Morgunblaðið - 22.10.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1996 C 3
Haraldur
gerði tvö
mörk fyrir
Aberdeen
SKAGAMAÐURINN Haraldur Ing-
ólfsson fór skyndilega til Skotlands
á sunnudag og lék með Aberdeen
á móti Glasgow Rangers í keppni
varaliða í gærkvöldi. íslands- og
bikarmeistarinn greip tækifærið,
gerði tvö mörk í 3:0 sigri og klöpp-
uðu um 800 áhorfendur honum lof
í lófa þegar hann var tekinn af
velli átta mínútum fyrir leikslok.
íþróttafréttamaður hjá Press and
Joumal í Aberdeen sagði við Morg-
unblaðið að Haraldur hefði leikið
nyög vel. „Enginn vissi hvaða leik-
maður þetta var vinstra megin á
miðjunni en aðeins var sagt að hann
væri til reynslu. Hins vegar vissu
allir hver hann var eftir fyrri hálf-
leikinn en þá hafði hann gert tvö
mörk, það fyrra eftir að hafa leikið
á markvörðinn og hið síðara með
góðu skoti utan vítateigs. Honum
var líka vel fagnað þegar hann
gekk af velli.“
Haraldur er samningsbundinn ÍA
til 31. desember nk. en hann hefur
áhuga á að leika erlendis og fór til
Skotlands með leyfi Skagamanna.
Landsmót
haldið íGraf-
arvogi 1998
NÆSTA Unglingalandsmót Ung-
mennafélags Islands verður haldið
á svæði Fjölnis í Grafarvogi árið
1998. Þetta var tilkynnt á sam-
bandsráðsfundi UMFÍ sem var
haldinn í Borgamesi um helgina.
Þetta verður fyrsta Landsmótið
á vegum UMFÍ í Reykjavík síðan
árið 1914.
Linda í KR
LINDA Stefánsdóttir, ein besta
körfuknattleikskona landsins, hefur
gengið frá félagaskiptum úr ÍR í
KR. Linda, sem hefur leikið með
ÍR allan sinn feril nema í hitteð-
fyrra er hún lék með Val, verður
ekki lögleg með KR-ingum fyrr en
eftir mánuð. Ljóst er að KR mun
verða með sterkt lið í vetur og ekki
skemmir fyrir félaginu að Linda
ákvað að leika með því.
Bjarki í liði
vikunnar
BJARKI Gunnlaugsson fékk 1,5 í
einkunn hjá þýska íþróttablaðinu
Kicker fyrir frammistöðu sína í leik
Mannheim á föstudaginn en þá
lagði félagið lið Hertu Berlin 2:1.
Bjarki var valinn í 2. deildarlið vik-
unnar hjá blaðinu og er þetta í
fyrsta sinn sem hann kemst í það
lið. Eyjólfur Sverrisson lék ekki með
Hertu Berlin.
Einar Þór er
kominn
heim aftur
EINAR Þór Daníelsson, knatt-
spyrnumaður úr KR, æfði í síðustu
viku hjá þýska félaginu Rot Weiss
Essen og kom heim um helgina. I
þýska íþróttablaðinu Kicker segir
að Einar Þór hafi ekki verið talinn
nægilega góður og því væri hann
farinn heim til íslands á ný.
IÞRÓTTIR
vera valinn"
„Átti ekkert
frekar von á að
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GUNNAR Oddsson, fyrirliði og ein
aðaldriffjöður Leifturs, var valinn
besti leikmaður 1. deiidar karla í
knattspyrnu af leikmönnum deild-
arinnar, en valið var kunngjört í
lokahófi knattspyrnumanna á
föstudgskvöldið. „Ég átti ekkert
frekar von á því að vera valinn.
Maður hafði heyrt þetta svona utan
að sér að ég gæti hugsanlega átt
einhvern möguleika, en hefðin hef-
ur verið sú að þeir sem hljóta þenn-
an sæmdartitil komi úr liðum sem
hafa orðið íslands- eða bikarmeist-
arar,“ sagði Gunnar Oddsson í sam-
tali við Morgunblaðið. „Mér leið
n\jög vel þegar nafn mitt var nefnt
og ég þakka bara fyrir að ég þurfti
ekki að halda ræðu - það hefði
sjálfsagt ekki komið mikið af viti
út úr manni þá,“ sagði Gunnar.
