Morgunblaðið - 18.10.1996, Page 6
6 C FÖSTUDAGUR 18. OKT’ÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
SKÝR merki eru um það bæði
í Ameríku og Evrópu að æ fleiri
konur séu famar að fara á
Svinnumarkaðinn og að stúlkur
séu famar að standa sig betur
ft/■ í námi, en piltar. Að sama skapi
fer karlmönnum fækkandi á
^5 vinnumarkaði og standa sig
verr í námi. Þetta hefur leitt
til þess að við stöndum frammi
•SP fyrir ógnvænlegu félagslegu
mam vandamáli, sem em ómenntað-
*r> ókvæntir og atvinnulausir
karlmenn.
Karlmenn virðast eiga erfitt með
að fínna sig í breyttum heimi og
standa sig hvorki í skólanum, í vinn-
unni né í fjölskyldulífinu. Léieg
frammistaða karla birtist í aukinni
tíðni glæpa og atvinnuleysi.
Vandinn er þegar orðinn áberandi
á sumum sviðum. Síðustu þrjátíu
árin hafa sérmenntaðir karlar að vísu
ekki orðið eins illa fyrir barðinu á
þjóðfélagsbreytingunum og ófag-
iærðir kynbræður þeirra. Sumir
þeirra fyrrnefndu hafa meira að
segja tekið upp viðhorf hins „mjúka
manns“ án þess að gefa upp fyrir-
vinnuímyndina. Þessum mönnum
hefur tekist ágætlega að aðlagast
þjóðfélagsbreytingunum. En það
sama er ekki hægt að segja um ófag-
lærða karlmenn. Hefðbundin fjöl-
skyldugildi, þar sem eiginmaðurinn
vinnur úti og konan sér um heimilið
og börnin, hafa verið vinsælli meðal
láglaunafólks.
Verkamenn í Ameríku eru í aukn-
um mæli vanfærir eða áhugalausir
um að halda uppi fjölskyldum og í
Evrópu hefur atvinnuleysi komið
hvað verst niður á slíkum mönnum.
Og þar sem það að fæða og klæða
fjölskylduna hefur verið megin hlut-
verk karlmanna hingað til, hefur það
reynst þeim mjög erfitt, ef ekki óger-
legt, að finna sér annað hlutverk í
samfélaginu.
Vandamál í skólanum
Vandamálið með karlmennina
byijar snemma á ævinni eða í skól-
anum. Þrátt fyrir að karimenn séu
ívið fleiri en konur í háskólum í flest-
um löndum (að Ameríku undanskil-
inni), standa stúlkur sig mun betur
en strákarnir í barnaskóla og grunn-
skóla. í Englandi og Wales fá stúlk-
ur til dæmis hærri einkunnir í prófum
sem fara fram í sjö, níu og ellefu
ára bekk. Og í Ameríku eru drengir
mun líklegri en stúlkur til að gefa
ekki upp einkunnir sínar og tvisvar
sinnum líklegri til að hætta í almenn-
um framhaidsskóla.
Mikið er deilt um ástæðu þessa
misræmis á milli stúlkna og drengja.
Strákar virðast til að mynda vera
betri en stúlkur í sumum námsgrein-
um á ákveðnum aldri. (Til dæmis eru
strákar betri í stærðfræði við sextán
ára aldur.)
Venjulega hefur strákum gengið
verr en stúikum í námi fram að kyn-
þroskaaldri, en eftir það hafa þeir
náð upp þessum mun. Það sem nú
er hins vegar nýlunda er að strákar
virðast ekki lengur ná upp þessu
forskoti stúlknanna. Til dæmis ná
stúlkur betri námsárangri en strákar
á sautjánda ári í Englandi og Wales.
KONUR eru að verða betur menntaðar nú en áður fyrr.
Kpnur
sækja í sig veðrið
á kostnað karlmanna
Og það er í samræmi við það sem
gerist annars staðar í Evrópu.
