Morgunblaðið - 25.10.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 B 7
DAGLEGT LÍF
HALLDÓR Áskell með snák.
BANEITRUÐ Kóbra. TARANTELLA könguló.
ingarinnar að nýta sér það.
Jörundur Guðmundsson sam-
starfsmaður Finnanna segir að ár
sé liðið frá því að undirbúningur
sýningarinnar hófst og hafi bæði
yfirdýralæknir í Finnlandi og á Is-
landi gengið úr skugga um að allt
væri með felldu og veitt leyfi.
Antti Niinisalo sýningarstjóri seg-
ir dýrin ekki veidd heldur keypt af
búgörðum og vera afkvæmi annarra
dýra sem eigi búrin sem heimili.
Auk lifandi dýra á sýningunni
er stórt safn frumskógarfiðrilda,
skordýra og flugna sem upprunnin
eru í Austurlöndum ijær.
■
GH
irtækið er lít-
ið, en meðal
viðskiptavina
eru heims-
þekktir leikarar
og fyrirsætur.
Fanny segir að það
SYNISHORN
af húðsnyrtivör
um frá Chicet.
m olíu þess.
SELJENDUR Chicet bera saman bækur
sínar um vöruna.
; -
„Chic-
et segist
hundleið
á að sjá viðskipta-
vini tælda til þess að kaupa
dýrar snyrtivörur í fallegum
umbúðum sem innihaldi fátt
gagnlegt fyrir húð og hár og
oft á tíðum sé hreinlega um
villandi upplýsingar að ræða.
Eina leiðin sé að lesa innihald-
slýsingu vörunnar, ekki freist-
andi upphrópanir í auglýsing-
um eða fram á umbúðunum.
Allt of margir láti slíkar inni-
haldslýsingar fram hjá sér
fara,“ segir Fanný.
Chichet Natural European
Skin Care Products var form-
lega sett á laggirnar 1981 og
áætlaðar heildartekjur fyrir-
tækisins á þessu ári eru fimm
hundruð þúsund dollarar eða
rúmar 33 milljónir króna. Fyr-
ANDLITSMASKI borinn á með óvenjulegum hætti. Að
sögn Fannýjar Jðnmundsdóttur, er maskinn harður og
því þarf að hita hann áður en hann er borinn á andlit,
annað hvort í vatnsbaði eða með því að setja glasið í
örbylgjuofn.
henti ekki að selja vöruna í gegnum
snyrtistofur. „Chicet getur ekki
keppt á þeim markaði vegna þess
að varan er dýr í framleiðslu. Þess
í stað er varan seld beint til viðskipta-
vina í gegnum póst og það hefur
gefist mjög vel. Viðskiptavinir geta
síðan fengið
ráðgjöf í gegn-
um síma. Þá er
varan lítið aug-
lýst í fjölmiðl-
um, hún er látin
kynna sig sjálf.“
Eftirspurn
Húðsnyrti-
vörur frá Chicet
fást í Hagkaupi
í Kringlunni og
í Arerobic Sport
í Skeifunni. Að
sögn Fannýjar
er um að ræða
fullkomna förð-
unar- og
hreinsunarlínu.
Þá segir Fanný
að stutt sé í að
hársnyrtivöru-
lína Chicet fáist
á íslandi.
„Þetta er ekki
stórt fyrirtæki
og það er rétt
að þau anni eft-
irspurn. Þess
vegna hefur
tekið töluvert
langan tíma að
fá vöruna hing-
að til lands, en
nú er þetta allt
að koma.“ ■
Með augum landans
V elmegun
og vísindi
María Elínborg Ingvadóttir býr í Moskvu þar
sem hún gegnir starfi viðskiptafulltrúa
Utflutningsráðs Islands.
A HAUSTIÐ er yndis-
' legur tími, haustsólin
. lágt á lofti og gulari,
jafnvel rauðari á lit-
>inn, eins og hún vilji
undirstrika að hún er
hluti af samspilandi
listaverki náttúrunn-
I j ar. Haustlaufin í allri
sinni litadýrð, sum
t T i þeirra þegar orðin
þreytt eftir sumarið
og láta sig falla til
Y § \ jarðar, þeirra tími er
ÍS l kominn, þau verða
hluti af gróðurkeðj-
Ounni og fæða fallegra
blóma og tijáa næsta
árs. Haustinu fylgir
svo undarleg kyrrð,
húsin fá á sig rólynd-
isblæ og það er næst-
um eins og þau vaggi
sér ljúflega í takt við
söng fuglanna sem
hoppa á milli fallinna
laufa og trítla léttfættir um
döggvotar grasflatir. Moskva er
falleg á haustin, mannlífíð tekur
á sig svip náttúrunnar, það hef-
ur kólnað í lofti, treflarnir komn-
ir á sinn stað, jafnvel æðandi
umferðin fer sér aðeins hægar.
Hrifnir af íslandi
Ég er á leiðinni heim til ís-
lands með nokkra áhugasama
félaga um umhverfísvæna orku-
framleiðslu okkar íslendinga.
