Morgunblaðið - 24.10.1996, Side 2
2 C FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1996
MORGÚNBLAÐIÐ
■ FJórtán
KNATTSPYRNA
Týndi sonurinn
kominn heim
Alan Shearer fæddist í Newcastle 13. ágúst 1970.
Það hefur mikið vatn runnið til sjávar niður
Tyne-ána síðan þá. Shearer er nú dýrasti knattspyrnu-
maður heims, með 3,2 milljónir ísl. kr. í vikulaun, eða
meira en faðir hans, sem var málmverkamaður, hafði
í árslaun á sínum tíma. Ungur að árum var Shearer
leikinn með knöttinn og lék skólabræður sína oft grátt.
Þegar Alan var tólf ára urðu breytingar á lífi
hans, eða eftir að Jack Hixon, „njósnari" frá Sout-
hampton sá hann leika með skólaliði í Newcastle.
Hann sá strax að þar væri á ferð leikmaður framtíð-
arinnar og Hixon fékk drenginn til að fara til Sout-
hampton þegar hann var aðeins fimmtán ára. „Ég
og fjölskylda mín hugsuðum lengi um hvað væri mér
fyrir bestu. Ég var spenntur og sá að það væru
meiri möguleikar á að fá fljótlega að spreyta sig
með litlu liði eins og Southampton og ákvað að slá
til. Við Hixon áttum eftir að verða miklir vinir og
ég get með sanni sagt við hann:
„Þetta er allt þér að þakka, Jack.“
Þeir félagar ræddu ekki eingöngu
um knattspyrnu, heldur allt á milli
himins og jarðar. Jack Hixon sagði
að Alan væri ekki aðeins frábær leik-
maður, heldur fullkominn persónu-
leiki. „Alan er sá bésti sem ég hef
séð leika og þá er ég að miða hann
við leikmenn eins og Nat Lofthouse,
Hughie Gallacher, Tommy Taylor og
Gary Lineker.“
Með sprengikraft í skónum
Þegar Alan kom með skóna sína
á The Dell, kom það í hlut Dave
Marrington að sjá um þjálfun hans
hjá unglingaliðinu. „Alan kom hingað
með sprengikraft í skónum sínum.
Hann var frábær nemandi, sem tók
vel eftir og gerði allt sem hann gat
til að verða betri og sterkari. Ég
sagði honum að skjóta eins og Fer-
enc Puskas. í dag jafnast enginn í
Evrópu á við hann í stöðu miðherja,
henn hefur yfir að ráða miklum skot-
krafti, frábærri tækni og er skalla-
maður góður.“
Kraftur og dirfska
Markvörðurinn Tim Flowers þekkir
Alan vel, hefur leikið með honum hjá
Southampton, Blackburn og með
enska landsliðinu. „Alan hefur yfir
að ráða miklum krafti og dirfsku.
Meðfæddur styrkur og mótstöðu-
kraftur eru hans hættulegustu vopn,
þá er hann afar klókur og útsjónar-
samur. Góðir markaskorarar verða
að vera eins og markverðir, að þora
að taka áhættu, vera tilbúnir að búa
sig undir það óvænta, taka áhættu
hvenær sem er. Það er Alan tilbúinn
að gera.“
Alan lék sinn fyrsta leik fyrir Sout-
hampton aðeins 17 ára og var það
hlutverk hans þrjú keppnistímabil að
leggja upp mörk fyrir Matthew Le
Tissier og Wallace-bræðurna, en
keppnistímabilið 1991-1992 fór
hann að skora sjálfur, skoraði 19
mörk, þar af 13 deildarmörk. Hann
skoraði ekki nema 23 mörk í 118
deildarleikjum með Southampton.
(*1,1 st, Ja«ne-
27. oktober
1 Leicester - Newcastle
2 Arsenal - Leeds
3 Southampton - Manch. Utd.
4 Chelsea - Tottenham
5 Middlesbro - Wimbledon
6 Coventry - Sheffield Wed.
7 Sunderland - Aston ViIIa
8 West Ham - Blackburn
9 Birmingham - Norwich
10 Ipswich - Tranmere
11 Charlton - Oxford
12 Sheffield Utd. - Q.P.R.
13 Huddersfield - Port Vale
úrslit
Árangur á
heimavelli
frá 1984
Slagur spámannanna:
Ásgeir-Logi 5:5
Hversu margir réttir síðast:
Hve oft sigurvegari (vikur):
Hvað marga rétta i heild:
Meðalskor eftir 7 vikur:
Ásgeir Logi m Þín spá
2 2 2
1 X 1 X 2 1
1 X 2 X 2 1 X 2
1 X 2 1 X 2 1 X
X 2 1 2 1 X 2
X 2 1 1
2 X 1 X
1 1 1
2 2 1 X
1 1 X 1
1 1 1
1 X 1 1
1 1 X 1 X
7 7 7
3 2 5
56 53 59
8,0 7,6 8,4
ITALIA
26. - 27. október
1 Fiorentina - AC Milan
2 Inter - Parma
3 Napoli - Bologna
4 Perugia - Udinese
5 Piacenza - Verona
6 Reggiana - Sampdoria
7 Vicenza - Cagliari
8 Bari - Empoli
9 Chievo - Brescia
10 Cremonese - Lecce
11 Lucchese - Foggia
12 Palermo - Ravenna
13 Torino - Pescara
úrslit
Árangur á
heimavelli
frá 1988
Slagur spámannanna:
Ásgeir-Logi 3:4
Hversu margir réttir siðast:
Hve oft sigurvegari (vikur):
Hvað marga rétta i heild:
Meðalskor eftir 7 vikur:
8,8