Morgunblaðið - 22.10.1996, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.10.1996, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 C ÞRIÐJURDAGUR 22. OKTÓBER 1996 ÍÞRÓTTIR Stærstu sigrar íslenskra liða í Evrópukeppni í handknattleik Stjarnan gegn Birkenhead Englandi, 1986 Stjarnan gegn Yago írlandi, 1987 Stjarnan gegn Yago irlandi, 1987 gegn Liverpool Englandi, 1987 gegn Maccabi ísrael, 1983 Valur gegn Brentwood Englandi, 1979 Haukar gegn Martve Georgíu, 1996 ■ SIGFÚS Thorarenson, kylfing- ur úr Nesklúbbi gerði sér lítið fyrir í síðustu viku og fór holu í höggi. Þetta gerðist í golfferð með Úrvali- Útsýn í Portúgal, nánar til tekið á sjöundu braut á Villemora II vellin- um. Sigfús mun hafa notað trékylfu númer fimm í draumahöggið. ■ ERNIE EIs, kylfíngurinn snjalli frá Suður-Afriku náði frábærum árangri á föstudaginn í heimsmeist- arakeppninni í holukeppni. Hann lék þá við Steve Stricker og var sex holum undir eftir 18 holur, en tókst að sigra á síðustu holunni, þeirri 36. Enginn hefur leikið slíkt eftir síðan árið 1982 er Sandy Lyle gerði þetta og vann Nick Faldo. Það besta sem menn hafa gert við svona aðstæður í holukeppninni var árið 1965, í ann- að sinn sem mótið var haldið. Þá vann landi Els, Gary Player banda- ríska kylfínginn Tony Lema á 37. holunni eftir að hafa verið sjö undir eftir nítján holur. ■ DOMINIQUE Wilkins, gerði á dögunum samning við Spurs í NBA- deildinni, en getur þó ekki byijað að leika með liðinu alveg strax. Astæðan er að Panathinaikos í Grikklandi telur hann enn samningsbundinn fé- laginu og ekki fæstu úr ágreiningi þessum skorið fyrr en eftir rúma viku. FOLK ■ SPÆNSKI hjólreiðamaðurinn Jose Antonio Espinosa lést á sunnudaginn af meiðslum sem hann hlaut á laugardag þegar hann hjól- aði á starfsmann í hjólreiðakeppni á Spáni. Espinosa, sem var 26 ára gamall, var að æfa þegar slysið varð og var hann á um 50 kílómetra hraða er hann lenti á 56 ára gömlum starfs- manni mótsins. Viðkomandi er alvar- lega slasaður. ■ NÍGERÍSKI knattspymumað- urinn Daniel Amokachi slapp ómeiddur fyrir helgina þegar hann ók á tré. Bæði framdekkin sprungu með þeim afleiðingum að Amokac- hi, sem leikur með Besiktas í Tyrk- landi missti stjórn á bíl sínum. ■ THOMAS Svenson, landsliðs- markvörður Svía í handknattleik hefur ákveðið að taka sér þriggja ára hlé frá landsliðinu til þess að einbeita sér að atvinnumennskunni, en hann leikur á Spáni. Hann segist þó tilbúinn að koma aftur í liðið eft- ir þijú ár og vera með í undirbún- ingnum fyrir næstu Ólympíuleika. ■ ÞÝSKA íþróttablaðið Kicker vel- ur jafnan mann helgarinnar og nær undantekningarlaust er það einhver íþróttamaður. Nú brá hins vegar svo við að, Aust, dómari í leik Freiburg og St. Pauli var valinn maður helg- arinnar. Hann rak leikmann Freiburg útaf fyrir brot, en aðstoðardómari hans var búinn að veifa á rangstæðu og eftir að hafa rætt við hann kall- aði dómarinn leikmanninn inná aftur og dæmdi rangstæðu. ■ SVO gæti farið að í næstu viku yrðu þrír þjálfarar hjá þýska liðinu Liibeck. Félagið rak þjálfarann í síð- ustu viku og réði Heins Höher í hans stað. Hann fékk hjartaslag á fyrstu æfingu en segist verða mætt- ur til starfa á ný eftir rúma viku. Forráðamenn