Úr þessu fallega haustveðri í
rigninguna og rokið heima og
ég búin að segja þeim allt um
íslenska náttúrufegurð, tign
fjalla og tærleika loftsins. Eg
reyndi að undirbúa þá, veðrið
nokkuð breytilegt, öruggara að
hafa með sér góðar úlpur og
almennilega gönguskó og auð-
vitað húfu og trefíl. Kvíði minn
var ástæðulaus, veðrið lék við
okkur alla vikuna, svolítið kalt
til að undirstrika ferskleika
loftsins, en sól og aðeins smá-
andvari hér og þar. í þeirra aug-
um er ísland Paradís, Gullfoss,
Geysir, Þingvellir og Bláa lónið
ævintýri líkast og fallvötnin og
heita vatnið ótrúlegt.
Við heimsóttum helstu orku-
stofnanirnar, þar var ekki ein-
göngu um að ræða glæsileg og
falleg húsakynni, en hugvitið,
þekkingin og fagleg leit að úr-
lausnum hreif rússnesku vini
mína gjörsamlega upp úr skón-
um. í upphafi ferðar fræddi ég
þá svolítið um land og þjóð,
hverjir væru aðalatvinnuvegir
og helstu útflutningsvörur. Eftir
heimsóknir til orkufyrirtækj-
anna, verkfræðideild Háskólans
og upp í Gufunes, þar sem við
litum augum nýju vetnisvélina,
vildu þeir fá að leiðrétta mig,
hvað varðaði mikilvægustu út-
flutningsafurð okkar íslendinga,
„það er ekki fiskurinn, auðvitað
er það þekkingin, hugvitið, þið
eigið stórkostlega vísindamenn
og sérfræðingasveit."
Umræður hófust um mennta-
kerfið okkar, það hlyti að vera
gott, hvort ekki væri góður
skilningur á mikilvægi rann-
sókna og tilrauna, vel búið að
vísindamönnum sem gæfu af sér
svo stórkostlegar niðurstöður og
afurðir. Næst snerist umræðan
um heilbrigðiskerfíð, ég sagði
þeim frá almennri heilbrigðis-
þjónustu og eftirliti, sérfræðing-
um á heimsmælikvarða, sjúkra-
stofnunum með nýjustu rann-
sóknartækjum, benti þeim á fal-
legar byggingar, þar sem fólk á
efri árum hefur komið sér fyrir
{ glæsilegum íbúðum, en ég
sleppti öllu sem við kom niður-
skurði og lokuðum deildum.
Lögregluþjónar
óþarfir í Paradís
Þeir sáu engan lögregluþjón
og engan lögreglubíl, héldu að
slíkt væri óþarfi S þessari Para-
dís, en þegar við ókum niður
Laugaveginn, kom ég auga á
lögregluþjón á rölti og benti
þeim á, þeir hrópuðu upp yfir
sig, að þarna væri íslenski lög-
regluþjónninn, sá eini sanni. Eg
kom aðeins inn á ýmis vandamál
sem gerðu lögreglu og eftirlit
mjög svo nauðsynlegt, en þeir
lögðu ekki eyru við slíku, töldu
ótrúlegt að nokkur vandamál
þrifust í þessu tæra lofti.
Þegar við ókum Reykjanes-
brautina á leið okkar að Svarts-
engi, blasti ein brotajárnshrúg-
an við, við Stálverksmiðjuna,
ég benti þeim á bláma hafsins
á hægri hönd og fallega liti
mosavaxins hraunsins, hélt at-
hygli þeirra fanginni þar til
ósköpin voru að baki. Bláa lónið
er lítill ævintýraheimur, sem
fær ímyndunaraflið á flug og
að sitja við glugga veitinga-
hússins þar eftir góða kvöld-
máltíð og sjá sólina setjast, lit-
brigðin dansa um hraunið og
gufustrókana, ógnandi og
dularfulla, lætur tímann stöðv-
ast, rétt eins og augnablikið
ætli að vara að eilífu, slíkar
stundir geymast vel í minning-
askjóðunni.
Niðurstaða þessara ágætu
gesta, eftir þeirra fyrstu heim-
sókn til íslands og vonandi ekki
þeirrar síðustu, var reyndar sú,
að í þessu stórbrotna, fallega
landi, byggi dugmikil þjóð sem
hafði fyrir löngu gert sér grein
fyrir, að undirstaða velmegunar
er heilbrigt fólkt, vel menntað,
rannsóknir og tilraunir og upp-
skeran er framleiðsla með hátt
gæðastig, framfarir, umhverfís-
væn orka og mikil virðing fyrir
náttúrunni og auðlindunum.
Vonandi hefur Moskva tekið
vel á móti þeim, vonandi hefur
þetta litla tækifæri til að
skyggnast um í undraheimi okk-
ar Islendinga, fært þeim nýjar
hugmyndir, sem allar stefna á
eitt, hvar sem er í heiminum,
að byggja upp fallegra og betra
mannlíf, með virðingu fyrir land-
inu og auðlyndum þess.