Ásthildur Helgadóttir úr hinu
sigursæla Iiði Breiðabliks var
valinn besta knattspyrnukona
Iandsins, en Ásthildur varð
markahæst í deildinni í sumar og
þjálfarar liðanna í deildinni völdu
liana besta á dögunum.
Bjarni Guðjónsson úr ÍA og
Hrefna Jóhannesdóttir úr KR
voru valin efnilegustu leikmenn
deildanna og Bjarni varð í öðru
sæti í keppninni um markakóngs-
titilinn og hlaut silfurskó Adidas
fyrir. Flest mörk í deildinni gerði
Ríkharður Daðason úr KR, 14
alls, og hlaut gullskóinn.
Bronsskóinn hlaut félagi hans í
KR, Guðmundur Benediktsson.
Kristinn Jakobsson var valinn
besti dómari tímabilsins og er
þetta í annað sinn sem leikmenn
telja Kristin besta dómara lands-
ins.
Á myndinni eru þau bestu,
Gunnar Oddsson og Ásthildur
Helgadóttir, og Hrefna Jóhann-
esdóttur úr KR, efnilegasta stúlk-
an í 1. deild er á minni myndinni.
Bjarni Guðjónsson var fjarver-
andi.
KNATTSPYRNA
Kristján í úrvalsdeildina
KRISTJÁN Jónsson og félagar hjá sonar, tryggði sér rétt til að leika heimildum Morgunblaðsins hefur
Elfsborg sigruðu í sínum riðli í 1. við það lið sem verður í 12. sæti Váseterás sýnt Einari áhuga og vill
deildinni sænsku um helgina og eru úrvaJsdeildarinnar um laust sæti þar fá hann fyrir næsta leiktímabil, en
þar með komnir í úrvalsdeildina. Elfs- næsta keppnistímabil. Hammarby þá leikur liðið í úrvalsdeildinni þar
borg gerði markalaust jafntefli við sigraði Sirius 3:0 en með því liði sem það sigraði öðrum riðlinum í 1.
botnlið Kalmar, en það dugði. leikur Einar Brekkan. Sirius féll við deildinni.
Hammarby, lið Péturs Marteins- þetta tap í 2. deild. Samkvæmt
KORFUBOLTI
Fyrsti sig-
ur Larissa
Larissa, lið Teits Örlygssonar í
grísku fyrstu deildinni í körfu-
knattleik, vann sinn fyrsta leik í
deildinni á laugardaginn. Teitur og
félagar brugðu sér þá til Aþenu
og mættu Peragos og sigruðu
67:64. Teitur var ekki í byijunarlið-
inu en lék í 32 mínútur og gerði
12 stig, átti tvær stoðsendingar og
stal knettinum einu sinni. Larissa
var 12 stigum yfír í leikhléi en
heimamenn náðu að minnka mun-
inn í síðari hálfleik og er það í
rauninni ekkert nýtt því Teiti og
félögum hefur gengið mjög vel í
fyrri hluta þeirra leikja sem búnir
eru í deildinni, en misst niður damp-
inn eftir hlé.
Forráðamenn félagsins hafa
ákveðið að senda bandaríska leik-
manninn Ray Jackson heim og fá
annan bandarískan leikmann í
staðinn. Þetta er fyrst og fremst
gert til að ná í leikstjómanda, en
tvítugur grískur leikmaður hefur
séð um að stjóma leik liðsins í síð-
ustu leikjum. Á morgun leikur Lar-
issa við Appolon Patras á útivelli
í bikarkeppninni en Appolon vann
Larissa um fyrri helgi með einu
stigi og tapaði síðan fyrir Panathin-
aikos á laugardaginn með þremur
stigum.
Guðmund-
urogfé-
lagar á
toppinn
Guðmundur Bragason og félag-
ar í BCJ Hamburg lögðu
Lichterfelde 78:70 á útivelli á
laugardaginn og á sama tíma vann
Bochum lið Farbo Paderborn
84:72. Þessi úrslit þýða að Ham-
burg er eitt á toppi norðurhluta
2. deildar, hefur 10 stig en næstu
lið era tveimur stigum á eftir.