félagsins hafa hins vegar í hyggju að ráða nýjan þjálf- ara, telja Höher ekki nógu hraustan til að gegna starfinu. Fyrsti þjálfar- inn neitar að fara og hefur mætt á æfingar þó hann hafí verið rekinn og því gætu þjálfararnir orðið þrír áður en langt um líður. SKEMMTUN Iþróttirnar eru þess eðlis að ekki geta allir fagnað sigri en reynslan sýnir að íslenskt íþróttafólk úr mismunandi fé- lögum á mikla samleið og skemmtir sér saman í lok keppnistímabils burtséð frá árangri. Reynslan sýnir líka að best hefur tekist til þegar íþróttafólk- ið hefur haft veg og vanda af skemmtiatriðunum án utanaðkomandi skemmtikrafta. Fyrir helgi var hefðbundið lokahóf knattspyrnumanna og féll atriði aðkeyptra tvímenn- inga i grýttan jarðveg. Einkum var vegið að þjálfara IA og varð það til þess að Skagamenn yf- irgáfu salinn. Reyndar virðist landlægt að reyna stöðugt að finna eitthvað neikvætt við þá sem skara framúr og i því sam- bandi er vert að rifja upp um- mæli þjálfara ÍA í samtali við MorgunblaðW eftir að Skaga- menn urðu íslandsmeistarar í fimmta sinn á fimm árum. „Þessar kjaftasögur og þetta bull og blaður sem hefur tröllrið- ið nánast öllu var sett á svið til að reyna að bijóta okkur niður innanfrá, þvi ekki gátu þeir það á fótboltavellinum...Allur þessi kjaftagangur gerði eitt að lokum sem menn hafa ekki áttað sig á. Gerði það sem þurfti - þjapp- aði okkur enn meira saman. Við vorum ákveðnir í að láta þetta ekki verða til _þess að slá okkur út af laginu. Ófund er því miður of mikil í hugskotum margra. Ég held að þeir ættu að vinna vinnuna sína og einbeita sér að sínum verkum og gagnrýna aðra ekki of hart.“ Þetta með öfundina er kapít- uli útaf fyrir sig en þegar til lengdar lætur eru baktalið og niðið sem bjúgverpill - kemur upphafsmanni sjálfum í koll. Því er íþróttafólki og þeim sem þvi tengjast á einn eða annan hátt alfarsælast að halda sig frá slíkri iðju og einbeita sér frekar æ meira að því sem málið snýst um, umgjörð, æfíngum og keppni, með það í huga að mað- urinn er það sem hann gerir best. Rógburður á ekkert sameig- inlegt með skemmtiatriðum en því miður virðist hætta á því að fólk bjóði hættunni heim með því að fá menn utan úr bæ til að sjá um skemmtiatriði. Svonefndir skemmtikraftar geta ekki gert að því hvemig þeir eru eða hvem- ig þeir em innrættir. Það sem kann að þykja sniðugt í þröngra manna hópi þarf ekki að eiga upp á pallborðið hjá fjöldanum. Og þegar á reynir virðist íþrótta- fólk oft vera viðkvæmara en aðrir hópar samfélagsins. Félagsskapurinn er oft ef ekki oftast nefndur þegar spurt er hvers vegna viðkomandi er í íþróttum. Menn æfa saman að settu marki, keppa saman, fagna sætum sigmm saman og tapa saman. Og að tímabili loknu skemmta þeir sér saman. Uppskemhátíð er hjá hverju fé- lagi burtséð frá árangri og al- gengast er að félagsmenn sjái sjálfir um skemmtiatriði. Á því sviði leynist margur snillingur- inn og þegar allt kemur til alls em íþróttamennimir bestu skemmtikraftamir. Ekki síst knattspymumennirnir. Steinþór Guðbjartsson Knattspyrnumennimir eru sjálfir bestu skemmtikraftarnir Ætlar markakóngurinn RÍKHARÐUR DAÐASOIM úrKRað bæta metið að ári? Forgjöfin ekkiskráð RIKHARÐUR Daðason hefur upplifað óvanalegt ár; snemma