Vandræði í vinnunni
Vegna þess að sífellt fleiri störf
byggja á sérþekkingu, hlýtur árangur
í skóla að endurspeglast í atvinnulíf-
inu. Þetta þýðir að stúlkur eru famar
að auka atvinnumöguleika sína, á
kostnað pilta. A sjöunda áratugnum
voru nánast allir vinnufærir karlmenn
með atvinnu, en aðeins um helmingur
kvenna. Nú er hins vegar svo að stórt
hlutfall karlmanna er að detta út af
vinnumarkaðinum á meðan konur
koma í auknum mæli inn á hann.
Niðurstöður rannsókna William
Julius Wilsons á atvinnuleysi í borg-
um Bandaríkjanna eru ógnvekjandi.
í fyrsta skipti í sögu vestrænna ríkja
eru fleiri karlar atvinnulausir og
konurnar eru fyrirvinnurnar á heimil-
Störfin eru að breytast
frá því sem áður var
HLUTFALL kvenna
á vinnumarkaði hér-
lendis hefur aukist á
síðari árum og konur
eru almennt betur
menntaðar en áður
fyrr. Guðný Harðar-
dóttir, framkvæmda-
stjóri starfsmiðlun-
arinnar STRÁ-
GALLUP, segir að
þrátt fyrir það mætti
vera meira um að
konur tækju að sér
meiri ábyrgð í sam-
ræmi við betri
menntun.
Guðný segir einnig
að störf nú til dags
séu mikið til að breytast. „Nú
eru betur menntaðir einstakling-
ar að vinna störf, sem minna
menntaðir einstaklingar voru að
vinna áður. Menn eru að ráða
til dæmis viðskipta- eða rekstr-
arfræðinga í störf sem áður voru
ráðnir stúdentar í eða aðilar með
minni menntun. Að sama skapi
hafa þessi störf jafnvel breyst
þannig að þeim fylgir nú meiri
ábyrgð en áður.“
Guðný segir að karlmenn eigi
Guðný Harðardóttir
erfiðara með að
komast að í ákveðn-
um störfum, eins og
til dæmis almennum
skrifstofustörfum.
„Þrátt fyrir að um
starfið sæki jafn
hæfir einstaklingar,
virðast kvenmenn
eiga miklu meiri
framtíð fyrir sér í
slíkum störfum,"
segir hún.
Guðný segir einn-
ig að hér á landi eins
og víðast annars
staðar hafi það gerst
að karlmenn hafi
dottið út af vinnu-
markaði. „En það er ekki endi-
lega vegna þess að þeir séu
óhæfir. Dæmi eru um það að
þeir hafi verið í góðum störfum
hjá fyrirtækjum sem af einhverj-
um ástæðum eru ekki lengur í
rekstri. Þessir sömu menn þykja
þá hafa of tnikla reynslu fyrir
önnur störf, þannig að stjórn-
endur í fyrirtækjum eru ekki
tilbúnir til að ráða sér eldri
og/eða reyndari menn sem und-
irmenn.“ ■
inu (að hluta til vegna þess að þær
vinna mun meira nú en nokkru sinni
áður og að hluta til vegna þess að
bæturnar eru stílaðar á þær).
Á heildina litið
gengur konum á
Vesturlöndum mun
betur að fá vinnu en
karlar og eru reynd-
ar til margar skýr-
ingar á því. Þær
hafa oft betri mennt-
un, þær eru lengur
í störfum sínum,
lægra launuð störf
eru að verða algeng-
ari og konur eru til-
búnari til að taka
þeim heldur en karl-
menn sem enn líta á
sig sem fyrirvinnu
fjölskyldunnar. Og
að iokum virðast
konur búa yfir meiri félagslegri
hæfni, sem gerir að verkum að þeim
gengur betur í ýmsum störfum í þjón-
ustugeiranum.
