið sé einnig að selja postulínsdúkk- | urnar,“ „Því það eru jú takmörk fyrir þvi hve W margar dúkkur komast fyrir á einu heimili," segir hún brosandi. „Ég verð þó að viðurkenna að mér finnst erfitt að láta þær frá mér, því þegar ég er búin að GLERAUGU postulíns- dúkkunnar og aðra fylgihluti pantar Selma hjá þýsku postu- línsdúkkufyrirtæki. Laufey er drusla og ekki í neinu uppáhaldi KARLARNIR á bílaverkstæðum borgarinnar, þar sem Laufey dvelst endrum og sinnum og æ oftar í seinni tíð, halda að hún hljóti að vera eig- anda sínum einkar kær. Eigandinn, Ragnheiður Kristj- ánsdóttir, neitar því þó eindregið og segist ekki halda sérstaklega mikið upp á Laufeyju, líti bara á hana sem hveija aðra druslu áþekka þeim sem hún hefur átt frá því hún eignaðist sinn fyrsta bfl. Stundum ósýnileg Ragnheiður hefur farið nosturs- legum höndum um Laufeyju og Laufey er engri lík. Á hráslagaleg- um haustdögum er hún næstum ósýnileg. Umlukin laufblöðum eins og hinir bílamir er hún svo samlit umhverfinu að Ragnheiður segist stundum ekki 'koma auga á hana strax. Munurinn á Laufeyju, sem er Escord árgerð 1984, og öðrum bílum er samt sá að flest laufblöðin á Laufeyju bærast hvorki í golu né vindi. Þótt Ragn- heiður ítreki að hún beri ekki nokkrar tilfinning- ar til Laufeyjar eyddi hún nýverið heilmiklum tíma í að dytta að henni á alla lund. Verkið fullkomnaði hún síðan með því að að mála á hana laufblöð. Laufey er því orðin hin skrautlegasta og vekur hvarvetna mikla athylgi. „Núna halda allir að ég sé óskap- lega áhugasöm um bíla og allt sem Skrautlega málaður bíll við hús eitt í Skipasundi vakti at- hygli Valgerðar Þ. Jónsdóttur, sem bankaði upp á og spjallaði við eigand- ann, Ragnheiði Kristjánsdóttur. Morgunblaðið/Kristinn RAGNHEIÐUR Kristjánsdóttir undir stýri á Laufeyju, þeim viðkemur. í rauninni er mér alveg sama hvernig bílum ég ek. Einu kröfurnar eru að þeir komi mér á milli staða. Nafngiftin, Lauf- ey, er komin frá strák á bílaverk- stæði og hefur einhvern veginn loð- að við. Sjálfri dytti mér aldrei í hug að gefa bíl svona fallegt nafn.“ Stóri draumur Ragnheiðar er fjarri því að eiga nýjustu árgerð af einhverri drossíunni. „Þá er mað- ur bara með stöðugar áhyggjur af að rekast einhvers staðar utan í eða rispa dýrgripinn. Ég hef átt Lauf- eyju í þijú ár og hef aldrei kippt mér upp við þótt hún dældist smá- vegis.“ Loks kom þó að því að ryðblett- irnir og dældimar særðu fegurðar- skyn Ragnheiðar svo mjög að hún ákvað að láta hendur standa fram úr ermum. Fæturnir þvældust hins vegar fyrir, því hún var fótbrotin og þurfti stundum að vera í kúnst- ugum stellingum við lagfæringarn- ar. Aðspurð um fótbrotið segir hún að einhvers misskilnings hafi gætt milli sín og hests. Pússað, úðað og skreytt Ragnheiður er grafískur hönnuð- ur og sem slíkur segist hún hafa fremur næmt auga fyrir útliti hluta af flestu tagi — líka bíla. „Ég tók enga áhættu því bíllinn gat vart orðið óhijálegri útlits. Fyrst pússaði ég og grunnaði ryðblettina, úðaði grárri og svartri málningu yfir hann allan og loks hófst ég handa við skreytinguna. í fyrstu ætlaði ég bara að mála laufblöð yfir blettina, en nennti ekki að eltast við þá þann- ig að ég hafði laufblöðin bara út um allt.“ Ragnheiður segir að verkinu hafi miðað ágætlega, enda fagmann- legri tækni beitt. Hún fékk sér stórt pappaspjald, teiknaði á það nokkrar mismunandi gerðir laufblaða, klippti þau út eins og dúkkulísur, setti útklippt spjaldið á bílinn og „dúppaði" bata í sex litum með svampi. „Afar einfalt," segir hún og bætir við að útlitið segi ekki alla söguna, því innst inni sé Lauf- ey sama druslan og tímaspursmál hvenær hún renni sitt skeið á enda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.