sumars kom knattspyrnumaðurinn heim sem hagfræðingur eftir nám í Bandaríkjunum, hóf að spila með KR-ingum eftir að hafa ávallt leikið með Fram, varð markakóngur f 1. deild í fyrsta sinn og í kjölfarið var honum boðið að æfa með belg- íska félaginu RTSC Liege. Hann kom heim í gær eftir 10 daga frumraun hjá erlendu félagi og á næstunni ræðst hvort hann leikur erlendis í vetur eða undirbýr sig með KR-ingum fyrir næsta keppnistímabil á Islandi. Ríkharður er 24 ára, ólofaður og bamlaus. Auk fyrr- nefndra tímamóta var hann í byij- ■■■■■ unarliði íslenska Eftir landsliðsins í síð- Steinþór sumarsleikjunum Guðbjartsson eftjr nokkuj-fa ára hlé en hann sá fyrst gullskóinn, sem hann fékk fyrir að vera markakóngur, á heimili sínu í gær. „Ég kom inn í KR-liðið í 6. umferð og með það í huga átti ég ekki von á að verða marka- kóngur. En mér gekk vel að skora í fyrstu leikjunum og var fljótlega í hópi markahæstu manna. Þá áttaði ég mig á því að ég gæti orðið markakóngur en það var aldrei markmið í sjálfu sér.“ Hvaða þýðingu hefur þetta fyr- ir þig? „Markakóngar vekja óneitan- lega meiri athygli en aðrir. I mínu tilfelli á það ekki aðeins við um íjölmiðla heldur hefur athyglin náð út fyrir landstemana þó ég hafi leikið betur en í sumar. Ég hef heyrt af áhuga liða í Þýska- landi og á Norðurlöndum en ekk- ert þeirra hefur reyndar haft sam- band við mig sjálfan. Þessi stutta reynsla í Belgíu er ekki marktæk en hún er svipuð og ég átti von á. Hins vegar er rúm vika of stutt- ur tími til að komast inn í málin, að ég tali ekki um málið en ég tala ekki orð í frönsku þó ég hafí verið farinn að hlæja með strákunum eftir tvo eða þrjá daga.“ Hvað langar þig til að gera? „Mig langar til að hafa atvinnu af því að spila knattspyrnu og Morgunblaðið/Ámí Sæberg RÍKHARÐUR Daðason var markakóngur 1. deildar og gull- skórlnn beið hans viö heimkomuna frá Beigíu í gærkvöldi. eiga þannig möguleika á að bæta mig í íþróttinni. Hitt er annað mál hvort nú sé rétti tíminn. Annað hnéð hefur aðeins verið að angra mig og ég finn fyrir meiri þreytu en í júlí og ágúst. Ég kom ekki jafnvel undirbúinn til keppni og samhetjar mínir í KR og með þetta í huga getur verið best fyrir mig að byggja mig upp með þeim í vetur fyrir næsta tímabil, að vinna vel í skrokknum fyrir komandi átök. Hins vegar er ekki víst að ég fái annað tækifæri til atvinnu- mennsku og þess vegna þarf ég að athuga minn gang mjög vel. Ég á eftir ár af samningi mínum við KR og þarf að ráðfæra mig við þjálfara minn, lækna og fleiri um hvað best sé að gera í stöð- unni.“ Kemst ekkert annað að en fót- boltinn? „Ég reyni að grípa í golf þegar tækifæri gefst til sem er samt alltof sjaldan því golfið hentar ágætlega með fótboltanum. Ég er ekki með skráða forgjöf því ég er ekkert að spila enda tekur fótboltinn allan tímann. Þar hef ég áhuga á að gera betur og það að vera valinn í landsliðið, að spila fyrir land og þjóð, ýtir und- ir að gera enn betur á þeim vett- vangi. Þó mér hafi gengið vel að skora í sumar hefði ég átt að gera fleiri mörk og spila betur. Stefnan er að reyna að bæta mig og ekki sakar að gera fleiri mörk en aðalatriðið er að liðið verði einu sæti ofar.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.