Morgunblaðið - 25.10.1996, Síða 2
2 B FÖSTUDAGUR 25. OKT’ÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
ISLENSKA lopapeysan var vel kynnt á tískusýningunni.
Morgunblaðið/Halldór
KEPPENDUR í fötum eftir Sigríði Sunnevu.
Karlar keppa
um fyrirsætustörf
Fyrirsætukeppnin „Herra Model Look ’96“ var haldin fyrir viku á
vegum skóla John Casablancas á íslandi og skipuðu fulltrúar þriggja
erlendra umboðsskrifstofa dómnefndina. Arna Schram fylgdist
með keppninni, ræddi við keppendur og dómnefndarmeðlimi.
ANDRÚMSLOFTIÐ var þrungið
spennu, þáttagerðarmenn frá sjón-
varpsstöðinni BBC stilltu upptöku-
vélina og þrjátíu og tveir keppend-
ur komu sér fyrir undir sviðinu.
En einhverra hluta vegna varð töf
á því að sýningin hæfist. Jú, Kol-
brún Aðalsteinsdóttir, hjá skóla
John Casablancas á Islandi, kom
á sviðið og sagði að beðið væri
eftir dómnefndarmönnunum
þremur, þeim John Spaulding,
Jaques Donel og Nathalie Bemie.
Þau eru fulltrúar umboðsskrifstof-
anna Boss í Lundúnum, Success í
París og Next í New York og voru
hingað komin til að velja karlfyrir-
sætur úr fríðum hópi keppenda.
Hvert sem litið var í Tunglinu
þetta kvöld mátti sjá óþreyjufullar
glanspíur- og gæja. Stutt hvít pils,
þykkbotna skór, gylltir varalitir og
gerviaugnahár. Inn á milli gaf að
líta eldra fólk sem stakk svolítið í
stúf við umhverfíð. Við nánari at-
hugun kom í ljós að þar voru á
ferðinni foreldrar keppendanna og
svei mér þá ef ein amman hafði
ekki látið sig hafa það að mæta á
svæðið. „Jú, auðvitað erum við
spennt,“ sagði ein mamman og
ekki laust við að örlítils stolts gætti
í röddinni. Dómnefndin sá sér loks
fært að mæta á sinn stað og ekk-
ert því lengur til fyrirstöðu að sýn-
ingin hæfíst. „Þau eru víst þegar
búin að velja þijá pilta úr hópn-
um,“ heyrðist einhver segja, en
fyrr um daginn höfðu dómnefndar-
meðlimir rætt við piltana og skoðað
þá betur. Ekki gafst tími til að
ræða fyrrnefnda fullyrðingu nánar,
Kolla birtist á sviðinu og sýningin
var um það bil að hefjast.
Persónuleikinn
skiptir líka máli
Ljóskösturum var beint að svið-
inu og drungalegir tónar fylltu
salarkynnin. Keppendur stigu fram
íklæddir yfírhöfnum eftir íslenska
fatahönnuðinn Sigríði Sunnevu.
Kynning á lopapeysum, gallabux-
um og öðrum fatnaði fylgdi í kjöl-
farið. Sýningin leið áfram;
skemmtileg blanda af tískusýningu
og leikrænni tjáningu.
Eftir sýninguna báru dóm-
nefndarmenn saman stigin sín, en
létu í veðri vaka að endanleg
ákvörðun um það hveijir hlytu
samning yrði ekki tekin fyrr en
eftir nokkra daga. Aðspurð hvað
hefði áhrif á val þeirra sögðu þau
að fyrstu kynni skiptu miklu máli.
„Það að viðkomandi sé heillandi
við fyrstu sýn, hefur mikið að
segja. Einnig er mikilvægt að við-
komandi myndist vel, hafi góðan
persónuleika og hafí andlit sem
auðvelt er að breyta með förðun,
til dæmis frá töffara yfir í sakleys-
ingja,“ sögðu þau og voru þar með
rokin í viðtal hjá BBC.