Vandræði heima fyrir
Mannfræðingurinn Margaret
Mead hélt því fram árið 1949 að í
öllum þekktum samfélögum manna
læri ungir karlmenn að til að teljast
til fullgildra þegna í samfélaginu
verði þeir að afla matar fyrir ein-
hveija konu og afkvæmi hennar.
Öll þekkt samfélög manna byggja
á þessari hegðun karla að útvega
fæði. Þegar karlmenn hætta að geta
útvegað fæði, virðast þeir eiga erfítt
með að taka að sér annað hlutverk,
eins og til dæmis að sjá um uppeldi
barnanna. Hætta er á því að þeir
taki upp öfgafulla karladýrkun, að
þeir sæki í klíkur og glæpahringi,
þar sem þeir verða að fylgja ströng-
um reglum, ólíkum því sem þeir hafa
vanist annars staðar. Afleiðingamar
eru fleiri glæpir og ofbeldi. í Banda-
ríkjunum fremja karlmenn 81% allra
glæpa og 87% af öllum ofbeldisglæp-
um. Karlar undir 24 ára aldri fremja
helming ofbeldisglæpa og þeir sem
eru undir átján ára fremja einn íjórða
af þeim. Þessar tölur eru sambæri-
legar því sem gerist í flestum löndum
Evrópu.
William Julius Wilson heldur því
fram að atvinnuleysi ungra karl-
manna, en ekki fátækt, sé megin
orsök fyrir slæmu ástandi í stórborg-
um Bandaríkjanna. „Mikil fátækt
meðal íbúa í hverfinu er síður líkleg
til að hafa slæm áhrif á samfélagið
ef íbúamir hafa atvinnu," segir hann.
Meðalatvinnuleysi í Evrópu er tvö-
falt meira en í Bandaríkjunum. Af
19 milljónum atvinnulausra í Evrópu
hefur helmingurinn verið án atvinnu
í meira en ár, samanborið við um tíu
prósent í Bandaríkjunum. Auk þess
eru ungmenni óvenju stór hluti at-
vinnulausra í Evrópu að Þýskalandi
undandskildu.
Ef dæma má af reynslunni mun
það taka karlmenn tvö ár eða fleiri
að fá atvinnu. Það þarf því ekki að
hafa gráðu í félagsfræði til að hafa
áhyggjur af því hvað svo margir
aðgerðariausir ungir karlar geti tekið
sér fyrir hendur.
Auk þessa hefur Wilson sýnt fram
á að hjá körlum er atvinna nátengd
fjölskyldu og föðurhlutverkinu. Karl-
ar sem ekki geta framfleytt fjöl-
skyldu eru ekki líklegir til að stofna
Morgunblaðið/Þorkell
KONUM gengur almennt betur að fá starf
en körlum.
fjölskyldu. Þeir eru ekki eins aðlað-
andi makar. Þetta mætti kannski
orða á eftirfarandi hátt: „óstöðug-
leikinn á vinnumarkaðnum veldur
óstöðugleika á hjónamarkaðnum,“
eins og John Ermisch, hjá Efnahags-
og samfélagsrannsóknastofnun
Bretlands, komst að orði.
Viljum við japönsku lausnina
Það er eitt velferðarríki í heimin-
um sem á ekki við þessi vandamál
að glíma, en það er Japan. Þar fæð-
ist aðeins eitt prósent barna utan
hjónabands, þar eru glæpir sjaldgæf-
ir, hjónabönd algeng og vinnumark-
aðurinn sniðinn að körlum. Þegar
samdráttur verður eru „skrifstofu-
blómin“ látin fara fyrst og reiknað
er með því að konur hætti að vinna
þegar þær gifta sig.
Þetta er hins vegar engin lausn
fyrir Vesturlöndin. Þó að karlar eigi
í vandræðum í vinnunni og heima,
er ekki þar með sagt að konurnar
séu tilbúnar til að fara aftur í fortíð-
ina og samþykkja að þeim sé úthlut-
að eldhúsið og barnauppeldið.
■
Þýtt og endursagt úr
The Economist.