„Leikurinn var jafn framan af en
við vorum sterkari í síðari hálfleik
og náðum að hrista þá af okkur
þannig að sigurinn var öruggur,"
sagði Guðmundur í samtali við
Morgunblaðið í gær. Guðmundur
sagði að sér hefði gengið vel, gert
tíu stig, tekið 15 fráköst og „stol-
ið“ boltanum fjórum sinnum. í
kvöld mæta Guðmundur og félagar
liði 1846 Giessen í bikarkeppninin
og sagði Guðmundur að hann
hlakkaði mikið til því Giessen
væri í 1. deildinni og það yrði
gaman að fá að reyna sig gegn
því liði.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Fyrsta stig IBA í rúnrrt ár
HANDKNATTLEIKSLIÐ íþróttabandalags Akureyrar fékk fyrsta
stigið, eftir rúmlega árs baráttu í 1. deild kvenna, þegar það gerði
20:20 jafntefli við Fram íSafamýrinni á laugardaginn. í baráttuleik
í Víkinni skildu Vikingur og FH einnig jöfn, 20:20, en á Seltjarnar-
nesi sigruðu KR-stúlkur Fylki 17:16 með marki úr vftakasti á síð-
ustu sekúndu.
Hart var barist í Víkinni og kom
það niður á gæðum leiksins þar
sem mikið var um mistök. Vamir
beggja liða voru góð-
Stefán ar og markverðir í
Stefánsson miklum ham svo að
skrifar sóknarleikurinn varð
hálfgert hnoð. í síðari hálfleik kom-
ust hafnfirsku stúlkumar yfir þegar
einum leikmanni Víkinga var vikið
af leikvelli og bættu við marki rétt á
eftir þrátt fyrir að þær væru einum
færri sjálfar svo að það leit út fyrir
sigur þeirra. En með mikilli baráttu
náðu Víkingar að klóra í bakkann og
jafna.
Hjá Víkingum var Helga Torfadótt-
ir markvörður í miklum ham, varði
23 skot og færði öðrum fremur liðinu
stigið. Sigríður Snorradóttir átti einn-
ig góða spretti þegar til þurfti að
taka og spilaði prýðilega vöm. Best
FH-inga var Þórdís Brynjólfsdóttir en
markvörðurinn, Dalia Dabulskiene,
var einnig góð. „Ég get lítið um þenn-
an leik sagt, hann var mjög slakur,“
sagði Viðar Símonarson þjálfari FH
eftir leikinn. „Stefna okkar er að
komast í átta liða úrslit, ég geri ekki
meiri kröfur en það en liðið er ungt.“
ÍBA missti niður góða forystu
Leikur Fram og ÍBA var baráttu-
leikur og jafn. Fram hafði 13:11 for-
ystu í leikhléinu en með mikilli bar-
áttu tókst Akureyringum að jafna
og ná fjögurra marka forskoti þegar
8 mínútur voru eftir. En þá kom til
kasta leikreynslunnar sem Fram-
stúlkur hafa í meira mæli og náðu
að jafna. Stigið er ÍBA kærkomið
því allt síðasta keppnistímabil fékk
liðið ekkert stig. Dóra Sif Sigtryggs-
dóttir fyrirliði ÍBA var samt ekki
alveg sátt. „Ég er auðvitað sátt við
fyrsta stig okkar en samt óánægð
með að fá ekki bæði. Við komum í
rútu og lékum erfiðan leik deginum
áður og í lokin í þessum leik kom
einnig að reynsluleysi okkar. En
þetta er allt að koma, við erum með
nýjan þjálfara sem hefur breytt
miklu, við höfum bætt úthald, hraða
og tækni þannig að sjálfstraustið er
að koma líka. Við sjáum nú að við
getum unnið leik því sjálfstraustið
hefur alltaf vantað."
Sigurmark á síöust sakúndu
Jafnt var á flestum tölum á Sel-
tjarnamesi þar sem KR og Fylkir
léku. Staðan var 9:9 í leikhléi. Það
var ekki fyrr þijár sekúndur voru til
leiksloka að Edda Kristinsdóttir skor-
aði sigurmarkið úr vítakasti. Vest-
urbæingar léku án Helgu Ormsdóttur
og munar um minna en hún verður
með í næsta leik.