Árleg keppni hér eftir
Að sögn Kolbrúnar Aðalsteins-
dóttur skólastjóra skóla John
Casablancas er ætlunin að keppni
sem þessi verði haldin árlega hér
eftir. „Tilgangurinn er aðallega
að fá hingað fulltrúa frá erlendum
umboðsskrifstofum sem gætu
þannig fundið íslenskar karlfyrir-
sætur. Þeir sem kepptu nú voru
valdir úr fjölmennum hópi karla
og má því segja að á einn eða
annan hátt séu þeir allir sigurveg-
arar sem sýndu hér í kvöld,“ segir
hún að lokum.
Leikfimi
í skólastofunni
„HIN síðari ár hafa sífellt fieiri
gert sér grein fyrir því hvað hreyf-
ing er nauðsynleg fyrir andlega
og líkamlega líðan mannsins. Að
okkar mati hefur skólanum ekki
tekist að mæta þessum breyttu
þjóðfélagsaðstæðum sem skyldi."
Þetta eru m.a. inngangsorð í
lokaverkefni Védísar Grönvold og
Kristínar Einarsdóttur frá KHÍ í
fyrra. Verkefnið heitir Nám og
hreyfing - Skólastofuleikfimi og
er annars vegar snælda með tón-
list og leiðbeiningum um æfíngar
fyrir skólabörn og hins vegar
mappa með nánari útskýringum
fyrir kennara í máli og myndum.
Vettlingar meðal
hjálpartækja
Þær stöllur áttu samleið í námi,
fyrst í íþróttakennaraskólanum
að Laugarvatni og síðar í KHÍ.
Eftir útskrift skildust leiðir, Védís
varð kennari í Setbergsskóla í
Hafnarfirði og Kristín í grunn-
skólanum í Fellabæ. Þær segja
að í fyrstu hafí þær hugsað sér
að kennarar og nemendur nýttu
frímínútumar til léttra líkamsæf-
inga við skemmtilega tónlist og
leiðbeiningar þeirra á snældunni.
„Þegar við hófum kennslu sjálf-
ar, komumst við þó að raun um
að kennarar vilja frekar nota frí-
mínúturnar til að slaka aðeins á
frá nemendum sínum og öfugt.“
Védís og Kristín miðuðu æfing-
arnar við rýmið í skólastofunni
og hjálpargögn, sem yfírleitt eru
ekki langt undan, t.d. geta nem-
endur notað samanbrotna vettl-
inga til þess að skora í mark,
gengið með námsbækur á höfðinu
og hoppað yfír reglustikur. „Áður
en við ákváðum að gefa verkefnið
út fengum við nokkra kennara til
að prófa það á nemendum sínum
auk þess sem við kynntum fyrir-
ætlanir okkar á námskeiðum fyrir
kennara. Við fengum alls staðar
jákvæðar undirtektir og hófumst
því handa án þess að vita í rauninni hversu mikil vinna
lægi að baki slíkri útgáfu. Við þurftum að fá teiknara,
vinna með hljómlistarmanní í hljóðveri og sitthvað fleira
sem okkur var framandi."
Ekkl nóg aö þjálfa flngurna
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Á EFRI myndinni eru Védís Grönvold
og nemendur hennar í morgunleikfimi.
Mappan er til leiðbeiningar fyrir kenn-
ara, en nemendur hlusta á snælduna.
Kennarasamband íslands styrkti Védísi og Kristínu til
að fullvinna verkið en þær fjármögnuðu útgáfuna sjálfar.
„Skólabörn hafa bæði gagn og gaman af fimm mínútna
líkamsþjálfun áður en þau kúra sig yfir námsbækurnar
og kennararnir einnig,“ segja þær og bæta við að leikir
barna nú til dags, tölvuleikir og þess háttar, örvi ekki
aðra vöðva líkamans en fingravöðvana.
Védís og Kristín segja að útskriftarverkefni þeirra sé
nú notað í mörgum grunnskólum og geti kennarar og
skólastjórnendur nálgast það í Bóksölu KHÍ. ■
vþj